Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja | |
= brugðin lykkja |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Fish Tales |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með áferðamynstri úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Stærð 3-14 ára.
DROPS Children 7-5 |
|||||||
------------------------------------------ UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynstur á fram- og bakstykki: M.1, 6-7-7,5 (7,5-8-8,5) cm af M.2, M.1, 6-7-7,5 (7,5-8-8,5) cm af M.2, M.1, 6-7-7,5 (7,5-8-8,5) cm af M.2, M.1, fellið af. STROFF: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig frá handvegi. Í lokin eru ermar saumaðar við handveg og hálsmál prjónað í hring á stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 136-144-152 (168-176-184) lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alaska og prjónið 2 umferðir sléttprjón og eftir það STROFF – sjá útskýringu að ofan þar til stykkið mælist 4-4-4 (5-5-5) cm. Skiptið yfir á hringprjón 5, prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-17-20,5 (22,5-23-24,5) cm, prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 29-31-34 (35-36-38) cm skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki sem er prjónað hvort fyrir sig til loka. FRAMSTYKKI: = 68-72-76 (84-88-92) lykkjur. Haldið áfram að prjóna mynstur. Þegar stykkið mælist 41-44-49 (50-52-54) cm fellið af miðju 24-24-26 (22-24-24) lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið áfram lykkjur af við hálsmál í 2. hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 1 sinni. Fellið af eftir mynstri, sjá útskýringu að ofan. Stykkið mælist ca 45-48-53 (55-57-60) cm. BAKSTYKKI: = 68-72-76 (84-88-92) lykkjur. Haldið áfram að prjóna mynstur. Þegar stykkið mælist 43-46-51 (53-55-58) cm fellið af miðju 26-26-28 (24-26-26) lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið af 2 lykkjur í hvorri hlið í næstu umferð við hálsmál. Fellið af eftir mynstri, sjá útskýringu að ofan. Stykkið mælist ca 45-48-53 (55-57-60) cm. ERMI: Fitjið upp 30-32-32 (34-34-36) lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Alaska og prjónið 2 umferðir sléttprjón og eftir það STROFF – sjá útskýringu að ofan þar til stykkið mælist 4-4-5 (5-5-5) cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5, prjónið sléttprjón og aukið út um 4-6-8 (6-8-6) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 34-38-40 (40-42-42) lykkjur. JAFNFRAMT eftir stroff er aukið út mitt undir ermi: 2 lykkjur 10-10-12 (14-15-16) sinnum í stærð ¾ ára: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð, í stærð 5/6+7/8+9/10+11/12+13/14 ára: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð = 54-58-64 (68-72-74) lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-18-21,5 (24,5-27-29,5) cm prjónið M.1 og eftir það 6-7-7,5 (7,5-8-8,5) cm af M.2 JAFNFRAMT því sem stykkið mælist 21,5-24,5-28,5 (31,5-34,5-37,5) cm er prjónuð ermakúpa þannig: Setjið 4 lykkjur mitt undir ermi á þráð. Setjið eftir það lykkjur á þráð í hvorri hlið í 2. hverri umferð: 8 lykkjur 2 sinnum. Eftir það eru allar lykkjur settar til baka á prjóninn og prjónið M.1. Fellið af eftir M.1. Stykkið mælist ca 26-30-34 (37-40-43) cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma, saumið ermar í. HÁLSMÁL: Takið upp ca 72-84 lykkjur í kringum hálsmál á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 3,5 og prjónið 2 umferðir brugðið, 4-4-5 (5-6-6) cm stroffprjón með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið og eftir það 2 umferðir sléttprjón, fellið af. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (36)
Cécile wrote:
Je ne comprends pas comment procéder pour le haut de la manche. ..comment utiliser le porte-maille? (2mailles de chaque côté, tricoter aller-retour, puis 8 mailles)
10.05.2024 - 15:36DROPS Design answered:
Bonjour Cécile, quand vous avez mis en attente 4 mailles sous la manche (= 2 mailles de chaque côté du milieu sous la manche), continuez en allers et retours et mettez en attente les 8 premières mailles au début des 4 rangs suivants (= 2 x 8 mailles + 1 x 2 mailles en attente de chaque côté). Bon tricot!
10.05.2024 - 16:38Ida wrote:
I am having trouble with these instructions….shape the sleeve cap as follows: put 2 sts on each side of the marker on a holder. Knit the sleeve cap back and forth on the needle placing sts at each edge on a holder every other row as follows: 8 sts 2 times. Then put all sts back on needle and knit Pattern 1.
03.04.2024 - 20:42DROPS Design answered:
Dear Ida, When you knit the upper part of the sleeve, you knit back and forth, and while doing that, at the beginning of each row, you put the number of stitches described on a stitch-holder (after you knitted them). Then you put all the stitches back to the circular needle, and continue with the pattern. I hope this helps. Happy Knitting!
03.04.2024 - 23:20Linda Mccoy wrote:
When sewing in the Sleeve s is it done from wrong side or right side?
16.01.2023 - 21:37DROPS Design answered:
Dear Mrs Mccoy, sleeves are generally sewn from right side - see this video. Happy assembly!
17.01.2023 - 10:12Linda Mccoy wrote:
Hello and Happy New year. This has got to be the worst pattern to follow. I have been reading patterns 50 yrs. I have never had a pattern that has stumped me like this one. I realise that this has been translated from another language. However maybe someone should rewrite it so people can understand what the pattern is saying. Thank you
04.01.2023 - 19:59Lisa Hertel wrote:
Does this cap take place under the arm? i cannot figure this out. I have knitted this portion of the pattern 3 times. the graphic does not show a cap for shoulder it looks straight across. again may i ask what is the purpose of this?
19.12.2022 - 15:43DROPS Design answered:
Dear Mrs Hertel, this portion is the sleeve cap, is you will work short rows (leaving first 2 sts 1 time then 8 sts 2 times unworked on each side of mid under sleeve, ie the first 2+8+8 sts from mid under sleeve and the last 2-8-8 sts towards mid under sleeve (the middle 36 sts under sleeve the sleeve are on a thread, 16 sts on each side of mid under sleeve) - chart is just standard and just don't show this sleeve cap. Hope it can help. Happy knitting!
19.12.2022 - 15:59Lisa Hertel wrote:
I followed the directions given to Mrs. Frew. The pattern was askew and the work was done under the arm. If it is a cap, shouldn't it be on the top near the shoulder? I am very confused
18.12.2022 - 19:16DROPS Design answered:
Dear Mrs Hertel, please let us know if the previous answer could help you or if you need more information.
19.12.2022 - 09:40Lisa Hertel wrote:
I have tried knitting the sleeve cap according to the directions. When that didn't work, I went to the comments section and saw someone else asked a similar question. I followed those directions which included short rows (although no where in the pattern does it say to use short rows). That didn't work either because the pattern was askew, I am writing to you for a better and in depth explanation of the sleeve cap. I have invest a lot of time and money and would hate to rip it out.
18.12.2022 - 18:09DROPS Design answered:
Dear Mrs Hertel, to shape the sleeve cap you will work: work the first 8 sts at the beg of the next row and slip them on a thread, work to the end of the row, turn, work the first 8 sts at the beg of the row and slip them on a thread, work to the end of the row. Repeat these 2 rows one more time (16 sts on the thread on each side + the 4 sts mid under sleeve), cut the yarn after the last row. Now put all stitches back on needle and work diagram M.1 over all stitches starting on middle under sleeve as before. Happy knitting!
19.12.2022 - 09:39Catherine wrote:
To shape the sleeve, do I put 2 stitches on either side of the marker on a holder, then follow pattern to the end of the row. Then on the next row, add 8 stitches to one of the holders with 2 stitches (making 10 stitches on that holder), then follow pattern to end of row. At the beginning of the next row add 8 stitches to the other holder, making 10 stitches on that holder and knit to the end of the row. Then add back all held stitches, knit M1 then cast off?
10.09.2022 - 19:32DROPS Design answered:
Dear Catherine, work the stitches before slipping them on the thread, ie work 2 sts at the beg of the round and slip them on a thread, work to the end of the round, turn, work the first 2 sts and slip them on a thread, continue the row to the end, turn, work the first 8 sts and slip them on a thread, finish row, turn work the first 8 sts and slip them on a thread and repeat these 2 rows one more time (= there are 2+8+8 sts on a thread on each side of the middle of sleeve =34 sts in total on the thread) then work all stitches again. Happy knitting!
12.09.2022 - 09:52Catherine Frew wrote:
Thank you.for your last reply. I am following your guidance. I am knitting size 3-4 years. Over 68 stitches on row 2 of the pattern (wrong side) k2, P2 (knitting for purl and purling for knit) ends with two purls, which are knits on the right side, meaning that I am not purling into purls on Row 3 of the pattern (right side) as I should be. Can you advise how I should proceed?
28.06.2022 - 18:42DROPS Design answered:
Dear Mrs Frew, the pattern will not be symmetrical here, your number of sts is divisible by 4, if you start with K2, P2 ending with P2 from WS, work now from WS starting either with P2 (if you have to work now like a row 3) or K2 (if you have now to work a row like a row 2). Happy knitting!
29.06.2022 - 09:04Catherine Frew wrote:
Hello. I have started the sweater and will shortly need to divide front and back and continue knitting the front on the flat. Will pattern 2 be the same when I'm working on the flat? I understand that stockinette and reverse stockinette will be different from working in the round, but wanted to check about Pattern 2. Also, do I measure from the top of the rib for the length before dividing? I wish there was a video for dividing front and back when working in the round. Thanks. Catherine
25.06.2022 - 17:05DROPS Design answered:
Dear Catherine, yes, M.2 is worked differently than in the round. The symbol for K is knitted in a row on the RS and purled in a row on the WS. The symbol for P is purled in a row on the RS and knitted in a row on the WS. To measure when to divide, you measure from the cast on edge. To divide for the front and back, split the stitches in half and mark the sides with marker stitches. Leave one half in an extra needle or thread and work the other half up to their final measurement. Then slip the half that was left in the thread back to the needles and work it. Happy knitting!
26.06.2022 - 13:35