Floral Lake Cardigan |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri, I-cord og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-40 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Öll útaukning er gerð frá réttu! Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 112 lykkjur), mínus ystu 15 lykkjur í hvorri hlið (til að flíkin passi betur) (t.d. 30 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 5,8. Í þessu dæmi er aukið á eftir ca 6. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, ekki er aukið út yfir ystu 15 lykkjur í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Síðan er fellt af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-7-7½-8-8 cm millibili – neðsta hnappagatið á að vera staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 112-116-120-124-128-136 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Brudhed Alpaca Silk. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 7 kantlykkjur að framan. Prjónið stroff svona í 4 cm. Nú er sett 1 merki mitt að aftan, berustykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið sléttprjón með kanta að framan eins og áður, jafnframt því sem í fyrstu umferð er aukið út um 14-12-12-14-14-12 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 og HNAPPAGAT í útskýringu að ofan = 126-128-132-138-142-148 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá merki, aukið út 57-63-67-77-81-91 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 183-191-199-215-223-239 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir (21-22-23-25-26-28 sinnum á breiddina), prjónið 1 lykkju í sléttprjóni og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með kanti að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 7-7-8-9-9-9 cm frá merki, aukið út 56-64-64-80-88-96 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 239-255-263-295-311-335 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er prjónað mynstur þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir (28-30-31-35-37-40 sinnum á breiddina), prjónið 1 lykkju í sléttprjóni og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með kanti að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 14-14-15-16-16-16 cm frá merki, aukið út 24-32-40-40-48-48 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 263-287-303-335-359-383 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er prjónað mynstur þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir (31-34-36-40-43-46 sinnum á breiddina), prjónið 1 lykkju í sléttprjóni og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með kanti að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 21-22-22-23-25-27 cm frá merki, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið fyrstu 42-46-48-52-57-62 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 54-58-62-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 71-79-83-91-101-111 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 54-58-62-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 42-46-48-52-57-62 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað áfram hvert fyrir sig. Héðan er stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 171-187-199-215-239-259 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, það á að nota þá síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með kanta að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingunni, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í hverjum 5-5-5½-5½-5½-5½ cm alls 3-4-4-4-4-4 sinnum = 183-199-211-227-251-271 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 20-21-23-23-23-23 cm frá skiptingunni og næsta umferð er frá réttu. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður jafnframt því sem aukið er út um 29-29-33-33-41-41 lykkjur jafnt yfir lykkjur í sléttprjóni – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 212-228-244-260-292-312 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 54-58-62-70-72-74 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 62-66-72-80-84-86 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi. Merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 3-3-3-3-4½-7 cm alls 4-4-4-4-2-2 sinnum = 54-58-64-72-80-82 lykkjur. Þegar ermin mælist 15-15-15-16-14-12 cm frá skiptingunni og eftir eru ca 4 cm að loka máli, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 10-10-12-12-12-14 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 64-68-76-84-92-96 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 19-19-19-20-18-16 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (7)
Jamie wrote:
Cornflower
22.01.2024 - 00:44Liina wrote:
Blueberry Smoothie
21.01.2024 - 23:25Johanna wrote:
Traubenhyazinthe
20.01.2024 - 00:08Johanna wrote:
Month of May
20.01.2024 - 00:06Mariana wrote:
Blueberry
19.01.2024 - 19:58Ana wrote:
Lavender happiness
18.01.2024 - 18:52Margarete wrote:
Himmelblau
18.01.2024 - 15:51