DROPS Muskat uni colour 100% Bómull |
572.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Muskat uni colour 100% Bómull 572.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= sl | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt, svo að myndist gat | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann á l í stað fremri), svo að ekki myndist gat | |
= 2 l slétt saman | |
= takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir | |
= takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir | |
= l með ör í mynstri A.2 á að prjóna yfir l með ör í A.1 |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Beach Date |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Muskat með hringlaga berustykki og gatamynstri, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 167-1 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo að ekki myndist gat. Endurtakið útaukningu til skiptis hægra og vinstra megin við prjónamerkin. ÚRTAKA: Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki í hlið, prjónið síðan þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 4 l sl, 2 l slétt saman = 2 l færri. Endurtakið í hinni hliðinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kjóllinn er prjónaður í hring ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 126-132-138-140-146-150 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf. Prjónið 1 umf sléttprjón þar sem aukið er út um 4-8-6-4-7-12 l jafnt yfir = 130-140-144-144-153-162 l. Prjónið síðan 0-0-0-0-2-2 umf með sléttprjóni. Í næstu umf er mynstur A.1 prjónað – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð, 13-14-16-16-17-18 mynstureiningar í umf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar alls A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið 11-11-12-12-13-13 cm og það eru 234-252-288-320-340-360 l í umf. Setjið nú 2 prjónamerki í stykkið sem merkja skiptingar í mynstur sem halda áfram niður yfir bak. Prjónið fyrstu 12-12-12-14-14-14 l og setjið fyrra prjónamerki hér. Þetta er síðan byrjun umf! Setjið seinna prjónamerkið eftir 49-49-49-53-53-53 l án þess að prjóna fyrst l. Prjónið síðan mynstur – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð, þannig: Prjónið A.2 (= 49-49-49-53-53-53 l). ATH: Mynstrið í A.2 á að passa yfir mynstur A.1. Þ.e.a.s. l með ör í mynstri A.2 á að passa yfir l með ör í mynstri A.1. Prjónið sléttprjón yfir þær l sem eftir eru í umf, JAFNFRAMT er aukið út um 20-26-14-14-30-42 l jafnt yfir l í sléttprjóni = 254-278-302-334-370-402 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 49-49-49-53-53-53 l, prjónið 14-17-22-25-32-38 l sléttprjón, setjið næstu 50-56-58-64-68-72 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l, þ.e.a.s. 4 nýjar l hvoru megin við prjónamerki), prjónið næstu 77-83-93-103-117-129 l, setjið næstu 50-56-58-64-68-72 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l, þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við prjónamerki), prjónið næstu 14-17-22-25-32-38 l í umf. Nú eru 85-91-101-111-125-137 l fyrir framstykki og bakstykki = 170-182-202-222-250-274 l alls. FRAM- OG BAKSTYKKI: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með mynstur aftan á baki eins og áður og prjónið sléttprjón yfir þær l sem eftir eru í umf. ATH: Haldið jafnóðum áfram í sléttprjóni á baki þegar mynstur hefur verið prjónað til loka. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 5-5½-5½-6-6½-7 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 154-166-186-206-234-258 l. Þegar stykkið mælist 24-26-27-29-30-32 cm setjið 4 ný prjónamerki í stykkið með byrjun frá prjónamerki í hægri hlið. ATH: Takið fyrst frá 2 prjónamerkin sem staðsett eru hvoru megin við gatamynstri á baki! Prjónið 16-17-19-21-24-27 l, setjið 1. prjónamerki, prjónið 45-49-55-61-69-75 l, setjið 2. prjónamerki, prjónið 16-17-19-21-24-27 l, hér er prjónamerki fyrir vinstri hlið, prjónið 16-17-19-21-24-27 l, setjið 3. prjónamerki hér, prjónið 45-49-55-61-69-75 l, setjið 4. prjónamerki, prjónið næstu 16-17-19-21-24-27 l fram að prjónamerki í hægri hlið. Látið prjónamerin fylgja með í stykkinu. Í næstu umf er aukið út um 1 l á undan öllum prjónamerkjum (= 6 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNINGU. Endurtakið útaukningu í 6. hverri umf 1 sinni til viðbótar, í 4. hverri umf 12-12-12-12-9-8 sinnum og í 6. hverri umf 2-2-2-2-4-4 sinnum = 250-262-282-302-324-342 l. Þegar stykkið mælist 62-64-65-67-68-70 cm aukið út um 2-8-6-4-0-0 l jafnt yfir = 252-270-288-306-324-342 l. Prjónið síðan mynstur A.3 (= 18 l) 14-15-16-17-18-19 mynstureiningar á breiddina. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 4 umf garðaprjón og fellið af. KANTUR ERMI: Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 4 = 50-56-58-64-68-72 l. Takið upp 1 l í hverja af 8 nýjum l sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-64-66-72-76-80 l. Prjónið 1 umf þar sem fækkað er um 4 l jafnt yfir = 54-60-62-68-72-76 l. Haldið síðan áfram með 2 umf sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (91)
Nina wrote:
When the two back markers before the increase does that mean we move the beginning of the round to the marker that starts the front of the dress.
08.05.2024 - 08:46DROPS Design answered:
Dear Nina, you will keep the 2 markers inserted in the middle of the new stitches cast on under sleeve and remove the 2 markers on mid back (used for the lace pattern); you can consider starting rounds on body from one of these markers, ie in the middle of the 4 new sts cast on under one sleeve. Happy knitting!
08.05.2024 - 13:02Malgorzata wrote:
Przesowac markery w miare postepu robotki ktore markery i w ktora strone
30.04.2024 - 09:49DROPS Design answered:
Witaj Małgosiu, markery będą się w sumie same przesuwać :) Chodzi o to, aby nie zdejmować ich z drutów (jeśli nie jest to napisane we wzorze) i wykonywać w ich miejscu konkretne operacje, czyli zamykanie/dodawanie oczek zgodnie z opisem. Pozdrawiamy!
30.04.2024 - 12:25Malgorzata wrote:
W nastepnym okrazeniu dodac 1 oczko przed kazdym markerem w sumie 6 oczek jak to mozliwe przeciez markerow jest 4 i dodawac przed markerem a za juz nie o co tu chodzi
30.04.2024 - 09:28DROPS Design answered:
Witaj Małgosiu, po usunięciu 2 markerów, które wyznaczają ścieg fantazyjny z tyłu sukienki, w robótce będzie 6 markerów: po 1 na każdym boku i po 2 na przodzie i tyle. Pozdrawiamy!
30.04.2024 - 12:22Malgorzata wrote:
UWAGA: schemat A.2 powinien znajdować się ponad A.1: oczka ze strzałką w schemacie A.2 powinny być oczkami ze strzałką w schemacie A.1, przer. pozostałe o. dżersejem, W TYM SAMYM CZASIE równomiernie dodać 20-26-14-14-30-42 o. ponad o. dżersejem = O co tu chodzi
10.04.2024 - 14:08DROPS Design answered:
Witaj Małgosiu, chodzi i rozmieszczenie schematu A.2 ponad schematem A.1. Oczko które jest oznaczone strzałką w schemacie A.2 będzie na tym samym poziomie co jest strzałka w schemacie A.1 (jedno nad drugim). Zobacz ostatnie zdjęcie jak ażur wygląda z tyłu na sukience, to wiele rozjaśnia. Pozdrawiamy!
11.04.2024 - 08:20Malgorzata wrote:
Co to znaczy dalej przerabiac dzersejem w tym samym czasie dodac 20 oczek ponad dzersejem kiedy dodac te oczka
10.04.2024 - 14:06DROPS Design answered:
Witaj Małgosiu, powinnaś dodać te 20 oczek, gdy zaczynasz przerabiać schemat A.2. Równomiernie dodajesz oczka na części dżersejem (nie tam gdzie jest ażur). Jak równomiernie dodawać oczka znajdziesz TUTAJ. Pozdrawiamy!
11.04.2024 - 08:11Petra Warburg wrote:
Har lavet en løs aflukning på ærmekant, men syntes ikke rigtigt om det. Hvilken afslutning vil i anbefale . Tænker lidt på italiensk afslutning.
01.04.2024 - 15:05DROPS Design answered:
Hej Petra, det er en smagssag, du kan prøve at lukke af med dobbelt tråd, eller så finder der mange flere måder at lukke af på. Gå ind på Tips & Hjælp - Video - Luk af
05.04.2024 - 10:53Jane Janse Van Rensburg wrote:
I am struggling with the rows where you have to YO between 2 stitches and then immediately slip 1, knit 1, psso. If I slip 1, knit 1, psso, I have an extra stitch, i.e. when I must have 12, I have 13 stitches. I also fail to understand how to YO between 2 stitches and then work the last knitted stitch together with the next stitch. Is there a video that I can watch somewhere that shows how to work the stitches? Or must I have extra stitches and then work half the diagram at the end of the round?
04.10.2022 - 21:43DROPS Design answered:
Hi Jane, The YO and the psso equal each other out so you have the same number of stitches. On your second question, the knitted together stitches come before the YO (the diagram is read from right to left and the symbol is a the diagonal line which goes down from right to left). After the YO it is always psso (diagonal line which goes up from right to left). Hope this helps and happy knitting!
05.10.2022 - 06:56Angela Casamassima wrote:
Mi piace moltissimo questo modello ma non so lavorare dall'alto al basso. È possibile avere le spiegazioni dal basso verso l'alto? Grazie mille buonasera
20.07.2021 - 19:04DROPS Design answered:
Ciao Angela, hai visto la lezione DROPS Come lavorare un maglione top down (dall'alto in basso)?
20.07.2021 - 21:46Laila Sandvold wrote:
Hei, jeg lurer på hvorfor dere ikke har omkrets str på oppskriftene deres? Dere har jo bare merket med str s- xxl, er jo ikke goldt og vite om en skal strikke L eller XL. Er det meningen at jeg må regne meg frem til riktig str, dette gjelder i allefall de oppskriftene jeg har vært og strikket og sett på. Og da må jeg regne, hadde vært fint om dere kunne legge til antatt overvidden osv. Mvh Laila Sandvold
22.06.2021 - 17:41DROPS Design answered:
Hej Laila. Längst ner på oppskriften finns det en måleskiss med mål i cm i alla storlekar. Mvh DROPS Design
23.06.2021 - 07:57Birgitte Tapdrup wrote:
Bliver den ikke meget tung i 100% bomuld?
19.05.2021 - 10:59DROPS Design answered:
Hei Birgitte. Om du ser på størrelsene ser du også hvor mye garn du trenger og da ca hvor tung kjolen vil bli. Om du velger ullgarn som f.eks DROPS Karisma, DROPS Lima vil den ha ca samme vekt. Om du velger f.eks DROPS Sky vil vekten nesten halvveres, men kjolen vil da få noe mindre formstabilitet. mvh DROPS design
19.05.2021 - 11:14