Cheer |
|
|
|
Hekluð fánahúfa og fánaeyrnaband – húfa / eyrnaband úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Extra 0-1081 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- 2 FASTALYKKJUR SAMAN: * Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni. RENDUR (á við um húfu): UMFERÐ 1-2: Natur. UMFERÐ 3: Sjávarblár. UMFERÐ 4-5: Natur. Síðan er heklað með litnum rauður. RENDUR (á við um eyrnaband): UMFERÐ 1-2: Sinnep. UMFERÐ 3-4: Gráblár. UMFERÐ 5-6: Sinnep. Síðan er heklað með litnum gráblár. SKIPT UM ÞRÁÐ: Til að fá falleg litaskipti er síðasta fastalykkja hekluð í umferð þannig: Stingið heklunálinni í síðustu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. Haldið áfram næstu umferð með nýja litnum. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja. Umferðin endar með 1 keðjulykju í loftlykkju í byrjun umferðar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er heklaður rétthyrningur fram og til baka frá horni að horni, síðan er heklað efra stykki í hring. HÚFA: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum rauður DROPS Merino Extra Fine. UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 2 fastalykkjur í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í síðustu loftlykkju = 3 fastalykkjur. Snúið. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í fremri lykkjubogann á næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 5 fastalykkjur. Snúið. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkju í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju þar til 1 fastalykkja er eftir frá fyrri umferð, 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju. Snúið. UMFERÐ 4 (= ranga): Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í fremri lykkjubogann á hverri fastalykkju þar til 1 fastalykkja er eftir frá fyrri umferð, heklið 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju. Snúið. Endurtakið umferð 3 og 4 þar til stykkið mælist 18-19-19-20-21 cm meðfram hvorri skammhlið – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá röngu. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Nú er heklað áfram með úrtöku og útaukningu þannig: UMFERÐ 1: (= ranga) Heklið 1 loftlykkju, 2 FASTALYKKJUR SAMAN – lesið útskýringu að ofan (= 1 úrtaka), 1 fastalykkja í fremri lykkjubogann á hverri fastalykkju þar til 1 fastalykkja er eftir frá fyrri umferð, heklið 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju (= 1 útaukning). Snúið. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju (= 1 útaukning), 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju þar til 2 fastalykkjur eru eftir frá fyrri umferð, heklið 2 fastalykkjur saman (= 1 úrtaka). Snúið. Endurtakið síðan umferð 1 og 2 – JAFNFRAMT þegar heklað hefur verið alls 8 umferðir frá þar sem úrtaka byrjaði eru heklaðar rendur (1.umferð með rönd = ranga) – lesið RENDUR og SKIPT UM ÞRÁÐ. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 45-46-47-48-49 cm mælt meðfram útaukningshlið. Nú er heklað áfram með úrtöku í hvorri hlið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í fremri lykkjubogann frá röngu / í aftari lykkjubogann frá réttu á hverri fastalykkju þar til 2 fastalykkjur eru eftir frá fyrri umferð, heklið 2 fastalykkjur saman. Snúið. Endurtakið umferð 1 þar til 1 fastalykkja er eftir. Klippið þráðinn – skiljið eftir ca 40 cm langan þráð fyrir frágang. Saumið skammhliðar saman. Nú er heklað í kringum efri hlutann á húfunni (byrjun á 1. rönd = ofan á húfu) þannig: UMFERÐ 1: Lesið LEIÐBEININGAR! Heklið 1 fastalykkju í hverja umferð. Héðan er nú heklað í aftari lykkjubogann á fastalykkju. UMFERÐ 2: Heklið * 1 fastalykkju í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* út umferðina (þegar fjöldi lykkja gengur ekki jafnt upp í umferð er hekluð 1 fastalykkja í hverja fastalykkju í lok umferðar). UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Endurtakið 2. og 3. umferð 1 sinni til viðbótar. UMFERÐ 6: Heklið * 2 fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* út umferðina. Klippið þráðinn og saumið saman efst uppi, festið þráðinn. ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka frá horni að horni. EYRNABAND: Heklið 3 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum gráblár DROPS Merino Extra Fine. UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 2 fastalykkjur í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í síðustu loftlykkju = 3 fastalykkjur. Snúið. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í fremri lykkjubogann á næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 5 fastalykkjur. Snúið. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju þar til 1 fastalykkja er eftir frá fyrri umferð, 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju. Snúið. UMFERÐ 4 (= ranga): Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í fremri lykkjubogann á hverri fastalykkju þar til 1 fastalykkja er eftir frá fyrri umferð, heklið 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju. Snúið. Endurtakið umferð 3 og 4 þar til stykkið mælist ca 8 cm meðfram hvorri skammhlið – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá röngu. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Nú er heklað áfram með úrtöku og útaukningu þannig: UMFERÐ 1: (= ranga) Heklið 1 loftlykkju, 2 FASTALYKKJUR SAMAN – lesið útskýringu að ofan (= 1 úrtaka), 1 fastalykkja í fremri lykkjubogann á hverri fastalykkju þar til 1 fastalykkja er eftir frá fyrri umferð, heklið 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju (= 1 útaukning). Snúið. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju (= 1 útaukning), 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju þar til 2 fastalykkjur eru eftir frá fyrri umferð, heklið 2 fastalykkjur saman (= 1 úrtaka). Snúið. Endurtakið síðan umferð 1 og 2 – JAFNFRAMT þegar heklað hefur verið alls 8 umferðir frá þar sem úrtaka byrjaði eru heklaðar rendur (1.umferð með rönd = ranga) – lesið RENDUR og SKIPT UM ÞRÁÐ. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 45-46-47-48-49 cm mælt meðfram útaukningshlið. Nú er heklað áfram með úrtöku í hvorri hlið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í fremri lykkjubogann frá röngu / í aftari lykkjubogann frá réttu á hverri fastalykkju þar til 2 fastalykkjur eru eftir frá fyrri umferð, heklið 2 fastalykkjur saman. Snúið. Endurtakið umferð 1 þar til 1 fastalykkja er eftir. Klippið þráðinn – skiljið eftir ca 30 cm langan þráð fyrir frágang. Saumið skammhliðar saman. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í meðfram bæði opin með byrjun frá miðju að aftan þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu umferð, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 umferð, * 1 fastalykkja í næstu umferð, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 umferð *, endurtakið frá *-* út umferðina, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Gail Tesson wrote:
I don't understand the construction of the hat. Could you provide diagrams or pictures of the construction? Where exactly do does the stripping start? Maybe it's the translation but some of the wording is also a bit confusing.
27.10.2016 - 15:54DROPS Design answered:
Dear Mrs Tesson, you are working crown of hat diagonnally, ie first work a rectangle around the head starting at one of the corner of the hat until you get correct width, then continue "straight": from WS: dec 1 st at beg of row and inc 1 st at end of row - from RS: inc 1 st at beg of row and dec 1 st at end of row. When you have correct lenght, dec on each side until 1 st remain. You will then sew short ends tog and work the top of hat in the round. Happy crocheting!
28.10.2016 - 09:01Mima wrote:
Merci beaucoup.
11.11.2015 - 15:56Mima wrote:
Bonjour,c est mme Mima.ces drapeaux me plaisent ,mai je ne connais pas la signification.
07.11.2015 - 11:01DROPS Design answered:
Bonjour Mme Mima, les couleurs utilisées ici pour les bonnets sont celles de la Norvège (rouge, blanc et bleu) et de la Suède (bleu et jaune) - Vous pouvez également choisir les couleurs que vous préférez. Bon crochet!
09.11.2015 - 09:42Federica-BERNADETTE. REGIS wrote:
Bonjour Cher Drops Team, J'aime beaucoup vos patrons tricot. J.ai déjà essayé de suivre vos patrons crochet pour chale ou autres sans succès, malgré une grande habitude. Par contre, ne pourriez vous pas ajouter à vos patrons crochet Un SCHEMA ce qui est beaucoup plus facile à suivre ET AUSSI le plus couramment usité. Surtout pour les pulls ,vestes, et accessoires Merci d'y penser. Meilleures salutations federica
21.02.2015 - 14:56DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bernadette, et merci. Nous avons choisi des modèles écrits avec un minimum de diagrammes car, sur la base de notre expérience, une majorité de clients sont plus à l'aise avec cette façon d'expliquer. En même temps, de plus en plus de diagrammes sont ajoutés pour les points fantaisie. Pour toute aide ou assistance à la réalisation d'un modèle, rappelez-vous que votre magasin DROPS pourra vous aider. Bon crochet!
23.02.2015 - 09:25