Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= natur | |
= beige | |
= kirsuberjarauður | |
= sægrænn | |
= gulur | |
= pistasíu | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo að ekki myndist gat |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Prairie Fairy |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð jakkapeysa með hringlaga berustykki og norrænu mynstri úr DROPS Lima. Stærð börn 3-12 ára
DROPS Children 27-5 |
||||||||||||||||||||||
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef mynstrið herpist saman. -------------------------------------------------------- PEYSA: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 84-88-92-96-100 l á stutta hringprjóna nr 3 með beige. 1 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l garðaprjón. Prjónið stroff í 3-3-4-4-5 cm (= kantur í hálsmáli). Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt jafnframt sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 81-87-93-101-108 l. Setjið 1 prjónamerki eftir 40-43-46-50-54 l (= miðja að aftan). Prjónið síðan upphækkun að aftan í sléttprjóni þannig: Prjónið 8 l sl framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16 l br til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24 l sl, snúið við og haldið áfram að prjóna yfir 8 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við og þar til prjónað hefur verið yfir 24-24-32-32-40 l hvoru megin við prjónamerki við miðju að aftan, snúið við og prjónið sl út umf, prjónið 1 umf br til baka. Prjónið síðan þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 13-14-15-14-15 mynstureiningar á breidd) endið á fyrstu l í mynstri og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð! LESIÐ LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á lengri hringprjóna eftir þörf. Þegar A.1 er lokið eru 211-227-243-255-273 l á prjóni. Prjónið 0-1-2-0-1 cm með beige. Stykkið mælist nú ca 15-16-17-17-18 cm fyrir miðju að framan (mælt án stroffs í hálsi). Stykkið er nú prjónað með beige og sléttprjóni. Fyrst er prjónuð 1 umf JAFNFRAMT er aukið út um 3-3-3-11-9 l jafnt yfir = 214-230-246-266-282 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 32-34-36-38-40 l (= framstykki), setjið næstu 44-48-52-58-62 l á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar l, prjónið 62-66-70-74-78 l (= bakstykki), setjið næstu 44-48-52-58-62 l á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar l, prjónið 32-34-36-38-40 l (= framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 138-146-154-162-170 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýju 6 l sem fitjaðar voru upp. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 l garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin (4 l fleiri). Aukið út með 7-9-10-12-13 cm millibili alls 3 sinnum = 150-158-166-174-182 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 19-23-26-29-32 cm. Prjónið A.2 með eina kantlykkju í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 14 l jafnt yfir = 164-172-180-188-196 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan þannig: 1 l garðaprjón, 2 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l garðaprjón. Prjónið stroff í 3 cm. Fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. ERMI: Setjið l af öðrum þræðinum á sokkaprjóna nr 4, fitjið að auki upp 6 l mitt undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt í þessa l) = 50-54-58-64-68 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með beige. Þegar ermin mælist 2 cm, fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið úrtöku með 4½-3½-4-3-3½ cm millibili alls 5-7-7-10-10 sinnum = 40-40-44-44-48 l. Þegar ermin mælist 18-23-27-30-34 cm, prjónið A.2, skiptið síðan yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 3 cm, fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið alveg eins yfir l af þræði í hinni hliðinni. KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp frá réttu ca 84 til 118 l meðfram hægra framstykki innan við 1 kantlykkju á hringprjóna nr 3 með beige. Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 102-110-118-130-142 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: * 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir og endið með 2 l sl og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. JAFNFRAMT eftir 1 cm er fellt af fyrir 6-6-7-7-7 hnappagötum jafnt yfir. 1 hnappagat = prjónið 2 l slétt saman og sláið uppá prjóninn (fallegast er að fella af í 2 l br séð frá réttu). Efsta hnappagatið á að vera ca 1 cm frá kanti í hálsi og neðsta 8-8-10-10-10 cm frá neðri kanti. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar kanturinn mælist 3 cm. Endurtakið meðfram vinstra framstykki, nema ekki fella af fyrir hnappagötum á vinstri kanti að framan. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (23)
Ruth wrote:
Hallo, wenn ich den Rand kraus rechts stricke, rollt er sich ein. Was kann ich gegen das Einrollen tun? // Hi there, I am doing a garter stitch at the end of each row. The cardigan now rolls itself inwards at the end of each row. What can I do about it? Thanks, best, Ruth
09.12.2023 - 09:41DROPS Design answered:
Liebe Ruth, danach werden Sie die Maschen für die Blende auffsassen, dann wird der Rand nicht mehr rollen. Viel Spaß beim stricken!
11.12.2023 - 10:02Jane Milton wrote:
I'm knitting thin in the smallest size. After the yoke A1 pattern, and I have begun the body, the instructions say to knit 3cm then do the increases. Then it says to increase every 7cm three times. in my counting, this means that there would be 3+21 cm, a total of 24 cms. However, the instructions say to continue after the last increase until piece measures 19cm. I'm confused as that is a 5cm difference! Can you please clarify the instructions for me?
17.02.2023 - 23:08DROPS Design answered:
Dear Jane, you increase for the first time when the piece measures 3 cm and every 7 cm 2 more times (so you have increased 3 times in total; 138 + 12 (= 4 increases 3 times) = 150 sts. So, after the increases, the piece will measure 3+7+7= 17 cm. That is, you will have to work 2 cm more after the last increase. Happy knitting!
19.02.2023 - 22:22Poonam Kirpal wrote:
How much should be the length of the bodice after A1 pattern for adults say Height 5 ft 3 inches
06.06.2022 - 12:23DROPS Design answered:
Dear Poonam, we don't make custom patterns. You can check a similar pattern for adults here: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=7107&cid=19. Happy knitting!
06.06.2022 - 13:33Marie wrote:
Placer 1 marqueur de chaque côté, au milieu des 6 nouvelles m montées. Continuer en jersey avec 1 m point mousse de chaque côté. À 3 cm, augmenter 1 m de chaque côté des marqueurs (= 4 augmentations). je ne comprends pas pour les marqueurs et augm, doit on poser un marq, 3mailles,un marqueur,3 mailles ,1marqueurs,les augmentations se font au mileu des 6 m? Merci pour votre aide
26.01.2022 - 17:07DROPS Design answered:
Bonjour Marie, cette leçon montre comment tricoter un pull de haut en bas; et notamment à partir de la photo 17 comment reprendre les manches, monter les mailles sous la manche (18A) et diminuer (21, 22) au milieu sous la manche (cf cette vidéo). Bon tricot!
26.01.2022 - 17:19Marianne Plaskett wrote:
I can see the rows where I have to increase the number of stitches but there is no instruction on how many stitches need to be increased. I have read the pattern several times and cannot find the details about increasing.
19.02.2021 - 13:20DROPS Design answered:
Dear Mrs Plasket, when working diagram A.1, the increases are drawn in the diagram (with the last symbole = a yarn over made either at the beg or at the end of a repeat). This means you just have to work the diagram appropriate to the size increasing as the diagram is showing. Hope this helps. Happy knitting!
19.02.2021 - 15:09Berit Forsberg Tripkou wrote:
I can not print the whole diagram for DROPS Children 27-5. It is just coming the first 11 rows, That is making the whole knitting a little bit complex. It is not easy to read the pattern if I take a photo from the picture at the computer,,, So can you tell me what is wrong. I have tried 2 times to print the whole diagram...
31.10.2020 - 20:05DROPS Design answered:
Dear Mrs Forsberg Tripkou, we could print this pattern succesfully (in Swedisch and in English) - remember to check that some previous settings weren't savec and do not allow you to print all pages. Happy knitting!
02.11.2020 - 08:07Mary wrote:
I’m on row 12 in A1 size 7/8 the pattern does not work for me if I finish the previous row with the last two stitches being the first stitch in diagram and a garter stitch. Any tips as to what I’m doing wrong?
12.02.2020 - 12:54DROPS Design answered:
Dear Mary, do you have 10 sts in each A.1 (= 1 edge st, 15 x 10 sts (A.1), 1st st in A.1, 1 edge st = 153 sts on needle)? 12th row should be a WS row, this means you work: 1 edge st, 1st st in A.1 (= P with off-white), then repeat A.1 (= P1 with beige, P2 with off white, P3 with beige, P2 with off white, P1 with beige, P1 with off white) , 1 edge st in garter st. Hope this can help you. Happy knitting!
12.02.2020 - 14:38Götze Sigrid wrote:
Könnte ich die Wolle bei Ihnen kaufen für diesen Pulli in Gr. 104. Gleiche Farbe wie angegeben.
13.11.2019 - 12:58DROPS Design answered:
Liebe Frau Götze, hier finden Sie einen DROPS Laden in Deutschlang, wo Sie die Wolle finden können. Viel Spaß beim stricken!
13.11.2019 - 13:59Evelyn wrote:
I am trying to knit this pattern, however, I don’t understand the first parts of starting the chart. IE; knit 1 edge stitch, A1 chart.....(finish with a knit first stitch from chart and 1 edge stitch. I have tried and the second row doesn’t work.
06.04.2019 - 05:40DROPS Design answered:
Dear Evelyn, for the jacket from RS work: 1 edge st in garter stitch, then repeat A.1 (reading diagram from the bottom corner on the right side towards the left) until 2 stitches remain, work now the first stich in A.1 (the stitch on the right side) and finish with 1 edge stitch. From WS work the first stitch in A.1 (the one on the right side), then repeat A.1 reading from the left towards the right. Learn more about reading diagrams here. Happy knitting!
08.04.2019 - 09:13Annie wrote:
Ce très beau modèle existe t il pour femme ? Merci
09.02.2019 - 18:30DROPS Design answered:
Bonjour Annie, pas avec le même motif exactement, mais vous pourrez probablement vous inspirer d'un des modèles jacquards femme pour l'adapter. Bon tricot!
11.02.2019 - 08:56