DROPS Belle uni colour 53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör |
638.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Belle uni colour 53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör 638.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= sl | |
= br | |
= 2 l slétt saman | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Making Waves |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Belle með röndum og öldumynstri, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 169-12 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.14. RENDUR: Prjónið rendur þannig: Skiptið um lit eftir umf sem prjónuð er brugðin. Uppfit að 10 cm: natur 10 cm að 21-22-22 cm: fífill 21-22-22 cm að 32-34-35 cm: silfurgrár 32-34-35 cm að 43-46-48 cm: beige 43-46-48 cm að 54-58-61 cm: ljós beige 54-58-61 cm að 66-70-74 cm: malva 66-70-74 cm að 78-82-86 cm: silfurgrár ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. KJÓLL: Fitjið upp 98-112-140 l á stutta hringprjóna nr 4 með litnum natur. Prjónið eftir A.1 (= 14-16-20 mynstureiningar á breiddina) og prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 322-368-460 l á prjóni. Skiptið yfir á stóra hringprjóna eftir þörf. Haldið áfram með A.2 þar til stykkið mælist 18-20-22 cm. Prjónið síðan þannig: Prjónið 92-115-138 l (= bakstykki), setjið næstu 69-69-92 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l, prjónið næstu 92-115-138 l (= framstykki), setjið næstu 69-69-92 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l. FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: = 200-246-292 l. Haldið áfram með A.2 yfir l í öldumynstri, yfir 8 nýjar l í hvorri hlið er prjónað sl þegar prjónar er sl í mynstri og br þegar prjónað er br í mynstri. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 l mitt í þeim 8 nýju l í hvorri hlið (= 4 l færri), endurtakið úrtöku með 4 cm millibili 3 sinnum til viðbótar svo að allar 8 nýju l hefur verið fækkað = 184-230-276 l. Haldið áfram með A.2 yfir allar l (= 8-10-12 mynstureiningar á breiddina). Þegar stykkið mælist 38-40-42 cm frá öxl er A.3 prjónað 1 sinni á hæðina = 200-250-300 lykkjur. Prjónið A.4 2 sinnum á hæðina. Prjónið A.5 1 sinni á hæðina = 216-270-324 l. Prjónið A.6 2 sinnum á hæðina. Prjónið A.7 1 sinni á hæðina = 232-290-348 l. Prjónið A.8 2 sinnum á hæðina. Prjónið síðan A.9 1 sinni á hæðina = 248-310-372 l. Prjónið A.10 2 sinnum á hæðina. Prjónið A.11 1 sinni á hæðina = 264-330-396 l. Prjónið A.12 2 sinnum á hæðina. Prjónið síðan A.13 1 sinni á hæðina = 280-350-420 l. Prjónið A.14 3 sinnum á hæðina, eða þar til stykkið mælist 78-82-86 cm frá öxl. Fellið laust af. KANTUR ERMI: Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 4 og prjónið upp 1 l í hverja af 8 l undir ermi = 77-77-100 l. Haldið áfram með litinn fífil, prjónið A.2 yfir l í öldumynstri, yfir 8 nýjar l í hvorri hlið er prjónað sl þegar prjónað er sl í mynstri og br þegar prjónað er br í mynstri. Prjónið 2 mynstureiningar af A.2, í hvert skipti sem prjónað er gat og uppsláttur í A.2 er fækkað um 2 l mitt í þeim 8 nýju l mitt undir ermi = 73-73-96 l. Fellið af. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (38)
Francesca Pellencin wrote:
Je souhaite tricoter cette robe, mais en forme trapèze complètement sans réduction à la taille, je ne comprends pas très bien d'après le diagramme comment faire pour ne pas diminuer de mailles à la taille et ré-augmenter ensuite, ce que je veux faire c'est augmenter régulièrement. Pouvez-vous m'indiquer ce qui dans le diagramme correspond à la réduction de largeur pour la taille afin que je puisse l'éviter.
03.06.2024 - 00:36DROPS Design answered:
Bonjour Mme Pellencin, les diminutions pour la taille sont à faire dans A.2 en commençant à 3 cm après la division; vous pouvez donc probablement ajuster vos augmentations à partir de la hauteur souhaitée après la division, en suivant les diagrammes à partir de A.3 pour les augmentations et à partir de la hauteur qui vous convient. Bon tricot!
03.06.2024 - 08:19Marielouise Hallsten wrote:
Ska man sticka mönster över dom 8 maskorna man lagt upp under armen? Jag får det inte att stämma hur än jag gör
31.05.2024 - 13:03DROPS Design answered:
Hei Marielouise. Nei, du fortsetter med A.2 over maskene i bølgemønster, men over de 8 nye maskene i hver side strikkes det rett når det strikkes rett i mønsteret og vrang når det strikkes vrang i mønsteret. Når arbeidet måler 3 cm skal det felles under hvert erme og når alle fellingene er ferdig er de 8 nye maskene borte og det strikkes kun A.2 over alle maskene. mvh DROPS Design
03.06.2024 - 12:00Katalin Alexa Király Broholm wrote:
Tak for en fin opskrift:-) Under ‘Ryg og forstykke’ står der: “Når arb måler 3 cm …” så her måles tydeligvis fra den nye kant under ærmerne. Længere nede står der: “Når arb måler 38-40-42 cm …” Er det fortsat målt fra kanten under ærmet, eller er det målt fra halsudskæringen? Tak fra Katalin
20.05.2024 - 21:55DROPS Design answered:
Hej Katalin, det er fra starten, vi skal skrive det tydeligere i opskriften - tak for info :)
23.05.2024 - 14:28Corina Flake wrote:
I am wondering about the instructions "When piece measures 3 cm / 1'', dec 2 st in middle of the 8 new sts in each side (= 4 sts dec), repeat dec every 4 cm / 1½'' 3 more times so that all of the new 8 sts has been dec." By the 3rd repeat decrease I am left with 1 stitch and only 1 decrease possible. Is there something I am missing or is this correct - should I be left with those extra stitches? How does it factor into the wave pattern?
18.05.2024 - 05:03DROPS Design answered:
Dear Corina, you should have 8 sts in each side, so 16 in total. You decrease 2 in each side, so you should have 6 sts in each side and 12 in total. The next time you decrease 2 in each side again, so you have 4 in each side and 8 in total. Repeat once more; 2 sts in each side and 4 in total. The last time you decrease the 2 remaining sts in each side, so you should have decreased all of the 8 sts in each side and 16 sts in total. Happy knitting!
20.05.2024 - 00:06Lilianne wrote:
I have just finished A.1,do I do the whole of A.2…to A.14
14.06.2023 - 01:38DROPS Design answered:
Dear Lilianne , afer A.1 is done in height, work and repeat A.2 until piece measures 18-20-22 cm (siee size), then divide piece and continue A.2 on body - when piece measures 38-40-42 cm, work A.3 then A.4 2 times in height, then A.5 then A.6 2 times in height, then A.7 then A.8 2 times in height, then A.9, then A.10 2 times in height, then A.11, then A.12 2 times in height, then A.13 and finally A.14 3 times in iehgt. - on sleeves continue A.2. Happy knitting!
14.06.2023 - 08:12BEATRIZ wrote:
Hola, necesito por favor mayor detalle en lo siguiente: 1) el patrón dice: Cuando A.1 ha sido tejido una vez verticalmente : ¿esto quiere decir de abajo para arriba o de arriba para abajo?...¿Cómo puedo leerlo? 2) Qué significa Tejer de acuerdo a A.1 (= 14-16-20 repeticiones a lo ancho). Agradeceré detallen estas dos partes para entender como tejerlo. Saludos!
25.04.2023 - 22:05DROPS Design answered:
Hola Beatriz, 1) verticalmente hace referencia a cuando hayas trabajado todas las filas representadas en el diagrama A.1. Ten en cuenta que la dirección de los diagramas de punto es fija. (leer de derecha a izquierda y de abajo arriba 2) A.1 es el diagrama de punto (que puedes encontrar debajo de las instrucciones del patrón). Las repeticiones a lo ancho son las veces que tienes que repetir el diagrama A.1 en la misma fila. Para entender cómo trabajar nuestros diagramas de punto, puedes leer más información aquí: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=23
30.04.2023 - 22:02Johanna Sjöblom wrote:
Hej, finns det någon liknande modell i barnstorlek?
03.09.2022 - 08:16DROPS Design answered:
Hej, tyvärr finns det ingen modell som är precis lik, men se gärna på DROPS Children 28-1 som påminner lite om modellen ifråga.
04.10.2022 - 16:49Sonja wrote:
Hallo, ich habe mit dem Kleid angefangen, verstehe aber nicht, wie ich von 140 Maschen auf nur 460 Maschen komme, wenn ich durch die Umschläge soviele Maschen zunehme.
28.06.2022 - 12:37DROPS Design answered:
Liebe Sonja, Sie stricken das Diagram A.1 20 Mal in der Runde (=20 Mal 7 Maschen sind 120 Maschen). Dann wird es wie im Diagram gezeigt nach und nach zugenommen, bis es 23 Maschen in jedem A.1 gibt, so haben Sie 20 Mal 23 Maschen =460 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
29.06.2022 - 08:54Jerry wrote:
Hello, on the photo there a 6 repeats of the pattern height= 36 rows, but in the instructions its stated "10 cm in natur". According to the gauge this would be 30 rows- only 5 repeats. There are also 7 repeats in each color=42 rows= 14cm. but in the instructions is stated 13 cm ( e.g. beige largest size :35-48cm)... What is the right way: to follow the instructions or look at the photograph? Is the yarn usage according to the instructions? Thank you , Jerry
10.06.2022 - 11:40DROPS Design answered:
Dear Jerry, you should follow the instructions; the yarn amounts are calculated for the instructions and the correct gauge and the measurement chart below the instructions. We indicate the stopping points in cm instead of rows so as to account for possible differences in the gauge. The photo is simply shown to use as a guide; depending on the size, you will need to work more or less rows of each colour. Happy knitting!
16.06.2022 - 19:51Tina wrote:
Hi, can I make this with Cotton Light please? I bought Cotton Light to make another dress but later decided I preferred this dress- They're from the same yarn group, but I think Cotton Light is a little bulkier than Belle because of the length of yarn per gram...
11.05.2022 - 23:01DROPS Design answered:
Hi Tina, Yarns from the same yarn group can replace each other in the patterns. It is always advisable to do a swatch before beginning, to make sure you have the right knitting tension. Happy crafting!
12.05.2022 - 06:58