Moonstone Meadow |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Heklaður toppur / bolur úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður með stuðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-22 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð þegar heklað er band á öxl / hlýri, framstykki og bakstykki, heklið 4 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul í umferð. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum þegar heklað er í hring, heklið 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. ATH: Þegar heklað er í hring, snúið stykkinu eftir hverja umferð, þannig að heklað er til skiptist frá réttu og röngu. Þetta er gert til að áferðin verði eins einnig þegar heklað er í hring. MYNSTUR: Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Munið eftir að mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar heklað er frá röngu. Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.1). AUKIÐ ÚT UM 1 STUÐUL: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í 5. lykkju inn frá hlið. AUKIÐ ÚT UM 2 STUÐLA: Aukið út um 2 stuðla með því að hekla 2 stuðla í 5. og 6. lykkju inn frá hlið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Fyrsta eru hekluð 2 laus bönd á öxl / hlýrar fram og til baka, síðan eru heklaðar nýjar lykkjur á milli banda á öxl / hlýra á framstykki. Framstykkið er síðan heklað fram og til baka niður að handvegi jafnframt því sem aukið er út fyrir handvegi í hvorri hlið. Bakstykkið er heklað á sama hátt. Við handveg er framstykkið og bakstykkið sett saman og fram- og bakstykkið er heklað í hring að loka máli. Í lokin eru bönd á öxl / hlýrar saumað saman. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. VINSTRA BAND Á ÖXL / HLÝRI AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið 14-14-18-18-20-20 loftlykkjur – lesið LOFTLYKKJA að ofan, með heklunál 3 með DROPS Safran. Snúið og heklið fyrstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 5. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 11-11-15-15-17-17 stuðlar (= 10-10-14-14-16-16 stuðlar + 4 loftlykkjur). Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. heklið A.1 fram og til baka þar til band á öxl / hlýri mælist 7-6-7-7-6-7 cm og síðasta umferð hefur verið hekluð frá röngu. Klippið þráðinn og heklið hægra band á öxl / hlýra eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA BAND Á ÖXL / HLÝRI AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið 14-14-18-18-20-20 loftlykkjur með heklunál 3. Snúið og heklið fyrstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 5. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 11-11-15-15-17-17 stuðlar (= 10-10-14-14-16-16 stuðlar + 4 loftlykkjur). Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið A.1 fram og til baka þar til band á öxl / hlýri mælist 7-6-7-7-6-7 cm og síðasta umferð hefur verið hekluð frá röngu. Nú á að hekla hægra og vinstra band á öxl / hlýra saman við framstykki eins og útskýrt er að neðan (ekki klippa þráðinn). FRAMSTYKKI: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið frá réttu eins og áður yfir hægra band á öxl / hlýra, heklið 43-47-45-51-55-63 loftlykkjur, heklið frá réttu eins og áður yfir vinstra band á öxl / hlýra = 65-69-75-81-89-97 lykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.3 (byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu) og AUKIÐ ÚT UM 1 STUÐUL – lesið útskýringu að ofan, heklið 1 stuðul í hverja lykkju þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, heklið A.2 (byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu) og AUKIÐ ÚT UM 1 STUÐUL = 67-71-77-83-91-99 lykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið A.2 og aukið út 1 stuðul, heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, heklið A.3 og aukið út um 1 stuðul = 69-73-79-85-93-101 lykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Heklið A.3 og aukið út um 1 stuðul, heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 6 lykkjur eru eftir, heklið A.2 og aukið út um 1 stuðul = 71-75-81-87-95-103 lykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 5 (= rétta): Heklið A.2 og aukið út um 1 stuðul, heklið 1 stuðul í hverja af 0-0-1-0-0-0 lykkjum, heklið fyrstu umferð í A.4A alls 14-15-16-18-20-22 sinnum, heklið fyrstu umferð í A.4B, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 0-0-1-0-0-0 lykkjum, heklið A.3 og aukið út um 1 stuðul, snúið stykkinu = 73-77-83-89-97-105 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Heklið A.3 og aukið út um 1 stuðul, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-5-2-5-3-1 lykkjur, heklið A.5B alls 4-4-5-5-6-7 sinnum, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-5-2-5-3-1 lykkjum, heklið A.2 og aukið út um 1 stuðul = 75-79-85-91-99-107 lykkjur. Heklið síðan fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul og A.2/A.3 yst í hvora hlið. Haldið áfram að auka út um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð fyrir handveg eins og áður, 4-5-4-5-7-5 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. það er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið alls 9-10-9-10-12-10 sinnum ásamt útaukningu eins og útskýrt er að ofan), síðan er AUKIÐ ÚT UM 2 STUÐLA í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan, alls 1-2-3-4-4-6 sinnum = 87-97-105-117-129-141 lykkjur. Heklið síðan síðustu 2 umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.2 og aukið út um 2 stuðla, heklið 1 stuðul í næstu 0-1-1-1-1-1 stuðla, heklið A.4A alls 18-20-22-25-28-31 sinnum, heklið A.4B, heklið 1 stuðul í næstu 0-1-1-1-1-1 stuðla, heklið A.3 yfir síðustu 6 lykkjur og aukið út um 2 stuðla, snúið stykkinu = 91-101-109-121-133-145 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.3 og aukið út um 2 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 2-3-3-3-3-3 stuðlum, heklið A.4B, heklið A.4A alls 18-20-22-25-28-31 sinnum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 6 lykkjur eru eftir, heklið A.2 yfir síðustu 6 lykkjur og aukið út um 2 stuðla = 95-105-113-125-137-149 lykkjur. Klippið og festið þráðinn. Stykkið mælist ca 17-18-19-20-21-22 cm frá loftlykkjuröðinni á bandi á öxl / hlýra. Klippið, festið þráðinn og heklið bakstykkið. BAKSTYKKI: Heklið á sama hátt og framstykki (framstykkið og bakstykkið er alveg eins). Nú eru stykkin sett saman og fram- og bakstykkið er heklað í hring eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: UMFERÐ 1: Byrjið á að hekla 3-3-4-4-5-6 loftlykkjur, heklið síðan 1 stuðul í hverja af 95-105-113-125-137-149 lykkjum frá bakstykki (heklið frá réttu), heklið 6-6-8-8-10-12 loftlykkjur fyrir handveg, heklið 1 stuðul í hverja af 95-105-113-125-137-149 lykkjur frá framstykki, heklið 3-3-4-4-5-6 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar = 202-222-242-266-294-322 lykkjur. Byrjun umferðar = í hlið á fram- og bakstykki, snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 1 stuðul í hverja lykkju umferðina hringinn = 202-222-242-266-294-322 stuðlar, snúið stykkið. Heklið UMFERÐ 2 þar til heklaðar hafa verið alls 6-6-6-8-8-8 umferðir með stuðlum á fram- og bakstykki og aukið jafnframt út 3 stuðla jafnt yfir í fyrstu umferð = 205-225-245-269-297-325 stuðlar. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), heklið A.4A alls 51-56-61-67-74-81 sinnum hringinn á fram- og bakstykki, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar, snúið stykkinu. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið 6-6-6-8-8-8 umferðir með stuðlum eins og áður. Heklið síðan A.4A aftur yfir næstu 2 umferðir. Haldið svona áfram með til skiptis 6-6-6-8-8-8 umferðir stuðlar og 2 umferðir með A.4A þar til A.4A hefur verið heklað alls 3 sinnum á hæðina á fram- og bakstykki. Þegar A.4A hefur verið heklað til loka í síðasta skipti, haldið áfram hringinn með stuðlum eins og áður að loka máli JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 7 stuðla jafnt yfir í öllum stærðum = 212-232-252-276-304-332 lykkjur. Heklið þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm frá loftlykkjuröð á bandi á öxl / hlýra (ca 25-26-27-28-29-30 cm frá þar sem framstykki og bakstykki var sett saman fyrir fram- og bakstykki). Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Saumið saman band á öxl / hlýra. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Jeanne wrote:
Bonjour, Juste avant de rejoindre le dos et le devant sur le rang 2 c'est indiqué de refaire le dessin A4A mais on ne le voit pas sur la photo ? je ne comprends pas. merci de répondre à ma question.
02.06.2024 - 17:31DROPS Design answered:
Bonjour Jeanne, ce motif A.4 correspond à la 1ème rayure ajourée (à partir de l'encolure) que l'on peut voir sur la photo (le 1er motif A.4 étant au 5ème rang après l'encolure). Bon crochet!
03.06.2024 - 07:57Caz wrote:
The strap measures 7-6-7-7-6-7 cm 6cm seems far to short, 6 inches seems more likely. TY.
24.05.2024 - 10:46DROPS Design answered:
Dear Mrs Caz, the measurements in the UK-pattern are written in cm, this means the strap is first worked over 7-6-7-7-6-7 cm then you work the row joining both straps and casting on the stitches for neck inbetween, this will gives 1 extra cm to the straps which will be approx. 8-7-8-8-7-8 cm - see measurement chart. Happy crocheting!
24.05.2024 - 13:13Alma wrote:
Buonasera dopo aver lavorato le bretelle ed aver avviato le 43 catenelle non riesco a capire come agganciarmi con la bretella successiva per andare avanti con il lavoro grazie
18.05.2024 - 22:17Heather H wrote:
Hi, row 5 of the front piece states to do A4A 15 times, then do A4B. In A4A there is a cluster then a chain stitch but in A4B there are no chain stitches. Will this not create holes one one side and no holes on the remaining side of the front? Is this correct? Help :) thank you in advance. Heather
17.05.2024 - 14:47DROPS Design answered:
Dear Heather, work A.4A as follows: *skip 1 stitch, work 3 dc (US-English crochet terminology/treble crochets in UK-English) in the next stitch, skip 2 sts, make 1 chain*, repeat from *-* a total of 15 times then work A.4B as follows: skip 1 stitch, work 3 dc/tr in the next stitch, skip 1 stitch (A.4B is worked over 3 sts only, there will be then 3 sts under each chain/hole).Happy crocheting!
17.05.2024 - 16:35Céphora wrote:
Bonjour, Je ne comprend pas comment se crochette le point fantaisie A4A ? Merci de votre retour
30.04.2024 - 19:01DROPS Design answered:
Bonjour Céphora, A.4A se crochète ainsi sur 4 mailles:*sautez 1 bride, 3 brides dans la bride suivante, 1 maille en l'air, sautez 2 brides*, répétez de *à*. Au 2ème rang, crochetez 1 bride dans chaque maille (=4 brides pour chaque A.4A). Bon crochet!
02.05.2024 - 07:42Csilla wrote:
Oh, and one more question: the pattern says that when crocheting the Last 2 rossz of the front piece we should work with A.4 in both rows which would create nice "holes" on the top in these 2 rows, but on the picture there is only one row with holes at that part. Thanks, Csilla
19.04.2024 - 23:03DROPS Design answered:
Dear Csilla, you work 2 rows in A.4, but only the first row of A.4 has holes, as you can see in A.4a. Happy crochetting!
22.04.2024 - 00:38Csilla wrote:
Hello Drops Team, Thank you for your answer below! Now my question concerns ROW6 of the front piece; is it normal that for me this row doesn't turns out to be simmetrical at all in size L??? I've double checked & counted it several times... Thank you for answer Csilla
19.04.2024 - 22:31DROPS Design answered:
Dear Csilla, A.5b is like 2/3 of A.5a so, as you repeat A.5a, A.5b may look like it's part of A.5a. In the end it may not seem strictly symmetrical, but it will give enough of an illusion that it is. Happy knitting!
22.04.2024 - 00:36Csilla wrote:
Hello! When starting the front piece, at ROW1, you start with double crochets at the bottom of the right strap then come the chain stiches (e.g. 45 ch in size L) and then you join the left strap with double crochets again? Or, when working on the bottom of the straps you continue to make diagram A1? Thanks in advance!
18.04.2024 - 10:22DROPS Design answered:
Dear Csilla, you work the right strap as before = with A.1 then crochet 45 chains and work the left strap just as before = with A.1. Then work A.3 at the beg of row from WS/end of row from RS and A.2 at the end of row from WS/beg of row from RS increasing 1 st on each side as explained. Happy crocheting!
18.04.2024 - 12:40Christine Hendrickx wrote:
Très beau model Le point fantaisie fait un effet léger Et féminin.
19.01.2024 - 08:24Silvanna Barreiro wrote:
Love this pattern and would like to name it spring fields.
18.01.2024 - 23:47