DROPS 52-11 |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með norrænu mynstri úr DROPS Karisma
DROPS 52-11 |
|||||||||||||||||||
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. STROFF: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. ---------------------------------------------------------- PEYSA: Tölur í () = herrastærð Litir í () = Litavalmöguleiki – 2 og 3. Peysan er prjónuð á hringprjóna og er klippt upp fyrir handveg í lokin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 190-198-210 (200-212) lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum ljós brúnn (dökk blágrænn-ljós brúnn) og prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan – þannig: 1 umferð með litnum ljósbrúnn (dökk blágrænn-ljós brúnn), skiptið í litinn dökk blágrænn (natur-vínrauður) og prjónið þar til stroffið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið M.1 (M.7-M.1) JAFNFRAMT er aukið út um 62-66-66 (64-64) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 252-264-276 (264-276) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið: Framstykki og bakstykki = 126-132-138 (132-138) lykkjur. Eftir M.1 er prjónað M.2 – byrjið við ör í mynsturteikningu og prjónið lykkjur yfir framstykki, byrjið aftur við ör og prjónið lykkjur yfir bakstykki. Prjónið síðan M.3 upp úr þar til stykkið mælist ca 22-24-26 (29-32) cm – stillið af eftir mynstri, það verður að prjóna vissan fjölda mynstureininga á hæðina (nú eru ca 38 cm eftir af stykki). Prjónið síðan þannig: Framstykki, byrjið við ör og prjónið 36-39-42 (39-42) lykkjur af M.3, M.4 (= 54 lykkjur), 36-39-42 (39-42) lykkjur með M.3. Endurtakið yfir bakstykki. Haldið áfram í 24 umferðir, prjónið síðan þannig: Framstykki, byrjið við ör og prjónið 36-39-42 (39-42) lykkjur með M.5, M.4 (= 54 lykkjur), 36-39-42 (39-42) lykkjur með M.5. Endurtakið yfir bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 33-35-36 (39-41) cm aukið út um 5 lykkjur á hvorri hlið (þessar lykkjur eru til að klippa upp í lokin og eru ekki prjónaðar með inn í mynstur). Haldið áfram með mynstur. PEYSA MEÐ OPIÐ HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 36-38-40 (43-46) cm (nú eru eftir ca 24 cm til loka á stykki) prjónið næstu umferð þannig: 5 lykkjur til að klippa upp í, 62-65-68 (65-68) lykkjur framstykki, fellið af 3 lykkjur fyrir opið í hálsmáli, 61-64-67 (64-67) lykkjur framstykki, 5 lykkjur til að klippa upp í, 126-132-138 (132-138) lykkjur á bakstykki. Stykkið er prjónað til loka fram og til baka . Þegar M.4 og M.5 hefur verið prjónað til loka er prjónað M.6, síðan M.1 (M.7-M.1) til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 53-55-57 (60-63) cm fellið af fyrir hálsmáli hvoru megin við op fyrir háls við miðju að framan í annarri hverri umferð: 11-12-13 (13-13) lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 3 sinnum (mismunandi lykkjufjöldi er á öxl-framstykkjum: hægri öxl = 40-42-44 (41-44) lykkjur, vinstri öxl = 41-43-45 (42-45) lykkjur). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 58-60-62 (65-68) cm fellið af miðju 42-44-46 (46-46) lykkjur aftan við háls. Fellið síðan af 2 lykkjur á hvorri hlið í næstu umferð við háls að aftan. Fellið af eftir M.1 (M.7-M.1) – stykkið mælist ca 60-62-64 (67-70) cm. PEYSA MEÐ HRINGLAGA HÁLSMÁLI: Eftir M.4 og M.5 prjónið M.6, síðan M.1 (M.7-M.1) upp úr til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 53-55-57 (60-63) cm – fellið af miðju 26-28-30 (30-30) lykkjur á framstykki fyrir hálsmáli og prjónað er til loka fram og til baka. Fellið síðan af lykkjur við háls í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 3 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 58-60-62 (65-68) cm fellið af miðju 42-44-46 (46-46) lykkjurnar aftan við háls. Fellið síðan af 2 lykkjur á hvorri hlið í næstu umferð við háls. Fellið af eftir M.1 (M.7-M.1) – stykkið mælist ca 60-62-64 (67-70) cm. ERMI: Fitjið upp 48-50-50 (52-52) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum ljós brúnn (dökk blágrænn-ljós brúnn) og prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan – þannig: 1 umferð með litnum ljós brúnn (dökk blágrænn-ljós brúnn), skiptið yfir í litinn dökk blágrænn (natur-rauður) og prjónið þar til stroffið mælist 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið M.1 (M.7-M.1) JAFNFRAMT er aukið út um 10-10-10 (8-10) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 58-60-60 (60-62) lykkjur. JAFNFRAMT eftir stroff er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi 30-29-32 (32-33) sinnum í dömu S+M+herra S/M+M/L: Í 4. hverri umferð dömu L: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð = 118-118-124 (124-128) lykkjur. JAFNFRAMT eftir M.1 (M.7-M.1) prjónið M.2 (passið uppá að það verði ein mynstureining mitt ofan á ermi), síðan M.3 upp til loka. Þegar stykkið mælist 49-49-48 (54-54) cm prjónið 2 cm sléttprjón með rönguna út fyrir kant fyrir saum yfir kant sem klipptur var upp í fram- og bakstykki, fellið af. FRÁGANGUR Á PEYSU MEÐ OPNU HÁLSMÁLI: Saumið merkiþráð niður mitt í útauknu lykkjurnar í hvorri hlið. Tvo sauma sitt hvoru megin við merkiþráðinn ca ½ lykkju frá merkiþræði hvoru megin. Klippið út fyrir handveg. Saumið axlasauma. Takið upp ca 40 cm meðfram vinstri hlið á opi á framstykki á sokkaprjón 2,5 með litnum dökk blágrænn (dökk blágrænn-rauður) innan við 1. lykkju og prjónið 2 umferðir sléttprjón, fellið af. Endurtakið meðfram hægri hlið á opi. Saumið opið niður neðst með lykkjuspori frá réttu. Takið upp ca 100-110 lykkjur í kringum háls yfir op frá miðju að framan á sokkaprjón 2,5 með litnum dökk blágrænn (dökk blágrænn-rauður) og prjónið 2,5 cm sléttprjón, skiptið yfir í litinn ljós brúnn (natur-ljós brúnn) og prjónið 1 umferð sléttprjón, 1 umferð brugðið (= uppábrot), skiptið til baka yfir í litinn dökk blágrænn (dökk blágrænn-rauður) og prjónið 2,5 cm sléttprjón, fellið af. Brjótið kantinn saman tvöfaldan að röngu og saumið. Saumið ermar í við fram- og bakstykki frá réttu þannig: Saumið til skiptis eitt spor í síðustu umferð á ermi á undan kant fyrir saum og eitt spor í fram- og bakstykki á eftir saum úr saumavél. Snúið peysunni við og saumið í höndunum kant fyrir saum frá ermi yfir kant sem klipptur var upp á fram- og bakstykki. Saumið rennilás í peysuna. FRÁGANGUR Á PEYSU MEÐ HRINGLAGA HÁLSMÁLI: Saumið merkiþráð niður mitt í útauknu lykkjurnar í hvorri hlið. Tvo sauma sitt hvoru megin við merkiþráðinn ca ½ lykkju frá merkiþræði hvoru megin. Klippið út fyrir handveg. Saumið axlasauma. Takið upp ca 100-110 lykkjur í kringum háls á sokkaprjóna 2,5 með litnum dökk blágrænn (dökk blágrænn-rauður) og prjónið 2,5 cm sléttprjón, skiptið yfir í litinn ljós brúnn (natur-ljós brúnn) og prjónið 1 umferð sléttprjón, 1 umferð brugðið (= uppábrot), skiptið til baka yfir í litinn dökk blágrænn (dökk blágrænn-rauður) og prjónið 2,5 cm sléttprjón, fellið af. Brjótið kantinn saman tvöfaldan að röngu og saumið. Saumið ermar í við fram- og bakstykki frá réttu þannig: Saumið til skiptis eitt spor í síðustu umferð á ermi á undan kant fyrir saum og eitt spor í fram- og bakstykki á eftir saum úr saumavél. Snúið peysunni við og saumið í höndunum kant fyrir saum frá ermi yfir kant sem klipptur var upp á fram- og bakstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
Lesley Simpson wrote:
I have started knitting the pattern and have worked up to the part where the front is knitted patterns M3 (39stchs), M4, M3(39stchs). The instructions then state 'Repeat over the back'. There are no photographs of the back of the sweater. Is the neck pattern repeated around the back or is the back just made up of the diamond shapes? Thank you.
09.08.2022 - 23:47DROPS Design answered:
Dear Mrs Simpson, back and front pieces will be worked the same way, starting on the side of the jumper work (39 sts M.3, the 54 sts M.4 and 39 sts M.3 = 132 sts), front piece is now worked, repeat the same pattern over back piece (=39 sts M.3, 54 sts M.4 and 39 sts M.3 = 132 sts). So that you will continue M.3 as before over the first 39 sts on the round, and over the 39 sts before 2nd marker + 39 sts after 2nd marker and over the last 39 sts on the round. And work M.4 on mid front + on mid back. Happy knitting!
10.08.2022 - 09:08Lesley Simpson wrote:
I have found DROPs Puna is an alpaca wool in the same yarn group as Karisma. There are not, however, as many colour choices. Is it possible to mix the yarns, using a base of Puna and colour pattern of Karisma wool?
11.03.2022 - 18:49DROPS Design answered:
Dear Lesley, although they belong to the same group, Karisma is a bit thicker and less soft, since it's pure wool. So there will be a noticeable difference in the texture of the garment, if you work with both yarns. Happy knitting!
13.03.2022 - 22:45Lesley Simpson wrote:
I would like to have a go at knitting this pattern with Drops Alpaca. Is this possible and how do I calculate how much wool I need? Would it be less chunky? Thank you
28.01.2022 - 18:02DROPS Design answered:
Dear Lesley, you can't apply this pattern for Alpaca, because it's made for Karisma, of a different yarn group. In any case, you would need 1 ball of each of the different colors and from 250 gr of the main color (depending on the size), but the jumper would be too thin. Happy knitting!
31.01.2022 - 00:11BillyIsoft wrote:
Ciągnik Ursus C330 Zamiar budowie elektrycznej Zetor 72- spisany w Armatura elektryczna: Macham chce zarys instalacji elektrycznej w kabinie BK Zamiar armatur elektrycznej Zetor 8111. Czasami aktualny, p t ę ż n i ekspansja, którą przezornie moglibyśmy kupić bez wyciągania twórczego związku w o
05.08.2019 - 14:53Helene Anker Knudsen wrote:
Jeg er i gang med at strikke damestørrelse Medium. Jeg har strikket M2 og M3 i størrelse Medium og er startet ved pilen M+S/M. Nu er mit spørgsmål: Hvor skal jeg starte, når jeg skal strikke M5 og M4? Jeg er startet ved M+S/M, men kan ikke få det til at passe. Desuden når jeg skal strikke ærmer, hvor skal jeg så starte ved M2 og M3?
24.05.2018 - 11:02DROPS Design answered:
Hej Helene, du starter i siden og strikker M.3 så det passer over M.2 til arb måler ca 24 cm (hel rapport i højden). Nu fortsætter du med M.3 men strikker M.4 over de midterste masker på forstykket, så mønsteret fortsat passer. God fornøjelse!
29.05.2018 - 14:08Mario 105 wrote:
What color yarns was used on the man sweater. Can't tell if is the Alt #1 or Alt # 2. If along with the yarn you list the color numbers it would be much easy to see the color combinations.
22.07.2017 - 21:13DROPS Design answered:
Dear Mario, the pattern you are asking about is an older one, and the colors slightly changed since, and so did the way the patterns are written. The newer patterns do list the colors with the actual numbers. Also, this pattern was designed to suit several color combination. If I would do the man's sweater in a color combo similar to the one on the picture, from the currently available colors, I would use a dark blue for the base (Karisma 17 or 37), a light grey for the contrast color (Karisma 72), and a dark mustard or orange (52 or 11). I hope this helps. Happy knitting!
23.07.2017 - 10:47Barbara wrote:
Ich habe die 5 Hilfsmaschen für die Ärmelausschnitte in einem anderen, gleichmäßige Muster gestrickt, das erleichtert das Mitführen des 2. Fadens und das spätere Nähen, ich brauchte keinen Markierungsfaden mehr durchzuziehen. Vielen Dank für die vielen tollen Anleitungen!
30.05.2016 - 15:16Barbara wrote:
Dann hatte ich Schwierigkeiten, die Musterangabe zu interpretieren. M1 oder (M7-M1)? Wann wird was gestrickt? Ich habe nur M1 genommen, leider, M7 wurde m.E. im Musterpulli gestrickt. Dort ist mehr rot drin, in M1 mehr weiß. Vom Muster her sind sie identisch. Also: wann wird nur M1 gestrickt, wann (M7-M1)? Die Angabe fehlt m.E. in der Anleitung.
30.05.2016 - 15:16Barbara wrote:
Beim Bestellen der Wolle habe ich leider feststellen müssen, dass Nr. 47 von Karisma nicht dunkeloliv, sondern tannengrün ist. Geht zusammen gar nicht! Bitte die Nr. ändern.
30.05.2016 - 15:15Anita Nordberg wrote:
Har kommit på vart jag gjorde fel,,,, mönstret stämde inte när jag la ihop mönstret på papper sida vid sida ,,,men det va "rutorna" som inte var lika stora....så där hade jag ju felet.:)...så nu ska det flyta bra.
29.07.2015 - 00:28