Sweet Buttercup Blanket |
|
|
|
Sett með hekluðu teppi fyrir börn með breiðum kanti í sólfjaðramynstri og heklaðri húfu með sólfjaðramynstri úr DROPS BabyMerino. Þema: Barnateppi.
DROPS Baby 19-6 |
|
TEPPI: Teppið er heklað fyrst í stuðlahópum. Að lokum er heklaður breiður kantur með sólfjaðramynstri í kringum allt teppið. TEPPI: Heklið 119 LAUSAR loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3,5 með Baby Merino. UMFERÐ 1: Heklið 4 stuðla í 6. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 4 loftlykkjur, 4 stuðlar í næstu loftlykkju *, endurtakið frá *-* alls 22 sinnum, hoppið yfir 2 loftlykkjur og endið með 1 stuðul í síðustu loftlykkju = 23 stuðlahópar í umferð, snúið við. UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur, heklið síðan 4 stuðla á milli 2 miðju stuðlum í hverjum stuðlahóp út umferðina, endið með 1 stuðli í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð, snúið stykkinu. Endurtakið umferð 2 upp úr þar til teppið mælist ca 56 cm á lengd. KANTUR MEÐ SÓLFJÖÐRUM: UMFERÐ 1: Heklið 1 umferð með loftlykkjubogum í kringum allt teppið þannig – byrjið í einu horninu: 1 keðjulykkja í horni, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sömu lykkju, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sömu lykkju, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sömu lykkju (nú eru 3 loftlykkjubogar í horni), * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1-1½ cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* að næsta horni, í hornið er heklað: 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í horni, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sömu lykkju, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sömu lykkju, haldið áfram meðfram næstu hlið – ATH: Það eiga að vera ca 29 loftlykkjubogar meðfram báðum skammhliðum, ca 37 loftlykkjubogar meðfram báðum langhliðum og 3 loftlykkjubogar í hverja horni, þ.e.a.s. fjöldi loftlykkjuboga á milli hverra horna verður að vera deilanlegur með 2 + 1 (= ójafn fjöldi loftlykkjuboga). Endið umferð með 2 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: 1 keðjulykkja um fyrsta loftlykkjuboga í horni, 3 loftlykkjur, 1 stuðull um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga, * 1 stuðull í næstu fastalykkju, 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar um næsta loftlykkjuboga í horni *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar (= 3 sólfjaðrir í horni), * 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga, 3 stuðlar + 1 loftlykkja + 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* þar til 1 loftlykkjubogi er eftir innan við 3 boga í horni, 1 stuðull um þennan boga, 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar um fyrsta loftlykkjuboga í horni, 1 stuðull í næstu fastalykkju, 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar um næsta loftlykkjuboga í horni, 1 stuðull í næstu fastalykkju, 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar í síðasta loftlykkjuboga í horni (nú eru 3 sólfjaðrir í horni), 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga, 3 stuðlar + 1 loftlykkja + 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, haldið áfram alveg eins þar til heklað hefur verið hringinn utan um allt teppið og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 3-4: Heklið keðjulykkjur að byrjun á fyrsta loftlykkjuboga (= loftlykkjubogi á milli 4 stuðla), 3 loftlykkjur, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, * 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð, 3 stuðlar + 1 loftlykkja + 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið emð 1 stuðul í síðasta stuðul og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. UMFERÐ 5-6: Heklið keðjulykkju að byrjun á fyrsta loftlykkjuboga (= loftlykkjubogi á milli 6 stuðla), 3 loftlykkjur, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 4 stuðlar um sama loftlykkjuboga, * 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð, 4 stuðlar + 1 loftlykkja + 4 stuðlar í næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 stuðli í síðasta stuðul og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. UMFERÐ 7: Heklið eins og umferð 6 nema heklið 2 loftlykkjur í stað 1 loftlykkju á milli hverra stuðlahópa. UMFERÐ 8-10: Heklið keðjulykkju að byrjun á fyrsta loftlykkjuboga (= loftlykkjubogi á milli 8 stuðla), 4 loftlykkjur, 3 tvíbrugðnir stuðlar í sama loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, 4 tvíbrugðnir stuðlar um sama loftlykkjuboga, * 1 tvíbrugðinn stuðull í stuðul/tvíbrugðinn stuðull frá fyrri umferð, 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 tvíbrugðnum stuðli í síðasta stuðul/tvíbrugðinn stuðul og 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda eftir 10. umferð, kantur mælist ca 12 cm. --------------------------------------------------------- HÚFA: HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á umferð með fastalykkjum er 1. fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. --------------------------------------------------------- HÚFA: Húfan er hekluð ofan frá og niður. Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Baby Merino og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn - SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2-4: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju = 6 fastalykkjur. UMFERÐ 5: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 6: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 8: * 1 fastalykkja í hverja og eina af 2 fyrstu fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 fastalykkjur. UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hverja og eina af 3 fyrstu fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 60 fastalykkjur. UMFERÐ 10: 3 loftlykkjur, * hoppið yfir 2 fastalykkjur (með jöfnu millibili er hoppað yfir 1 fastalykkju alls 6-12-18 (24) sinnum), 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn þannig að það verða 22-24-26 (28) loftlykkjubogar, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykku í byrjun á umferð. UMFERÐ 11: Heklið keðjulykkju að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, * 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 2 stuðlum + 1 loftlykkju + 2 stuðla um síðasta loftlykkjuboga og 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð = 11-12-13 (14) sólfjaðrir. UMFERÐ 12-15: 3 loftlykkjur, * 3 stuðlar + 1 loftlykkja + 3 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp (þ.e.a.s. um loftlykkjur efst í sólfjaðrakanti), 1 stuðull í fastalykkju/stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 stuðla + 1 loftlykkju + 3 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 16: 3 loftlykkjur, * 3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 stuðla + 2 loftlykkjur + 3 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 17: 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt næsta stuðlahóp, 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 4 stuðla + 2 loftlykkjur + 4 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. Endurtakið umferð 17 þar til húfan mælist ca 10-11-12 (13) cm frá miðju á höfði. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: 4 loftlykkjur, * 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 tvíbrugðinn stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 4 tvíbrugðnum stuðlum + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnum stuðlum mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð. Endurtakið þessa umferð þar til húfan mælist ca 14-15-16 (18) cm frá miðju á höfði og niður. Klippið frá og festið enda. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (48)
Lafont Catherine wrote:
Bonsoir,je vous remercie pour votre reponse.je vais etre arrière grand mère dans quelques mois donc au travail!!!!!!
25.01.2023 - 17:44Lafont Catherine wrote:
Bonsoir comment savoir le nombre de pelottes pour le modele 19-6 baby d avance merci cordialement
24.01.2023 - 21:47DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lafont, vous trouverez systématiquement les quantités requises (pour chaque taille si besoin) dans l'en-tête, autrement dit, il faut ici pour la couverture 300 g DROPS Baby Merino / 50 g la pelote = 6 pelotes. Bon crochet!
25.01.2023 - 11:50Isabelle wrote:
Bonjour, je ne comprends pas comment on peut avoir uniquement 23 groupes de brides avec une chaînette de 119 mailles. J'en ai 29 sans compter les brides de début et fin de rang. Par ailleurs, quelle mesure en cm doit faire ce rang? Merci pour votre réponse
04.05.2022 - 18:27DROPS Design answered:
Bonjour Isabelle, crochetez 4 brides dans la 6ème ml à partir du crochet (= soit 1 groupe de brides / 6 ml); puis répétez *sautez 4 ml, 4 b dans la ml suivante* 22 fois au total (= 22 groupes de brides / 22x5 ml = 110 ml), sautez 2 ml, 1 bride dans la dernière ml (= 1 bride/3 ml), soit: 6+110+3= 119 ml et vous avez: 1 bride (= les 3 ml du début du rang), 23 groupes de brides et 1 bride (à la fin du rang). Bon crochet!
05.05.2022 - 09:02Con wrote:
When I follow the crochet pattern for the afghan, the single dc between the the groups of 4 dcs doesn’t appear yet I have 23 groups of 4 dcs and began with 119 chain stitches. Is the pattern correct for the blanket which is pictured, or has a step been left out? The blanket which is pictured is lovely, but mine doesn’t look exactly like the picture. It is ok, but not what I was looking forward to making. Thanks for your help.
02.09.2021 - 10:55DROPS Design answered:
Dear Mrs Con, pattern is correct, the dc between dc groups you can see on the 3rd and 4th picture belongs to the edge see video here worked around the blanket, when working the main part of the blanket, you will just have dc-groups, ie 23 groups of 4 dc as you described. Happy crocheting!
02.09.2021 - 12:49Kirstine wrote:
Jeg forstår ikke hvad der menes i 3+4. OMG. Hvad skal man gøre i hjørnet?
18.03.2021 - 11:14THERESE MARIE BUNS wrote:
BONJOUR JE VOUDRAIS FAIRE CE MODELE ... EN LAINE BLANCHE UNI COLOR 1 POUVEZ VOUS ME DIRE COMMENT FAIRE POUR AVOIR CE COLORI ? MERCI CORDIALEMENT
31.07.2020 - 17:59DROPS Design answered:
Bonjour Mme Buns, Cliquez sur la petite icône en face de Baby Merino, puis sur "Commander", ou bien retrouvez ici la liste de tous les magasins DROPS en France. Bon tricot!
03.08.2020 - 07:13Paola wrote:
Posso chiedere gentilmente qual è il multiplo per la copertina se si volesse realizzare con altro filato tipi cotone per esempio? Grazie
07.03.2020 - 12:29DROPS Design answered:
Buonasera Paola, se vuole lavorarla in cotone, può utilizzare Safran che appartiene allo stesso gruppo filati, usando le stesse istruzioni. Buon lavoro!
07.03.2020 - 18:32Kristin J wrote:
Försöker sticka mössan. Har ökat till 60 maskor och kommer nu in på varv 10. Beroende på hur stor mössan ska bli gör man olika många bågar. Jag förstår inte hur samma uppbyggnad på 60m kan få olika många bågar. Hoppas ni förstår vad jag menar och ni kan hjälpa mig.
27.05.2019 - 16:15DROPS Design answered:
Hei Kristin. Du begynner med 3 luftmasker, videre skal du egentlig hekle slik:* hopp over 2 fastmasker, hekle 1 fastmaske i neste fastmaske, hekle 2 luftmasker *. MEN for å få ulike antall luftmaskebuer i de ulike størrelsene hopper du noen ganger over kun 1 fastmaske (isteden for de 2 fastmaskene som står). Dette gjør du 6-12-18 (24) ganger. Hvis du feks hekler størrelse 46/48 skal du hoppe over 1 maske 18 ganger jevnt fordelt, mens du hopper over 2 masker de resterende gangene. På omgang 11 skal du hekle i hver luftmaskebue, så slik blir luen gradvis større i de ulike størrelsene. God fornøyelse
28.05.2019 - 07:45Anna wrote:
Jeg vil gerne hækle dette tæppe i to farver. Hvor mange g skal jeg beregne til henholdvis midterstykket og kanten?
14.03.2019 - 08:49DROPS Design answered:
Hej Anna, du skal nok bruge ca en fjerdedel til kanten, men køb hellere lidt ekstra, så du ikke får for lidt garn. God fornøjelse!
14.03.2019 - 11:14Syrynyty2009 wrote:
I’m sorry but the written pattern is not what is shown in the picture provided. Yes I understand it is a variant but please use the appropriate picture for the pattern provided.
22.06.2018 - 01:38DROPS Design answered:
Dear Syrynyty2009, the pictures shown match the written pattern, it is a quite popular pattern that has been already successfully worked several times. You are welcome to ask any question here, or, for any further individual assistance request help from the store where you bought your yarn. Happy crocheting!
22.06.2018 - 08:21