Little Rudolph |
|
|
|
Hekluð húfa fyrir börn úr DROPS Lima. Stykkið er heklað eins og hreindýr með hornum og eyrum. Stærð 6 mán - 10 ára. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1049 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta hst í umf er skipt út fyrir 2 ll, hver umf með hst endar á 1 kl í annarri ll frá byrjun umf. HEKLIÐ SAMAN 2 HST: * Bregðið þræðinum um heklunálina, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar og bregðið þræðinum um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. Eyrnalepparnir eru heklaðir fram og til baka í lokin. HÚFA: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 og litnum ljós brúnn, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 8 hst um hringinn, LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2: Heklið 2 hst í hvern hst umf hringinn = 16 hst. UMFERÐ 3: Heklið * 1 hst í fyrsta hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 hst. UMFERÐ 4: Heklið * 1 hst í hvorn af næstu 2 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 hst. UMFERÐ 5: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 3 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 hst. UMFERÐ 6: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 4 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 hst. UMFERÐ 7: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 5 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 56hst. UMFERÐ 8: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 6 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 hst. Héðan er heklað mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ 6/9 MÁN: UMFERÐ 9: Heklið 1 hst í hvern hst, EN aukið jafnframt út 6 hst jafnt yfir í umf = 70 hst. STÆRÐ 12/18 mán – 2 ÁRA: UMFERÐ 9: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 7 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 hst. UMFERÐ 10: Heklið 1 hst í hvern hst, EN aukið jafnframt út 2-6 hst jafnt yfir í umf = 74-78 hst. STÆRÐ 3/4 - 5/6 - 7/8 ÁRA: UMFERÐ 9: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 7 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 hst. UMFERÐ 10: Heklið 1 hst í hvern af næstu 8 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 80 hst. UMFERÐ 11: Heklið 1 hst í hvern hst, EN aukið jafnframt út 2-4-6 hst jafnt yfir í umf = 82-84-86 hst. STÆRÐ 9/10 ÁRA: UMFERÐ 9: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 7 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 hst. UMFERÐ 10: Heklið 1 hst í hvern af næstu 8 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 80 hst. UMFERÐ 11: Heklið 1 hst í hvern af næstu 9 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 88 hst. Nú eru 70-74-78-82-84-86-88 hst í umf. Heklið síðan 1 hst í hvern hst í hverja umf í öllum stærðum þar til stykkið mælist 16-16-17-18-19-20-20 cm. Setjið 2 prjónamerki í stykkið frá réttu. Fyrra prjónamerkið er sett í 7.-7.-8.-8.-8.-8.-8. hst frá byrjun umf, seinna prjónamerki er sett í 49.-51.-53.-55.-57.-58.-59, hst frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda. EYRNALEPPUR: Byrjið að hekla frá réttu við fyrra prjónamerki. Notið heklunál nr 4 og litinn ljós brúnn. UMFERÐ 1: Heklið 13-14-15-15-15-17-17 hst. Snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 2 ll, heklið saman 2 hst, heklið fram þar til 2 hst eru eftir og heklið þá saman 11-12-13-13-13-15-15 hst. Snúið við. Endurtakið síðan umf 2, þar verða 2 hst færri í hverri umf. Endurtakið þar til einungis 2 ll og 2 hst eru eftir. Heklið nú 2 hst saman, klippið frá og festið enda. Heklið annan eyrnalepp á sama hátt með byrjun frá seinna prjónamerki. KANTUR: Heklið kant í kringum húfuna með litnum brúnn. Notið heklunál nr 4 og byrjið við miðju að aftan (byrjun á umf á húfu). Heklið 1 fl í hvern hst fram að eyrnalepp, heklið * 1 fl, 1 ll og hoppið fram ca 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum allan eyrnaleppinn. Heklið 1 fl í hvern hst fram að seinni eyrnalepp og heklið á sama hátt og á fyrri eyrnalepp. Endið á að hekla 1 fl í hvern hst í kantinn að aftan að byrjun á umf og endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. EYRA: Eyrun eru hekluð í tveimur hlutum og hekluð síðan saman. Heklið með heklunál nr 4 með litnum ljós beige, heklið 7 ll. UMFERÐ 1: Snúið við og heklið til baka í ll-umf þannig: Byrjið á 3. ll frá heklunálinni: 1 hst í hverja af næstu 4 ll. Heklið 6 hst í síðustu ll í umf, snúið stykkinu og heklið 1 hst að neðan í hverja af 5 ll frá ll-umf = 16 hst. Snúið við og skiptið yfir í litinn ljós brúnn. UMFERÐ 2: Heklið 2 ll (kemur í stað fyrsta hst), 4 hst, heklið 2 hst í hvern af næstu 6 hst og 1 hst í síðustu 5 hst = 22 hst. Klippið frá. Heklið 1 eyra til viðbótar á sama hátt. Heklið nú 2 eyru til viðbótar EN nú einungis í litnum ljós brúnn (= bakhlið á eyrum). Leggið stykkið með litnum ljós beige ofan á stykki með litnum brúnn og heklið með litnum ljós brúnn þannig: 1 fl í hverja l fram að toppi á eyra, heklið 2 ll og 1 hst í 2. ll frá heklunálinni, hoppið nú yfir 1 fl og heklið síðan 1 fl í hverja fl út umf. Látið endann vera ca 20 cm langan áður en klippt er frá, hann er notaður fyrir frágang. Endurtakið á sama hátt og á hinu eyranu. Fyllið eyrun með smá vatti. HORN: Hornið er heklað í 2 hlutum sem síðan eru saumaðir saman í 1 horn. Byrjið þannig: Heklið 3 ll með heklunál nr 4 með litnum brúnn, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll (kemur í stað fyrstu fl), 7 fl um hringinn og endið á 1 kl í fyrstu ll = 8 fl. UMFERÐ 2: Heklið 1 ll (kemur í stað fyrstu fl), og 1 fl í fyrstu fl, síðan 2 fl í hverja fl umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu ll = 16 fl. UMFERÐ 3-5: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. Láið endann vera ca 10 cm langan áður en klippt er frá, hann er notaður fyrir frágang. Gerið nú eitt stærra horn á sama hátt, en heklið alls 8 umf með 1 fl í hverja fl. Látið endann vera ca 20 cm langan áður en klippt er frá. Saumið niður litla hornið á hliðina á stóra horninu. Fyllið stóra hornið með vatti. Heklið annað horn á sama hátt. AUGA: Heklið 3 ll með heklunál nr 4 með litnum brúnn, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll (kemur í stað fyrstu fl) og 9 fl um hringinn = 10 fl. Skiptið yfir í litinn natur og heklið 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf, klippið frá brúna endann. UMFERÐ 2: Heklið 1 ll (kemur í stað fl), 2 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 hst í næstu fl, 1 hst og 1 st í næstu fl, 2 st í næstu fl, 1 st í og 1 hst í næstu fl, 2 hst í næstu fl og 2 fl í 2 síðustu fl og endið á 1 kl í fyrstu ll. Látið endann vera ca 20 cm langan áður en klippt er frá, hann er notaður fyrir frágang. Heklið annað auga á sama hátt. SNOPPA: Heklið 16 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós beige. UMFERÐ 1: Heklið 2 ll og 1 hst í þriðju ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 hst í hverja ll þar til 2 ll eru eftir, heklið 2 hst saman. Lesið HEKLIÐ SAMAN 2 HST. Snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 2 ll, hoppið yfir fyrsta hst, 1 hst í hvern hst þar til 1 hst er eftir og 2 ll frá fyrri umf, heklið 2 hst saman með 2. ll frá fyrri umf. Endurtakið umf 2 alls 3 sinnum. Látið endann vera ca 20 cm langan áður en klippt er frá, hann er notaður fyrir frágang. NEF: Heklið 2 ll með heklunál nr 4 með litnum rauður og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll (kemur í stað fyrstu fl) og 5 fl um hringinn = 6 fl. UMERÐ 2: Heklið 1 ll (kemur í stað fyrstu fl) og 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í hverja fl umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu ll = 12 fl. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. Látið endann vera ca 20 cm langan áður en klippt er frá, hann er notaður fyrir frágang. Fyllið nefið með smá vatti. FRÁGANGUR: Saumið snoppuna niður við miðju framan á húfuna beint ofan við dökk brúna kantinn. Saumið nefið niður á snoppuna. Saumið augun bein ofan við snoppuna. Saumið niður hornin og eyrun efst uppi á húfuna. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Birthday Wishes App wrote:
Hey, I think your website might be having browser compatibility issues. When I look at your blog in Safari, it looks fine but when opening in Internet Explorer, it has some overlapping. I just wanted to give you a quick heads up! Other then that, wonderful blog!
22.11.2016 - 15:58DROPS Design answered:
Hi, Remember to always have your browser updated and it should then work! Happy crocheting!
23.11.2016 - 09:31Maria wrote:
At the end of the directions for the nose you say " fill the snout with some poly stuffing". Do you mean the nose? Otherwhise how to stuff with poly stuffing a flat piece? Thank you in advance and Merry Christmas!
24.12.2015 - 01:21DROPS Design answered:
Dear Maria, only the nose should be filled. Happy crocheting!
02.01.2016 - 13:27Maria wrote:
For the snout, after finishing the 1st ROW 2 and before repeating it for two more times, do I turn the piece or I continue in round? I tried to do it by turning the piece and the snout becomes very triangular.
24.12.2015 - 01:16DROPS Design answered:
Dear Maria, snout is worked back and forth, after you have worked row 2, turn and repeat row 2 a total of 3 more times, turning at the end of each row = the snout is 5 rows in total. Happy crocheting!
02.01.2016 - 13:26Maria wrote:
After round 11 you say to work around until the piece measures 18 cm. By that you mean to flatten the cap and count the diametre? Because I think it is too small like this... Thanks in advance
21.12.2015 - 15:58DROPS Design answered:
Dear Maria, you continue working until piece measures 18 cm from the beg (= 1st round). Happy crocheting!
22.12.2015 - 10:11FRANCOISE wrote:
Bonjour, quand vous dites après le tour 11 continuer pour que l'ouvrage mesure x cm c'est de diamètre ?? car sinon cela fait vraiment petit ?? D'avance merci Bonne journée Françoise
12.12.2015 - 06:54DROPS Design answered:
Bonjour Françoise, mesurez la hauteur depuis le 1er tour: mettez le bonnet à plat et mesurez à partir du haut du bonnet jusqu'au dernier rang. Bon crochet!
14.12.2015 - 09:32Cecile Tirmarche wrote:
Un tout gran merci! Avec les petites video tout est bien clai!
05.10.2015 - 17:49Cecile Tirmarche wrote:
L'abreviation "dB" s'agit il d'une demie bride ou d'une double bride?
05.10.2015 - 11:47DROPS Design answered:
Bonjour Mme Tirmarche, il s'agit d'une demi-bride, voir aussi la vidéo sous l'onglet du même nom. Bon crochet!
05.10.2015 - 16:11Tinzi wrote:
So cute little reindeer, suloinen pikkuporo
01.12.2014 - 14:13