Merlin |
|
|
|
Heklað vesti / slipover með uglu úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð börn 3-12 ára
DROPS Children 24-11 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Í hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. MYNSTUR: UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hverja fl. UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hvern st. Endurtakið umf 1 og 2. ÚRTAKA: Fækkað er um 1 l með því að hekla 2 l saman þannig: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrstu l, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar. GALDRAHRINGUR: Þegar stykkið er heklað í hring er byrjað með þessari aðferð til þess að sleppa við göt í miðjunni (í stað þess að gera ll-hring): Haldið í endann á þræðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um hana og dreginn upp úr hringnum, heklið 1 ll, heklið nú fl utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fl er kominn sem þú óskar eftir,dragið í endann á þræðinum svo að hægt sé að draga hringinn saman. Festið endann á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring. LITASKIPTI: Til þess að ná fram fallegum litaskiptum er síðasta kl í umf hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í síðustu ll frá byrjun umf, bregðið þræðinum með nýja litnum um heklunálina og dragið í gegnum l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Til að áferðin verði eins allan tíman, er stykkið heklað fram og til baka í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. FRAMSTYKKI: Heklið 62-67-71-76-81 ll með Merino Extra Fine með heklunál nr 4. Haldið áfram með 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja af næstu 4-2-6-4-2 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 54-58-62-66-70 fl (fyrsta ll = 1 fl). LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Snúið við og heklið 4 umf með 1 fl í hverja fl. Haldið áfram með MYNSTUR til loka – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-11-12-13-14 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið með því að hekla 2 l í næst síðustu l. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24 cm = 58-62-66-70-74 l. Þegar stykkið mælist ca 24-26-28-30-32 cm (passið uppá að næsta umf er umf með fl), fellið af fyrir handvegi þannig: Heklið kl yfir 3 fyrstu st, haldið áfram með fl þar til 3 st eru eftir, snúið við. * Heklið 3 ll í fyrstu fl, heklið nú 2 næstu st saman – SJÁ ÚRTAKA, heklið nú st fram þar til 3 fl eru eftir, heklið 2 næstu st saman, síðan 1 st í síðustu fl. Snúið við og heklið 1 umf með fl aftur yfir alla st, snúið við *. Endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar = 44-48-52-56-60 l í umf. Þegar stykkið mælist 29-31-34-36-39 cm, byrjar hálsmál og hvor öxl er hekluð til loka hvor fyrir sig. ÖXL 1: Heklið einungis yfir fyrstu 16-17-18-20-21 l. Snúið við og heklið til baka – jafnframt eru 4 fyrstu l heklaðar við hálsmál saman 2 og 2 – SJÁ ÚRTAKA! Í næstu umf eru 2 síðustu l við hálsmál heklaðar saman, endurtakið þessa úrtöku í hverri umf 2 sinnum til viðbótar = 11-12-13-15-16 l eftir á öxl. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 37-40-43-46-49 cm, klippið frá. ÖXL 2: Heklið eins og fyrri öxl – passið uppá að byrja réttu megin á stykkinu, þannig að áferðin verði eins alla leið. BAKSTYKKI: Heklið eins og framstykki fram yfir úrtöku fyrir handveg = 44-48-52-56-60 l í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist ca 36-39-42-45-48 cm. Heklið nú 2 umf með mynstri eins og áður einungis yfir 11-12-13-15-16 l á hvorri hlið (miðju 22-24-26-26-28 l = hálsmál). Klippið frá. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma og hliðarsauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í kringum hálsmál og í kringum handveg með litnum blár með heklunál nr 4. Heklið 1 fl í hverja fl og 2 fl í hverja umf með st. Klippið frá og festið enda. TVÖFÖLD UGLA: Stykkið er heklað í hring með Merino Extra Fine. Byrjið að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – með heklunál nr 3 með litnum eplagrænn. UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LITASKIPT! Heklið 8 fl um galdrahringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í fyrstu fl, 2 hst í næstu fl, 1 hst og 1 st í næstu fl, 2 st í hvora af næstu 2 fl, 1 st og 1 hst í næstu fl, 2 hst í næstu fl, 2 fl í síðustu litinn ljós grænn og heklið 1 fl í fyrstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í næstu l, 2 hst í hvora af næstu 2 l, 2 st í næstu l, 1 tbst í framan í lykkjubogann og 1 tbst aftan í lykkjubogann í næstu 4 l, 2 st í næstu l, 2 hst í hvora af næstu 2 l, 1 fl í næstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í síðustu l í umf = 28 l. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja l umf hringinn. UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn blár og heklið 1 fl í fyrstu l, 1 hst í næstu l, 1 st í sömu l, 2 tbst í næstu l, 1 ll (toppurinn á eyranu), 2 tbst í næstu l, 1 st í næstu l, 1 hst í sömu l, 1 fl í næstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í næstu l, 1 hst í næstu l og 1 st í sömu l, 2 st í næstu l, 2 tbst í sömu l, 2 st í næstu l, 2 tbst í hverja af næstu 8 l, 2 st í næstu l, 1 st í næstu l, 1 hst í sömu l, 1 fl í næstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í næstu l, 1 hst í næstu l, 1 st í sömu l, 2 tbst í næstu l, 1 ll (= toppurinn á eyranu), 2 tbst í næstu l, 1 st í næstu l, 1 hst í sömu l, 1 fl í síðustu l í umf = 50 l (+ 2 ll). Heklið aðra uglu á sama hátt. AUGU: Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – með litnum blár. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR – Heklið 6 fl um galdrahringinn. UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn natur og heklið 2 fl í hverja fl umf hringinn = 12 fl. Heklið annað auga á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið augun á ugluna. Saumið út gogginn með litnum sinnepsgulur þannig: Byrjið fyrir miðju við galdrahringinn og saumið eitt spor niður að 2. umf 2 sinnum og saumið frá miðjum hring og niður hliðina að 1. umf á hvoru megin við fyrsta sporið, einungis 1 sinni í hvorri hlið. Uglurnar eru síðan heklaðar saman með litnum ljós grænn. Leggið uglurnar ofan á hvora aðra með röngu á móti röngu og gogginn á móti þér. Heklið í gegnum bæði stykkin þannig: Heklið 2 fl um ll frá toppi á eyra á vinstri hlið. Heklið nú þannig: Heklið 1 fl í 6 næstu l, 1 hst í næstu l og 1 st í sömu l, 2 tbst í næstu l, 1 st í næstu l og 1 hst í sömu l, 1 fl í hverja af næstu 8 l, setjið 1 prjónamerki í síðustu l og heklið 1 fl í hverja af 14 næstu l, 1 hst í næstu l og 1 st í sömu l, 2 tbst í næstu l, 1 st í næstu l og 1 hst í sömu l, 1 fl í hverja af næstu 6 l og heklið 2 fl í ll (= toppurinn á hægra eyra). Fyllið ugluna með vatti og heklið síðan þannig: Heklið 1 fl í hverja af næstu 10 l og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 60 l. Klippið frá og festið enda. Klærnar eru heklaðar með litnum sinnepsgulur. Byrjið að hekla í lykkju með prjónamerki þannig: * Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl í næstu l, 4 ll, 1 fl í næstu l, 3 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Klippið frá og festið enda. Festið lyklakippuhring með krók aftan á ugluna. EINFÖLD UGLA: Heklið eins og tvöföld ugla, nema nú er bara hekluð ein ugla. Heklið í kringum ugluna með litnum ljósgrænn alveg eins og heklað var í kringum tvöföldu ugluna. Heklið klærnar alveg eins. Saumið ugluna á vestið – sjá mynd. Undir uglunni er hekluð grein þannig: Heklið fl með litnum blár og heklunál nr 3. Heklið ca 25 fl, aðeins niður á við í lokin. Heklið nú smá grein sem snýr upp, byrjið ca 8 fl á undan endanum á löngu greininni og heklið 5 fl – sjá mynd. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Linda wrote:
Some cute patterns here on this site but I cannot even find the basic information of Level to complete this pattern~ I can do all things but find all the information. Maybe it will take time but ugh I really like doing Amigurumi for the Holidays and can find none of them? Do you not have toys?
09.11.2022 - 02:00DROPS Design answered:
Dear Linda, there is no level stated since this is quite individually - read the pattern thoroughly and feel free to ask any question here if needed - you will find all our crocheted toys here. Happy crocheting!
09.11.2022 - 08:34Simkóné Nagy Judit wrote:
Bocsánat, a korábbi kérdésem kiegészítéséhez szólok, közben rájöttem, hogy a kérdéses sornál az 5 számjegy az 5 különböző méretre vonatkozik. Így megoldódott a problémám. 😊
13.05.2022 - 11:38Simkóné Nagy Judit wrote:
Az elsó sorban az első erp a 4.szembe, ez rendben, de utána 1rp a köv. 2-2-6-4-2 lsz-be, ez azt jelenti, hogy onnan a 2.majd 2.és hatodik stb.szembe megy rövidpálca? Azután pedig az 1 láncszem, 6 erp minta folytatódik. A sor elejét nem értem, vagy nem jól értelmezem, vagy nem jó a leírás?
12.05.2022 - 13:15Benedek-Kováts, Emese wrote:
A magyar fordításban rosszul van a próba. Nem 18 RPx 12 sor, hanem 18 szem x 12 sor minta (1 sor rp 1 sor erp váltakozva).
27.12.2020 - 21:07JUANA wrote:
LA AYUDA ES EXCELENTE PARA TEJER PARA MIS NIETOS, GRACIAS
17.08.2020 - 20:07Eileen O'Keeffe wrote:
What stitch is used in swatch for Merlin vest.
05.02.2020 - 16:18DROPS Design answered:
Dear Mrs O'Keeffe, the tension is measured with the pattern used in the vest - see PATTERN (= 1 row with trebles/1 row with double crochets (UK-English)). Happy crocheting!
06.02.2020 - 09:26Anne wrote:
Hej er der en fejl i staten med l lm kan ikke få det til at passe og til at det i næste rakke skal blive 54
23.12.2016 - 11:33DROPS Design answered:
Hej Anne. Du starter med 62 lm og haekler: Fortsæt med 1 fm i 2.lm fra nålen = 2 fm, derefter 1 fm i hver af de næste 4 lm, * spring over 1 lm, 1 fm i hver at de næste 6 lm *, gentag fra *-* rækken ud = 54 fm = inden *-* har du haeklet 6 fm over 6 lm (förste fm er en lm som du vendte med) og har 56 lm tilbage, du haekler 6 fm over 7 lm, dvs 8 gentagelser = 8x6 = 48 + 6 fm fra starten = 54 fm
30.12.2016 - 13:03Nathalie Dillen wrote:
Ik begrijp het patroon niet meer vanaf hals en schouder. Er staat starten met hals en eindigen met schouder maar bij de uitleg starten ze toch niet aan kant waar hals komt?
18.03.2014 - 17:22DROPS Design answered:
Hoi Nathalie. Je haakt de schouders apart. Dus eerst haak je over de eerste 16-17-18-20-21 st van het pand = schouder 1. Als je hiermee klaar bent, dan ga je aan de andere kant van het pand en haakt over de 16-17-18-20-21 st hier - dus dat betekent dat je een opening hebt ertussen voor de hals van bijv 12 st (kleinste maat).
19.03.2014 - 11:31