Grace in Lace |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Kjóll heklaður ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og stuttum ermum úr DROPS Safran. Stærð S - XXXL.
DROPS 175-30 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GATAMYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. A.2 sýnir hvar umferðin byrjar og endar þegar A.1 er heklað (A.2 kemur í viðbót við A.1, þ.e.a.s. A.2 kemur ekki í stað fyrstu lykkju). HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Hver umferð með fastalykkjum byrjar með 1 loftlykkju, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar. Umferð 2 og 5 í A.3 byrjar með 3 loftlykkjum, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. MYNSTUR-1 (á við um fram- og bakstykki): Heklið A.3. Þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru heklaðar 5-6-8-9-10-11 umferðir með 1 stuðli í hvern stuðul, heklið síðan A.3 einu sinni til viðbótar. ÚTAUKNING-/ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 258 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 15) = 17,2. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 17. hverja lykkju. Ef á að fækka lykkjum þá eru heklaðar 16. og 17. hver lykkja saman. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. ÚTAUKNING-2: Heklið þar til 2 stuðlar/loftlykkjur eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 stuðla í/um næsta stuðul/loftlykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið 1 stuðul í/um hvern og einn af næstu 2 stuðlum/loftlykkjum, prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa stuðla/loftlykkja, heklið 2 stuðla í/um næsta stuðul/loftlykkju (= 1 stuðull fleiri). Endurtakið útaukningu við hvert prjónamerki. ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 næstu stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin þá er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan og heklað er ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Heklið 146-146-155-155-163-163 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Safran og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: Heklið 3 loftlykkjur – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 stuðull í hverja af næstu 5-5-0-0-1-1 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina = 126-126-133-133-140-140 stuðlar (meðtaldar 3 loftlykkjur í byrjun umferðar). Heklið síðan A.1 hringinn (= 18-18-19-19-20-20 mynstureiningar 7 lykkjur – A.2 sýnir hvernig hver umferð í A.1 byrjar og endar og kemur sem viðbót til A.1). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í síðustu umferð í A.1 eru sett 8 prjónamerki í stykkið og heklað þannig: Heklið eins og útskýrt er í mynsturteikningu og aukið út eins og útskýrt er frá að neðan – LESIÐ ÚTAUKNING-1: Heklið 29-29-31-31-33-33 stuðla og aukið út 0-0-0-1-0-0 stuðla jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki í stykkið, heklið 4 stuðla og aukið út 2-4-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, heklið 42-42-44-44-46-46 stuðla og aukið út 0-1-1-2-1-1 stuðla jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki, heklið 4 stuðla og aukið út 2-4-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki (= ermi), heklið 58-58-62-62-66-66 stuðla og aukið út 0-0-0-2-0-0 stuðla jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki, heklið 4 stuðla og aukið út 1-4-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki (= framstykki), heklið 42-42-44-44-46-46 stuðla og aukið út 0-1-1-2-1-1 stuðla jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki, heklið 4 stuðla og aukið út 1-4-4-4-4-4 stuðla, setjið 1 prjónamerki (= ermi), heklið 29-29-31-31-33-33 stuðla og aukið út 0-0-0-1-0-0 stuðla jafnt yfir (= hálft bakstykki) = 222-234-246-252-258-258 stuðlar í umferð. Stykkið mælist ca 9 cm. Heklið 0-0-0-0-2-2 umferðir með 1 stuðul í hvern stuðul og aukið út 0-0-0-0-12-15 stuðla jafnt yfir í hverri umferð – LESIÐ ÚTAUKNING-/ÚRTAKA (= 0-0-0-0-24-30 stuðlar alls) = 222-234-246-252-282-288 stuðlar. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Endurtakið A.3 alls 37-39-41-42-47-48 sinnum á breidd. Í 2. umferð (þ.e.a.s. umferð með stuðlum) aukið út við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-2 og aukið út 2-8-8-8-8-8 stuðla jafnt yfir í umferð (= 2 stuðlar fleiri við hvert prjónamerki og 2-8-8-8-8-8 stuðlar útauknir jafnt yfir = alls 18-24-24-24-24-24 stuðlar fleiri í umferð) = 240-258-270-276-306-312 stuðlar. A.3 er endurtekið nú 40-43-45-46-51-52 sinnum á breidd. Endurtakið útaukningu í síðustu umferð A.3 (þ.e.a.s. 2 stuðlar fleiri við hvert prjónamerki og 2-8-8-8-8-8 stuðlar fleiri jafnt yfir = alls 18-24-24-24-24-24 stuðlar fleiri í umferð)= 258-282-294-300-330-336 stuðlar. * Heklið 1 umferð með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul. Heklið 1 umferð stuðla og aukið út 18-18-16-17-24-26 stuðla jafnt yfir *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2-3-2-3 sinnum = 276-300-326-351-378-414 stuðlar. Heklið 0-1-1-0-1-0 umferðir með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul. Stykkið mælist ca 17-18-19-20-21-22 cm. Í næstu umferð er heklað þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 39-43-47-51-57-64 stuðlunum (= hálft bakstykki), heklið 8 loftlykkjur, hoppið yfir 60-64-69-73-75-79 stuðla frá fyrri umferð (= ermi), 1 stuðull í hvern af næstu 78-86-94-103-114-128 stuðlum (= framstykki), 8 loftlykkjur, hoppið yfir 60-64-69-73-75-79 stuðla frá fyrri umferð (= ermi), 1 stuðull í hvern af síðustu 39-43-47-51-57-64 stuðlum (= hálft bakstykki) = 172-188-204-221-244-272 stuðlar/loftlykkjur í umferð. Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í umferð, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið 1 umferð með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul/loftlykkju. Heklið 1 umferð til viðbótar með 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið JAFNFRAMT um 4-2-0-5-4-2 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING/ÚRTAKA og ÚRTAKA = 168-186-204-216-240-270 stuðlar. Heklið nú MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9-10-11-12-13-14 cm, passið að næsta umferð sé umferð með stuðlum, fækkið um 6-12-12-6-6-6 l jafnt yfir = 162-174-192-210-234-264 stuðlar. Haldið áfram með mynstur-1. Þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm aukið út um 6 stuðla jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING/ÚRTAKA og ÚTAUKNING-1. Aukið svona í 3. hverri umferð alls 12-12-12-12-14-14 sinnum = 234-246-264-282-318-348 stuðlar. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm frá prjónamerki (allur kjóllinn mælist ca 71-74-77-80-83-86 cm), heklið A.3 hringinn. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka er hekluð 1 umferð með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul. Heklið síðan 1 umferð með fastalykkjum með 1 fastalykkju í hvern stuðul. Klippið frá og festið enda. Kjólinn mælist ca 76-79-82-85-88-91 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fastalykkju í 5. loftlykkju á 8 loftlykkjum sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki, heklið 3 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 3 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul yfir ermi, heklið 1 stuðul í hverja og eina af þeim 4 loftlykkjum sem eftir eru undir ermi = 68-72-77-81-83-87 stuðlar í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! STÆRÐ S + M: Heklið 1 umferð með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið JAFNFRAMT um 2-0 stuðla jafnt yfir = 66-72 stuðlar. STÆRÐ L + XL + XXL + XXXL: Heklið 1 umferð með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul og aukið JAFNFRAMT út 1-3-1-3 stuðla jafnt yfir = 78-84-84-90 stuðlar. ALLAR STÆRÐIR: = 66-72-78-84-84-90 stuðlar. Heklið stuðla í hring með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist ca 3 cm frá prjónamerki í öllum stærðum. Heklið A.3 hringinn. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka er hekluð 1 umferð með stuðlum í hvern stuðul. Heklið síðan 1 umferð fastalykkjur með 1 fastalykkju í hvern stuðul. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. HÁLSMÁL: Heklið fram og til baka frá miðju að aftan – ATH: Heklað er í loftlykkjur þar sem stuðlar voru heklaðir, en ekki hekla í loftlykkjur sem hoppað var yfir = 126-126-133-133-140-140 lykkjur. Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 16-16-18-18-20-20 lykkjum, * 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 tvöfaldur stuðull í hverja af næstu 19 lykkjum, 1 stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum *, 1 fastalykkja í hverja af næstu 32-32-35-35-38-38 lykkjum, endurtakið frá *-* 1 sinni og heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af síðustu 16-16-18-18-20-20 lykkjunum. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 20-20-22-22-24-24 lykkjum, ** 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, * heklið næstu 2 tvöfalda stuðlana saman *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar, 1 stuðul í hverja af næstu 3 lykkjur, 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 3 lykkjur **, 1 fastalykkja í hverja af næstu 38-38-41-41-44-44 lykkjur, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar og endið með 1 fastalykkju í hverja af síðustu 20-20-22-22-24-24 lykkjum = 114-114-121-121-128-128 lykkjur. Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (122)
Wanda F wrote:
Why does the schematic only have two measurements for the neck when there are 3 different amounts for the starting chain?
19.05.2024 - 22:13DROPS Design answered:
Dear Wanda, 20-26cm is not an exact measurement; it means that the neck edge should measure between 20 and 26cm for all sizes. Happy crochetting!
20.05.2024 - 00:36Jitka Stejskalová wrote:
Moc Vám děkuji a přeji krásné dny.
07.05.2024 - 07:01Jitka Stejskalová wrote:
Dobrý den, nechystá se video na tito nádherné šaty. Děkuji moc za odpověď.
06.05.2024 - 13:10DROPS Design answered:
Dobrý den, Jitko, pár video-ukázek už k těmto šatům a použitému vzorku máme - koukněte prosím na záložku VIDEA pod nadpisem ;-) Příjemné háčkování! Hana
06.05.2024 - 16:36JL wrote:
Pattern 175-30 Grace in Lace\r\nThis pattern is worked from the top down, do I still work the diagrams from the bottom up?
29.04.2024 - 21:37DROPS Design answered:
Dear JL, yes, the diagrams are always worked from bottom up, they show the apttren from the right side (unless specifically stated otherwise). Happy Crafting!
29.04.2024 - 22:20Alecia Flores wrote:
Your reply to Ms. Bauer 'there are now 6dc over 4 dc from the previous round' has confused me. The pattern has the increases on the last row of A1, should I complete the last row with the 4dcs per ch5 sp and do increases on the next row?
17.10.2023 - 22:34DROPS Design answered:
Dear Mrs Flores, the increases in A.1 are evenly distributed between first and last row, you start working A.1 over 7 sts and repeat whole diagram all the round (insert marker between each repeat can help you keeping tracking); and you should have 3 chain-spaces in each A.1 on the next to last round. Work then last round (4 dc in each ch-space) increasing evenly as explained in the written pattern (you might have then more than 4 dc in some ch-spaces). Happy crocheting!
18.10.2023 - 08:27Alecia Flores wrote:
I submitted a questions, & got a note it was too long. I used all the characters allowed, so what happened to my question?
17.10.2023 - 08:31Marthe81 wrote:
Hei! Når man skal hekle bol og armer, står det at disse skal hekles hver for seg. Men, de 8 luftmaskene, skal det hekles i de både på bolen, og etterpå når det skal hekles i ermene, altså at man hekler både på "oversiden og undersiden"?. Hvis ikke forstår jeg ikke hvordan det skal hekles for å bli pent/riktig?
31.07.2023 - 10:45DROPS Design answered:
Hej Marthe, se videoen nederst i opskriften hvordan du deler arbejdet og fortsætter bolen for sig først og så ærmerne :)
07.08.2023 - 11:36Paula Terreur wrote:
Halsrand (XL) : de eerste 22 steken, moet 24 steken worden en ook op het einde. Totaal steken = 123 steken.
29.07.2023 - 11:36Bianca Nägeli wrote:
Hallo Grösse S: Ich bin bei der letzten Reihe von A1. Ich verstehe die Zunahmen nicht. 29 M (etwas mehr als 2 Rapporte) häkeln, danach 0 Zunahmen, danach 4 M häkeln und 2 M verteilt zunehmen = halbes Rückenteil? Gemäss Maschenanzahl wäre doch das halbe Rückenteil erst nach 4,5 Rapporten? Ich verstehe es nicht.
12.06.2023 - 09:25DROPS Design answered:
Liebe Frau Nägeli, hier zählen Sie nicht die Rapporte, nur die Maschen, dh häkeln Sie zuerst die ersten 29 Stäbchen (= halbes Rückenteil), dann häkeln Sie 4 Stäbchen aber gleichzeitig nehmen Sie 2 Stäbchen regelmäßig verteilt (es sind jetzt 6 Stb über 4 Stb), usw, dh häkeln Sie einfach die letzte Reihe A.1 aber ohne die Rapporte zu zählen, nur die Maschen. Viel Spaß beim häkeln!
12.06.2023 - 13:35Cindy wrote:
Beste, heb het gevonden. Het is dus 5 maal dubbele stokjes samen haken, dus van * tot * en niet van ** tot *. Ik was wat verward daar. (Even ter correctie van mijn vorig bericht. ) Met vriendelijke groet Cindy
03.05.2023 - 01:58