Pippa |
|
|
|
Heklaður héri / kanína með blómi úr DROPS Paris
DROPS Baby 21-42 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Byrjið með þessari aðferð til að koma í veg fyrir að það myndist gat í miðju (í staðinn fyrir loftlykkjuhring): Haldið í endann á þræðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um heklunálina og þráðurinn dreginn upp úr hringnum, heklið 1 loftlykkju, heklið nú fastalykkju utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fastalykkja er kominn sem óskað er eftir, dragið í endann á þræðinum og herðið að. Festið enda á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring. HEKLAÐ Í HRING: Eftir síðustu fastalykkju í umferð, haldið áfram að næstu umferð með 1 fastalykkju í næstu fastalykkju (= fyrsta fastalykkja frá fyrri umferð). ATH: Merkið byrjun umferðar með prjónamerki á milli síðustu fastalykkju í umferð og fyrstu fastalykkju í næstu umferð, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: * Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni. LITASKIPTI: Til að fá falleg litaskipti er síðasta fastalykkjan í umferð hekluð þannig: Stingið heklunálinni í síðustu fastalykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. Haldið áfram að næstu umferð með nýja litnum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÉRI / KANÍNA: HÖFUÐ: Byrjað er efst á höfðinu með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – með heklunál nr 4 með Paris og litnum natur. UMFERÐ 1: Heklið 8 fl um hringinn. Lesið HEKLAÐ Í HRING. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 16 fl. UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 fl. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja fl = 32 fl. UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 fl. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl = 40 fl. UMFERÐ 8: * Heklið 1 fl í næstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 fl. UMFERÐ 9-12: Heklið 1 fl í hverja fl = 48 fl í umf. UMFERÐ 13: * Heklið 1 fl í næstu 6 fl, síðan eru 2 FL HEKLAÐAR SAMAN * - Sjá skýringu að ofan, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 fl. UMFERÐ 14: * Heklið 1 fl í næstu 5 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl. UMFERÐ 15: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl. UMFERÐ 16: * Heklið 1 fl í næstu 4 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 17: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. UMFERÐ 18: * Heklið 1 fl í næstu 3 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 19: * Heklið 1 fl í næstu 2 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 20: * Heklið 1 fl í næstu fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. Klippið frá og festið endann. Fyllið höfuðið með vatti. BÚKUR Byrjað er neðst á búk með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – með litnum skærbleikur með heklunál nr 4. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. Skiptið yfir í litinn ljós bleikur í síðustu fl – LESIÐ LITASKIPTI – FL. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl – skiptið yfir í litinn skærbleikur í síðustu fl. UMFERÐ 5: *Heklið 1 fl í næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl – skiptið yfir í litinn ljós bleikur í síðustu fl. UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í næstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl – skiptið yfir í litinn skærbleikur í síðustu fl. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl. Skiptið yfir í litinn ljós bleikur í síðustu fl. UMFERÐ 8: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl. Skiptið yfir í litinn skærbleikur í síðustu fl. UMFERÐ 9: Heklið eins og umf 7. UMFERÐ 10: Heklið eins og umf 8. UMFERÐ 11: Heklið eins og umf 7 – en skiptið yfir í litinn natur í stað litnum ljós bleikur í síðustu fl. UMFERÐ 12-13: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl í umf. UMFERÐ 14: Heklið 1 fl í næstu 4 fl, heklið nú 2 FL HEKLAÐAR SAMAN – sjá skýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 15-16: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl í umf. UMFERÐ 17: * Heklið 1 fl í næstu 3 fl, heklið síðan 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 18-19: Heklið 1 fl í hverja fl = 35 fl í umf. UMFERÐ 20: * Heklið 1 fl í næstu 2 fl, heklið síðan 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 21: Heklið 1 fl í hverja fl = 18 fl. UMFERÐ 22: * Heklið 1 fl í næstu fl, heklið síðan 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. Klippið frá og haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Fyllið búkinn með vatti. FÓTUR: Byrjað er yst á fæti með því að gera GALDRAHRINGUR- sjá útskýringu að ofan með litnum millibleikur með heklunál nr 4. UMFERÐ 1: Heklið 4 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 8 fl. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl í umf – skiptið yfir í litinn natur í síðustu fl í umf 4. UMFERÐ 5-18: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl í umf. Klippið frá og haldið eftir 20 cm fyrir frágang. Fyllið fótinn með vatti. Heklið hinn fótinn á sama hátt. HÖND: Byrjað er yst á hendi með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan með litnum millibleikur með heklunál nr 4. Heklið umf 1-4 eins og fótur. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í næstu 6 fl, heklið nú 2 FL HEKLAÐAR SAMAN – sjá útskýringu að ofan = 7 fl. UMFERÐ 6-15: Heklið 1 fl í hverja fl = 7 fl í umf. Klippið frá og haldið eftir 20 cm fyrir frágang. Fyllið hálfa höndina með vatti. Heklið hina höndina á sama hátt. RÓFA: Byrjað er að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan með litnum ljós bleikur með heklunál nr 4. UMFERÐ 1: Heklið 4 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 8 fl. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl í umf. Klippið frá og haldið eftir 20 cm fyrir frágang (fyllið ekki með vatti). EYRA: Byrjað er neðst á eyra með því að gera 8 ll (7 ll + 1 ll til þess að snúa við með) með heklunál nr 3 með litnum natur. UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í hverja ll frá 2. ll frá heklunálinni = 7 fl. Snúið við. UMFERÐ 2-8: Heklið 1 ll, 1 fl í hverja fl, snúið við = 7 fl í umf. UMFERÐ 9: Heklið 1 ll, hoppið yfir 1. fl, 1 fl í næstu 4 fl, hoppið yfir næstu fl, 1 fl í síðustu fl = 5 fl. Snúið við. UMFERÐ 10: Heklið 1 ll, 1 fl í hverja fl = 5 fl. Snúið við. UMFERÐ 11: Heklið 1 ll, hoppið yfir 1. fl, 1 fl í næstu 2 fl, hoppið yfir næstu fl, 1 fl í síðustu fl = 3 fl. Snúið við. UMFERÐ 12: Heklið 1 ll, hoppið yfir 1. fl, heklið næstu 2 fl saman = 1 fl. Klippið frá og festið enda. Heklið hitt eyrað á sama hátt. BLÓM: Heklið með heklunál nr 3 með litnum skærbleikur þannig: UMFERÐ 1: Heklið 4 ll og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið 1 ll, síðan 6 fl um hringinn, endið umf og skiptið yfir í litinn ljós bleikur þannig: Stingið heklunálinni í 1. fl í umf, bregðið þræðinum um heklunálina með litnum ljós bleikur og dragið nýja þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni. UMFERÐ 2: * Heklið 4 ll, 1 kl í næstu fl frá umf 1 *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum. Heklið nú 4 ll, endið umf og skiptið yfir í litinn skærbleikur þannig: Stingið heklunálinni í 1. fl frá umf 1, bregðið þræðinum um heklunálina með litnum skærbleiku og dragið nýja þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni = 6 blöð í litnum ljós bleikur. UMFERÐ 3: * Heklið 5 ll, snúið næsta blaði frá umf 2 að þér og heklið frá bakhlið af blaðinu þannig: Stingið heklunálinni í næstu fl frá umf 1 (til hægri á undan kl frá umf 2), heklið 1 kl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, endið með 5 ll og 1 kl í 1. fl frá umf 1 = 6 blöð í litnum skærbleiku. Klippið frá og haldið eftir 20 cm fyrir frágang. FRÁGANGUR: Brjótið botninn á eyrum saman við miðju og saumið þau niður á höfuðið. Saumið blómið niður neðan við annað eyrað. Saumið einn kross fyrir nef með litnum millibleikur og augu með litnum svartur. Saumið höfuðið á búkinn með smáu spori. Saumið fætur og hendur í hvora hlið á búkinn með fínu spori. Saumið rófuna niður aftan á búkinn. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Pia wrote:
Vad betyder * i era mönster? Är det multiplicera som menas? Bättre att ni skriver ut i stället för att använda förkortningar. Tex OMG etc..
02.01.2023 - 15:37DROPS Design answered:
Hei Pia. När vi använder *-* i texten, stickar man det som står mellan stjärnorna och stickar denna repetition det antal gånger som står i mönstret. Så når det står i oppskriften: * Stick in nålen i nästa m, hämta tråden *, upprepa *-* en gång till, så gjør du det som er markert mellom stjernene en gang til. Les gjerne mer om hvordan du leser en DROPS oppskrift under: Tips & Hjälp - DROPS lektioner - Läs ett mönster. Les også under: Tips & Hjälp - Ordbok. mvh DROPS Design
06.01.2023 - 08:22Maria Eriksson wrote:
Hej, jag har beställt garn till Petrine-vest och fått mönster på norska. Skulle om möjligt vilja ha det på svenska. Mvh Maria
31.03.2022 - 20:07DROPS Design answered:
Hej Maria, Är det ett DROPS mönster? I så fall är det bara att ändra språk till svenska under bilden :)
04.04.2022 - 11:41Eve Woods wrote:
I would like the pattern of Odin Bunny. How do I get that?
11.02.2021 - 00:37DROPS Design answered:
Dear Mrs Woods, you will find our bunny patterns here if this can help. You are welcome to contact your DROPS store for any further individual assistance. Happy crocheting!
11.02.2021 - 06:50Jane wrote:
Found someone selling this pattern on Etsy Seller: Souvenirstoys
01.02.2019 - 07:39Jessica wrote:
Ce n'est pas Patty mais Pippa. Cdlt,
02.12.2017 - 15:22Jessica wrote:
Bonjour, Je vous informe que vous avez deux fois le même patron en ligne : miss mew et patty. A bientot
02.12.2017 - 15:21Patricia wrote:
Bonjour, je ne comprends rien aux explications concernant la fleur ? Pouvez-vous m'aider s'il vous plaît ? Avec mes remerciements
23.02.2015 - 08:12DROPS Design answered:
Bonjour Patricia, on commence par un rond de 6 ms, on ferme ce rond avec l'autre couleur (pour que le changement de couleur soit plus joli), puis on crée les pétales avec 4 ml, 1 mc dans la ms suiv tout le tour, on termine le tour avec 1 mc dans la 1ère ms (du tour 1) avec la nouvelle couleur. On crochète ensuite des arceaux de 5 ml, 1 mc dans la ms du tour 1 en piquant le crochet derrière la 1ère rangée de pétales. Bon crochet!
23.02.2015 - 14:08Lotte W S wrote:
Tak for mange gode opskrifter og hjælp! Mener ikke at antallet af masker angivet i slutningen af hver række kan stemme overens med fremgangsmåden. Har man 24 masker og tilføjer en maske til hver 2. må man få 12 masker mere, dvs. 36 og ikke 32. Skal jeg ende med 36 eller blot tilføje en maske til hver 3.? Tak på forhånd :)
17.11.2014 - 10:08DROPS Design answered:
Hej Lotte, Er det 4.omg på hovedet du mener, så står der således: 4.OMG: * 1 fm i næste 2 fm, 2 fm i næste fm *, gentag fra *-* omg rundt = 32 fm. det vil sige udtagning i hver 3.
25.11.2014 - 15:18Christina Truetsch wrote:
Hallo! Ich verstehe nicht ganz wie das mit dem Schwanz gemeint ist: ich soll unten am Körper mit einem Magic Circle beginnen, soll ich den gleich annähen? Und das wird ja ein Kreis, wie soll der dann ausschauen? Wie ein Bommel oder wird der Kreis flach aufgenäht? Vielen Dank für ihre Hilfe!
16.10.2013 - 09:59DROPS Design answered:
Liebe Christina, der Anfang des Schwanzes mit dem Magic Circle ist nicht zum Körper zu, sondern aussen. Nähen Sie den Kreis dann flach (und ungefüllt) mit der letzten Rd zum Körper an.
17.10.2013 - 07:07Stefania wrote:
è possibile fare i modelli gratis in versione pdf ? grazie mille
08.06.2013 - 15:40DROPS Design answered:
Buongiorno, i modelli non sono disponibili in versione pdf; in ogni modello è presente comunque il bottone per la stampa, cliccando quello apparirà una finestra con la versione stampabile del modello. In alternativa è possibile comunque selezionare il testo e copiarlo su un foglio di testo, se vuole conservarlo. Buon lavoro!
09.06.2013 - 18:28