DROPS Belle uni colour 53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör |
638.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Belle uni colour 53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör 638.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= sl frá réttu, br frá röngu | |
= br frá réttu, sl frá röngu |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Carter |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Belle með laskalínu. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS Extra 0-1131 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við A.1 í hverri laskalínu. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist göt. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. PEYSA: Fitjið upp 114-117-120-123-126-129 l á hringprjóna nr 3,5 með Belle. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 l sl, 2 l br). Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 þegar stykkið mælist 2 cm. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni. Í fyrstu umf er fækkað um 18-17-16-15-14-13 l jafnt yfir = 96-100-104-108-112-116 l (þetta er gert til að flíkin passi betur). Í næstu umf er aukið út um 24-26-30-40-48-70 l jafnt yfir = 120-126-134-148-160-186 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja að aftan). Í næstu umf er prjónað frá miðju að aftan þannig: Prjónið 17-18-20-24-27-33 l sl (= hálft bakstykki), A.1, 6 l sl, A.1 (= ermi), 34-37-41-48-54-67 l sl (= framstykki), A.1, 6 l sl, A.1 (= ermi), 17-19-21-24-27-34 l sl (= hálft bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT er prjónuð upphækkun að aftan þannig: Prjónið 8 l framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16 l til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24 l, haldið áfram að prjóna 8 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 64 l frá síðasta snúningi, snúið við og prjónið 1 umf yfir allar l til baka fram að miðju að aftan. Í næstu umf byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan – ATH! Ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LASKALÍNA FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út í hverri umf alls 0-4-4-4-4-4 sinnum, síðan í annarri hverri umf 28-27-29-30-32-33 sinnum. Nú eru 90-99-107-116-126-141 l á fram- og bakstykki. LASKALÍNA ERMI: Aukið út í annarri hverri umf 16-19-21-22-24-27 sinnum, síðan í 4. hverri umf 6-5-5-5-5-4 sinnum. Nú eru 70-74-78-80-84-88 l á hvorri ermi. Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 320-346-370-392-420-458 l á prjóni. Í næstu umf er prjónað þannig: 45-49-53-58-63-70 l sl, setjið næstu 70-74-78-80-84-88 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi (setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), 90-99-107-116-126-141 l sl, setjið næstu 70-74-78-80-84-88 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi (setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), 45-50-54-58-63-71 l sl = 196-214-230-248-268-298 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hlið – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 14-14-14-30-30-30 cm millibili 2-2-2-1-1-1 sinnum til viðbótar = 184-202-218-240-260-290 l. Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 20-17-16-15-16-13 l jafnt yfir = 204-219-234-255-276-303 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br). Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br þegar stroffið mælist 4 cm. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka 70-74-78-80-84-88 l af þræði á sokkaprjóna nr 4. Fitjið upp 8 nýjar l undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l) = 78-82-86-88-92-96 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón JAFNFRAMT er haldið áfram með A.1 þannig: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan A.1 upp við miðju á ermi, prjónið 2 l slétt saman á eftir A.1 upp undir ermi (þ.e.a.s. þær 8 nýju l sem fitjaðar voru upp undir ermi). Þetta er gert svo að A.1 mætist undir ermi og hverfi, endurtakið úrtöku í annarri hverri umf þar til allar l í báðum A.1 eru horfnar. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3-3-2½-2½ cm millibili 11-12-13-13-14-15 sinnum til viðbótar = 54-56-58-60-62-64 l. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 51-50-50-50-49-49 cm. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 6-4-5-3-4-2 l jafnt yfir = 60-60-63-63-66-66 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br). Fellið af þegar stykkið mælist 55-54-54-54-53-53 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt. VASI: Fitjið upp 23 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á sokkaprjóna nr 4 með Belle. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 8 cm, stillið af að næsta umf sé frá röngu, aukið út um 4 l jafnt yfir frá röngu = 27 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, stroff (= 1 l sl, 2 l br) þar til 2 l eru eftir, endið á 1 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar stykkið mælist 10 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið vasann á vinstri ermi, ca 45 cm frá úrtöku við handveg. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (65)
Torsten wrote:
Warum werden nach dem Bund in der ersten Reihe mit Nadel 4 erst 18 Maschen abgenommen und in der nächsten Runde wieder 24 Maschen zugenommen und nicht einfach 6 Maschen zugenommen?
02.09.2023 - 20:30DROPS Design answered:
Lieber Torsten, damit die Halsblende schön liegt, wird man zuerst abnehmen dann zunehmen. Viel Spaß beim stricken!
04.09.2023 - 08:03Birgit Urke wrote:
Skjønner ikke hvordan jeg skal felle/ øke på erme for å få bort A1. Ønsker en enkel forklaring på hvor jeg skal øke med kast og hvor jeg skal felle.
08.01.2023 - 00:08DROPS Design answered:
Hej Birgit, du skal ikke få bort A.1, du fortsætter med A.1 i hver overgang og så øker du med 1 kast på hver side af A.1 :)
10.01.2023 - 12:22Francesca wrote:
Mi spiace, ma con una risposta così superficiale oltreché vana, non mi aiutate a capire un pattern a me poco chiaro. Ci rinuncio definitivamente a seguire i vostri pattern e a inoltrarvi le domande, visto che continuo a ricevere risposte imprecise.e incomplete. Grazie lo stesso
02.05.2022 - 09:19DROPS Design answered:
Buonasera Francesca, ci dispiace per questo pensiero: abbiamo risposto a tutte le sue domande. Per poter comprendere meglio gli aumenti, provi a farsi uno schema dei vari aumenti delle maniche e del corpo in modo da poter identificare come lavorare ogni giro. Buon lavoro!
03.05.2022 - 00:00Sylvie wrote:
"brei 8 st voorbij de markeerder, keer, trek de draad aan en brei 16 st terug, keer, trek de draad aan en brei 24 st, keer, ga verder en brei 8 st meer elke keer voor u keert tot er totaal 64 st zijn gebreid na het laatste keerpunt, keer en brei 1 nld over alle st tot u weer bij middenachter aankomt. " Dus met de rondbreinaald terug dezelfde steken breien want terugbreien kan ook steken ongedaan maken?
25.04.2022 - 12:37DROPS Design answered:
Dag Sylvie,
Na het laatste keerpunt brei je inderdaad 1 toer helemaal in de rondte met de rondbreinaald, tot je weer terug bent bij midden achter.
28.04.2022 - 09:29Francesca wrote:
Buona sera. Non riesco a capire : sto facendo la taglia L, ho eseguito i primi 4 giri di aumenti raglan (su dav e dietro ho ottenuto 49maglie, sulle maniche 22)...x come ho capito io, dovrei ora continuare ad aumentare x altri 29 giri su dav e dietro e su altri 26 giri sulle maniche. Corretto? Ogni giro aumento o a giri alterni? Ho il dubbio xke x una taglia L m sembra poco 33 giri totali di aumento. Ci tengo tanto a questo modello Non vorrei buttare tutto x aver fallito. Grazie del supporto
15.04.2022 - 22:24DROPS Design answered:
Buonasera Francesca, gli aumenti per il corpo sono diversi da quelli delle maniche: i successivi aumenti sul corpo sono a ferri alterni, mentre per le maniche deve seguire le istruzioni riportate. Buon lavoro!
01.05.2022 - 23:46Francesca wrote:
Innanzitutto grazie per la gentile risposta. Mi avete chiarito un grande punto di domanda. Ho un ultimo dubbio: io farò la taglia L, x gli aumenti raglan al primo giro 4 poi ogni 2 giri 29 volte, significa che al primo giro aumento su entrambi i punti e i 29 come li smisto, visto che devono essere differenti per davanti e dietro? Grazie ancora per l aiuto
05.04.2022 - 23:25DROPS Design answered:
Buonasera Francesca, gli aumenti per il raglan si lavorano in modo diverso sulle maniche e il corpo secondo quanto riportato sotto i rispettivi paragrafi. Buon lavoro!
06.04.2022 - 20:26Francesca wrote:
Inoltre non capisco anche : l alzata dietro, dovendo lavorare 64 maglie totali, queste non vanno a spostare le divisioni (dietro/davanti/raglan/maniche)?
03.04.2022 - 15:07DROPS Design answered:
Buonasera Francesca, le 64 maglie dell'alzata non sono aumenti, sono semplicemente maglie lavorate a ferri accorciati, cioè solo su una parte delle maglie e non su tutte le maglie, per cui sono già incluse nelle varie divisioni. Buon lavoro!
05.04.2022 - 19:17Francesca wrote:
Ho difficoltà a seguire il pattern. Cosa significa aumentare 0 volte in tutto e poi ogni 2 giri 28 volte? (raglan) LE 64 maglie che ottengo a fine alzata, non vanno a spostare le linee di divisione (davanti dietro maniche e raglan)? Aiutatemi per favore
02.04.2022 - 23:15DROPS Design answered:
Buonasera Francesca, al primo giro di aumenti non deve lavorare nessun aumento, poi deve aumentare ogni 2 giri per 28 volte. Le 64 maglie dell'alzata sono già incorporate nelle diverse parti, non sono aumenti. Buon lavoro!
05.04.2022 - 19:16Laurence wrote:
Bonjour je tricote la taille M. Si je pars de mes 37 mailles devant que j'augmente 4 fois 2 mailles et 27 fois 2 mailles je tombe bien sur mes 99 mailles. Par contre pour les manches 6 mailles j'augmente 19 fois 2 mailles puis 5 fois 2 mailles j'arrive à 54 mailles et non 74. Pouvez vous m'expliquer ce que je n'ai pas compris ?
17.03.2022 - 10:56DROPS Design answered:
Bonjour Laurence, bien sûr, les 10 mailles de A.1 de chaque côté de la manche sont comprises dans ces 74 mailles d'où 54 + 10 avant les 54 + 10 après les 54 = 74 mailles. Bon tricot!
17.03.2022 - 11:20Karine wrote:
Ma ei saanud aru kuidas teha kasvatusi raglaanil? Kas kehaosal ja varruka lmustril tuleb teha üheaegselt kasvatusi ? Kuidas saab 99 silma.
02.06.2021 - 09:11DROPS Design answered:
Tere! M suurusel kasvatate igal ragalaanijoonel mõlemal pool skeemil A.1 kehaosal igal ringil kokku 4 korda (st. igal ringil kasvatatakse 2s esiosal ja 2 s seljaosal ja nii 4 korda), siis igal teisel ringil 27 korda (st. igal teisel ringil kasvatatakse 2s esiosal ja 2 s seljaosal ja nii 27 korda). Varrukatel kasvatatakse igal teisel ringil 19 korda, siis igal neljandal ringil 5 korda. St et mõnel ringil kasvatatakse ainult esi- ja seljaosal, mõnel ringil ka varrukatel. (Ehk algul on esi- ja seljaosal 37 s, siis kasvatatakse 4x 2s, siis 27x 2 s = 99 s on esiosal ja seljaosal kui raglaan on tehtud). Head kudumist!
02.06.2021 - 22:52