Summer Fruit |
|
|
|
Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu á börn og húfu úr DROPS Fabel ásamt buxum og sokkum úr DROPS Alpaca.
DROPS Baby 17-23 |
|
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 HNAPPAGAT = Prjónið saman 2. Og 3. Lykkjur frá miðju að framan slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 MÁN: 3, 8, 13 og 18 cm. STÆRÐ 6/9 MÁN: 3, 9, 14 og 20 cm. STÆRÐ 12/18 MÁN: 4, 10, 16 og 22 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 4, 10, 16, 21 og 27 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 5, 11, 17, 23 og 29 cm. Fellið einnig af fyrir 1 hnappagati í kanti í hálsi. ÚRTAKA (á við um laskalínu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og fram- og bakstykkis (byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki) þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- PEYSA: FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Fitjið upp 130-144-160 (176-192) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Fabel. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3-3-4 (4-5) cm fellið af fyrir HNAPPAGAT meðfram hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm prjónið 3 umferðir slétt yfir allar lykkjur (umferð 1 = ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 31-34-38 (41-45) lykkjur (= hægra framstykki), fellið af 8-8-8 (10-10) lykkjur (= handvegur), 52-60-68 (74-82) lykkjur (= bakstykki), fellið af 8-8-8 (10-10) lykkjur (= handvegur), 31-34-38 (41-45) lykkjur (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 38-40-42 (44-44) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Fabel. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 10.-8.-6. (8.-7.) hverri umferð, alls 4-6-8 (9-12) sinnum = 46-52-58 (62-68) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 16-18-20 (25-29) cm prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt – JAFNFRAMT í síðustu umferð eru felldar af 8-8-8 (10-10) lykkjur mitt undir ermi (= 4-4-4 (5-5) lykkjur hvoru megin við prjónamerki.) = 38-44-50 (52-58) lykkjur eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki, þar sem fellt var af fyrir handveg = 190-216-244 (260-288) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykkis. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! LASKALÍNA: Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur áður en úrtakan byrjar. Haldið áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT í umferð 1, frá réttu, er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerkin (= 8 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð alls 9-10-9 (9-9) sinnum og síðan í annarri hverri umferð: 3-4-8 (8-11) sinnum. HÁLSMÁL: Jafnframt þegar stykkið mælist 23-25-27 (32-35) cm eru fyrstu 8-10-10 (13-13) lykkjurnar á prjóni settar á þráð fyrir hálsmáli, síðan er fyrstu 8-10-10 (13-13) lykkjur í byrjun á næstu umferð settar á þráð fyrir hálsmáli í hinni hliðinni. Haldið síðan áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir laskalínu og úrtöku fyrir hálsmáli eru 66-72-76 (86-90) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 27-29-33 (37-40) cm upp að öxl. FRÁGANGUR: Prjónið upp ca 15 til 20 lykkjur í hvorri hlið fram í háls lykkjur (meðtaldar lykkjur á þráðum) = ca 96 til 130 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 79-79-85 (91-97) lykkjur (ekki fækka lykkjum yfir kanta að framan). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 3 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu, fellið af fyrir einu hnappagati yfir hin á kanti að framan. Þegar kantur í hálsi mælist 2-2½-2½ (3-3) cm fellið af með sléttu yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- HÚFA: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón og sokkaprjóna. Fitjið upp 98-105-112 (119-126) lykkjur á hringprjón 2,5 með Fabel. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist 10-10-10 (12-12) cm. Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15-16-17 (19-20) cm er fækkað um 14-15-16 (17-18) lykkjur jafnt yfir með því að prjóna 6. og 7. hverja lykkju slétt saman = 84-90-96 (102-108) lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt, í umferð 4 er úrtakan endurtekin með 1 lykkju færri á milli hverra úrtöku (þ.e.a.s. prjónið 5. og 6. hverja lykkju slétt saman). Haldið áfram að fækka lykkjum svona í annarri hverri umferð 4 sinnum til viðbótar = 14-15-16 (17-18) lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Brjótið uppá neðstu 5-5-5 (6-6) cm tvöfalt að réttu. Húfan mælist nú 14-15-16 (17-18) cm. ------------------------------------------------------- BUXUR: Buxurnar eru allar prjónaðar í garðaprjóni fram og til baka í tveimur hlutum. HÆGRI SKÁLM: Fitjið upp 52-60-64 (70-74) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Alpaca. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 1½-2-2½ (3-4) cm millibili alls 8 sinnum = 68-76-80 (86-90) lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-25-28 (33-38) cm fellið af 2 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-72-76 (82-86) lykkjur. Fækkið síðan um 1 lykkju á annarri hlið á stykki (= miðja að framan) – endurtakið úrtöku við miðju að framan í annarri hverri umferð alls 2-6-6 (10-12) sinnum = 62-66-70 (72-74) lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 40-46-50 (56-62) cm. Prjónið síðan sléttprjón í 2 cm fyrir saumfald, áður en fellt er af. VINSTRI SKÁLM: Fitjið upp og prjónið eins og hægri skálm, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Saumið saum að innan verðu á skálm innan við 1 kantlykkju – ATH: Þeir 4-5 neðstu cm eru saumaðir með kantinn út á við, svo að saumurinn sjáist ekki þegar brotið er uppá kantinn. Saumið buxurnar saman alla leið frá miðju að framan að miðju að aftan innan við 1 kantlykkju. Brjótið uppá saumfald efst tvöfalt að röngu og saumið niður með smáu spori. Þræðið teygju í gegnum faldinn. Brjótið uppá 4-5 neðstu cm á skálmum. ------------------------------------------------------- SOKKAR: HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (5-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (5-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 8-8-10 (10-10) lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- SOKKUR: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 44-44-48 (48-52) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið stroff = 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið í 4-5-5 (6-6) cm. Prjónið síðan 1 umferð sléttprjón – JAFNFRAMT er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44 (44-48) lykkjur. Haldið eftir fyrstu 18-18-20 (20-22) lykkjur á prjóni fyrir hæl (hinar 22-22-24 (24-26) lykkjur eru settar á þráð = ofan á fæti). Prjónið sléttprjón yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið eitt prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Nú eru teknar upp 8-9-10 (11-12) lykkjur hvoru megin við hæl og lykkjur af þræði ofan á fæti eru settar til baka á prjóninn = 46-48-54 (56-60) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við lykkjur sem voru á þræði. Haldið áfram með sléttprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT í umferð 1 er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 22-22-24 (24-26) lykkjur ofan á fæti – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 7-6-9 (8-8) sinnum = 32-36-36 (40-44) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 7-8-9 (10½-12½) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 3-3-3 (3½-3½) cm). Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki, þ.e.a.s. það verða 16-18-18 (20-22) lykkjur bæði á ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4 sinnum og síðan í hverri umferð 2-3-3 (4-5) sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk alveg eins. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (78)
Annelies Rennert wrote:
Hallöchen, erstmal danke für hilfe. Habe die Jacke für 6-9 Monate fertig. Ist schön geworden. Wie vergrössere ich nun für 6 Jahre ? Habe 210 Ma augenommen. Habe es auf ein passendes Teil gelegt. Könnte klappen. Nun aber wieviel Ma für Ärmel und vor allem wieviel Zunahme und Abnahme beim Raglan. Habe schon im Internet gesucht. Können sie mir bitte helfen? Danke und liebe Grüße Annelies
27.03.2023 - 13:08DROPS Design answered:
Liebe Frau Rennert, super zu hörten, daß alles gut verlaufen ist - hier finden Sie eine ähnliche Jacke, die für 6 Jahre erhältlich ist - diese ist mit Delight gestrickt, dh selbe Garngruppe wie Fabel hier. Hoffentlich kann es Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!
27.03.2023 - 13:36Annelies Rennert wrote:
Hallöchen, sie werden mich nicht los. Habe ich richtig verstanden, nach den 2x2 MA und 2x1MA Abnahme das ich alle maschen abketten muß auch jeweils 5 MA von den stillgelegten. Es bleibt dann nur noch die knopflochpasse. Dan nehme ich wieder die komplett abgeketteten MA wieder auf und stricke dann weiter wie angegeben. Oder? Ist das nun richtig verstanden? Tut mir leid das ich soviel Umstände mache. Es ist nicht besonders gut erklärt. Danke vorab, LG. Annelies
23.03.2023 - 13:39DROPS Design answered:
Liebe Frau Rennert, wenn alle Abnahmen für Raglan gestrickt sind und wenn alle Abketten für Halsausschnitt gemacht sind, sind es nur noch 76 Maschen auf der Nadel, die legen Sie still. Faden abschneiden und jetzt die 10 stillgelegten Maschen vom rechten Vorderteil stricken, einige Maschen auffassen (zwischen den 10 stillgelegten Maschen und die erste von den 76 Maschen), die 76 Maschen stricken dieselbe Maschenanzahl auffassen und die 10 stillgelegten Maschen vom linken Vorderteil stricken, eine Rückreihe rechts stricken und die Maschenanzahl auf 85 M anpassen. Viel Spaß beim stricken!
23.03.2023 - 14:51Annelies Rennert wrote:
Hallo nochmal, wenn ich die MA abkette wird doch ein Loch zwischen den abgeketteten MA und den stillgelegten Ma. ODER müssen die MA zusammen gestrickt werden? Das ergibt Sinn Wann stricke ich die stillgelegten MA. Ich hoffe die letzte Frage LG. Annelies Rennert
23.03.2023 - 10:06DROPS Design answered:
Liebe Frau Rennert, oh ja natürlich, sorry daran hatte ich nicht gedacht: wenn alle Abnahmen und Abketten (Raglan + Hals) gemacht sind, wird man die Maschen rund den Hals auffassen, dh die stillgelegten Maschen stricken, neue Maschen auffassen, die übrigen Maschen nach Passe stricken, neue Maschen auffassen und stillgelegten Maschen stricken - siehe ZUSAMMENNÄHEN, wo die Halskante erklärt ist. Viel Spaß beim stricken!
23.03.2023 - 12:34Annelies Rennert wrote:
Bin an Halsbänder. 2x 10 ma stillegen, dann noch 2x2 u. 2x1 ma abketten. Dann wieder 15-20 ma zunehmen. Gleichzeitig 79ma gleichmäßig verteilt anpassen, was ist mut den 2x10 ma? Müssen doch mit gestrickt werden. Durch das abketten entsteht doch ein Loch. Entweder ist das alles nicht richtig übersetzt oder? Bitte nochmals um Erläuterung, möchte fertig stellen. Danke Annelies Rennert
22.03.2023 - 13:23DROPS Design answered:
Liebe Frau Rennert, stricken Sie die ersten 10 M am Anfang der Hin-R, und legen Sie sie still, bis zur Ende der R wie zuvor stricken, wenden, die 10 nächsten M stricken und stilllegen, wie zuvor bis Ende der R stricken. Dann stricken Sie mit Raglanabn weiter und gleichzeitig ketten Sie 2 M am Anfang der nächsten 4 R dann 1 M am Anfang der nächsten 4 R (2 M 2 Mal + 1 M 2 M beidseitig) = 244-136 (Raglan) - 20 (stillgelegt) - 12 (abgekettet) = 76 Maschen übrig. Viel Spaß beim stricken!
22.03.2023 - 13:43Annelies Rennert wrote:
Hallo, bin beim stricken bis zur Rundpasse gekommenen. Jetzt geht es bei der Rundpasse weiter. Bin komplett planlos. Bitte um Erklärung der kompletten halsabnahme. Verstehe diese Abnahmen nicht. Desweiteren nochmal das zusammennähen erklären. Bitte nochmal erklären damit ich diese Jacke fertig stellen kann. Habe noch eine zu stricken für 6 Jahre altes Mädchen. Hoffe sie beschreiben es mir so das ich es verstehe. Vielen Dank Annelies Rennert
21.03.2023 - 23:01DROPS Design answered:
Liebe Frau Rennert, hier gibt es keine Rundpasse sondern Raglanabnahmen. Setzen Sie 1 Markierung in jedem Übergang (4 Markierungen) und nehmen Sie jeweils 8 Maschen ab wie unter TIPP ZUM ABNEHMEN (gilt für die Raglanpasse): erklärt - gleichzeitig soll man auch Halsausschnitt stricken: nach 23-35 cm die 8-13 ersten Maschen am Anfang der 2. nächsten Reihe stilllegen dann am Anfang jeder Reihe (Hin- sowie Rückreihe) für den Hals abketten. Viel Spaß beim stricken!
22.03.2023 - 08:55Annelies Rennert wrote:
Hallöchen, was verstehe ich unter zusammen nähen wenn gestrickt wird. Warum vorn maschen aufnehmen,? Die Leiste mit den knopflöchern ist doch da. Bitte erklären Sie mir es genau, möchte nicht das ich die Wolle für 2 jacken für um sonst gekauft habe. Finde ihre Anleitungen sind manchmal schlecht erklärt. Mfg. Annelies Rennert
31.01.2023 - 11:03DROPS Design answered:
Liebe Frau Rennert, unter ZUSAMMENNÄHEN wird es erklärt, wie man die Halskante strickt, dh die stillgelegten Maschen vom rechten Vorderteil stricken + Maschen rund den Hals auffassen + die stillgelegten Maschen vom linken Vorderteil stricken - dann weiter im Bündchen mit 5 Blendemaschen kraus rechts stricken. Viel Spaß beim stricken
31.01.2023 - 17:18Annelies Rennert wrote:
Hallöchen, möchte obige Jacke stricken. Liest sich sehr kompliziert. Verstehe ich h richtig das die Jacke von unten nach oben gestrickt wird . Wie soll das mit dem Raglan gehen? Sie schreiben auch das die ärmeln extra gestrickt werden. Unter zusammennähen steht wie man stricken soll. Sehr verwirrend. Bitte nochmals um genaue Informationen, habe die Wolle schon gekauft. Mfg. Annelies Rennert
29.01.2023 - 22:16DROPS Design answered:
Liebe Frau Rennert, Rumpfteil wird von unten nach oben in einem Stück bis zum Armloch gestrickt, dann strickt man beide Ärmel und endlich strickt man die Passe (die Ärmel strickt man zusammen mit der Passe) und es wird dann für den Raglan abgenommen - siehe hier. Viel Spaß beim stricken!
30.01.2023 - 09:40Voirol Gaëtane wrote:
Bonjour, Je fais le modèle 1-3 mois. Je suis arrivée à la fin des diminutions. J'ai 66 mailles mais mon ouvrage mesure 25 cm et pas 27cm. Est-ce que je dois continuer à tricoter encore 2 cm pour obtenir 27 cm ou je dois m'arrêter là et faire l'assemblage? Merci de votre réponse
18.02.2022 - 12:05DROPS Design answered:
Bonjour Mme Voirol, posez votre ouvrage bien à plat, il doit mesurer 27 cm de hauteur totale, y compris les 2 cm de l'épaule, autrement dit, 25 cm à partir du rang de montage jusqu'aux mailles sur l'aiguille en mesurant le long du devant - cf schéma. Il est donc possible que vous ayez atteint la bonne mesure. Bon tricot!
18.02.2022 - 14:25Voirol Gaëtane wrote:
Bonjour, Pour tricoter la veste taille 1-3mois: Je ne comprend pas si je dois tricoter 130 mailles au départ ou 140 (130 + 5 mailles de chaque côté). Et quand je tricote les 5 mailles du bords, est-ce que la mailles lisière compte comme une des mailles? Merci pour vos réponses.
29.01.2022 - 21:32DROPS Design answered:
Bonjour Mme Voirol, les mailles de bordure des devants sont comprises dans le nombre de mailles à monter, autrement dit, montez 130 mailles et tricotez ensuite ainsi: 5 m point mousse, 120 m jersey, 5 m point mousse. On n'a pas de mailles lisières ici. Bon tricot!
31.01.2022 - 09:21Madalena Martins wrote:
Olá! Por favor, gostaria de saber o número dessa lã do casaquinho colorido. Obrigada.
14.05.2021 - 14:23