Sweet Buttercup |
|
|
|
Sett með heklaðri peysu fyrir börn með laskalínu og húfu með sólfjaðramynstri úr DROPS BabyMerino
DROPS Baby 19-8 |
|
PEYSA: HEKLLEIÐBEININGAR (á við um berustykki og ermar): Í byrjun á hverri umferð er 1. stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og hver umferð endar með 1 stuðli í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. ÚTAUKNING-1 (á við um laskalínu): Aukið út fyrir laskalínu á 8 stöðum í umferð, þ.e.a.s. hvoru megin við öll 4 prjónamerkin. AUKIÐ ÚT UM 4 STUÐLA VIÐ HVERT PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Byrjið 3. stuðlum á undan prjónamerki og heklið 2 stuðla í þennan stuðul, 2 stuðla í næsta stuðul, 1 stuðul í hvern og einn af 2 næstu stuðlum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 stuðla), 2 stuðlar í næsta stuðul og 2 stuðlar í næsta stuðul (= 16 stuðlar fleiri í umferð). AUKIÐ ÚT UM 2 STUÐLA VIÐ HVERT PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Byrjið í 2. stuðli á undan prjónamerki og heklið 2 stuðla í þennan stuðul, 1 stuðul í hvorn af 2 næstu stuðlum (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 stuðla), 2 stuðla í næsta stuðul (= 8 stuðlar fleiri í umferð). ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul. ÚRTAKA (á við um ermi): Í byrjun á umferð er fækkað um 1 stuðul með því að skipta út 1. stuðli með 1 keðjulykkju. Í lok umferð er fækkað um 1 stuðul með því að hekla stuðla eins og áður þar til 1 stuðull er eftir í umferð, snúið stykkinu og heklið síðan eins og áður með 1 stuðli í hvern stuðul. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 HNAPPAGAT = skiptið út þriðja stuðli frá miðju að framan með 1 loftlykkju. Í næstu umferð er heklaður 1 stuðull um þessa loftlykkju. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 MÁN: 2, 7, 12, 17 og 22 cm. STÆRÐ 6/9 MÁN: 2, 8, 13, 19 og 24 cm. STÆRÐ 12/18 MÁN: 2, 8, 14, 20 og 26 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 2, 7, 12, 17, 22 og 27 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 2, 8, 13, 19, 24 og 30 cm. -------------------------------------------------------- PEYSA: Stykkið er heklað með stuðlum ofan frá og niður þar til stykkið skiptist við ermar og fram- og bakstykki. Síðan eru ermarnar heklaðar ofan frá og niður. Heklið síðan fram- og bakstykki fram og til baka frá miðju að framan með sólfjaðramynstri til loka. BERUSTYKKI: Heklið 66-71-71 (76-76) LAUSAR loftlykkjur með heklunál 3,5 með Baby Merino. UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 stuðul í 4. Loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 2-3-3 (4-4) loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkju og heklið 1 stuðul í hverja af 1-2-2 (3-3) síðustu loftlykkjum = 48-52-52 (56-56) stuðlar í umferð (meðtaldir 4 stuðlar í hvorri hlið við miðju að framan fyrir kant að framan), snúið stykkinu. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig (frá réttu): STÆRÐ 1/3 MÁN: Prjónamerki á milli 11. og 12. stuðuls (= prjónamerki A), á milli 17. og 18. stuðuls (= prjónamerki B), á milli 31. og 32. stuðuls (= prjónamerki C) og á milli 37. og 38. stuðuls (= prjónamerki D). STÆRÐ 6/9 MÁN + 12/18 MÁN: Prjónamerki á milli 12. og 13. stuðuls (= prjónamerki A), á milli 18. og 19. stuðuls (= prjónamerki B), á milli 34. og 35. stuðuls (= prjónamerki C) og á milli 40. og 41. stuðuls (= prjónamerki D). STÆRÐ 2 ÁRA + 3/4 ÁRA: Prjónamerki á milli 13. og 14. stuðuls (= prjónamerki A), á milli 19. og 20. stuðuls (= prjónamerki B), á milli 37. og 38. Stuðuls (= prjónamerki C) og á milli 43. og 44. stuðuls (= prjónamerki D). Látið prjónamerkin síðan fylgja með niður í stykkinu. Heklið síðan þannig – sjá HEKLLEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Heklið stuðul með 1 stuðul í hvern stuðul – JAFNFRAMT í umferð 1 er aukið út um 4 stuðla fyrir laskalínu við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1! Endurtakið útaukningu í hverri umferð alls 4-5-7 (8-10) sinnum – munið eftir HNAPPAGAT á hægri kant að framan. Aukið síðan út um 2 stuðla við hvert prjónamerki í hverri umferð alls 6-6-5 (5-4) sinnum = 160-180-204 (224-248) stuðlar í umferð. Nú hafa verið heklaðar alls 11-12-13 (14-15) umferðir og stykkið mælist ca 11-12-13 (14-15) cm frá öxl og niður (stykkið á nú að mælast ca 9-10-11 (12-13) cm frá hálsi og niður). Klippið frá. ERMI: Héðan er ermin mæld! Heklið stuðul með 1 stuðli í hvern stuðul fram og til baka yfir 34-38-44 (48-54) stuðla á milli prjónamerkis A og B. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 stuðul í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 3-4-2 (2-2) cm millibili alls 3-3-6 (7-10) sinnum = 28-32-32 (34-34) stuðlar. Haldið áfram með 1 stuðli í hvern stuðul. Þegar ermin mælist 12-14-15 (20-24) cm er hekluð blúnda með sólfjöðrum þannig: UMFERÐ 1: * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 til 3 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* þar til það verða 11-11-11 (13-13) loftlykkjubogar. UMFERÐ 2: Heklið keðjulykkju í miðju á fyrsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + Stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* út umferðina, snúið stykkinu. UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt í stuðlahóp (þ.e.a.s. um loftlykkjuboga efst á sólfjöður), 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-*, snúið stykkinu. Endurtakið 3. umferð 1 sinni til viðbótar, klippið frá og heklið aðra ermi alveg eins á milli prjónamerkis C og D. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið nú sólfjaðramynstur fram og til baka frá miðju að framan þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hvern og einn af 25-28-31 (34-37) stuðlum á vinstra framstykki fram að prjónamerki A JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-5 (5-6) stuðla jafnt yfir (ekki yfir kant að framan) – sjá ÚTAUKNING-2 = 29-32-36 (39-43) stuðlar, heklið 1 stuðul í hvern og einn af 42-48-54 (60-66) stuðlum á bakstykki frá prjónamerki B að prjónamerki C JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-10 (10-12) stuðla jafnt yfir = 50-56-64 (70-78) stuðlar og heklið að lokum 1 stuðul í hvern og einn af 25-28-31 (34-37) stuðlum á hægra framstykki frá prjónamerki D JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-5 (5-6) stuðla jafnt yfir = 29-32-36 (39-43) stuðlar = 108-120-136 (148-164) stuðlar í umferð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hvern og einn af 3 næstu stuðlum (= kantur að framan), 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 stuðla, * 1 fastalykkja í næsta stuðul, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2 stuðla (á þeim stað sem verður að hoppa yfir 3 stuðla) *, endurtakið frá *-* þannig að það verða 30-34-38 (42-46) loftlykkjubogar og það eru eftir 6 eða 7 stuðlar, heklið 3 loftlykkjur og endið með 1 stuðli í hvern og einn af 4 síðustu stuðlum (= kantur að framan), snúið stykkinu. Nú eru 31-35-39 (43-47) loftlykkjubogar með 4 stuðlum í hvorri hlið við kant að framan, snúið stykkinu. UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hvern og einn af 3 næstu stuðlum, hoppið yfir fyrsta loftlykkjubogann, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* þar til 2 loftlykkjubogar eru eftir, heklið 4 stuðla + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar í næsta loftlykkjuboga og endið með 1 stuðli í hvern og einn af 4 stuðlum á kanti að framan = 15-17-19 (21-23) sólfjaðrir með 4 stuðlum í hvorri hlið við miðju að framan fyrir kant að framan, snúið stykkinu. UMFERÐ 4: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hvern og einn af 3 næstu stuðlum, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp (þ.e.a.s. um loftlykkjuboga efst á sólfjöður), 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* þar tl 1 stuðlahópur er eftir, 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt í þessum stuðlahóp og endið með 1 stuðli í hvern og einn af 4 stuðlum á kanti að framan, snúið stykkinu. Endurtakið umferð 4 þar til stykkið mælist ca 21-23-24 (26-28) cm. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: 4 loftlykkjur, 1 tvíbrugðinn stuðull í hvern og einn af 3 næstu stuðlum, * 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 tvíbrugðinn stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* þar til 1 stuðlahópur er eftir, 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar mitt í þennan stuðlahóp og endið með 1 tvíbrugðnum stuðli í hvern og einn af þeim 4 stuðlum á kanti að framan, snúið við. Endurtakið þessa umferð þar til stykkið mælist ca 26-28-31 (33-36) cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í lokin með heklunál 3,5 með Baby Merino þannig – byrjið neðst á hægra framstykki, heklið meðfram framstykki, í kringum háls, aftan í hnakka, haldið áfram meðfram hálsi og niður meðfram vinstra framstykki: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma og blúndu á ermum saman kant í kant með smáu fínu spori. Saumið tölur í. -------------------------------------------------------- HÚFA: HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á umferð með fastalykkjum er 1. fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. --------------------------------------------------------- HÚFA: Húfan er hekluð ofan frá og niður. Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Baby Merino og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn - SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2-4: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju = 6 fastalykkjur. UMFERÐ 5: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 6: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 8: * 1 fastalykkja í hverja og eina af 2 fyrstu fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 fastalykkjur. UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hverja og eina af 3 fyrstu fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 60 fastalykkjur. UMFERÐ 10: 3 loftlykkjur, * hoppið yfir 2 fastalykkjur (með jöfnu millibili er hoppað yfir 1 fastalykkju alls 6-12-18 (24) sinnum), 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn þannig að það verða 22-24-26 (28) loftlykkjubogar, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykku í byrjun á umferð. UMFERÐ 11: Heklið keðjulykkju að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, * 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 2 stuðlum + 1 loftlykkju + 2 stuðla um síðasta loftlykkjuboga og 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð = 11-12-13 (14) sólfjaðrir. UMFERÐ 12-15: 3 loftlykkjur, * 3 stuðlar + 1 loftlykkja + 3 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp (þ.e.a.s. um loftlykkjur efst í sólfjaðrakanti), 1 stuðull í fastalykkju/stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 stuðla + 1 loftlykkju + 3 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 16: 3 loftlykkjur, * 3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 stuðla + 2 loftlykkjur + 3 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 17: 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt næsta stuðlahóp, 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 4 stuðla + 2 loftlykkjur + 4 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. Endurtakið umferð 17 þar til húfan mælist ca 10-11-12 (13) cm frá miðju á höfði. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: 4 loftlykkjur, * 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 tvíbrugðinn stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 4 tvíbrugðnum stuðlum + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnum stuðlum mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð. Endurtakið þessa umferð þar til húfan mælist ca 14-15-16 (18) cm frá miðju á höfði og niður. Klippið frá og festið enda. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (52)
Danae Contreras wrote:
Tercera pregunta luego en el seg aumento donde se realizan los aumentos en el p.a del marcador o en los costados del marcador??? El p.a del marcador de teje?? . Al final para terminar la pechera como se tejen los 160 p.a hacia abajo ???
15.05.2024 - 01:51DROPS Design answered:
Hola Danae, el marcador está entre puntos, no en un punto. Empiezas el marcapuntos 3 puntos antes del marcapuntos. Los aumentos son a los lados del marcapuntos. Para los 160 p.a, se trabaja en el patrón de abanicos como se explica en la sección cuerpo.
20.05.2024 - 01:03Danae Contreras wrote:
Ok. Primera pregunt. ejemplo, en la primera sección antes del primer marcador tengo 11 p.a, ok , entonces el marcador se pone en el onceavo p.a o en el doceavo p.a????. Segunda pregunta antes de llegar al 1er marcador se cuentan 3 p.a. En el tercero se hacen 2p.a, en el segundo 2p.a y en el tercero 1p.a, entonces el p.a del marcador no se teje en ningún momento????, porque después realizas lo mismo pero al revés al otro lado del marcador.
15.05.2024 - 01:49DROPS Design answered:
Hola Danae, el marcapuntos se inserta entre los puntos. Así que se inserta entre el 11º y 12º punto. Como el marcapuntos no está en un punto sino que entre los puntos no se trabajan puntos con marcapuntos (porque no hay).
20.05.2024 - 00:59Danae Contreras wrote:
El punto alto que está el marcador no se teje o se teje como punto alto??. Luego cuando se realiza el segundo aumento , los puntos altos que están en los costados del marcador en ellos se realiza el segundo aumento??? Luego cómo se sigue tenue siendo los 160 puntos hacia abajo de que manera ??
14.05.2024 - 19:18Danae Contreras wrote:
No entiendo la primera instrucción del chaleco . Antes del marcador en el 3er pto tejo p.a. En el que sigue 2 más en el 3ero 1 y eso entre los dos puntos …. Ya pasó tres puntos cuáles dos? …. Y que hago con el punto marcado tejo sobre el antes de el y cuantos puntos porq si tejo 2 +2+1 =5 y entre 4 marcadores es 20 no 16 . Como lo hago
12.05.2024 - 06:07DROPS Design answered:
Hola Danae, empiezas 3 puntos antes del marcapuntos. En este punto aumentas 1 punto (trabajas 2 p.a en 1 p.a), en el siguiente aumentas otro punto (2 p.a en 1 p.a), después trabajas 1 p.a en el p.a a cada lado del marcapuntos (no aumentas). Ahora aumentas 1 punto en el siguiente p.a (2 p.a en 1 p.a) y aumentas otro punto en el siguiente p.a (2 p.a en 1 p.a). Por lo tanto, has aumentado 4 puntos.Trabajar de este modo en cada marcapuntos. Como hay 4 marcapuntos en cada vuelta aumentas 16 puntos en cada vuelta.
12.05.2024 - 21:07Elisabetta Clementel wrote:
Hello, I find it very difficult to make the hat. I don't really understand row 10, why "instead"? Do I have to skip one or two stitches? And why that first row about the chain one and slip into the first stitch, isn't that the usual way to do it? Thank you
29.04.2024 - 22:42DROPS Design answered:
Dear Mrs Clementel, to increase on 10th round, you will have to skip 6-12-18 (24) times in total the whole round 1 stitch only instead of 2, so that you will get a total of 22-24-26 (28) ch-spaces at the end of this round. At the beg of this round start with 3 chains (= 1 dc (UK-English) + 2 chains) and finish the round with 1 slip stitch in the 1st chain from beg of round. Happy crocheting!
30.04.2024 - 08:09Marta wrote:
Nella spiegazione c’è scritto ca. Cosa significa? Grazie
29.04.2024 - 15:04DROPS Design answered:
Buonasera Marta, ca è un acronimo per circa. Buon lavoro!
30.04.2024 - 19:15Bianca Nägeli wrote:
Ein einfaches und wunderschönes Muster! Vielen Dank für die genaue Anleitung, so macht Häkeln Spass!
12.04.2023 - 21:05Cayla Annie wrote:
Empiècements: rang 1, vous dites : , *sauter 1 ml, 1 B dans chacune des 3 ml suiv*, Doit-on fait une ml après la bride avant de sauter la ml ? Ce qui ferait : faire une B dans la 4ème ml à partir du crochet, faire 1 ml, sauter 1ml, 1B dans les 3ml suivantes. Ainsi on conserve les 68ml sinon on perd des m’l sur le rang Merci pour votre reponse
27.05.2022 - 19:13DROPS Design answered:
Bonjour Mme Cayla, comme la chaînette de base est souvent plus serrée que le 1er rang, on crochète volontairement davantage de mailles en l'air que l'on a besoin de brides au 1er rang, autrement dit, au 1er rang, sautez les mailles en l'air indiquée, sans les remplacer, vous avez ainsi entre 48 à 56 brides sur la chaînette de 66 à 76 mailles en l'air en fonction de la taille. Bon crochet!
30.05.2022 - 07:45Mireille MONIER wrote:
Bonjour je n'arrive pas à faire le rang 10 du bonnet impossible d'arriver à 26 arceau si je saute 6 fois uniquement 1 maille serrée. Pouvez vous m'aider merci. Sinon vos modèles sont magnifiques
25.04.2022 - 10:06DROPS Design answered:
Bonjour Mme Monier, il y avait malheureusement une erreur dans la correction de ce tour, vous devez en fait sauter 18 fois 1 maille serrée (au lieu de 6 en taille 12/18 mois), la correction est faite et le texte est juste désormais, merci pour votre retour. Bon crochet!
25.04.2022 - 12:10Ines Hannusch wrote:
Hallo IhrLieben, ich muss leider einigen Kommentatorinnen recht geben, dass die Anleitung gruselig ist. DieJacke ist zuckersüß und ich häkele wirklich schon sehr lange, fast alles Großprojekte wie Decken und auch ganz filigrane aufwendige Sachen aber so eine Anleitung hat mir noch nciht vorgelegen. gibt es die nicht besser, mit anschaulichen Skizzen zur Beschreibung ???
24.02.2022 - 14:22