Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= 2 lykkjur snúnar brugðið saman | |
= 2 lykkjur brugðið saman |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Abbey |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með stuttum ermum og berustykki. Stærð S- XXXL
DROPS 142-14 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚRTAKA: Allar úrtökur eru gerðar frá réttu: Byrjið með 2 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Prjónið 2 l sl saman, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚRTAKA (á við um berustykki): Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir 3 hnappagötum í hægri kanti að framan eins og sjá má í útskýringu. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti sl saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. PEYSA: Fitjið LAUST upp 188-204-220-244-268-292 l (meðtaldar eru 6 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Karisma. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón, síðustu 6 l í hvorri hlið eru prjónaðar áfram í garðaprjóni (= kantur að framan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm eru sett 2 prjónamerki í stykkið, 50-54-58-64-70-76 l frá hvorri hlið (= 88-96-104-116-128-140 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3½ cm millibili, 3 sinnum til viðbótar = 172-188-204-228-252-276 l. Þegar stykkið mælist 20 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 6-6-6-7-7-7 cm millibili, 3 sinnum til viðbótar = 188-204-220-244-268-292 l. Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm (passið uppá að næsta umf er prjónuð frá röngu), fellið af 8-8-8-10-10-10 l í hvorri hlið fyrir handveg ( þ.e.a.s. 4-4-4-5-5-5 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 46-50-54-59-65-71 l eftir á hvoru framstykki og 80-88-96-106-118-130 l eftir á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið kant á ermum. KANTUR Á ERMUM: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 62-64-66-70-72-74 l á hringprjóna nr 3 með Karisma. Prjónið 6 umf garðaprjón (1. ufm = rétta). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 4-4-4-5-5-5 l, prjónið næstu 54-56-58-60-62-64 l slétt JAFNFRAMT er aukið út um 6 l jafnt yfir yfir þær (aukið út með því að prjóna 2 l í 1 l) og fellið síðan af síðustu 4-4-4-5-5-5 l = 60-62-64-66-68-70 l á prjóni. Geymið stykkið og prjónið annan kant á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið kant á ermum á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 292-312-332-356-384-412 l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fellt af fyrir 1 HNAPPAGAT í hægra framstykki – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, prjónið nú 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 5-5-5-9-7-5 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 287-307-327-347-377-407 l Næsta umf er prjónið frá röngu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur í garðaprjóni * 5 l br, 5 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 11 l eru eftir og endið með 5 l br og 6 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist ca 6-7-7-8-9-10 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur eins og áður, prjónið A.1 þar til 11 l eru eftir á prjóni, prjónið næstu 5 l eins og fyrstu 5 l í A.1, endið með 6 kantlykkjum eins og áður. Eftir A.1 eru 177-189-201-213-231-249 l á prjóni. Prjónið 1 umf með sl yfir sl og br yfir br (kantar eru prjónaðir í garðaprjón eins og áður). Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fellt af fyrir 1 hnappagati í hægri kanti að framan. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Prjónið næstu umf frá röngu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur í garðaprjóni eins og áður, * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* þar til 9 l eru eftir og endið með 3 l br og 6 kantlykkjum eins og áður. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist ca 13-14-15-16-17-18 cm. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur eins og áður, prjónið mynstur A.2 þar til 9 l eru eftir á prjóni, prjónið næstu 3 l eins og fyrstu 3 l í A.2, endið með 6 kantlykkjum að framan eins og áður. Eftir A.2 eru 122-130-138-146-158-170 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf með sl yfir sl og br yfir br (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni eins og áður). Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 6 umf í garðaprjóni yfir allar l JAFNFRAMT í 1. umf (þ.e.a.s. frá réttu), er fellt af fyrir síðasta hnappagatinu í hægri kanti að framan og að auki er fækkað um 32-38-42-48-56-66 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur) = 90-92-96-98-102-104 l. Eftir síðust umf í garðaprjóni er fellt laust af með sl frá réttu. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm upp að öxl. FRÁGANGUR: Saumið saman kant á ermum við miðju undir ermi – saumið kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið saman op undir handveg. Saumið tölur í. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (54)
Francesca wrote:
I don’t understand the stitch count. If the finished measurement of the smallest size is 33” and the gauge is 4.25 stitches to 1”, how does it say cast on 188 stitches? 33” x 4.25 = 140.
17.02.2024 - 00:58DROPS Design answered:
Dear Francesca, the gauge was calculated in stocking stitch and 4mm needles. However, you cast on with 3mm needles and garter stitch. The gauge is different in this case and that is why you need 188 stitches. Also, the gauge is 5.25 stitches = 1", not 4.25 stitches. 5.25 stitches*33" = approx. 174 stitches. Happy knitting!
18.02.2024 - 21:49Sandra wrote:
Das war leider nicht die Antwort auf meine Frage. Bei den Abnahmen sind ZUERST 5 Maschen links und dann rechts. A1 und A2 zeigt aber zuerst 5 Maschen rechts und dann links. Das ist nicht richtig.
19.01.2024 - 10:06DROPS Design answered:
Liebe Sandra, Entschuldigung für das Misverständnis, aber A.1 wird über 5 M rechts, 5 M links gestrickt, dh genauso über das Rippenmuster und so: (1 M wie zum Rechtsstricken abheben, 1 M re, die abgehobene M überziehen, 1 M rechts, 2 M re zusammen, 2 M li verschränkt zusammen, 1 M links, 2 M li zusammen = es sind jetzt 3 M re, 3 M li auf der Nadel. So stricken Sie später A.2: 1 M re, 2 M re zusammen, 1 M li, 2 M li zusammen = es sind nur noch 2 M re, 2 m li. Viel Spaß beim stricken!
19.01.2024 - 15:57Sandra wrote:
Wenn das Muster A1 sowie A2 von rechts nach links gelesen werden soll, stimmt die Reihenfolge nicht? Zuerst sind ja die Abnahmen bei den linken Maschen und danach bei den rechten. Also genau umgekehrt wie angegeben.
18.01.2024 - 21:39DROPS Design answered:
Liebe Sandra, Bein den Hinreihen strickt man (5 M rechts, 5 M links), so wenn A.1 bei einer HinReihe gestrickt wird stimmen die Abnahmen: die 5 rechte Maschen werden zu 3 Maschen abgenommen und die 5 linke Maschen zu 3 Maschen abgenommen (= 3 M rechts, 3 M links, von der Vorderseite gesehen) . Viel Spaß beim stricken!
19.01.2024 - 09:26Martina wrote:
Hallo, Ich bin jetzt an der Stelle angekommen, wo die Maschen für die Armausschnitte abgekettet werden. Es heißt dort: die nächste R ist eine Rück-R. Verstehe ich das richtig, dass in einer Hin-R abgekettet wird? Außerdem schlägt bei mir (Wie bei einer anderen Kundin, auf deren Frage ich aber keine Antwort gefunden habe) der untere Krausrippenrand immer nach oben um. Was tun? Besten Dank für Ihre Hilfe!
21.07.2022 - 14:33DROPS Design answered:
Liebe Martina, ja, du kettest auf der rechten Seite ab. Das Problem mit Krausrippen ist, dass sie möglicherweise enger als gewöhnlich gestrickt wurden. Sie können versuchen, es zu glätten, indem Sie es mit einem Bügeleisen dämpfen.
31.07.2022 - 20:19Luisa Paggi wrote:
Per favore, posso eseguire il modello a ferri diritti? (non so lavorare con i ferri circolari). Vi ringrazio per la risposta.
25.03.2022 - 08:35DROPS Design answered:
Buongiorno Luisa, il modello è un cardigan lavorato in piano, quindi può utilizzare i ferri dritti. Buon lavoro!
26.03.2022 - 09:31Marianne Bergersen wrote:
Uffda! Etter å ha tenkt litt og regnet litt mer, tror jeg at jeg skjønner at det er jeg som har gjort feil 🙃 Beklager spørsmålet. Jeg skal nok finne ut av dette selv. Dere må gjerne slette innleggene mine. 😆
26.02.2020 - 20:52DROPS Design answered:
Hej Marianne, åh dejligt at høre at du har fundet ud af det. Rigtig god fornøjelse! :)
27.02.2020 - 09:17Marianne Bergersen wrote:
Hei! Jeg får ikke oppskriften til å stemme. Holder på med bolen, og er snart ferdig med de fire fellingsrundene. MEN så står det videre at det skal økes når arbeidet måler 20 cm, og mitt arbeid er over 25 cm langt før jeg er ferdig med alle fellingsrundene. Mener dere at det skal strikkes 20 cm ETTER at fellingsrundene er gjort før en begynner på økningene?
26.02.2020 - 17:44DROPS Design answered:
Hej Marianne, åh dejligt at høre at du har fundet ud af det. Rigtig god fornøjelse! :)
27.02.2020 - 09:17Oksana wrote:
Ich suche eine änliche Anleitung für ein Pulli. Können sie mir bitte helfen?
05.08.2019 - 19:25DROPS Design answered:
Liebe Oksana, hier finden Sie alle unsere Anleitungen für Pullover mit Rundpasse. Viel Spaß beim stricken!
07.08.2019 - 11:12Evy Schultz wrote:
Er der andre der har problemer med at den "rulle" , og hvad kan jeg gøre ved det....?
25.01.2018 - 20:22DROPS Design answered:
Hej Evy, du kan dampe den let evt presse med et fugtigt håndklæde imellem. Prøv først på et lille stykke i hjørnet, så du ser at den ikke bliver ødelagt. :)
30.01.2018 - 11:57Kody Doisy wrote:
Bonsoir je ne comprend pas le premier rang du diagramme A.1svp. Est ce qu' il se tricote sur l'endroit où sur l'envers du tricot ? Est ce que les côtes 5/5 sont cassées ou pas ?car on ne voit pas bien le point sur la photo du modèle désolée ?
16.12.2015 - 19:46DROPS Design answered:
Bonjour Kody Doisy, A.1 se tricote sur l'endroit: glissez 1 m à l'end, 1 m end, passez la m glissée par-dessus la m tricotée, 1 m end, 2 m ens à l'end, 2 m ens torse à l'env, 1 m env, 2 m ens à l'env. À la fin du rang, tricotez seulement les 5 premières m de A.1. Bon tricot!
17.12.2015 - 10:22