Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Little Petunia |
|
|
|
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 17-4 |
|
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir laskalínu): Fækkið lykkjum hvoru megin við öll prjónamerkin Öll úrtaka er gerð frá réttu og fækkað er um 2 lykkjur í hverri úrtöku, þ.e.a.s. 16 lykkjur í hverri umferð. Byrjið 5 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið þannig: Setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið. * Takið fyrstu lykkjuna óprjónaða á hjálparprjón (= lykkjur sem eru lengst til hægri á prjóni) eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið fyrstu lykkju af vinstri prjóni slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir *, endurtakið frá *-* einu sinni, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa), setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, * prjónið fyrstu lykkju á vinstri prjón og fyrstu lykkju af hjálparprjóni (= lykkjur sem eru lengst til hægri á prjóni) slétt saman*, endurtakið frá *-* einu sinni. ---------------------------------------------------------- FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Fitjið upp 124-139-154 (169-184) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið þannig (umferð 1 = rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*, endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið alls 5 umferðir stroff. Í næstu umferð (= ranga) eru allar 3 lykkjur slétt fækkaðar til 2 lykkjur slétt = 100-112-124 (136-148) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Haldið áfram að prjóna sléttprjón með kantlykkju í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17-21 (23-25) cm prjónið næstu umferð þannig (frá réttu): 21-24-27 (30-33) lykkjur (= hægra framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, 42-48-54 (60-66) lykkjur (= bakstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, 21-24-27 (30-33) lykkjur (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 40-40-45 (45-50) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 5 umferðir stroff = 2 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið. Í næstu umferð eru allar 3 lykkjur brugðið fækkað í 2 lykkjur brugðið = 32-32-36 (36-40) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um eina lykkju hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 7.-5.-7. (6.-7.) hverri umferð alls 4-6-6 (8-8) sinnum = 40-44-48 (52-56) lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-17-21 (24-28) cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi = 32-36-40 (44-48) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi. BERUSTYKKI: Setjið ermarnar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 148-168-188 (208-228) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Haldið áfram í sléttprjón og kantlykkju í garðaprjóni fram og til baka – JAFNFRAMT í 3. umferð er fækkað um 2 lykkjur hvoru megin við öll prjónamerki fyrir laskalínu – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð alls 5-6-6 (7-8) sinnum. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-25-28 (32-35) cm fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 5-6-8 (9-10) lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkju 2 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir laskalínu og affellingu fyrir hálsmáli eru 54-56-72 (74-76) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 27-29-33 (37-40) cm upp að öxl. Setjið lykkjur á þráð. VASI: Fitjið upp 12-16-16 (20-20) lykkjur á sokkaprjón 3,5. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 4-5-5 (6-7) cm – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir = 16-20-20 (24-24) lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff þar til vasinn mælist 6-7-7 (8-9) cm, fellið af. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Takið upp 56-60-68 (76-84) lykkjur (deilanlegt með 4) á prjóna 3,5 meðfram vinstra framstykki. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan stroff með 1 lykkju garðaprjón og 2 lykkjur slétt efst og neðst (séð frá réttu). Þegar kantur að framan mælist 2 cm er fellt af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið eins og vinstri kantur að framan, en eftir 1 cm er fellt af fyrir 4-4-4 (5-5) hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að vera ca 1 cm frá neðri kanti og efsta ca 5 cm frá efri kanti (það kemur einnig til með að vera eitt hnappagat í kanti í hálsi). 1 HNAPPAGAT = Prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. ATH: Fallegast er að fella af í brugðnum lykkjum (séð frá réttu) með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman. KANTUR Í HÁLSI: Setjið lykkjur í kringum háls á hringprjón 3,5. Takið að auki upp 12 til 18 lykkjur í hvorri hlið framan í hálsi (takið einnig upp lykkjur yfir kanta að framan) = ca 78 til 112 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT í síðustu umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir til 72-76-80 (84-88) lykkjur. Prjónið nú stroff með 1 lykkju garðaprjón og 2 lykkjur slétt í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). JAFNFRAMT eftir 1 cm er fellt af fyrir hnappagati yfir hin á kanti að framan. Þegar kantur í hálsi mælist 2 cm er fellt af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum, saumið tölur í og saumið vasana á – þeir eiga að sitja ca 6-6-7 (7-8) cm frá neðri kanti og mitt á milli hliðarsauma og kant að framan. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (45)
Lisa Cunningham wrote:
I have 105 stitches at the neckline after all decreases at the raglan shoulders. I’ve counted up all the stitch counts along the way and can’t see where I might have gone wrong. Can anyone help me out?
21.09.2022 - 03:34DROPS Design answered:
Dear Mrs Cunnignham, did you also cast off on each side for neckline ? Before Raglan decreases are done, when piece measures 23-35 cm (see size), you have to cast off at the beginning of every row on each side (both from RS and from WS for both front pieces) 5-6-8 (9-10) sts 1 time and then 1 st 2 times. Hope it can help. Happy knitting!
21.09.2022 - 09:23Lisa wrote:
Kette ich beim Halsausschnitt (Größe 50/56) 5 Maschen und dann nochmal zwei, also insgesamt 7 Maschen nacheinander ab oder ist eine normale Masche dazwischen?
07.08.2022 - 17:58DROPS Design answered:
Liebe Lisa, für den Hals ketten Sie zuerst 5 Maschen am Anfang der 2 nächsten Reihen dann 1 Masche am Anfang der 4 nächsten Reihe, dh 5 M x 1 Mal + 1 M x 2 Mal auf beiden Seiten. Viel Spaß beim stricken!
08.08.2022 - 07:59Anna wrote:
Hallo ich habe eine Frage zur Blende: mit welcher Nadelgröße nehme ich die Maschen auf? 3,5 oder 4,5? Danke für die Antwort und sehr süßes Strickmuster!
07.03.2022 - 20:41DROPS Design answered:
Liebe Anna, die Blende stricken Sie mit der Nadel 3,5 - danke für den Hinweis, die deutsche Anleitung wird angepasst. Viel Spaß beim stricken!
08.03.2022 - 11:04Jolanda Poelstra wrote:
Er staat bij de mouw van dit vestje, wordt in de rondte gebreid....maar verderop staat brei 1 nld r, 1 nld av... Maar in de rondte brei je toch alleen recht???
02.01.2022 - 21:26DROPS Design answered:
Dag Jolanda,
Vlak na de boord brei je 1 naald recht en 1 naald averecht in de rondte, daarna ga je verder in tricotsteek. Hierdoor ontstaat er een ribbel vlak na de boord.
06.01.2022 - 10:02Magda wrote:
Próbuję zrobić ten sweterek, jednak źle mi się przerabia po przełożeniu rękawów ponad zamknięte oczka na podkrój rekawów (oczka ciężko się przesuwają 0po drucie, a włóczka się przeciera) . Chcialabym zrobić rękawy osób o i dosyć, ale jak wtedy zamykać oczka? W co drugim rzędzie po 1 oczku z każdej strony?
22.11.2021 - 19:33DROPS Design answered:
Witaj Magdo, wzór Frosty Christmas TUTAJ, był wykonywany tak, że reglanowe rękawy były wykonywane oddzielnie i doszywane. Zobacz instrukcje video, które znajdują się na dole tego wzoru. Pozdrawiamy!
23.11.2021 - 11:37Brigitte Tressel wrote:
Blenden stricken: Anleitung 1 M Krausrippe und 2 M re stricken. Nur oben und unten? Was heißt hier von der rechten Seite gesehen? Die Maschenzahl teilbar durch vier geht eigentlich nur, wenn ich 2re und 2 links stricke.
09.06.2021 - 11:02DROPS Design answered:
Liebe Frau Tressel, so sollen Sie die Blende stricken (bei einer Hinreihe): 1 Randmasche krausrrechts, *2 M re, 2 M li*, von *-* wiederholen bis noch 3 M übrig sind, 2 M re, 1 Randmasche krausrechts, dh es sind beidseitig 1 Randmasche kraus rechts und 2 M re (am Anfang der Hinreihe) und Reihe endet mit 2 M re und 1 Randmasche krausrechts. Viel Spaß beim stricken!
09.06.2021 - 15:09Brigitte Tressel wrote:
Babyjackchen Little Petunia ( 12-14 Monate) : Mein Problem: Abnahmen Raglan Passe. Mit Ärmelmaschen 188 Maschen auf der Rundstricknadel. Anleitung Passe: Bei der 3. Reihe 16 Maschen abnehmen , dann bei jeder 4. Reihe 6 mal wieder 16 Maschen abnehmen . Es verbleiben nach Abzug der abgeketteten Halsmaschen 56 Maschen, 16 weniger als die angegebenen. Ist der Fehler die Abnahme in der ditten Reihe? Die Passe wäre dann ja auch unregelmäßig.
24.05.2021 - 18:30DROPS Design answered:
Liebe Frau Tressel, Es sind 188 Maschen am Anfang der Passe und es wird 16 Maschen insgesamt 6 Mal für den Raglan abgenommen (= 16 x 6 = 96 M) - für den Hals legen Sie 8 Maschen beidseitig still + 1 M x 2 x 2 Seiten werden abgekettet (= 10 M beidseitig) = 188 - 96 - 20 =72 Maschen sind jetzt übrig. Viel Spaß beim stricken!
25.05.2021 - 09:00Gabriella Wibring wrote:
Behöver jag verkligen använda hjälpsticka vid raglanminskning? Svårt att förstå hur jag skall göra raglanminskning? Kommer inte vidare! Mvh Gabriella
05.05.2021 - 20:29DROPS Design answered:
Hej Gabrielle, nej det gør du som du vil, men for at antal masker skal stemme bør du tage 2 masker ind ved hver raglanindtagning :)
07.05.2021 - 14:36Nina wrote:
Nog een verheldring op mijn vorige vraag. Je zet de markeerdraad toch op aan het begin en het einde van de naald? Dus het afkanten is ook aan het begin en einde, ofwel 4 steken aan iedere kant. De verwarring ontstaat doordat er wordt gezegd dat dit het "midden" van de onderarm is. Maar zolang je nog niets hebt vast gemaakt, zijn het de uiteinden van de mouw, toch?
16.04.2021 - 10:00Nina wrote:
Wanneer je de mouw afkant voordat je deze samen met het lijfje op de rondbreinaald zet, kant je 4 steken aan iedere kant af, of acht aan één kant? Dit staat niet zo duidelijk beschreven.
15.04.2021 - 21:42DROPS Design answered:
Dag Nina,
De afgekante steken moeten midden onder de mouw zitten, dus 4 steken aan elke kant van de markeerdraad.
16.04.2021 - 09:11