Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu | |
= setjið 3 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni | |
= setjið 3 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni | |
= setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af hjálparprjóni | |
= sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Sarah's Delight |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónað vesti úr DROPS Karisma með köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 141-40 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum innan við A.4 /A.6. Allar úrtökur eru gerðar frá réttu þannig: Fækkið lykkjum á undan A.6: Prjónið 2 l sl saman. Fækkið lykkjum á eftir A.4: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 16, 22 og 28 cm. STÆRÐ M: 16, 23 og 29 cm. STÆRÐ L: 17, 23 og 30 cm. STÆRÐ XL: 18, 24 og 31 cm. STÆRÐ XXL: 18, 25 og 32 cm. STÆRÐ XXXL: 19, 26 og 33 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 86-94-102-114-126-138 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með Karisma. Prjónið 10 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 25-29-33-39-45-51 l sl, prjónið 34 l sl, JAFNFRAMT er aukið út um 8 l jafnt yfir þessar l, 25-29-33-39-45-51 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 94-102-110-122-134-146 l. Skiptið yfir í prjóna nr 4, næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkja í garðaprjóni, 25-29-33-39-45-51 l br, A.1 (= 42 l), 25-29-33-39-45-51 l br og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með A.1 og sléttprjón yfir 25-29-33-39-45-51 l og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið, endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 86-94-102-114-126-138 l. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram með A.2 yfir l í A.1. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 5-5½-5½-6-6½-6½ cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 94-102-110-122-134-146 l. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 3 l 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 l 2-3-4-5-6-8 sinnum og 1 l 2-3-4-4-7-8 sinnum = 76-78-80-82-84-86 l. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm fækkað um 8 l jafnt yfir miðju 42 l = 68-70-72-74-76-78 l. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 9-10-11-12-13-14 l sléttprjón, * 2 l br, 2 sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 48 l, 2 l br, 9-10-11-12-13-14 l sléttprjón. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið af miðju 34 l = 17-18-19-20-21-22 l eftir á hvorri öxl. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með 9-10-11-12-13-14 l sléttprjón, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 1 l sl og 1 l með garðaprjóni við hálsmál, fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 49-53-57-63-69-75 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hlið) á prjóna nr 3 með Karisma. Prjónið – frá réttu þannig: Prjónið A.3 (= 14 l), garðaprjón yfir síðustu 35-39-43-49-55-61 l. Haldið áfram með þetta mynstur þar til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina = 51-55-59-65-71-77 l. Skiptið yfir á prjóna nr 4. Nú er prjónað – frá réttu þannig: Prjónið A.4 (= 16 l), sléttprjón yfir síðustu 34-38-42-48-54-60 l, 1 l garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur, þegar stykkið mælist 5 cm er fellt af á hliðum eins og á bakstykki = 47-51-55-61-67-73 l. Þegar stykkið mælist 16-16-17-18-18-19 cm byrjar útraka fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 20 cm er aukið út í hliðum eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm er fækkað um 1 l við háls – lesið ÚRTAKA, endurtakið úrtöku með 1 cm millibili 22 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm fellið af fyrir handveg eins og á bakstykki. Þegar öll úrtaka/fækkun fyrir handveg og hálsmáli er lokið eru 19-20-21-22-23-24 l á prjóni. Þegar stykkið mælist ca 53-55-57-59-61-63-65 cm er fækkað um 2 l jafnt yfir kaðal í A.4 = 17-18-19-20-21-22 l eftir á prjóni. Í næstu umf er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Í stað fyrir A.3 og A.4 er prjónað A.5 og A.6. Fellið ekki af fyrir hnappagati. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. KANTUR Á ERMUM: Prjónið upp 90-94-98-102-106-110 l á prjóna nr 3 meðfram opi neðan á ermi. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, síðan er prjónað stroff 2 l sl, 2 l br með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Prjónið þar til kanturinn mælist 3 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í. VASI: Fitjið upp 16 l á prjóna nr 4 með Karisma. Prjónið eftir A.6, fellið af þegar stykkið mælist 11 cm. Prjónið upp 23 l innan við síðustu br l frá A.6. Prjónið sléttprjón með 1 l í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið af þegar stykkið mælist alls 12 cm. Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt. Saumið vasana við miðju á framstykki, beint fyrir ofan garðaprjón. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (57)
Moureau wrote:
Pour le modèle 141-40, sur le devant droit pour le A3.Comment doit-on tricoter les 14 mailles sur l’envers.
09.05.2024 - 20:17DROPS Design answered:
Bonjour Mme Moureau, suivez simplement la légende des symboles correspondant pour les rangs sur l'envers autrement dit, en lisant de gauche à droite: 6 mailles endroit (= point mousse), 2 mailles endroit, 2 mailles envers, 2 mailles endroit, 1 m envers (7 mailles en côtes) et 1 maille endroit (point mousse). Bon tricot!
10.05.2024 - 08:53Céspedes wrote:
Apres avoir tricoter A.1 et A.2, dois ke continuar avec A.2?
05.11.2023 - 17:41DROPS Design answered:
Bonjour Mme Céspedes, tout à fait, quand A.1 est terminé, vous tricotez A.2 et vous répétez A.2 en hauteur jusqu'à la fin. Bon tricot!
06.11.2023 - 08:45Lillan I Bradley wrote:
Hello, I have received an email answer from you to my last question regarding pattern 141-40. Unfortunately, I did NOT understand what I was told i.e., "garter" stich & "stocking" stich, etc. The patterns A3 through A6 refer to KNIT/PURL stitches on right side and wrong side. Would you be so kind and read my question again and, hopefully,, I'll receive a different answer. Thank you very much!
22.06.2023 - 22:04DROPS Design answered:
Dear Mrs Bradley, I'm sorry, I might have misunderstood your question then; A.5 and A.6 is just a mirrored pattern from A.3 and A.4; work the stitches the same way as explained in the diagram key: the white squares are knitted from RS and purled from WS and the dots are purled from RS and knitted from WS. If it doesn't help, please try to reword your question as it is misunderstood. Thanks for your comprehension.
23.06.2023 - 07:42Lillan wrote:
Hello, the store in California where I used to buy your yarn and ask questions when needed, has closed down:( I now order yarn from Woolwarehouse in UK. Since they knit differently, I have to ask your web site again: Drops 141-40 Sarah's Delight; LEFT SIDE Pattern A.5, after knitting the pattern from right side, the last two stiches 13 &14 then show two KNIT sts rather than ONE knit & one purl like in the right front piece??? Thank you very much for your response :) Lillan
22.06.2023 - 00:33DROPS Design answered:
Dear Lillan, the 13rd stitch in A.5/A.6 is a stocking stitch and the last stitch is worked in garter stitch; as the 1st stitch in A..3 was worked in garter stitch and the 2nd stitch in A.3 was a stocking stitch. This 14th/1st stitch is knitted from RS and knitted from WS.Can this help or did I misunderstand your question?
22.06.2023 - 10:07Lillan Bradley wrote:
After reading all the English answers re: right front piece with cable, I am still not understanding the following: AT THE SAME TIME when piece measures 33cm (XL) dec 1 stitch TOWARDS MID FRONT??? repeat decrease every cm 22 more times. Also: READ DECREASE TIP: Dec as follows AFTER A4.....??? Hope this makes sense and thanks for your reply. Lillan
12.06.2023 - 03:11DROPS Design answered:
Dear Mrs Bradley, when piece measures 33 cm you will start decreasing for neck, on right front piece you will decrease after A.4 (as explained under decrease tip), ie work the A.4 stitches, then slip 1 as if to K, K1 and psso. Repeat this decrease 22 more times on every 1 cm (decrease from RS only). Happy knitting!
12.06.2023 - 09:12Barbara wrote:
Pattern 140-141. On the right front how many stitches should remain after decreasing on the front. I have to work 43 rows (22 times) if decreasing one stitch every half inch on right side only. I need to know how many stitches before I start the armhole bind off.
12.07.2022 - 08:51DROPS Design answered:
Dear Barbara, after the decreases on back piece, there are 47-51-55-61-67-73 sts, then after cast off/decreases for armhole and neck , there are 19-20-21-22-23-24 sts left and before casting off, there are 17-18-19-20-21-22 sts left. Happy knitting!
12.07.2022 - 09:02Barbara wrote:
Pattern number 141-40 Sarah's delight vest The decrease for armhole on the back is causing some problems for me. The pattern says to decrease 3sts on the next two rows=6sts. 2sts six times=12 and 1sts x7 =7sts. A total of 25 stitches are decreased. I am doing the XXL and need to end up 84 its. Please help.
05.07.2022 - 22:13DROPS Design answered:
Hi Barbara, You have 110 stitches before starting the armholes. You cast off on both sides: 3 stitches x 1 = 6, 2 sts x 4 = 16 and 1 st x 4 = 8. You have then cast off a total of 30 sts which leaves you with 80 sts. Happy knitting!
06.07.2022 - 06:57Barbara wrote:
I have completed the back of pattern u-671 up to row 79. My question is do I now complete A3 It is hard to see from the photograph as the model has long hair which obscures the view of the upper back. I am anxious to complete this project so an early replay would be appreciated.
04.07.2022 - 09:04DROPS Design answered:
Dear Barbara, when you have worked the whole diagram A.1, work now A.2 and repeat A.2 over A.1 (as shown in diagram = the 3 cables over 6 sts). Happy knitting!
04.07.2022 - 16:22Monica Ahlin wrote:
När man stickat bakstycket med diagram A1s alla varv, skall man sedan sticka diagram A2 6 varv och sedan upprepa dessa 6 varv hela vägen upp?
30.03.2022 - 21:37DROPS Design answered:
Hej Monica. Ja det stämmer. Mvh DROPS Design
31.03.2022 - 08:09Brandi wrote:
Hello again. Earlier I had asked for help on the back piece for size xl. This was your answer: Dear Brandi, for size XL, you should cast off on BOTH SIDES 3 stitches 2 times = 6, 2 stitches 5 times = 10, and 1 stitch 4 times = 4, 6+10+4 = 10 stitches x 2 = so you cast off 20 stitch all together. 122-20= 82 stitch is the number of stitches you should end up with. Happy Stitching! The problem here is that 122-20 does not equal 82 it equals 102. Still needing help with the numbers. Thanks
04.08.2021 - 07:15DROPS Design answered:
Dear Brandi, it looks like there was a small mistake in the previous answer, you will decrease 20 sts on each side (= 3 sts 2 times, 2 sts 5 times and 1 st 4 times), ie 40 sts in total = 102-40=82 sts remain. Happy knitting!
04.08.2021 - 07:59