Daisy Fields Cardigan |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri á ermum og i-cord kanti að framan. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 48-2 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR (I-cord): Í BYRJUN UMFERÐAR ERU PRJÓNAÐAR 2 KANTLYKKJUR ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið næstu umferð slétt. Í LOK UMFERÐAR ERU PRJÓNAÐAR 2 KANTLYKKJUR ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið næstu lykkju slétt. Endurtakið þetta í byrjun og í lok hverrar umferðar. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 kantlykkjur. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax eftir stroffi í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 5-5½-6½-6-6½-7 cm millibili. ATH: Síðasta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs neðst á fram- og bakstykki. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjum í sléttprjóni í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma: Merkiþræðirnir sitja á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 94-94-94-98-98-98 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 KANTLYKKJUR – lesið útskýringu að ofan, 4 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan (= 6 kantlykkjur að framan, þær 2 ystu lykkjur af þessum 6 lykkjum eru prjónaðar eins og kantlykkju), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur í garðaprjóni og 2 kantlykkjur (= 6 kantlykkjur að framan). Þegar stroffið mælist 3 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið næstu umferð frá röngu jafnframt því sem 4 merkiþræðir eru settir í stykkið og aukið út þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, 13-13-13-13-13-13 lykkjur brugðið (framstykki), setjið 1 merkiþráð, prjónið 16 lykkjur brugðið JAFNFRAMT er aukið út um 3 lykkjur jafnt yfir (ermi), setjið 1 merkiþráð, 24-24-24-28-28-28 lykkjur brugðið (bakstykki), setjið 1 merkiþráð, prjónið 16 lykkjur brugðið JAFNFRAMT er aukið út um 3 lykkjur jafnt yfir (ermi), setjið 1 merkiþráð, 13-13-13-13-13-13 lykkjur brugðið (framstykki) og endið með 6 kantlykkjur að framan = 100-100-100-104-104-104 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir laskalínu og mynstur A.1 til A.3 er prjónað yfir lykkjur á ermum. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. ATH! Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, er prjónuð 1 mynstureining fleiri af A.2 á breiddina á milli A.1 og A.3. Prjónið frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan, 12-12-12-12-12-12 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, A.2, A.3, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út fyrir laskalínu, prjónið 22-22-22-26-26-26 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út fyrir laskalínu, prjónið A.1, A.2, A.3, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út fyrir laskalínu, 12-12-12-12-12-12 lykkjur slétt, 6 kantlykkjur að framan. Haldið áfram með kantlykkjur að framan, sléttprjón á framstykkjum/bakstykki, gatamynstri á ermum og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkiþræðina – lesið útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 9-9-7-8-8-7 sinnum (ásamt fyrstu útaukningu) = 172-172-156-168-168-160 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum/bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykkjum/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 10-12-16-14-16-18 sinnum á framstykkjum/bakstykki (5-6-8-7-8-9 sinnum á ermum). ATH! Útaukning á ermum kemur ekki til með að halda áfram eins og útskýrt er í A.1 og A.3 þar sem nú er aukið út í 4. hverri umferð. A.4 sýnir 1 mynstureiningu af mynstri, passið uppá að þetta passi síðar yfir mynstur sem nú þegar hefur verið prjónað. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 232-244-252-252-264-268 lykkjur í umferð, það hefur verið aukið út 19-21-23-22-24-25 sinnum á framstykki/bakstykki og 14-15-15-15-16-16 sinnum á ermum. Haldið áfram með kantlykkjur að framan, sléttprjón á framstykkjum/bakstykki og gatamynstri á ermum, án útaukningar þar til stykkið mælist 15-16-17-17-18-19 cm, mælt eftir stroffi mitt að framan. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 38-40-42-41-43-44 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 47-49-49-49-51-51 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), 62-66-70-72-76-78 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 47-49-49-49-51-51 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 38-40-42-41-43-44 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 150-158-166-170-178-186 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni með 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 11-13-16-20-23-24 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist fyrir ermar, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-16-16-20-20-20 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 166-174-182-190-198-206 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, endið með 6 kantlykkjur að framan. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 33-36-40-44-48-50 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 47-49-49-49-51-51 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 53-55-55-57-59-61 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu – það á að nota hann síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í A.4, þær lykkjur sem ekki ganga upp í heilt gatamynstur í hvorri hlið, eru prjónaðar í sléttprjóni. Stillið af að mynstur A.4 passi síðan yfir gatamynstur frá A.1 til A.3. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-4-5½-6-7-8 cm millibili alls 6-6-5-5-5-5 sinnum = 41-43-45-47-49-51 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-24-28-32-36-40 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki eða að óskaðri lengd og það eru ca 3 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls 22-27-31-35-37-43 cm frá skiptingunni. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
Dominique wrote:
Bonjour , est ce normal que pour ce modèle en taille 3-4 ans je n’aurai pas assez avec les 4 (et non 3 comme indiqué sur votre site pour cette taille ) pelotes de coton Muskat ?
02.06.2024 - 20:09DROPS Design answered:
Bonjour Dominique, avez-vous bien la bonne tension tout du long? Autrement dit les 21 mailles en largeur mais aussi les 28 rangs en hauteur = 10 x 10 cm? Merci!
03.06.2024 - 08:12Ninni wrote:
Älskar den här koftan. Hoppas ni får ordning på hur mycket garn som behövs för jag vågar inte riktigt ge mig på den förrän ni kollat upp det.
28.05.2024 - 17:27Dominique wrote:
Bonjour, en T3/4 lorsque je suis à 172 m de l’empiècement, j’augmente 1 sur 2 pour devant et dos et 1 fois sur 4 pour les manches . Ok . Ma question : on suit alors A1, A2, A3 , A4 ? Ou toujours A4,A4,A4, …. ? ( je commence la ligne 5 du motif avec 176 m puisque à 172 mailles j’étais a la fin de ma ligne 1 et à 176 j’étais à la fin de ma ligne 3). Merci
25.05.2024 - 16:23DROPS Design answered:
Bonjour Dominique, continuez le point ajouré exactement comme avant, mais dans A.1 et A.3 les augmentations se feront moins souvent car elles sont indiquées tous les 2 rangs alors que vous ne les ferez que tous les 4 rangs; ajustez si besoin en tricotant en jersey les mailles que vous ne pouvez pas tricoter en point ajouré. Bon tricot!
27.05.2024 - 08:08Erika Limbach-Hegeler wrote:
Die angegebene Garnmenge stimmt leider nicht. Meine Maschenprobe stimmte exakt. Bei Größe 98/104 musste ich leider 2 Knäuel nachbestellen. Bitte ändern Sie unbedingt die Angaben in der Anleitung! Wie ich sehe, bin ich nicht die Einzige mit dem Problem!
23.05.2024 - 09:40Birte wrote:
Garnmængden passer ikke. Jeg har strikket str. 146/152 og har brugt lidt over 8 nøgler (ca 410 g) Drops Muskat, opskriften siger 200 g.
19.05.2024 - 05:20Xxx wrote:
Na rozmiar 134/140 zużyłam ponad 350g włóczki
13.05.2024 - 22:42DROPS Design answered:
Witaj, ta sprawa jest już weryfikowana. Dziękujemy za informację. Pozdrawiamy!
14.05.2024 - 16:26Yolanda wrote:
De aangegeven hoeveelheid garen is echt te weinig, heb nu 2 bollen moeten bijbestellen voor maat 122/128 !
10.05.2024 - 16:38Birte wrote:
Garnmængden på opskriften passer ikke. Er startet på str.
05.05.2024 - 14:54Xxx wrote:
Wykonuje rozmiar 134/140 i próbka jest zgodna. Nawet gdyby nie była, nie potrzebowałabym aż kilku motków wiecej. Widzę, że nie tylko ja mam taki problem.
25.04.2024 - 20:31DROPS Design answered:
Witaj, sprawdzimy to. Bardzo dziękujemy za zwrócenie uwagi na problem. Pozdrawiamy!
26.04.2024 - 08:23Xxx wrote:
Kto wyliczał zapotrzebowanie na włóczke? Jestem dopiero po oddzieleniu oczek na rękawy, a już połowa 3 motka za mna. Ciekawe jak 4 motki mają mi starczyć na cały sweter!!
25.04.2024 - 10:36DROPS Design answered:
Witam, proszę napisać jaki rozmiar Pan/Pani wykonuje i czy wykonana próbka jest zgodna z próbką podaną we wzorze (chodzi mi zarówno o rozmiar drutów jak i liczbę oczek na 10 cm). Pozdrawiam!
25.04.2024 - 12:43