Colourful Spring |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaðir pottaleppar úr DROPS Paris með stjörnu. Þema: Páskar.
DROPS Extra 0-1103 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (umf 1-5) og A.2 (umf 6-13). Mynsturteikning sýnir heilar 1. og 2. umf, síðan sýnir mynstrið 1 af 3 mynstureiningum. FBST – fjórbrugðin stuðull: Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, stignið heklunálinni undir l sem hekla á utan um, dragið þráðinn í gegnum fyrstu l, bregðið þræðinum aftur um heklunálina og dragið í gegnum fyrstu 2 l, * bregðið þræðinum aftur um heklunálina og dragið í gegnum næstu 2 l *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar. KÚLA: Heklið 1 fl í næstu l, 2 tbst heklaðir saman í 1 tbst þannig: 1 tbst í sömu l en bíðið með bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 tbst í sömu l, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni = 1 fl og 1 tbst. 2 TBST HEKLAÐIR SAMAN: 2 tbst eru heklaðir saman í 1 tbst þannig: Heklið 1 tbst en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 tbst í næstu l, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ODDUR: 2 fbst og 1 fl eru hekluð saman í 1 l þannig: Heklið 1 fbst í kringum sama fbst eins og fyrri fbst eru heklaðir í kring en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fbst í kringum næsta fbst frá umf 7 en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fl í næsta st í umf, nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni. LITIR Á RÖNDUM: UMFERÐ 1: sinnep UMFERÐ 2: skærbleikur UMFERÐ 3: fjólublár UMFERÐ 4: dökk fjólublár UMFERÐ 5: dökk turkos UMFERÐ 6: ljós turkos UMFERÐ 7: sinnep UMFERÐ 8: hermannagrænn UMFERÐ 9: pistasía UMFERÐ 10: hermannagrænn UMFERÐ 11: ljós fjólublár UMFERÐ 12: skærbleikur UMFERÐ 13: fjólublár HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umf með st byrja á 3 ll (þessar ll eru ekki taldar með í st-fjölda), endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Allar umf með fl byrja á 1 ll (þessi ll er ekki talin með í fl-fjölda), endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf. LITASKIPTI: Til þess að fá fallega skiptingu við litaskipti er síðasta kl í umf hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í 1./3. ll frá byrjun umf, sækið nýja þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið í gegnum l á heklunálinni (klippið frá þráðinn frá fyrri umf og dragið í gegnum l). LYKKJA: 1 ll, * 1 fl í fremri lykkjubogann í 1. fl frá heklunálinni, 1 ll *, endurtakið frá *-* þar til lykkjan mælist 6 cm. LÍNUR OG PUNKTAR (á einungis við ef heklað er eftir mynsturteikningu): Við hvern punkt í mynstri er heklað í kringum þá lykkju sem tilheyrir línu. UMFERÐ 7: Heklið FBST – sjá útskýringu að ofan – í kringum fl við stjörnu frá umf 4. UMFERÐ 9: Heklið fbst í kringum fbst frá umf 7. UMFERÐ 11: Heklið 1 þbst í kringum fbst frá umf 9. UMFERÐ 13: Heklið 1 tbst í kringum hvorn af 2 þbst frá umf 11 – LESIÐ HEKLIÐ SAMAN 2 TBST – að ofan. LÍNUR OG HRINGIR (á einungis við ef heklað er eftir teikningu): Við hvern hring í mynstri er heklað í kringum þá lykkju sem tilheyrir línu. Hringur í umf 9: 2 fbst (1 í kringum hverja l með punkt frá umf 7) og 1 fl er heklað saman í 1 l þannig: Heklið 1 fbst í kringum l með punkti en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fbst í kringum næstu l með punkti en bíðið með að daga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fl í næsta st í umf, nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- POTTALEPPAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Pottalepparnis samanstanda af 2 stykkjum hvor, sem tengd eru saman í lokin. 1 STYKKI: Heklið 6 ll með heklunál nr 4,5 með litnum sinnep og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. LESIÐ LITIR Á RÖNDUM og HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið nú MYNSTUR eftir mynsturteikningu – sjá útskýringu að ofan, eða eftir mynstri þannig: UMFERÐ 1: Heklið 12 st um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í fyrsta st, 2 fl í hvern af næstu 11 st, 1 fl í fyrsta st frá byrjun fyrri umf = 24 fl. UMFERÐ 3: Um bilið á milli næstu 2 fl er heklað 1 st + 2 tbst, 1 ll + 2 tbst + 1 st, hoppið yfir 1 fl, 1 fl um bilið á milli næstu 2 fl, * hoppið yfir 1 fl, um bilið á milli næstu 2 fl heklið 1 st + 2 tbst, 1 ll + 2 tbst + 1 st, hoppið yfir 1 fl, 1 fl um bilið á milli næstu 2 fl *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar = 6 st-hópar. UMFERÐ 4: 1 fl um fyrstu ll, 1 ll, um bilið á milli st og fl eru heklaðir 5 tbst, 1 ll, * 1 fl um næstu ll, 1 ll, um bilið á milli st og fl er heklað 5 tbst, 1 ll *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar = 6 tbst-hópar, 12 ll og 6 fl. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl um næstu ll, 1 fl í hvern af næstu 5 tbst, 2 fl um næstu ll, * 2 fl í næstu fl, 2 fl um næstu ll, 1 fl í hvern af næstu 5 tbst, 2 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 1 fl í fyrstu fl frá byrjun fyrri umf = 66 fl. UMFERÐ 6: Heklið 1 st í hverja fl umf hringinn = 66 st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hvern af fyrstu 3 st, 1 fbst í kringum fyrstu fl frá umf 4, * heklið 1 fl í hvern af næstu 5 st, 1 fbst í kringum næstu fl frá umf 4, 1 fl í hvorn af næstu 2 st, 2 fl í næsta st, 1 fl í hvern af næstu 3 st, 1 fbst í kringum sömu fl og fyrri fbst er heklaður í kringum, 1 fl í hvern af næstu 5 st, 1 fbst um næstu fl frá umf 4, 1 fl í hvorn af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hvern af næstu 3 st, 1 fbst í kringum sömu fl sem fyrri 4 tbst voru heklaðir í kringum *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 1 fl í hvern af næstu 5 st, 1 fbst í kringum næstu fl frá umf 4, 1 fl í hvorn af næstu 2 st, 2 fl í næsta st, 1 fl í hvern af næstu 3 st, 1 fbst í kringum sömu fl sem fyrri fbst voru heklaðir í kringum, 1 fl í hvern af næstu 5 st, 1 fbst í kringum sömu fl og fyrstu fbst voru heklaðir í kringum, 1 fl í hvorn af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl = 12 fbst og 72 fl. UMFERÐ 8: Heklið 1 st í hverja fl/fbst umf hringinn = 84 st. UMFERÐ 9: Heklið 1 fl í fyrsta st, 1 KÚLA – sjá útskýringu að ofan, 1 fl í hvorn af næstu 2 st, 1 fbst í kringum fyrsta fbst frá umf 7, hoppið yfir 1 st, 1 fl í hvern af næstu 3 st, 1 fbst í kringum næsta fbst frá umf 7, * hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st, 1 kúla, 1 fl í hvorn af næstu 2 st, heklið 1 HORN – sjá útskýringu að ofan, 1 fl í næstu fl, 1 kúla, 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 1 fbst í kringum sama fbst og fyrri fbst var heklaður í kringum, hoppið yfir 1 st, 1 fl í hvern af næstu 3 st, 1 fbst um næsta fbst frá umf 7 *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, heklið 1 fbst í kringum næsta fbst frá umf 7, 1 fl í næsta st, 1 kúla, 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið 1 horn = 24 fbst, 72 fl og 12 kúlur. UMFERÐ 10: Heklið 1 fl í hverja fl/fbst umf hringinn = 96 fl. UMFERÐ 11: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 7 fl, 1 þbst í kringum fyrsta fbst frá umf 9, 1 fl í næstu fl, 1 þbst í kringum næsta fbst frá umf 9, * 1 fl í hverja af næstu 15 fl, heklið 1 þbst í kringum fyrsta fbst eftir hornið frá umf 9, 1 fl í næstu fl, 1 þbst í kringum næsta fbst frá umf 9 *, endurakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 1 fl í hvern og einn af næstu 8 fl = 12 þbst og 96 fl. UMFERÐ 12: Heklið 1 fl í hvern af fyrstu 17 fl/þbst, 1 kúla, * 1 fl í hvern af næstu 17 fl/þbst, 1 kúla *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar = 102 fl og 6 kúlur. UMFERÐ 13: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 8 fl, 1 tbst í kringum hvorn af fyrstu 2 þbst frá umf 11 (2 tbst) heklaðir saman í 1 tbst – LESIÐ 2 TBST HEKLAÐIR SAMAN, * 1 fl í hverja af næstu 18 fl/tbst, 1 tbst um hvorn af næstu 2 þbst frá umf 11 heklaðir saman í 1 tbst *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 1 fl í hverja og eina af næstu 10 fl/tbst. Heklið annað stykki á sama hátt til þess að mynda einn pottalepp. FRÁGANGUR: Leggið bæði stykkin saman röngu á mót röngu og heklið saman í gegnum bæði stykkin með litnum fjólublár þannig: MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 8 fl, heklið LYKKJA – sjá útskýringu að ofan, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í hverja af næstu 17 fl, 2 fl í næsta tbst, * 1 fl í hverja af næstu 18 l, 2 fl í næsta tbst *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 1 fl í hverja af næstu 10 fl. Stykkið mælist ca 24 cm að þvermáli. Klippið frá og festið enda. Heklið annan pottalepp á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (7)
Wilma wrote:
Toer 3 eindig ik met een vaste, vervolgens moet ik toer 4 beginnen met een vaste in de eerste -L. Maar hoe kom ik daar? Moet ik toer 4 beginnen met 4 L ?
24.11.2018 - 21:24DROPS Design answered:
Dag Wilma,
Goede vraag (staat inderdaad niet goed aangegeven). Om aan het begin van de toer te komen na de laatste steek van toer 3 kun je het beste halve vaste haken langs de zijkant van het groepje stokjes.
28.11.2018 - 13:14Monika Opočenská wrote:
Dobrý den, hlásím hotové obě chňapky, jsou nádherné. Jen víc utahuju, vyšly mi o 2cm v průměru menší. Děkuji za skvělý návod. Monika
31.07.2015 - 11:15DROPS Design answered:
Milá Moniko, díky za zprávu - návrhářská sekce byla pochvalou potěšena :-) A vy se na oplátku můžete těšit na další (věřím, že báječné) nápady, modely i návody. Hodně zdaru! Hana
01.08.2015 - 18:44Tina Olsen wrote:
Har det kommit någon rättelse till denna? Is there any errata for this pattern yet?
25.07.2015 - 09:43Vivi Dreyer Rindebæk wrote:
Hej Efter at have pillet op 3 gange, har jeg fundet en fejl i omgang 9. Der skal også springes en fm over under SPIDS. Ellers passer det ikke.
09.07.2015 - 19:55Rita wrote:
Helemaal gelijk. Toch het patroon niet goed gelezen.mijn fout was dat ik elke vaste maar 1 vaste deed ipv 2. Dank voor de reactie
01.06.2015 - 15:24Rita wrote:
Met dit patroon kom ik na de stokjes ronde op maar 60 stokjes uit ipv 66 die het patroon aangeeft. na 3 keer opnieuw beginnen geef ik het maar op. jammer
31.05.2015 - 13:56DROPS Design answered:
Hoi Rita. Dat is jammer. Ik heb toer 5 nagekeken en uitgerekend, en als je die correct haakt zou je op 66 steken uitkomen: haak 1 v in eerste v, 2 v in volgende l, 1 v in elke van de volgende 5 dstk, 2 v in volgende l, * 2 v in volgende v, 2 v in volgende l, 1 v in elke van de volgende 5 dstk, 2 v in volgende l *, herhaal van *-* nog 4 keer, 1 v in eerste v van het begin van de toer = 66 v = 1+2+5+2 (=10), *2+2+5+2* (aantal st tussen de sterretjes), herhaal in TOTAAL 5 keer (= 55), eindig met 1 v in de eerste v = 66
01.06.2015 - 13:56Anna-Greth Bosrup wrote:
Hej! Varför går det inte att skriva ut diagrammet till Colorful Spring By Drops Design Extra 0-1103, när hela övriga mönstret fungerar perfekt. Vill så gärna virka dessa grytlappar men har inte tillgång till data alltid. Gäller alltså bara själva diagrammet. Hälsning Anna-Greth
09.04.2015 - 11:17DROPS Design answered:
Hei Anne-Greth. Du skulle kunne printe diagram ud uden problemer.
22.04.2015 - 15:58