Father Christmas |
|
|
|
Heklaður jólasveinn úr DROPS Nepal. Þema: Jól
DROPS Extra 0-721 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 2 stuðla í 1 stuðul þannig: Heklið 1 stuðul en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. LYKKJULYKKJUR: Heklið frá röngu. Leggið þráðinn í lykkju utan um vinstri vísifingur. Stingið inn heklunálinni í fastalykkju frá fyrri umferð eins og venjuleg fastalykkju, en dragið báða þræðina í gegn = 3 lykkjur á heklunálinni. Sleppið lykkjunni af fingri. Bregðið þræðinum á ný um heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. LITIR Á JÓLASVEINI: Fætur: 7 umferðir með litnum svartur, 16 umferðir með litnum ljós beige. Hendur: 4 umferðir með litnum ljós beige, * 1 umferð með litnum milligrár, 1 umferð með litnum ljós grár *, endurtakið frá *-* að loka máli. Buxur: Litur rauður. Búkur: * 1 umferð með litnum milligrár, 1 umferð með litnum grár *, endurtakið frá *-* að loka máli. Höfuð: 3 umferðir í litnum ljós beige, 3 umferðir í litnum hvítur, 6 umferðir í litnum ljós beige. Axlabönd + efri hluti á buxum + húfa: Litur rauður. Hár: Litur hvítur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- JÓLASVEINN - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Lesið útskýringu á litum að ofan. Það eru heklaðir 2 fætur, 2 hendur, buxur, búkur, höfuð, húfa, axlabönd. FÓTUR: Heklið 4 loftlykkjur og formið í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 2: 1 loftlykkja, * 1 fastalykkja, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* (= 9 fastalykkjur hringinn). Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 3-21: 1 loftlykkja, 9 fastalykkjur, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 22: 1 loftlykkja, 4 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 3 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu lykkju (= 11 fastalykkjur hringinn). Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 23: 1 loftlykkja, heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 22 fastalykkjur. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Klippið þráðinn og festið. Heklið annað fót á sama hátt en ekki klippa þráðinn frá í lokinn. Þráðurinn er notaður til að hekla fæturna saman. Fyllið fæturna með vatti. HENDI: Heklið umferð 1-21 á sama hátt og á fæti, síðan í næstu umferð er fækkað um 1 fastalykkju með því að hoppa yfir 1 lykkju (= 8 fastalykkjur í umferð). Klippið þráðinn og festið. Heklið aðra hendi á sama hátt og fyllið hendurnar með vatti. SKÁLM: Heklið 16 loftlykkjur og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 2-4: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hverja lykkju. Endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 5: 3 loftlykkjur, 2 stuðlar í fyrstu lykkju, 1 stuðull í hverja lykkju umferðina hringinn og endið með 2 stuðla í síðustu lykkju og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 18 stuðlar. UMFERÐ 6: 3 loftlykkjur, 2 stuðlar í fyrstu lykkju, 2 stuðlar í næstu lykkju, 1 stuðull í hverja lykkju þar til 2 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur í hvora af síðustu 2 lykkjum og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 22 stuðlar. Klippið þráðinn. Heklið aðra skálm á sama hátt en ekki klippa þráðinn frá, þráðurinn er notaður síðar til að hekla skálmarnar saman. BUXUR: Setjið sitt hvorn fótinn í sitt hvora skálmina. Heklið 3 loftlykkjur með þráðinn frá annarri skálminni. UMFERÐ 1: Nú er fóturinn festur við buxurnar með því að hekla bæði í gegnum buxurnar og fótinn. Heklið 1 umferð með stuðlum í kringum annan fótinn og síðan í kringum hinn fótinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur, 1 umferð með stuðlum jafnframt því sem í 4. hverjum stuðli er lykkjum fækkað með því að hekla saman 3. og 4. hvern stuðul – lesið STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN í útskýringu að ofan = 33 stuðlar í umferð. Endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, 1 umferð með stuðlum jafnframt því sem fækkað er um 3. hvern stuðul með því að hekla annan hvern stuðul og 3. hvern stuðul saman = 22 stuðlar. Endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. BÚKUR: Umferðin byrjar mitt að aftan. UMFERÐ 1: Heklað er í gegnum alla lykkjuna á 6 fyrstu lykkjum, einungis í gegnum innsta lykkjubogann á næstu 10 lykkjum og aftur í gegnum alla lykkjuna á síðustu 6 lykkjum – JAFNFRAMT eru heklaðar 2 fastalykkjur í annan hvern stuðul = 33 fastalykkjur. UMFERÐ 2-10: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja lykkju, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 11: 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 1 fastalykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 11 fastalykkjum, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 11 fastalykkjum, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju og festið með 1 keðjulykkju í fastalykkju frá byrjun umferðar = 26 fastalykkjur. UMFERÐ 12: 1 loftlykkja, heklið 1 fastalykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 fastalykkjum, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af 8 næstu fastalykkjum, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju og festið með 1 keðjulykkju í byrjun umferðar = 20 fastalykkjur. UMFERÐ 13: Nú eru hendurnar festar á búkinn þannig: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, leggið hendina tvöfalda ofan á búkinn, heklið 4 fastalykkjur í gegnum bæði hendi og búk, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum (= framan), síðan er hin hendin fest á sama hátt eins og fyrri ermi, heklið 1 fastalykkja í hverja af síðustu 4 fastalykkjur, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 14: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja lykkju, hoppið yfir 5. fastalykkjur og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 15: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja lykkju, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. HÖFUÐ: UMFERÐ 1: 1 loftlykkja, 16 fastalykkjur hringinn, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 2: 1 loftlykkja, * 1 fastalykkja, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, * 2 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Snúið stykkinu. Næsta umferð er hekluð frá röngu. UMFERÐ 4: 1 loftlykkja, 1 LYKKJULYKKJA – lesið útskýringu að ofan – í hverja lykkju, endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 5: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja lykkju, endið með 1 keðjulykkju í loftlykkjur í byrjun umferðar. UMFERÐ 6: 1 loftlykkja, 1 lykkjulykkja í hverja lykkju, endið með 1 keðjulykkju í byrjun umferðar. Snúið stykkinu. Heklið síðan aftur frá réttu. UMFERÐ 7: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja af næstu 16 lykkjum, í næstu lykkju er heklað nef (1 fastalykkja, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. af 3 loftlykkjum, 1 fastalykkja), 1 fastalykkja í hverja lykkju út umferðina og 1 keðjulykkja í byrjun umferðar. UMFERÐ 8: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja lykkju (ATH! Yfir nefið er hekluð 1 fastalykkja á milli 2 fastalykkja) og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 9: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er hoppað yfir 5. hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 10: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 11: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er hoppað yfir 4. hverja fastalykkju = 18 fastalykkjur og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 12: 1 loftlykkjka, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. Klippið frá og festið þráðinn. Fylli jólasveininn með vatti. HÚFA: Heklið 26 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykku í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 26 fastalykkjur. UMFERÐ 2: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, hoppið yfir 1 fastalykkju, *1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, hoppið yfir 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 1 fastalykkju og 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 20 fastalykkjur. UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 4: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er hoppað yfir 2 fastalykkjur jafnt yfir og endið með 1 keðjulykkjur í loftlykkju í byrjun umferðar = 18 fastalykkjur. Nú er höfuðið og húfan heklað saman með því að hekla í gegnum bæði höfuð og húfu. UMFERÐ 5-7: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 8: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er hoppað yfir 6. hverja umferð og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 15 fastalykkjur. UMFERÐ 9-11: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 12: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er hoppað yfir 5. hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 13-14: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 15: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er hoppað yfir 3. hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 16-17: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 18: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er hoppað yfir aðra hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í byrjun umferðar = 4 fastalykkjur. UMFERÐ 19: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. Klippið þráðinn, þráðurinn er notaður þegar sauma niður hárið. EFRI HLUTI Á BUXUM: Heklið 1 fastalykkju í hverja af 10 lykkjum mitt að framan (heklið í ystu lykkjuboganan) þar sem áður var einungis heklað í innri lykkjubogann. * Snúið stykkinu. Heklið 3 loftlykkjur, heklið síðan 1 stuðul í hverja lykkju *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum. Klippið þráðinn og festið. AXLABAND: Heklið 28 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum rauður. Snúið stykkinu. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni. Heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju. Klippið þráðinn og festið. Heklið annað axlaband á sama hátt. FRÁGANGUR: Gerið hárbrúsk með litnum hvítur ca 2,5 cm að þvermáli. Festið efst á húfuna. Notið þráð með litnum svartur til að sauma út augu. Saumið axlaböndin aftan á bakið og leggið axlaböndin í kross yfir axlirnar að framan og á efra stykki á buxum. Saumið 1 tölu í hvora hlið í gegnum bæði efra stykkið á buxum og axlaböndin. Festið þráðinn vel. Klippið upp lykkjulykkjurnar. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Anna wrote:
Translate in polish pls
26.05.2021 - 13:41DROPS Design answered:
Nie ma sprawy. W tym tygodniu będzie gotów. Pozdrawiamy!
26.05.2021 - 23:24Irene Müller wrote:
Beim Häkeln der Hose komme ich nicht weiter. Die Hosenbeine habe ich gehäkelt. In der Anleitung steht nur etwas von der Verbindung des Beins zum Hosenbein für ein Bein. Wie wird das eine Hose und wie kommt die an den Körper? Ich bin ratlos!\r\nIrene Müller
27.10.2018 - 09:08DROPS Design answered:
Liebe Frau Müller, Bei der 1. Runde häkeln Sie 1 Stb in jeder Masche von beiden Hosenbeinen = es sind 44 Stb, mit 1 Kettm in die 3. Lm der Runde abschliessen. Bei der 2. und 3. Reihe werden Sie abnehmen = 22 Stb wenn die Hose fertig ist. Viel Spaß beim häkeln!
29.10.2018 - 09:37Birgit Werth wrote:
Hallo, fehlt bei dem Nikolaus die Beschreibung wie der Bart gefertigt wird, oder habe ich etwas übersehen. Ich finde den Nikolaus richtig süß. Wünsche allen eine schönes Weihnachtszeit und ich bin immer wieder von den Anleitungen begeistert! Vielen Dank und ganz liebe Grüße
03.12.2014 - 19:06DROPS Design answered:
Die Beschreibung des Bartes steckt in den Schlaufenmaschen - diese bilden den Bart, sie werden am Ende aufgeschnitten. Sie müssen beim Kopf dafür die Farbabfolge (wie unter FARBEN über der eigentlichen Anleitung beschrieben) beachten - die ersten 3 R mit hellbeige mix, dann die 4.-6. R mit weiß, wobei die 4. und die 6. R mit Schlaufen-M gehäkelt werden und den Bart bilden, die letzten 6 R des Kopfes dann wieder mit hellbeige mix. Viel Spaß mit dem Nikolaus!
03.12.2014 - 21:55Goossens Martine wrote:
Heel correcte beschrijving! Het resultaat is gewoon prachtig. Bedankt voor dit patroontje.
09.11.2014 - 13:26Stefanie Engelhardt wrote:
Ich finde die Anleitung ziemlich kompliziert. Habe Teile nicht verstanden und improvisiert. Hat aber geklappt ;)
09.11.2013 - 13:10