DROPS Fabel uni colour 75% Ull, 25% Polyamide |
638.00 kr /50g |
Panta | |
DROPS Fabel 75% Ull, 25% Polyamide |
682.00 kr /50g |
Panta | |
DROPS Fabel long print 75% Ull, 25% Polyamide |
726.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Fabel uni colour 75% Ull, 25% Polyamide 638.00 kr /50g Panta |
|
DROPS Fabel print 75% Ull, 25% Polyamide 682.00 kr /50g Panta |
|
DROPS Fabel long print 75% Ull, 25% Polyamide 726.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= sl frá réttu, br frá röngu | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l | |
= takið 1 l óprjónaða, 1 l slétt, steypið óprjónuðu l yfir | |
= 2 l slétt saman | |
= takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir | |
= 3 l slétt saman |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
At Sundown Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel með öldumynstri og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 168-20 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.15. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð! RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: * 2 umf með turkos/blár, 2 umf með bláfjólublár *, endurtakið frá *-* í 8-8-9 cm. * 2 umf með bláfjólublár, 2 umf með þokumistur *, endurtakið frá *-* í 8-8-9 cm. * 2 umf með þokumistur, 2 umf með turkos/blár, endurtakið frá *-* í 7-8-8 cm. Endurtakið þetta í 23-24-25 cm. ATH! Skiptið um lit áður en komið er að 5 l garðaprjón þannig að hægt sé að láta þráðinn fylgja með á baklið á stykki. RENDUR ERMI: * 2 umf með turkos/blár, 2 umf með bláfjólublár *, endurtakið frá *-* í 8-8-7 cm. * 2 umf með bláfjólublár, 2 umf með þokumistur *, endurtakið frá *-* í 8-7-7 cm. * 2 umf með þokumistur, 2 umf með turkos/blár, endurtakið frá *-* í 7-7-7 cm. Endurtakið þetta í 23-22-21 cm 1 sinni til viðbótar. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Prjónið aðra og þriðju l frá kanti saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S/M: 12, 20, 28, 36, 44, 53 og 62 cm STÆRÐ L/XL: 14, 22, 30, 39, 48, 57 og 66 cm STÆRÐ XXL/XXXL: 16, 25, 34, 43, 52, 61 og 70 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 333-389-445 l á hringprjóna nr 3 með litnum turkos/blár. Prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – síðan er prjónað þannig: 5 l garðaprjón, A.1 þar til 6 l eru eftir (= 14 mynstureiningar á breiddina), prjónið 1 l sléttprjón og 5 l garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 305-361-417 l á prjóni. Haldið áfram með 5 l garðaprjón, A.2 þar til 6 l eru eftir, 1 l sléttprjón og 5 l garðaprjón. Þegar stykkið mælist 13-14-15 cm prjónið A.3 yfir allt A.2, þegar A.3 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 277-333-389 l á prjóni. Haldið áfram með A.4 yfir allt A.3. Þegar stykkið mælist 29-31-33 cm prjónið A.5 yfir allt A.4. Þegar A.5 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 249-305-361 l á prjóni. Haldið áfram með A.6 yfir A.5 þar til stykkið mælist 47-49-51 cm. Prjónið nú þannig – frá réttu: Prjónið fyrstu 56-68-80 l (= hægra framstykki), fellið af næstu 17-21-25 l, prjónið næstu 102-126-150 l (= bakstykki), fellið af næstu 17-21-25 l, prjónið síðustu 57-69-81 l (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 65-85-105 l á sokkaprjóna nr 3 með turkos/blár. Prjónið RENDUR ERMI. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan A.7 yfir allar l (= 5 mynstureiningar á breiddina). Þegar A.7 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 55-75-95 l í umf. Haldið áfram með A.8 yfir allar l. Þegar stykkið mælist 11-11-11 cm prjónið A.9 yfir allar l. Þegar A.9 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 65-85-105 l í umf. Haldið áfram með A.10 yfir allar l. Þegar stykkið mælist 22-24-26 cm prjónið A.11 yfir allar l. Þegar A.11 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 75-95-115 l í umf. Haldið áfram með A.12 yfir allar l. Þegar stykkið mælist 34-33-32 cm prjónið A.13 yfir allar l. Þegar A.13 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 85-105-125 l í umf. Haldið áfram með A.14 yfir allar l. Þegar stykkið mælist 46-44-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af fyrstu 17-21-25 l (= ein mynstureining af A.14) = 68-84-100 l. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar inn á sama hringprjóna nr 3 eins og fram- og bakstykki = 351-431-511 l. Prjónið síðan þannig: 5 l garðaprjón, A.15 (= 20 mynstureiningar á breiddina), endið á 1 l sléttprjón og 5 l garðaprjón, haldið áfram með RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI. Prjónið og fækkið l eftir A.15. Þegar A.15 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 151-191-231 l á prjóni. Prjónið 4 umf garðaprjón, í fyrstu umf í garðaprjóni er l fækkað um 35-55-75 l jafnt yfir = 116-136-156 l. Fellið af. Stykkið mælist ca 64-68-72 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (20)
June wrote:
Only charts A.15 are included? Where are the other charts referenced in the pattern?
23.04.2023 - 16:24DROPS Design answered:
Dear June, the other charts are drawn together in two smaller charts, which are also separated by size. You can find charts A.1-A.6 and A.7-A.14 for sizes S/M next to A.15 for the largest sizes. The other charts A.1-A.6 and A.7-A.14 (for larger sizes) are located under them. Happy knitting!
23.04.2023 - 18:08Lene wrote:
Jeg vil strikke denne jakke i str.M, men kan ikke få maskeantallet til at passe. A1 er på 23 m. 23x16=368 m +11 kantmasker = 379 m. I opskriften står 389 m?
26.11.2022 - 12:08DROPS Design answered:
Hej Lene, 389 er til størrelse L/XL. Du har 333 masker i den mindste størrelse :)
30.11.2022 - 14:29Gila wrote:
Als ik de mouw met 85 steken start en A7 brei, dan minder ik elke oneven naald 2 steken per rapport. Na 6 naalden heb ik nog maar 5 rapporten van 11 steken. Bij A8 zie ik dat je ook 2 steken meerdert per rapport. Maar als ik dat zou doen blijf ik op 85 steken na 8 cm en ik moet naar 75. Wat gaat er mis?
03.03.2022 - 12:42DROPS Design answered:
Dag Gila,
Na het opzetten brei je A.7 één keer in de hoogte. Je hebt dan 10 steken geminderd. Daarna brei je steeds A.8 in de hoogte tot 11 cm. Bij A.8 blijft het totaal aantal steken hetzelfde. In de eerste naald van A.8 2 omslagen in één herhaling in de breedte en daarnaast 2 minderingen in het midden.
07.03.2022 - 12:23Bérita wrote:
Welke is A 1 en A 2 en verder. Dit staat er niet bij
06.02.2022 - 15:56DROPS Design answered:
Dag Bérita,
Bij de 4 onderste telpatronen zie je rechts naast de telpatronen A.1, A.2 enzovoorts staan (dus naast de naalden in het telpatroon).
11.02.2022 - 15:03Miriam wrote:
Ich habe diese wunderschöne Jacke in XXXL gestrickt. Mir gefällt sie sehr. Allerdings ist die angegebene Maschenanzahl beim Ende der Rundpasse vieeeel zu hoch. Dabei rutscht die Jacke von den Schultern. Ich habe weiter Maschen reduziert bis zu 7Maschen/Mustersatz. Da das Muster sich auch noch sehr dehnt, zusätzlich außerdem einen Abschluß mit Mausezähnchen gemacht (5R glatt re, 1R je 1Umschl.+2M zusammen stricken, 5R glatt re. Umschlagen und festnähen). Jetzt ist top.
21.12.2020 - 23:10Lise Renaud wrote:
Bonjour, Je veux vous remercier d'avoir répondu à mes questions aussi rapidement c'est rare. Encore merci Lise Renaud
08.06.2020 - 16:00Lise Renaud wrote:
Je viens du Québec (en français), jet je ne comprends pas très bien 1 côte mousse et le point mousse, pour moi, le point mousse c'est chaque rang à l'endroit mais les explications me disent le contraire. C'est écrit: tricoter 1 côte au point mousse , puis tricoter ainsi: 5 m point mousse!! Merci de pouvoir me répondre Lise Renaud
07.06.2020 - 18:20DROPS Design answered:
Bonjour Mme Renaud, quand on tricote du point mousse en allers et retours (= rangs), on va tricoter 1 rang endroit sur l'endroit + 1 rang endroit sur l'envers et ces 2 rangs vont former 1 côte mousse. Quand on tricote du point mousse en rond, on va tricoter 1 tour endroit + 1 tour envers pour former 1 côte mousse. les 5 m de bordure point mousse se tricotent ainsi à l'endroit sur l'endroit et à l'endroit sur l'envers. Bon tricot!
08.06.2020 - 09:01Nele wrote:
Hallo in der Arm anleitung steht wenn A7 gestrickt ist dann A8 stricken wo finde ich das?
18.02.2019 - 19:07DROPS Design answered:
Liebe Nele, je nach der Grösse gibt es unterschiedliche Diagramme für A.7-A.14 dh 1 Diagram für Grösse S/M, 1 für Grösse L/XL und 1 für Grösse XXL/XXXL. Viel Spaß beim stricken!
19.02.2019 - 09:13Anne-Christine wrote:
Comment faire suivre les fils des pelotes en attente quand on tricote les manches en rond?
24.10.2018 - 02:44DROPS Design answered:
Bonjour Anne-Christine, faites suivre le fil en hauteur et croisez-les à chaque changement de couleur - cf vidéo et description. Bon tricot!
24.10.2018 - 08:21Ingrid Olausson wrote:
Hej! Jag undrar lite över ärmarna. När man gjort en ärm, står det "sticka en ärm till på samma sätt". Måste man inte sticka spegelvänt? Man maskar ju av bara i en sida. Måste man inte maska av i andra sidan på ärm nr 2?
18.01.2018 - 20:07