-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir | |
= sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja | |
= prjónstefna |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Passing Storm |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónað poncho og eyrnaband með gatamynstri, prjónað á ská úr 1 þræði DROPS Cloud eða 2 þráðum DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 173-34 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. STUTTAR UMFERÐIR: 1. umferð byrjar frá neðri kanti. UMFERÐ 1-2: Prjónið að 1. prjónamerki, snúið við og prjónið til baka. UMFERÐ 3-4: Prjónið 2 umf yfir allar l. UMFERÐ 5-6: Prjónið að 2. prjónamerki, snúið við og prjónið til baka. UMFERÐ 7-8: Prjónið 2 umf yfir allar l. UMFERÐ 9-10: Prjónið að 3. prjónamerki, snúið við og prjónið til baka. UMFERÐ 11-12: Prjónið 2 umf yfir allar l. UMFERÐ 13-14: Prjónið að 3. prjónamerki, snúið við og prjónið til baka. UMFERÐ 15-16: Prjónið 2 umf yfir allar l. STL L/XL- XXL/XXXL ( UMFERÐ 17-18): Prjónið að 2. prjónamerki, snúið við og prjónið til baka. Endurtakið umf 1 til 16-18-18. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar. Stykkið er prjónað frá hlið og saumað saman í lokin. PONCHO: Fitjið LAUST upp 44-48-56 l á hringprjóna nr 8 með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Air. Prjónið 1 umf slétt yfir allar l. Snúið við, setjið síðan 3 prjónamerki í stykkið frá neðri kanti þannig (án þess að prjóna): 1. prjónamerki eftir 16-18-28 l, 2. prjónamerki eftir næstu 12-13-12 l, 3. prjónamerki eftir næstu 10-11-10 l, nú eru 6 l á eftir síðasta prjónamerki. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 (veljið mynstur fyrir rétta stærð), * A.2, A.3 *, endurtakið frá *-* 1-1-2 sinnum til viðbótar, A.2, A.1, endið með 6 l garðaprjón (= hálsmál) – JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 2 umf með mynstri eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist ca 68-74-84 cm við hálsmál og ca 139-167-191 cm neðst niðri – stillið af eftir eina heila eða hálfa mynstureiningu af A.2 á hæðina (= umf 10 eða síðasta umf), fellið LAUST af. FRÁGANGUR: Saumið uppfitjunarkant og affellingarkantinn kant í kant – saumið í ysta lykkjubogann svo að saumurinn verði flatur. ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. EYRNABAND: Fitjið upp 12 l á prjóna nr 8 með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Air. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið frá réttu þannig: 2 l garðaprjón, A.2 (byrjið á 2. umf í mynstri), endið með 2 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 48-50-52 cm – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan 2 umf garðaprjón. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið uppfitjunarkant og affellingarkantinn kant í kant – saumið í ysta lykkjubogann svo að saumurinn verði flatur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (26)
Mette Laszkiewicz wrote:
Do you count the 6 neck garter stiches and the 2 bottom garder stiches into your work? That is do you ever do short rows over the garter stiches ?
11.09.2022 - 19:23DROPS Design answered:
Dear Mrs Laszkiewicz, when inserting the markers you should count all stitches - then when working short rows, just turn where you inserted the markers. Happy knitting!
12.09.2022 - 11:18Vella wrote:
Bonjour Je ne suis pas sûre de bien avoir placé les 3 marqueurs. Sur les 2 premiers rgs raccourcis on doit tricoter jusqu'au 1er marqueur soit 16 mailles pour moi y compris les 6 mailles d'encolure. Est-ce exact ? À quoi correspondent les 6 mailles après le 3ème marqueur ? Merci
14.01.2022 - 16:11DROPS Design answered:
Bonjour Mme Vella, les marqueurs sont placés sur l'endroit, autrement dit le 1er marqueur se trouve à 16 mailles (1ère taille) du bas, et le dernier à 6 mailles du haut (côté encolure). Vous allez tricoter davantage de rangs sur le bas du poncho: en commençant sur l'endroit, tricotez 16 mailles, tournez et tricotez ces 16 mailles sur l'envers, tricotez 2 rangs sur toutes les mailles, etc.. Bon tricot!
14.01.2022 - 16:53Vella Chantal wrote:
Bonjour, Quand faut-il commencer le 1er rang raccourci ? au 3ème rang du travail depuis le montage ou au 4è rang ? Si je comprends bien : Le 1er rang du travail = les 44 m endroit. Le 2ème rang du travail = 1er rang des diagrammes sur les 44 m Et après on commence les rangs raccourcis (le 3ème rg) mais alors pourquoi faut il 2 rangs de diagrammes ? Merci
10.01.2022 - 18:39DROPS Design answered:
Bonjour Mme Vellal, tricotez d'abord 2 rangs des différents points (point mousse, A.1, A.2, A.3) sur toutes les mailles et commencez les rangs raccourcis au rang suivant. La séquence des rangs raccourcis se termine toujours par 2 rangs sur toutes les mailles, on va donc commencer ainsi. Bon tricot!
11.01.2022 - 08:47Vella Chantal wrote:
Bonjour, Quand on fait les rangs raccourcis et qu'on retourne le travail pour le rang suivant, faut-il emballer la maille voisine avant de tourner ou faut-il ne rien faire pour laisser le jour se faire au moment où on tourne le travail ? Merci
11.11.2021 - 20:17DROPS Design answered:
Bonjour Mme Vella, c'est une question de choix, la maille n'a pas été emballée dans le modèle où c'est la technique de base des rangs raccourcis qui a été utilisée, mais libre à vous de les emballer si vous préférez. Bon tricot!
12.11.2021 - 07:40Monica wrote:
Buongiorno... Volevo gentilmente chiedere, quando dice " allo stesso tempo, dopo aver lavorato due ferri del motivo, lavorare a ferri accorciati". I due ferri del motivo sono i primi ferri del diagramma A.2? Grazie mille e buona giornata. 😊
24.03.2021 - 05:46DROPS Design answered:
Buonasera Monica, per "due ferri" si fa riferimento alla lavorazione dei motivi come stabilito. Buon lavoro!
24.03.2021 - 20:05Rosa wrote:
Me encanta este patrón, y llevo varios dias intentando hacerlo y no soy capaz. No entiendo el patrón. Por favor como y de q manera se introducen las vueltas cortas? A que se refieten con la expresion "orilla inferior" cuando se comienzan las vueltas cortas , cual es el primer marcador? Perdonen q me extienda tanto , pero es q de verdad q esta complicado. Gracias por su atención.
13.03.2020 - 21:18DROPS Design answered:
Hola Rosa. Bajo el patrón tienes la selección de vídeos que te puede ayudar a elaborar la prenda. También puedes consultar con las tiendas de Drops más cercanas por teléfono o email para obtener ayuda especializada.
15.03.2020 - 22:01Martine wrote:
Le schéma A2 à 20 rang, mais l'on doit faire de 1 à 18... Comment peut on faire le dessin au complet si on arrête à 18 ( je fais le L/XL)
01.03.2020 - 17:25DROPS Design answered:
Bonjour Martine, les rangs raccourcis se tricotent indépendamment des rangs du point ajouré, autrement dit, tricotez A.2 sur les mailles concernées, au rang suivant concerné par le motif, chaque A.2 ne va pas "augmenter" en même temps, notez bien à quel rang vous en êtes de chaque A.2 pour bien répéter les motifs en hauteur sur le bon nombre de rangs. Bon tricot!
02.03.2020 - 10:47Daguenet wrote:
Bonjour , je suis les instructions du modèle , j'ai placé mes marqueurs , je fais mes 2 rangs qui corresponds au point mousse et je commence le diagramme qui se termine par les 6 m points mousse après il y a écrit EN MËME TEMPS quand 2 rangs points fantaisie ont été tricotés ,tricoter rangs raccourcis . cela veut dire de faire le diagramme et le rangs raccourcis en même temps ? comment on peux suivre 2 choses ? et quelle est se points fantaisie ? merci
04.01.2020 - 16:09DROPS Design answered:
Bonjour Mme Daguenet, les rangs raccourcis vont vous permettre d'obtenir la forme souhaitée = plus de rangs en bas (bas du poncho) et moins de rangs (côté encolure); les différents diagrammes vont être ainsi tricotés à un rythme différent en fonction des rangs raccourcis, mais ils doivent être tricotés comme dans le diagramme (chaque A.2 doit faire 20 rangs en hauteur, même si vous ne le tricotez pas à chaque fois). Bon tricot!
06.01.2020 - 07:54Christine wrote:
Aber dann ist man doch in den verkürzten Reihen weiter als beim Rest, oder habe ich da einen Denkfehler?
02.01.2019 - 15:46DROPS Design answered:
Liebe Christine, also ja, Sie stricken Diagram weiter über die gestrickten Maschen aber die unterschiedlichen A.2 in der Breite werden einen unterschiedlichen Anzahl in der Höhe wiederholt (= mehr am Anfang der Reihen, wo man mehr Reihen strickt = untereren Rand als oben am Hals). Viel Spaß beim stricken!
02.01.2019 - 15:52Christine wrote:
Hallo, wie verhält es sich mit dem Muster in den verkürzten Reihen? Das verschiebt sich,oder ? Bitte um Hilfe !!!
02.01.2019 - 14:29DROPS Design answered:
Liebe Christine, das Muster stricken Sie über die gestrickten Maschen in den verkürzten Reihen, dh einfach das Muster weiterstricken, wenn Sie die Maschen in A.2 stricken. Viel Spaß beim stricken!
02.01.2019 - 15:05