Irma |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónaður bolero, prjónaður í spíral úr DROPS Delight. Stærð XS - XXXL
DROPS 141-24 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI: Til að litaskiptin með Delight verði falleg þegar byrjað er á nýjum þræði verður að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem síðast var prjónað með. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. 2 umf = 1 garður. STUTTAR UMFERÐIR: Prjónið 1 umf (rétta) yfir fyrstu 12-14-16-18 l, snúið og prjónið til baka. Prjónið 1 umf yfir fyrstu 11-13-15-17 l, snúið við og prjónið til baka. Haldið áfram með stuttar umferðir, prjónið yfir 1 l færri í hvert skipti, þar til prjónaðar hafa verið 2 umf yfir fyrstu l. Prjónið nú 1 umf yfir 2 fyrstu l, snúið við og prjónið til baka, 1 umf yfir 3 fyrstu l, snúið við og prjónið til baka. Haldið áfram með stuttar umferðir, það er prjónað yfir 1 l fleiri í hvert skipti, þar til prjónuðu hefur verið 1 umf yfir 12-14-16-18 l, snúið við og prjónið til baka. 1 mynstureining með stuttum umferðum = 46-54-62-70 umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er bakstykkið prjónað í garðaprjóni með stuttum umferðum svo að það myndist spírall. Prjónið síðan 2 rendur í kringum opið á kanti að framan jafnframt sem aukið er út fyrir framstykki. LESIÐ BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI! BAK: Prjónið fram og til baka. Fitjið upp 13-15-17-19 l á prjóna nr 3,5 með Delight. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 10 cm. Prjónið 1 mynstureiningu með STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú 2 umf yfir allar l á prjóni og aftur 1 mynstureiningu með stuttum umferðum. * Prjónið 1 umf yfir allar l (frá réttu). Næsta umf er prjónuð (frá röngu) þannig: Takið upp síðustu l yst í lykkjubogann frá fyrri umf, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið út umf *. Endurtakið þessar 2 umf (þ.e.a.s. frá *-*) þar til prjónuð hefur verið upp 1 l í aðra hverja l meðfram allri hliðinni frá fyrri rönd. Prjónið 1 mynstureiningu með stuttum umferðum. Prjónið 1 umf yfir allar l (= frá réttu). Næsta umf er prjónuð (frá röngu) þannig: Takið upp síðustu l frá uppfitjunarkanti, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið út umf. Haldið svona áfram þar til prjónuð hefur verið upp 1 l í aðra hverja l meðfram allri hliðinni á uppfitjunarkanti. Prjónið 1 mynstureiningu með stuttum umferðum. Haldið svona áfram hringinn þar til prjónaðar hafa verið 3 rendur á allar hliðar kringum miðju – sjá mynsturteikningu A-1 (stuttar umferðir eru prjónaðir alls 13 sinnum). Fellið af, þegar stykkið mælist ca 40-46-52-58 cm x 50-56-62-68 cm. FRÁGANGUR: Brjótið stykkið saman við miðju, meðfram hliðinni sem er lengst, saumið saman síðustu 2 cm inn á skammhliðina í hvorri hlið fyrir handveg. Mælið frá þeim stað þar sem saumað var saman og 10-12-14-16 cm inn á langhliðina, setjið 1 prjónamerki hérna, snúið stykkinu og gerið eins á hinni langhliðinni, þá eru 4 prjónamerki í meðfram síðustu rönd (= op að framan), þau eru notuð þegar kanturinn er prjónaður hringinn. Setjið einnig 1 prjónamerki (í öðrum lit) mitt á milli 2 prjónamerkja á annarri langhliðinni, þetta prjónamerki = miðja að aftan við hnakka. KANTUR HRINGINN: Prjónaðar eru 2 rendur kringum allt opið á jakkanum. RÖND 1: Fitjið upp 13-15-17-19 l, byrjið við prjónamerki aftan við hnakka og prjónið þannig: [* Prjónið 1 umf slétt yfir þær 13-15-17-19 l (= rétta), næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Takið upp síðustu l yst í lykkjubogann frá fyrri rönd, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið út umf *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, síðan eru prjónaðar 2 umf í garðaprjóni yfir einungis fyrstu (= ystu) 7-8-9-10 l], endurtakið frá [-], kringum allan jakkann, fellið af. RÖND 2: Fitjið upp 13-15-17-19 l – byrjið nú við miðju að aftan við hnakka yst í l á 1. rönd. Prjónið eins og 1. rönd að 1. prjónamerki. Nú byrjar útaukning fyrir framstykki þannig: FYRRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og áður jafnframt því sem aukið er út þannig: Aukið út frá réttu með því að gera 1 uppslátt innan við síðustu l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt til þess að koma í veg fyrir göt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri um þar til aukið hefur verið út 13-15-17-19 l (= alls 26-30-34-38 l á prjóni) – á meðan aukið er út er haldið áfram að prjóna 7. og 8. hverja umf í garðaprjóni einungis yfir síðustu 7-8-9-10 l. Þegar útaukningu er lokið, prjónið áfram þannig: * 1. til 6 umf í garðaprjóni: Prjónið fram og til baka yfir allar l, 7.- 8. umf í garðaprjóni: Prjónið fram og til baka yfir einungis síðustu 7-8-9-10 l, 9.- 10. umf í garðaprjóni: Prjónið fram og til baka yfir einungis síðustu 13-15-17-19 l *. Endurtakið frá *-* fram til 20-24-26-30 umf í garðaprjóni (þ.e.a.s. 10-12-13-15 garðar) á undan næsta prjónamerki í lengju 1. Nú er fækkað um þær l sem fitjaðar voru aftur upp – fellið af frá réttu með því að prjóna 2 næst síðustu l slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 13-15-17-19 sinnum = 13-15-17-19 l eftir á prjóni – JAFNFRAMT (þegar úrtaka byrjar), prjónið áfram þannig: ** Prjónið 1.- 6. umf í garðaprjóni: Prjónið fram og til baka yfir allar l, 7.- og 8. umf í garðaprjóni: Prjónið fram og til baka yfir síðustu 7-8-9-10 l ** (þ.e.a.s. 9.- 10. umf í garðaprjóni eru ekki prjónaðar lengur). Eftir alla úrtöku, prjónið eins og lengja 1 að næsta prjónamerki. SEINNA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og fyrra framstykki. Prjónið til loka fram að miðju að aftan við hnakka eins og lengja 1, fellið af þær 13-15-17-19 l sem eftir eru. FRÁGANGUR: Saumið affellingarkantinn á 2 lengjunum kant í kant við uppfitjunarkantinn. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Bernadette Perrier wrote:
J aimerais avoir une explication plus explicite. ou un schema complet
22.01.2021 - 16:31DROPS Design answered:
Bonjour Mme Perrier, cette vidéo montre comment tricoter de type de bandes attachées les unes aux autres en tournant avec des rangs raccourcis -suivez bien pas à pas les explications (et votre nombre de mailles, la vidéo ne s'applique qu'à la technique). Bon tricot!
25.01.2021 - 08:09Hans Jørgen Jensen wrote:
Jeg har problemer med at fotstå opskriften når jeg strkkert kant rundt, det med at strikke over de første (=yderste) 10 masker og gentag fra firkantet (-), og udtagningerne til de skrå sider. Venlig Hilsen Hans Jørgen 49 26 13 35
12.01.2013 - 08:47DROPS Design answered:
Du skal strikke forkortede pinde/vendepinde over de yderste 10 m (se evt video link her paa mönstret). Saadan yderkanten bredere. I anden raekke gentager du endnu engang beskrivelsen mellem [-] og samtidig skal du tage 1 maske ud (omslag) yderst paa pinden. Dvs, kanten bliver bredere og laengere.
16.01.2013 - 17:14Kathy wrote:
Super schick! haben wollen^^
30.06.2012 - 18:28Elisabeth wrote:
Cute
24.06.2012 - 20:33Ans wrote:
Mooi samenkomen van interessant ontwerp en garenkeuze
12.06.2012 - 23:43Cajito wrote:
Krásná hra s barvami a pletením
08.06.2012 - 17:38Corry wrote:
Spannend! Maar wat gebeurt daar op die rug? Is dat een capuchon? mooie klueren - leuk effect hoor!
06.06.2012 - 02:01Anita Tholen wrote:
Raar model. Vierkant op de rug is te ruim. Lijkt of je een bochel hebt.
04.06.2012 - 08:52Alike wrote:
Grappig idee
02.06.2012 - 16:59Jacqueline wrote:
Speels
02.06.2012 - 13:46