Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
= prjónastefna | |
= miðja að framan | |
= hér er ermi saumuð í | |
= miðja að aftan |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Fly Away |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð síð peysa með stuttum ermum prjónuð frá hlið úr DROPS Alpaca og DROPS Vivaldi eða DROPS Brushed Alpaca Silk. Strl S - XXXL.
DROPS 119-1 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Vegna fjölda l er flíkin prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Prjónið frá miðju að framan og að vinstra framstykki og út með hlið, fellt er af fyrir handveg og síðan prjónað áfram fram að miðju að aftan áður en fellt er af. Síðan er hægra framstykki prjónað á sama hátt, nema gagnstætt frá miðju að framan áður en peysan er saumuð saman við miðju að aftan. Að lokum eru ermar prjónaðar fram og til baka og saumaðar í. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið laust upp 113-117-121-126-130-135 l á hringprjóna nr 5 með Alpaca og Vivaldi eða Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (umf 1 = rétta). Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og haldið áfram í sléttprjóni með 2 l garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 46-51-56-63-70-80 cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu – setjið síðustu 44-45-46-51-52-54 l frá vinstri hlið á stykkinu (séð frá réttu) á þráð. Prjónið 4-4-4-8-8-8 umf í sléttprjóni með 2 l garðaprjón í hvorri hlið (2-2-2-4-4-4 cm) yfir þær 69-72-75-75-78-81 l sem eftir eru á prjóni. Setjið nú þessar l á þráð. Setjið til baka þær 44-45-46-51-52-54 l af fyrri þræði á hringprjóna nr 6 og prjónið handveg frá réttu þannig: STÆRÐ S – M – L: Fellið af fyrstu 29-30-31 l í byrjun umf, prjónið þær 15 l sem eftir eru á prjóni eins og áður. Setjið eitt prjónamerki í síðustu l í hægri hlið á prjóni (séð frá réttu – prjónamerkið sýnir hvar sauma á ermakúpuna í op við handveg). Snúið við, prjónið 15 l á prjóni eins og áður og fitjið síðan upp 29-30-31 l í lokin. STÆRÐ XL - XXL - XXXL: Fellið af fyrstu 16-17-18 l í byrjun umf, prjónið þær 35-35-36 l sem eftir eru á prjóni eins og áður, snúið við. Prjónið þær 35-35-36 l á prjóni eins og áður, snúið við. Fellið af fyrstu 17-17-18 l í byrjun á prjóni og prjónið þær 18 l sem eftir eru eins og áður. Setjið eitt prjónamerki í síðustu l í hægri hlið á prjóni (séð frá réttu – prjónamerkið sýnir hvar sauma á ermakúpu í op við handveg). Snúið við, prjónið þær 18 l eins og áður, fitjið upp 17-17-18 nýjar l í lok umf, snúið við. Prjónið 35-35-36 l á prjóni eins og áður, snúið við. Prjónið 35-35-36 l á prjóni eins og áður og fitjið upp 16-17-18 nýjar l í lok umf. ALLAR STÆRÐIR: Setjið til baka þær 69-72-75-75-78-81 l af þræði á prjóninn og prjónið sléttprjón með 2 l garðaprjón í hvorri hlið yfir allar 113-117-121-126-130-135 l. Þegar stykkið mælist 61-67-73-82-90-101 cm (mælt lengst út í vinstri hlið á stykkinu séð frá réttu. Stykkið kemur til með að mælast ca 62-68-74-84-92-103 cm yst í hægri hlið) prjónið stuttar umferðir til þess að fá aukna vídd við miðju á baki (byrjið í byrjun umf frá röngu = frá hálsmáli) þannig: Prjónið fyrstu 30-33-36-41-45-48 l á prjóni og setjið þær l á þráð, prjónið nú þær l sem eftir eru á prjóni, snúið við og prjónið til baka yfir allar l, * prjónið fyrstu 11-8-7-7-6-5 l á prjóni, setjið síðan inn l á sama þráð og prjónið þær l sem eftir eru á prjóni, snúið við og prjónið til baka yfir allar l *, endurtakið frá *-* alls 7-9-11-11-13-15 sinnum. Snúið við, prjónið þær 6-12-8-8-7-12 l sem eftir eru. Setjið nú til baka allar þær 107-105-113-118-123-123 l af þræði á prjóninn og prjónið 2 umf slétt yfir allar l áður en fellt er laust af = miðja aftan á peysu. Stykkið mælist nú ca 62-68-74-83-91-102 cm í vinstri hlið (séð frá réttu) og 72-80-88-98-108-121 cm í hægri hlið – mælt í prjónstefnu! HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og vinstra stykki nema spegilmynd, þ.e.a.s. að öll mæling sem gerð er í vinstri hlið á stykki (séð frá réttu) er nú gerð í hægri hlið á stykki (séð frá réttu). Þegar prjóna á 4-4-4-8-8-8 umf undir ermi verður að passa uppá að fyrsta umf sé prjónuð frá röngu (í stað réttu) og síðustu 44-45-46-51-52-54 l í vinstri hlið á stykki (séð frá röngu, ekki réttu) eru settar á þráð. Fylgið nú nú leiðbeiningum um handveg frá röngu (í stað frá réttu). Að lokum eru prjónaðar stuttar umferðir við miðju að aftan með byrjun í byrjun umf frá réttu (í stað frá byrjun umf frá röngu). ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 41-43-44-47-50-53 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með Alpaca og Vivaldi eða Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf garðaprjón, skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælst 5 cm er felld af 1 l í hvorri hlið, endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 10 cm, síðan er fellt af í byrjun hverrar umf í hvorri hlið alls 4-4-5-6-7-8 sinnum. Fellið nú af 4 l í byrjun á næstu 2 umf áður en fellt er laust af allar l, ermin mælist ca 15-15-16-17-18-19 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman peysuna við miðju að aftan innan við affellingarkantinn þannig að það verða 4 umf garðaprjón á miðju að aftan. Saumið ermar í – ATH! Ermakúpan er saumuð niður við prjónamerki á öxl og ermin er saumuð niður hvoru megin meðfram opi við handveg merkt með stjörnum á teikningu (það á ekki að vera saumur fyrir miðju undir ermi heldur á að vera opið fyrir miðju undir ermi þar sem 4-4-4-8-8-8 umf voru prjónaðar). |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (173)
Martina wrote:
I have the same question as Debbie had earlier (13.4.2017). I don't understand, how to proceed with the sleeve opening without adding new yarn? Working yarn is on the far right side on the stitch holder. In your answer to Debbie you say to put stitches at the end of a row. At which point exactly? In the instructions the casting of the new stitches comes later on. My problem comes at this point: Slip the 44 sts from the first stitch hoIder back on circular needle and work armhole as follows..
15.11.2023 - 15:14DROPS Design answered:
Dear Martina, you will first work the bottom of jacket (under sleeve) (the top 44 sts on the left are not worked now) and cut the yarn when these 2 cm are worked; then join the yarn working the 44 stitches on the left side slipped on a thread: start casting off (from RS) the first 29 stitches for armhole, work to the end of the row (15 sts), turn and work the next row from WS casting on the same number of stitches as you cast off, ie purl 19 sts and cast on 15 sts = 44 sts. Work now the 69 sts from the side. Happy knitting!
16.11.2023 - 09:24Marla wrote:
How do I save this file as a pdf to use it on knit companion?
26.10.2023 - 14:02DROPS Design answered:
Dear Maria, to save the patterns as a .PDF you will have to print the pattern choosing a virtual printer - but it might not work on knit companion. Happy knitting!
27.10.2023 - 08:14Hanna-Maija Lahtinen wrote:
Voiko ohjeen tehdä pitkillä hihoilla? Miten sitä pitäisi muuttaa?
30.12.2022 - 17:16Rita Coenen wrote:
Is het niet mogelijk om middenrug gewoon verder te breien, en dus alles in 1 stuk zonder middenachter-naad? Wat zou de reden kunnen zijn om dit niet te doen?
14.03.2022 - 14:05DROPS Design answered:
Dag Rita,
Blijkbaar heeft de ontwerper het zo bedacht met een naad midden achter :) Jou zou hem inderdaad uit 1 stuk kunnen breien, waarbij je na het linker pand verder breit voor het rechter pand, maar dan in spiegelbeeld, dus je breit dan voor het rechter voorpand vanaf midden achter naar voren.
18.03.2022 - 08:20Arga Moree wrote:
Waar kan ik vinden hoeveel draadlengte ik nodig heb voor dit leuke vest? Maat XL . Ik zou graag een dun garen willen voor naald 3 ongeveer. Ik dacht aan bamboe/katoen, maar zag dat niet op jullie site.
22.03.2021 - 15:29DROPS Design answered:
Dag Arga,
Bovenaan bij de lijst met materialen staat per maat aangegeven hoeveel gram je nodig hebt. Het vest wordt met 2 draden gebreid, 1 draad Alpaca en 1 draad Vivaldi. Bij niet meer leverbare garens (onder de knop garens in het menu vind je een link) kun je de looplengte checken en op basis daarvan ander garen aanschaffen.
22.03.2021 - 21:14Mary Jones wrote:
HI! I've started the Fly Away and know I'm going to love it. I need help clarifying the Right front piece. If I work the pattern knitting everything as though it's a wrong side then it will match the Left front piece? Sorry...not used to a pattern that says to mirror.
27.01.2021 - 17:13DROPS Design answered:
Dear Mrs Jones, working a piece mirrored means that everything that was worked on the right side will be worked now on the left side and reversed. So that you will work the same way but slip the stitches on the right side (= beg of row from RS) ie starting on a WS row, work the first stitches and slip the remaining sts on a thread. And then cast off stitches for amrhole starting from WS (instead of from RS). Happy knititng!
28.01.2021 - 09:19Maryel Campos Cardoso wrote:
Solo comentar que me encanta mucho todo lo que veo de su página aunque no entiendo muchas cosas o no sé descifrarlas me encanta todo porque tejer 🧶 es una de las cosas que más me gusta y lo disfruto mucho
23.04.2019 - 20:08Maurisa Solomon wrote:
Do you have a guide for the small and medium sizes for pattern 119-1? I would appreciate knowing before I make a commitment. Thank you.
21.12.2018 - 02:04DROPS Design answered:
Dear Mrs Solomon, you will find a measurement chart at the bottom of the pattern with all measurements for each size taken flat from side to side. Compare these to a similar garment you have and like the shape to find out the matching size. read more about sizing here. Happy knitting!
21.12.2018 - 08:08Camilla Jansson wrote:
Hej. Har stickat 56cm för storlek L sedan 4 varv på drygt hälften medan nästan hälften vilat på garn. Har sedan bytt så de första som har 2cm extra i höjd sitter på garn och de som vilade sitter nu på sticka igen. Garnet befinner sig i mitten på stycket vid brytpunkten. Allt sett från rätsidan. Skall jag öppna ett nytt nystan? Alternativt klippa av och skarva på senare? Eller fortsätter jag bara med samma nystan trots 2 cm/4varv höjdskillnad????
09.09.2017 - 21:23DROPS Design answered:
Hej Camilla, du måste klippa tråden och/eller börja på ett nytt nystan. Det nya nystanet kommer du att kunna fortsätta med när du har alla m tillbaka på stickan. Lycka till!
19.09.2017 - 16:05Marilyn wrote:
I cannot find the gauge for pattern 119-1. What is the gauge? Thank you
04.08.2017 - 01:11DROPS Design answered:
Dear Marilyn, you will find gauge under tab "Materials". Happy knitting!
04.08.2017 - 08:49