Cream Dream |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Sett með prjónaðri húfu fyrir börn og buxum með eða án hnappagata á milli skálma úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Baby 17-3 |
|||||||||||||||||||
BUXUR: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á kanti framan á skálm. Á hægri skálm er fellt af frá réttu og vinstri skálm frá röngu. 1 HNAPPAGAT = Prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar skálmin mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 2, 5, 9, 12 og 16 cm. STÆRÐ 6/9 mán: 2, 7, 12, 16 og 20 cm. STÆRÐ 12/18 mán: 2, 7, 12, 17 og 23 cm. STÆRÐ 2 ára: 2, 7, 12, 17, 22 og 27 cm. STÆRÐ 3/4 ára: 2, 8, 14, 20, 26 og 32 cm. ÚRTAKA-1: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ÚRTAKA-2: Öll úrtaka er gerð frá réttu innan við 3 lykkjur garðaprjón með því að prjóna saman 2 lykkjur brugðnar. ---------------------------------------------------------- HÆGRI SKÁLM (án hnappagata): Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 32-36-40 (44-48) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 cm stroff = 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið – JAFNFRAMT í síðustu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 40-45-50 (55-60) lykkjur. Prjónið 1 umferð = 2 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er aukið út um 30-29-30 (33-32) lykkjur jafnt yfir = 70-74-80 (88-92) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= innan á skálm). Prjónið 1 umferð brugðið. Haldið áfram þannig: 7-7-8 (9-10) lykkjur sléttprjón, M.1 (= 21 lykkjur), 2 lykkjur sléttprjón, M.3 yfir næstu 10-14-18 (24-26) lykkjur, 2 lykkjur sléttprjón, M.2 (= 21 lykkjur) og 7-7-8 (9-10) lykkjur sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-19-22 (26-31) cm skiptist stykkið að innanverðu á skálm og áfram er prjónað fram og til baka (þetta er gert til að auðveldara verði að setja inn skálmarnar á saman hringprjón í lokin). Fitjið upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið til að sauma í = 72-76-82 (90-94) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (29-34) cm fellið af kantlykkjum í hvorri hlið og geymið stykkið. VINSTRI SKÁLM (án hnappagata): Prjónið eins og hægri skálm. HÆGRI SKÁLM (með hnappagötum): Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 38-42-46 (50-54) lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið (umferð 1 = rétta) 4 lykkjur garðaprjón (= kantur fyrir hnappagöt) – SJÁ ÚTSKÝRINGU AÐ OFAN, * 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 4 lykkjur garðaprjón (= kantur fyrir tölur). Prjónið áfram stroffprjón og garðaprjón í hvorri hlið – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umferð stroff frá réttu JAFNFRAMT þar sem allar 2 lykkjur brugðnar eru auknar út til 3 lykkjur brugðnar = 45-50-55 (60-65) lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið og garðaprjón í hvorri hlið. Prjónið síðan 1 umferð slétt JAFNFRAMT er aukið út um 33-32-33 (36-35) lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið) = 78-82-88 (96-100) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5, prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram: 4 lykkjur garðaprjón, 7-7-8 (9-10) lykkjur sléttprjón, M.1 (= 21 lykkjur), 2 lykkjur sléttprjón, M.3 yfir næstu 10-14-18 (24-26) lykkjur, 2 lykkjur sléttprjón, M.2 (= 21 lykkjur), 7-7-8 (9-10) lykkjur sléttprjón og 4 lykkjur garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-22-25 (29-34) cm fellið af 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið = 70-74-80 (88-92) lykkjur. Geymið stykkið. VINSTRI SKÁLM (með hnappagötum): Prjónið eins og hægri, en með hnappagötum á gagnstæðri hlið. BUXUR: Setjið inn skálmarnar á sama hringprjón 4,5 = 140-148-160 (176-184) lykkjur og setjið eitt prjónamerki í miðju að framan og eitt prjónamerki í miðju að aftan. Núna byrjar umferðin við miðju að aftan. Haldið áfram með mynstur eins og áður – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki við miðju að framan – SJÁ ÚRTAKA-1, endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 6 sinnum = 128-136-148 (164-172) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið = 32-34-37 (41-43) lykkjur á milli allra 4 prjónamerkja. Þegar stykkið mælist 39-47-55 (60-65) cm prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið yfir 12 lykkjur í hvorri hlið (= 6 lykkjur í hvorri hlið við prjónamerkin í hliðum) – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Fellið síðan af miðju 6 lykkjur í hvorri hlið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 58-62-68 (76-80) lykkjur. Prjónið eins og áður en 3 ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju fyrir handveg í hvorri hlið – SJÁ ÚRTAKA-2 – í annarri hverri umferð alls 1-3-5 (6-6) sinnum = 56-56-58 (64-68) lykkjur. Haldið áfram með mynstur með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 45-54-63 (68-74) cm fellið af miðju 8-8-10 (12-14) lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hveri umferð frá hálsi: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 20-20-20 (22-23) lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 49-58-67 (73-79) cm fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir = 14-14-14 (16-17) lykkjur. Setjið lykkjur á þráð. BAKSTYKKI: = 58-62-68 (76-80) lykkjur. Prjónið mynstur og fækkið lykkjum fyrir handveg eins og á framstykki = 56-56-58 (64-68) lykkjur. (ATH: Þar sem það eru fleiri lykkjur í sléttprjóni við miðju að aftan miðað við miðju að framan, fellið af lengra inn fyrir handveg á mynstri að aftan, þ.e.a.s. að mynstur á öxl að framan og að aftan verði ekki eins). Þegar stykkið mælist 48-57-66 (72-78) cm fellið af miðju 16-16-18 (20-22) lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 20-20-20 (22-23) lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-58-67 (73-79) cm fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir = 14-14-14 (16-17) lykkjur. Setjið lykkjur á þráð. FRÁGANGUR: KANTUR Í HÁLSI AÐ FRAMAN: Prjónið upp ca 32 til 44 lykkjur (deilanlegt með 4) meðfram hálsmáli að framan á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*, endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón. Haldið áfram með stroff fram og til baka í 2 cm, fellið af. KANTUR Í HÁLSI AÐ AFTAN: Prjónið upp ca 28 til 36 lykkjur (deilanlegt með 4) meðfram hálsmáli að aftan á hringprjón 3,5. Prjónið eins og kantur í hálsi að framan. ÖXL AÐ FRAMAN: Setjið inn lykkjur af þræði frá annarri öxlinni á 1 sokkaprjón 3,5, prjónið að auki upp 4 lykkjur meðfram kanti í hálsi = 18-18-18 (20-21) lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt fram og til baka. Í næstu umferð er fellt af fyrir hnappagötum frá réttu þannig: 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9-9-9 (11-12) lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt. Prjónið 3 umferðir slétt til viðbótar, fellið síðan af. Endurtakið meðfram hinni öxlinni að framan. ÖXL AÐ AFTAN: Setjið lykkjur af bandi frá annarri öxlinni á 1 sokkaprjón 3,5, prjónið að auki upp 4 lykkjur í kanti í hálsi = 18-18-18 (20-21) lykkjur. Prjónið 7 umferðir slétt fram og til baka, fellið af. Endurtakið meðfram hinni öxlinni að aftan. FRÁGANGUR (án hnappagata á milli skálma): Saumið saman efst að innanverðu á hvorri skálm innan við 1 kantlykkju. Saumið síðan opið á milli skálma – framstykki að bakstykki. Saumið tölur í axlir. FRÁGANGUR (með tölur á milli skálma): Saumið saman kanta með hnappagötum efst á framhlið á skálm og kant fyrir tölur efst á bakhlið á skálm. Saumið tölur í, í kant fyrir tölur á milli skálma og saumið tölur í axlir. ---------------------------------------------------------- HÚFA: ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ---------------------------------------------------------- HÚFA: Húfan er prjónuð í hring. Fitjið upp 84-90-96 (102-108) lykkjur á hringprjón nr 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff = 3 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið í 3 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt – JAFNFRAMT er fækkað um 9-10-11 (12-13) lykkjur jafnt yfir = 75-80-85 (90-95) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón nr 4. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Setjið 5 prjónamerki í stykkið með 15-16-17 (18-19) lykkju millibili. Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki, endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 6-6-6 (7-7) sinnum – SJÁ ÚRTAKA = 15-20-25 (20-25) lykkjur. Prjónið saman allar lykkjur 2 og 2, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum allar lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 14-15-16 (18-19) cm. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (25)
Erika Tschepp wrote:
Kein leider nichts runterladen da ich von fast überall die Passwörter vergessen habe hat mir mein Schwiegersohn aufgesetzt und Passwörter gegeben er sagte sie mir und ich habe sie vergessen jetzt kann ich nirgends rein auch bei Pinterest die haben so schöne Sacheb für Babys zum häckeln. lg. Erika
27.05.2022 - 20:29Liv Erichsen wrote:
Tusen takk for hjelpen, kjekt at dere er så kjapp å svare 😊
20.09.2018 - 19:11Liv Erichsen wrote:
Hei, jeg skal begynne å strikke bakstykket - ferdig med forstykket og skuldrene. Det står at jeg skal felle som for forstykket, men det står ikke noe om riller i siden slik som det er på forstykket. Ble litt usikker, veldig fin bukse 😃
19.09.2018 - 15:48DROPS Design answered:
Hej Liv, jo det stemmer, du strikker også rillerne på bagstykket. Ja er de ikke søde :) God fornøjelse!
20.09.2018 - 10:27Liv Erichsen wrote:
Hei er det riktig at det ikke skal være riller på bakstykket ?
18.09.2018 - 22:02DROPS Design answered:
Hej Liv, hvor er du i opskriften, så skal vi se på det :)
19.09.2018 - 15:17Joan Mangiulli wrote:
When making the legs on round needle do I read the chart as if all stitches were on the right side? Thanks. Joan
28.02.2018 - 21:51DROPS Design answered:
Dear Mrs Mangiulli, correct, when working in the round read diagrams starting from the bottom corner on the right side towards the left on every round. Happy knitting!
01.03.2018 - 08:50Theresa wrote:
Danke!!
24.02.2017 - 10:37Theresa wrote:
Leider ist es noch nicht ganz klar. Wenn die Rückr. mit 4,5 komplett re gestrickt wird, "sehe" ich auf der ersten Hinr. mit Muster nur li Maschen. Das heißt bei angekreuzten Kästchen muss ich in der Hinr. re und Rückr. li stricken, bei leeren Kästchen in der Hinr. li und in der Rückr. re? Was stricke ich bei "glatt"? Bitte entschuldigen Sie dass ich so auf dem Schlauch stehe. Vielen Dank!
23.02.2017 - 09:27DROPS Design answered:
Liebe Theresa, bei der 1. Reihe in M.1 stricken Sie so (= Hinreihe): 3 li, 3 re, 4 li, 6 re (Zopf), 5 li - bei der Rückreihe (= 2. Reihe) stricken Sie so 5 re, 6 li, 4 re, 3 li, 3 re, usw. Viel Spaß beim stricken!
23.02.2017 - 10:13Theresa wrote:
Hallo zusammen, Wie sind beim Muster die Kästchen zu verstehen? Ein Kästchen mit Kreuz wird glatt in der Hinrunde rechts und Rückrunde links (bzw andersrum) und ein leeres Kästchen in Hin- und Rückrunde gleich gestrickt? Wie gehe ich dann beim geknöpften Bein bei der ersten Hinrunde mit Nadel 4,5 vor wenn ich M1 stricken möchte? Vorher ist ja eine Rückrunde mit nur rechten Maschen...
22.02.2017 - 13:37DROPS Design answered:
Liebe Theresa, ein leeres Kästchen = glatt re (= re auf rechts und li auf links), ein Kästchen mit Kreuz = glatt li (= li auf rechts und re auf links). Die 1. Reihe stricken Sie von der Vorderseite, und wird von unten von rechts nach links von der Vorderseite gelesen, und von links nach rechts von der Rückseite gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
22.02.2017 - 17:30Anne Berit Kvalvågnes wrote:
Finner en feil i oppskriften Diagram M.2. Vridningen i omgang 1 og 7 må være byttet om. Mener fletten skal vris fra yttersiden og innover. Her blir det omvendt. Flott bukse som jeg nå strikker for 2.gang.
12.01.2016 - 14:05Stine wrote:
Jeg regner med at det er riktig, men vil forsikre meg om at fellingen i sidene ikke skjer midt inne i perlemønstret, men nærmere baken fordi den har 2x6 flere masker etter fellingen i skrittet? Det er bare min forkjærlighet for symetri (som det forsåvidt likevel blir) som gjør at jeg spør. Takk på forhånd :)
01.11.2014 - 20:39DROPS Design answered:
Hej Stine, når du sætter de sidste 2 mærketråde (i hver side) så skal du have lige mange masker mellem alle 4 mærketråde. Det betyder at du skal have lige mange masker på forstykket som bagstykket når du har lukket af til ærmegab. God fornøjelse!
03.11.2014 - 10:38