Matheo |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með hettu, sokkum og teppi með köðlum úr DROPS Merino Extra Fine. Þema: Barnateppi.
DROPS Baby 17-2 |
|||||||||||||||||||||||||
PEYSA: PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1, M,2 og M.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan með því að prjóna aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 3, 8, 13, 18 og 23 cm. STÆRÐ 6/9 mán: 5, 10, 15, 20 og 25 cm. STÆRÐ 12/18 mán: 5, 11, 17, 23 og 29 cm. STÆRÐ 2 ára: 5, 11, 16, 21, 27 og 32 cm. STÆRÐ 3/4 ára: 5, 11, 17, 23, 29 og 35 cm. ---------------------------------------------------------- PEYSA: BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 72-80-84 (96-104) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið þannig (umferð 1 = rétta): 1 kantlykkja, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*, endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á prjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT er fækkað um 6-8-6 (8-10) lykkjur jafnt yfir = 66-72-78 (88-94) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Haldið síðan áfram þannig (frá réttu): 1 kantlykkja, 4-7-8 (11-11) lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 lykkjur brugðið, M.1 (= 15 lykkjur), 4-4-6 (8-11) lykkjur brugðið, M.3 (= 6 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, M.3 (= 6 lykkjur), 4-4-6 (8-11) lykkjur brugðið, M.2 (= 15 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, 4-7-8 (11-11) lykkjur perluprjón og 1 kantlykkja. Haldið áfram héðan samkvæmt sama mynstri. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-26) cm fækkið lykkjum fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2 (3-3) sinnum og 1 lykkja 2-3-2 (2-2) sinnum = 56-56-60 (66-72) lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-28-32 (36-39) cm prjónið lykkjur yfir hvert M.3 saman tvær og tvær = 50-50-54 (60-66) lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 12-12-16 (20-22) lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 18-18-18 (19-21) lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 28-30-34 (38-41) cm fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir = 12-12-12 (13-15) lykkjur eftir á öxl. Fellið af í næstu umferð. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 42-46-50 (54-58) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 kantlykkjur við miðju að framan) á prjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff frá miðju að framan þannig (umferð 1 = rétta): 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan), *2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á prjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT er fækkað um 4-5-6 (5-6) lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kant að framan) = 38-41-44 (49-52) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan), 1 lykkja brugðið, M.3 (= 6 lykkjur), 4-4-6 (8-11) lykkjur brugðið, M.1 (= 15 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, 4-7-8 (11-11) lykkjur perluprjón og 1 kantlykkja. Haldið núna áfram samkvæmt sama mynstri. Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-26) cm fækkið lykkjum fyrir handvegi í hlið eins og á bakstykki = 33-33-35 (38-41) lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-26-30 (33-36) cm prjónið 6 lykkjur yfir M.3 saman tvær og tvær = 30-30-32 (35-38) lykkjur, setjið síðan ystu 8-8-10 (12-13) lykkjurnar við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hverri umferð frá hálsi: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 18-18-18 (19-21) lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 28-30-34 (38-41) cm fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir = 12-12-12 (13-15) lykkjur eftir á öxl. Fellið af í næstu umferð. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og hægra, nema gagnstætt og án hnappagata. Þ.e.a.s. umferð 1 er prjónuð frá hlið þannig (umferð 1 = rétta): 1 kantlykkja, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan). Þegar mynstrið er prjónað þá er það prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja, 4-7-8 (11-11) lykkjur perluprjón, 2 lykkjur brugðið, M.2 (= 15 lykkjur), 4-4-6 (8-11) lykkjur brugðið, M.3 (= 6 lykkjur), 1 lykkja brugðið og 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan). ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 46-46-46 (50-50) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið með 1 kantlykkju í hvorri hlið í 4 cm. Skiptið yfir á prjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT er fækkað um 10-8-8 (10-10) lykkjur jafnt yfir = 36-38-38 (40-40) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): 1 kantlykkja, 12-13-13 (14-14) lykkjur perluprjón, 2 lykkjur brugðið, M.3 (= 6 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, 12-13-13 (14-14) lykkjur perluprjón og 1 kantlykkja. Haldið áfram að prjóna samkvæmt sama mynstri. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um eina lykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umferð alls 6-7-9 (10-12) sinnum = 48-52-56 (60-64) lykkjur – útauknu lykkjurnar eru prjónaðar inn í perluprjón. Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-28) cm fækkið lykkjum fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 4 lykkjur 1 sinni, síðan 2 lykkjur saman þar til stykkið mælist 21-23-26 (30-34) cm og að lokum 3 lykkjur 1 sinni – JAFNFRAMT í síðustu umferð eru lykkjur prjónaðar yfir M.3 saman tvær og tvær. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist ca 22-24-27 (31-35) cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. HETTA: Prjónið upp ca 46 til 68 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) í kringum háls á prjón 4,5. Prjónið 2 umferðir slétt – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út jafnt yfir til 68-72-76 (80-84) lykkjur. Prjónið sléttprjón með rönguna út með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan þar til hettan mælist 21-23-25 (27-28) cm, fellið af. Saumið hettuna saman að ofan – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki þykkur. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við kantlykkju. Saumið tölur í. ---------------------------------------------------------- SOKKAR: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.4. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-6 (6-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-6 (6-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-4-5 (5-5) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-4-5 (5-5) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 9-9-12 (12-12) lykkjur eru eftir á prjóni. -------------------------------------------------------- SOKKUR: Fitjið upp 36-36-42 (42-42) lykkjur á sokkaprjóna nr 3 með Merino Extra Fine og prjónið stroff = 3 lykkjur slétt/ 3 lykkjur brugðið í 2 cm. Prjónið nú 1 umferð þar sem allar 3 lykkjur slétt eru auknar út til 4 lykkjur slétt = 42-42-49 (49-49) lykkjur. Prjónið 1 umferð með 4 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið. Prjónið nú þannig: * M.4, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* alls 6-6-7 (7-7) sinnum. Þegar M.4 hefur verið prjónað 3 sinnum á hæðina eru lykkjur prjónaðar í M.4 saman tvær og tvær = 30-30-35 (35-35) lykkjur. Haldið eftir fyrstu 17-17-22 (22-22) lykkjum á prjóni (= hæll) og setjið síðustu 13 lykkjur á þráð (= ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm. Setjið prjónamerki í mitt stykkið. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Takið síðan upp 7-8-9 (9-10) lykkjur hvoru megin við hæl og lykkjur af þræði ofan á fæti eru settar aftur á prjóninn = 36-38-43 (43-45) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 13 lykkjur ofan á fæti þannig: Þær 2 síðustu lykkjur á undan þessum 13 lykkjum eru prjónaðar snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og 2 fyrstu lykkjur á eftir þessum 13 eru prjónaðar slétt saman. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 5-6-7 (6-6) sinnum = 26-26-29 (31-33) lykkjur. Haldið áfram að prjóna þar til stykkið mælist ca 8-9-9½ (11½-12½) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 2-2-2½ (2½-3½) cm). Setjið prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 13-13-15 (15-17) lykkjur ofan á fæti og 13-13-14 (16-16) lykkjur undir fæti. Fækkið nú lykkjum fyrir tá á hvoru megin við bæði prjónamerkin – SJÁ ÚRTAKA! Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð: 2-2-3 (3-5) sinnum og síðan í hverri umferð: 3-3-3 (3-2) sinnum = 6-6-5 (7-5) lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist nú ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk alveg eins. ---------------------------------------------------------- TEPPI: GARÐARPJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið er út með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til þess að koma í veg fyrir göt (prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu. --------------------------------------------------------- TEPPI: Teppið samanstendur af 3 ferningum á breiddina og 4 ferningum á lengdina = alls 12 ferningar. 1 ferningur mælist ca 18 cm á breidd x 22½ cm á hæðina. 1 FERNINGUR: Fitjið upp 36 lykkjur á prjóna nr 5 með Merino Extra Fine. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út – sjá ÚTAUKNING – 10 lykkjur jafnt yfir 26 miðju lykkjur = 46 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, 3 lykkjur slétt, 6 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 6 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Prjónið nú þannig: 5 lykkjur garðaprjón, M.1 yfir 36 lykkjur og 5 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til 2 umferðir eru eftir. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 10 lykkjur jafnt yfir miðju 36 lykkjur = 36 lykkjur. Prjónið 8 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið laust af. ATH: Ef óskað er eftir því er hægt að prjóna 4 ferninga á eftir hverjum öðrum á lengdina án þess að fella af, þá er byrjað strax á næsta ferning eftir að hafa prjóna 8 umferðir með garðaprjóni. FRÁGANGUR: Saumið saman ferningana 3 st á breiddina og 4 st á lengdina – saumið kant í kant yst í lykkjubogann þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið í kringum allt teppið með heklunál nr 5 þannig: * Heklið 1 fastalykkju, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkju í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir 1 cm *, endurtakið frá *-* , endið á 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun umferðar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (142)
Aurélie wrote:
Bonjour, Je souhaite faire la veste. J'ai vu que pour l'échantillon vous proposez de faire uniquement du jersey. Or, ce modèle ayant des torsades, celles-ci réduisent le tricot. Comment faire pour savoir si notre travail va correspondre aux dimensions du modèle ? Merci d'avance pour votre retour.
14.02.2024 - 14:45DROPS Design answered:
Bonjour Aurélie, si votre échantillon en jersey est juste, et que vous conservez la même tension en tricotant par la suite, alors les mesures finales seront justes car les ajustements sont faits dans le nombre de mailles pour chaque taille. Bon tricot!
14.02.2024 - 16:28Lene Hallingore wrote:
Jeg kan ikke se i vejledningen, hvad jeg skal strikke mellem diagrammerne på vrangpindene.
27.11.2023 - 09:52DROPS Design answered:
Hei Lene. Fra vrangen strikker vrangmaskene rett og perlestrikk over perlestrikk. Om du ser på bildet vil du se at det bare er vrangmasker mellom f.eks diagram M.3 og M.1. mvh DROPS Design
27.11.2023 - 10:30Anne-Berit Storrød wrote:
Hei. Jeg strikker jakken i str 6/9 mnd og holder på med bakstykket. Når jeg har felt til ermer har jeg 56 m på pinnen. Da er det kun mønster og vrangmaskene før, mellom og etter igjen. (Det er felt 8 masker i hver side og det utgjør 7 m perlestrikk og 1 stk kantmaske.) Skal man da ikke fortsette med 1 stk kantmaske ?
21.01.2023 - 23:26DROPS Design answered:
Hei Anne-Berit, Nei, det er ikke nødvendig med kantmasker langs ermhullene. Ermene sys i vrangmaskene. God fornøyelse!
22.01.2023 - 08:23Kati Salonius wrote:
Voisiko ohjeen tehdä ilman huppua?
18.09.2022 - 17:58DROPS Design answered:
Voit neuloa jakun ilman huppua. Poimi tällöin silmukoita pääntien reunasta ja neulo esim. joustinneuleinen pääntien reunus.
20.09.2022 - 18:44Valentina wrote:
Potete verificare nello schema M5 che la treccia centrale, quella con la nocciolina, sia corretta? Ho seguito tutto lo schema ma non viene come nella foto. Grazie mille
11.09.2022 - 22:24DROPS Design answered:
Buonasera Valentina, in quale punto trova difficoltà? ha seguito lo schema dal basso verso l'alto e da destra verso sinistra? Buon lavoro!
12.09.2022 - 21:44Velma wrote:
Im starting the back now and you only give instructions for the first row. What do i knit for the second row and does these 2 rows form the pattern
17.07.2022 - 13:08DROPS Design answered:
Dear Velma, in fact, the rib pattern is formed by the first row already. For second row you knit stitches just as you see it: i.e. 1 edge st, P2, K2, ... Happy knitting!
18.07.2022 - 15:22Nathalie wrote:
Ich hab noch eine Frage. Dieses Mal zu den Ärmeln: es sollen 10 mal beidseitig 2 Maschen zugenommen werden. Ich stricke also am Anfang und Ende jeder vierten Reihe eine Masche dazu. Das gibt doch aber insgesamt 20 Maschen (=10x2Maschen) , dann hat das Strickstück nach allen Zunahmen aber 70 und nicht 60 Maschen . Was verstehe ich falsch ?
30.03.2021 - 22:01DROPS Design answered:
Liebe Nathalie, es sind 40 Maschen (4. Größe) + 2 Maschen x 10 Mal =40+20=60 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
06.04.2021 - 10:11Nathalie wrote:
Ich stricke die Jacke, beim rechten Vorderteil verstehe ich nicht, welche Maschen ich auf die Hilfsnadel nehmen soll : die Maschen an der Ärmelkante oder die, die zur Knopfleiste zeigen?
18.02.2021 - 21:45DROPS Design answered:
Liebe Nathalie, beim rechten Vorderteil legen Sie die ersten Maschen am Anfang einer Hinreihe still = die 5 Blenden-Maschen + (je nach der Größe) 3 bis 10 Maschen dazu = 8, 10, 12 oder 13 M sind jetzt auf der Hilfsnadel, jetzt stricken Sie wie zuvor und ketten neuen Maschen am Anfang der Reihe ab Halsausschnitt - die stillgelegten Maschen werden später für die Kapuze aufgenommen. Viel Spaß beim stricken!
19.02.2021 - 07:55Claudia wrote:
Ich hätte da nochmal eine Frage: bei der Jacke steht: 1 R. re. auf rechts stricken – GLEICHZEITIG gleichmässig verteilt 6-8-6 (8-10) M. abk. = 66-72-78 (88-94) M. 1 R. re. von links stricken. Heißt dass, ich stricke eine Reihe mit Rechte Maschen + der Abnahme. Und danach die Rückreihe auch mit rechten Maschen. Oder linke Maschen ( linke Seite) damit ich dann auf der rechten Seite rechte Maschen sehe? Lg
19.01.2021 - 21:56DROPS Design answered:
Liebe Claudia, ja genau, bei einer Hinreihe nehmen Sie regelmäßig verteilt ab und bei der Rückreihe stricken Sie alle Maschen rechts. Viel Spaß beim stricken!
20.01.2021 - 07:59Claudia wrote:
Hallo. Ab wann Mist man die Knopflöcher ? Gr 1/3 Monate - 3-8-13cm.... Gemessen von anfangen an, ganz unten oder erst nach dem Bündchen ab gemessen Lg
18.01.2021 - 21:47DROPS Design answered:
Liebe Claudia, messen Sie von ganz unten, dh von der Anschlagskante. Viel Spaß beim stricken!
19.01.2021 - 07:39