Blue Sea Dream |
||||
|
|
|||
Prjónaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í stroffprjóni með tilfærslu á lykkjum og hringlaga hálsmáli með I-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-27 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MÆLING: Vegna stroffprjóns þá dregst stykkið saman. Dragið aðeins út stykkið á breiddina þegar öll mál á lengdina eru tekin, til að koma í veg fyrir að flíkin verði of stutt þegar flíkin er mátuð. ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroffprjón. ÚRTAKA-1 (á við um úrtöku í stroffi): FÆKKIÐ LYKKJUM TIL HÆGRI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan 1. / 5. merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt. FÆKKIÐ LYKKJUM TIL VINSTRI ÞANNIG: Prjónið fram að 4. / 8. merkiþræði, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku fyrir handveg og V-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 4 LYKKJUM ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 4 LYKKJUM ÞANNIG: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, endið með 4 lykkjur eins og útskýrt er í mynstri. I-CORD AFFELLING (aftan í hálsmáli): Fitjið upp 5 lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftir þessum 5 nýju lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sitji 5 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndast lítil snúru kantur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 5 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 5 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 5 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið eitt lítið spor sem bindur saman byrjun og lokin á I-cord kanti. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað fram og til baka fyrir sig. Axlasaumar eru saumaðir. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp aftan í hnakka og prjónaður er I-cord. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 208-224-256-272-304-336 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Safran. Skiptið yfir á hringprjón 3 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Setjið 1 merki í byrjun umferðar og 1 merki eftir 104-112-128-136-152-168 lykkjur. Þessi merki merkja hliðar á fram- og bakstykki, látið merkin fylgja áfram með í stykkinu. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroffprjón þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroffprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14-14-15-15-15-15 cm – lesið MÆLING, eru settir 8 merkiþræðir í stykkið sem útskýrt er að neðan. Merkiþræðir eru settir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðir eru notaðir þegar fækka á lykkjum og auka út í stroffprjóni til að færa til lykkjur. Teljið 21-21-29-33-33-41 lykkjur, setjið 1. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16-16-16-16-20-20 lykkjur, setjið 2. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 30-38-38-38-46-46 lykkjur, setjið 3. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16-16-16-16-20-20 lykkjur, setjið 4. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 42-42-58-66-66-82 lykkjur, setjið 5. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16-16-16-16-20-20 lykkjur, setjið 6. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 30-38-38-38-46-46 lykkjur, setjið 7. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16-16-16-16-20-20 lykkjur, setjið 8. merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru 21-21-29-33-33-41 lykkjur í umferð á eftir síðasta merkiþræði. Lesið ÚTAUKNING og ÚRTAKA-1. Haldið áfram í stroffprjóni jafnframt því sem lykkjum er fækkað og aukið út við merkiþræði þannig: Fækkið lykkjum TIL HÆGRI á undan 1. og 5. merkiþráð. Aukið út á eftir 2. og 6. merkiþráð (í 2 fyrstu skiptin eru útauknar lykkjur prjónaðar slétt, í næstu 2 skipti brugðið o.s.frv.). Aukið út á undan 3. og 7. merkiþráð (í 2 fyrstu skiptin eru útauknar lykkjur prjónaðar slétt, í næstu 2 skipti brugðið o.s.frv.) Fækkið lykkjum TIL VINSTRI eftir 4. og 8. merkiþráð. Aukið út og fækkið lykkjum í 4. hverri umferð 12-12-12-16-16-16 sinnum á hæðina. Þegar tilfærsla á lykkjum er lokið, heldur stroffprjón áfram eins og áður með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm – munið eftir MÆLING, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, yfir miðju 14-14-14-22-22-22 lykkjur í hvorri hlið (7-7-7-11-11-11 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við merki í hliðum). Í umferð á eftir 4 umferðir garðaprjón, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 4-4-4-8-8-8 lykkjur fyrir handveg, haldið áfram með stroffprjón eins og áður þar til eftir eru 4-4-4-8-8-8 lykkjur á undan merki í hinni hliðinni, fellið af 8-8-8-16-16-16 lykkjur fyrir handveg, haldið áfram í stroffprjóni eins og áður þar til eftir eru 4-4-4-8-8-8 lykkjur í umferð, fellið af 4-4-4-8-8-8 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn. Framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 96-104-120-120-136-152 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram í stroffprjóni fram og til baka eins og áður, en 3 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, að auki er lykkjum fækkað fyrir handveg og hálsmáli, lestu því allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram! Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir handveg í 4-4-2-2-2-2 hverri umferð alls 4-4-12-12-16-20 sinnum í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 38-40-40-42-42-44 cm, setjið miðju 22-22-22-22-26-30 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með stroffprjón eins og áður með 3 lykkjur í garðaprjóni við handveg. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg ef úrtöku er ekki lokið. Að auki er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og hálsmáli eru 24-28-28-28-30-32 lykkjur á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: = 96-104-120-120-136-152 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram í stroffprjóni eins og áður með 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 88-96-96-96-104-112 lykkjur. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið miðju 36-36-36-36-40-44 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í stroffprjóni eins og áður með 3 lykkjur í garðaprjóni við handveg. Að auki eru felldar af 2 lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsmáli = 24-28-28-28-30-32 lykkjur á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5, byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp ca 122-122-128-128-138-148 lykkjur innan við 1 lykkju í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði). Fellið síðan af með I-CORD – lesið útskýringu að ofan. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Giulia wrote:
Aumentare dopo il 2° e 6° segnapunti (lavorare gli aumenti a diritto le prime 2 volte, lavorare a rovescio le maglie le 2 volte successive etc.). Cosa vuol dire non capisco
15.05.2024 - 21:42DROPS Design answered:
Buonasera Giulia, gli aumenti vanno lavorati in seguito a diritto per le prime 2 volte, per le 2 volte successive a rovescio e così via. Buon lavoro!
16.05.2024 - 23:06Iulica wrote:
Salve Sto facendo questa canotta ma non capisco quello che riguarda gli aumenti È scritto Aumentare dopo il 2 e 6 segna punti (lavorare gli aumenti a diritto le prime 2 volte,lavorare a rovescio le 2 volte successive etc)Non riesco a capire la parte tra le parentesi 2volte vuol dire per due righe ?
15.05.2024 - 20:43DROPS Design answered:
Buonasera Iulica, per 2 volte si intende il numero di aumenti. Buon lavoro!
16.05.2024 - 23:07Emily wrote:
River ridge
21.01.2024 - 14:05Lorraine wrote:
Curvy blue
20.01.2024 - 19:18Val wrote:
Beauty Queen
18.01.2024 - 17:25