Moon Lace Cardigan |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er heklað neðan frá og upp með gatamynstri og víðum, ísaumuðum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-32 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. MYNSTUR: Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Munið eftir að mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar heklað er frá röngu. Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um mitt undir ermi): Í byrjun hverrar umferðar eru heklaðar 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Þegar fram- og bakstykki og ermar er heklað í hring, snúið stykkinu eftir hverja umferð, þannig að heklað er til skiptis frá réttu og frá röngu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er heklað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru heklaðar neðan frá og upp og heklað er í hring upp að ermakúpu, síðan er ermin hekluð til loka fram og til baka. Stykkin eru hekluð saman. Í lokin er heklaður kantur meðfram hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 186-210-210-234-258-282 loftlykkjur – lesið LOFTLYKKJA að ofan, með heklunál 3,5 með DROPS Belle. Snúið við og heklið fyrstu umferð frá röngu þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 185-209-209-233-257-281 fastalykkjur. Síðan er heklað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. fyrsta umferðin er hekluð frá réttu: Heklið A.1 (= stuðull), heklið A.2 alls 29-33-33-37-41-45 sinnum, heklið A.3 og endið með A.4 (= stuðull). Nú eru 183-207-207-231-255-279 lykkjur í umferð, þ.e.a.s. 29-33-33-37-41-45 stuðlahópar með 3 loftlykkjum á milli hverra stuðlahópa og 3 stuðlar í hvorri hlið við miðju að framan við kanta. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 24-25-25-27-28-28 cm og næsta umferð er hekluð frá réttu, skiptist fram- og bakstykki fyrir framstykki og bakstykki og hvert stykki er heklað eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1 eins og áður, heklið A.2 alls 5-6-6-7-7-8 sinnum, heklið A.6, snúið stykkinu = 39-45-45-51-51-57 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.6, heklið A.2 alls 5-6-6-7-7-8 sinnum, heklið A.1 eins og áður, snúið stykkinu = 39-45-45-51-51-57 lykkjur. Heklið UMFERÐ 1 og 2 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 34-36-36-38-38-40 cm og næsta umferð er hekluð frá röngu. Nú á að fækka lykkjum fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. HÁLSMÁL: Byrjið frá röngu og heklið þannig: Heklið A.6, heklið A.2 alls 1-2-2-3-3-4 sinnum, heklið A.8, heklið A.8 (byrjið við ör í mynsturteikningu og heklið mynsturteikningu frá vinstri til hægri). Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.8 hefur verið heklað til loka á hæðina og næsta umferð er hekluð frá réttu = 19-25-25-31-31-37 lykkjur í umferð. Nú er hekluð öxl eins og útskýrt er að neðan. ÖXL: Heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.7, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.6, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.6, heklið A.2, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.7, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 1 og 2 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Klippið og festið þráðinn. BAKSTYKKI: Byrjið frá réttu eftir hægra framstykki, hoppið yfir 2-2-2-2-4-4 mynstureiningar með A.2 og 1 mynstureiningu með A.3 (hoppað hefur verið yfir alls 15-15-15-15-27-27 lykkjur = handvegur), heklið 1 keðjulykkju um loftlykkju í næsta stuðlahóp og heklið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.5 í sama stuðlahóp, heklið A.2 alls 11-13-13-15-15-17 sinnum, heklið A.6, snúið stykkinu = 75-87-87-99-99-111 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.6, heklið A.2 alls 11-13-13-15-15-17 sinnum, heklið A.5, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 1 og 2 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 39-41-43-45-47-49 cm og næsta umferð er hekluð frá réttu. Nú er hekluð öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.5, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.3, heklið A.7 í fyrsta stuðul í næsta stuðlahóp, snúið stykkinu = 19-25-25-31-31-37 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.7, heklið A.3, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.5, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið A.5, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.3, heklið A.7, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 2 og 3 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Klippið og festið þráðinn. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Hoppið yfir afgang af stuðlahóp A.7 sem heklað var í, hoppið yfir 5 mynstureiningar með A.2, hoppið yfir 1 mynstureiningu með A.3 og hoppið yfir fyrsta stuðul og loftlykkju í næsta stuðlahóp (37 lykkjur sem hoppað var yfir = hálsmál aftan í hnakka), heklið 1 keðjulykkju í síðasta stuðul í stuðlahópnum og heklið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.7, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.6, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.6, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.7, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 1 og 2 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Klippið og festið þráðinn. VINSTRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): Byrjið frá réttu eftir bakstykki, hoppið yfir 2-2-2-2-4-4 mynstureiningar með A.1B og 1 mynstureiningu með A.1C (hoppað hefur verið yfir alls 15-15-15-15-27-27 lykkjur = handvegur), heklið 1 keðjulykkju um loftlykkju í næsta stuðlahóp og heklið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.5, heklið A.2 alls 5-6-6-7-7-8 sinnum, heklið A.3, heklið A.4, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.4, heklið A.3, heklið A.2 alls 5-6-6-7-7-8 sinnum, heklið A.5, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 1 og 2 svona fram og til baka þar til stykkið mælist ca 34-36-36-38-38-40 cm og næsta umferð er hekluð frá réttu. Nú er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. HÁLSMÁL: Byrjið frá réttu og heklið þannig: Heklið A.5, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.9. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.9 hefur verið heklað til loka á hæðina og næsta umferð er hekluð frá réttu = 19-25-25-31-31-37 lykkjur í umferð. Nú er hekluð öxl eins og útskýrt er að neðan. ÖXL: Heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.5, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.3, heklið A.7, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.7, heklið A.3, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.5, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 1 og 2 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Klippið og festið þráðinn. ERMAR: Heklið 70-76-82-82-88-94 loftlykkjur með heklunál 3,5 og tengið loftlykkjurnar í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Fyrsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 loftlykkjur (jafngildir 1 fastalykkju), heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = 70-76-82-82-88-94 fastalykkjur. Síðan er mynstrið heklað, lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið fyrstu umferð þannig: Heklið 3 loftlykkjur, heklið A.2 alls 11-12-13-13-14-15 sinnum, heklið A.3 og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar, snúið stykkinu. Heklið hringinn á sama hátt til skiptis með eina umferð frá réttu og eina umferð frá röngu þar til ermin mælist 51-49-50-48-46-44 cm – stillið af að síðasta umferðin sé hekluð frá réttu og í síðustu umferðinni er heklaður 1 stuðull í lykkjuna á undan 3 loftlykkjum í byrjun umferðar, þannig að það verða 2 stuðlar (1 stuðull + 3 loftlykkjur) mitt undir ermi, snúið stykkinu. Heklið síðan fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið A.7, heklið A.3, heklið A.2 alls 11-12-12-13-14-15 sinnum, heklið 1 stuðul í síðustu lykkju = 71-77-77-83-89-95 lykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið A.7, heklið A.2 alls 11-12-12-13-14-15 sinnum, heklið A.3, endið með A.7, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= ranga): Heklið A.7, heklið A.3, heklið A.2 alls 11-12-12-13-14-15 sinnum, endið með A.7, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 2 og 3 svona fram og til baka þar til ermin mælist 55-53-54-52-53-51 cm. Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Heklið saman axlasaumana þannig: 1 fastalykkja í ystu lykkju í gegnum bæði lögin, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga á framstykki, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga á bakstykki, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um loftlykkju í stuðlahóp á framstykki, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um loftlykkju í stuðlahóp á bakstykki, haldið svona áfram, með að hekla til skiptis framstykki/bakstykki þar til heklað hefur verið meðfram allri öxlinni. Heklið á sama hátt meðfram hinni öxlinni. Heklið ermakúpuna við handveg á sama hátt (heklið a við A – sjá teikningu). Síðan er botninn saumaður við handveg (b við B) KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá röngu og heklið kant meðfram hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 fastalykkju í hvern af 3 stuðlum mitt að framan, * heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju um fyrsta/næsta loftlykkjuboga/umferð *, heklið frá *-* meðfram öllu hálsmálinu, endið með 3 loftlykkjur og 1 fastalykkju í hvern af 3 stuðlum í lok umferðar mitt að framan, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta stuðul), heklið 1 stuðul í hvora af næstu 2 fastalykkjum, síðan eru heklaðir 3 stuðlar um hvern loftlykkjuboga, endið umferð með 1 stuðli í hverja af síðustu 3 fastalykkjum í umferð. Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan – efsta talan er saumuð niður í kant í hálsmáli og hinar 2 tölurnar eru saumaðar með ca 8-8-8-9-9-9 cm millibili. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (7)
Laura wrote:
Are the shoulder and arm seams done with right or wrong sides together?
04.06.2024 - 01:52DROPS Design answered:
Dear Laura, yes, you should crochet those pieces with their wrong sides together. Happy Crafting!
04.06.2024 - 02:53Angeline Poldervaart wrote:
Beste, ik kom er niet uit bij de mouw. Wanneer mouw 50 cm meet,met de laatste toer ...... tm zodat er 2 stokjes (1stokje + 3 lossen) midden onder de mouw zitten, keer het werk. Allerlei variaties uitgeprobeerd op deze instructie, maar krijg een rare uitstulping. Ik begrijp het niet.
02.06.2024 - 21:50DROPS Design answered:
Dag Angeline,
Je hebt aan het begin van de toer 3 lossen gehaakt om het eerste stokje te vervangen. Aan het einde van diezelfde toer haak je een stokje in de steek waaruit de 3 lossen komen. Dan keer je het werk en haak je heen en weer. Er komt een soort inkeping die aan de panden genaaid wordt. Zie de tekening onderaan. (b bij de mouw en B bij de panden.).
03.06.2024 - 11:42Angeline wrote:
De eerste toer lijf, ik kom niet uit met de steken. Mis er 4 om toer af te kunnen haken. Herhaaldelijk geteld, mijn werk klopt. Kan het zijn dat hier een fout zit in patroon? Wat zou ik fout kunnen doen?
09.05.2024 - 13:19DROPS Design answered:
Dag Angeline,
Ik heb het uitgerekend voor alle maten en je zou precies uit moeten komen. Je begint met 185-209-209-233-257-281 steken. A.1 aan het begin en A.3 en A.4 aan het einde zijn samen 11 steken in totaal. Dan houd je 174-198-198-222-246-270 steken over om A.2 (6 steken) over te kunnen haken, want dit is een meervoud van 6 steken.
09.05.2024 - 14:53Angeline Poldervaart wrote:
Ik heb patroon en garen vandaag binnen gekregen en lees dat er 9 instuructievideos zijn. Ik zie deze niet. Het leek mij eenvoudig te haken, maar begrijp begin al niet. Lossen opzetten, werk keren en aan verkeerde kant eersdte toer haken. Geen idee hoe dit te doen. Om die reden op zoek naar instructievideo.
07.05.2024 - 20:05DROPS Design answered:
Dag Angeline,
Helemaal bovenaan de pagina (vlak onder de titel en omschrijving van het vestje) kun je op 'Video's' klikken om bij de video's te komen.
09.05.2024 - 09:44Jeanett Molland wrote:
Jeg holder på med armen. Jeg får ikke diagrammet til å gå opp på L. Har heklet A2 12 ganger, men er for mange masker for at dette skal stemme: Videre hekles det mønster, les HEKLEINFORMASJON og hekle første omgang slik: Hekle 3 luftmasker, hekle A.2 totalt 11-12-12-13-14-15 ganger, hekle A.3, og avslutt omgangen med 1 kjedemaske i 3.luftmaske på begynnelsen av omgangen, snu arbeidet.
04.04.2024 - 21:12DROPS Design answered:
Hej Jeanett, A2 skal hækles 13 gange i L, vi skal opdatere opskriften på nettet - Tak for info :)
09.04.2024 - 09:40Jacky wrote:
Ich verstehe den Teil ab den Rückenteil nicht muss ich Luftmaschen für den Armausschnitt machen?
31.03.2024 - 13:48DROPS Design answered:
Liebe Jacky, das Rückenteil beginnt 2-2-2-2-4-4 Rapporte A.2 + 1 Rapport A.3 nach dem rechten Vorderteil (von der Vorderseite gesehen) für das Armausschnitt, dann beginnen Sie mit 1 Kettmasche um die Luftmasche der nächsten Stäbchengruppe und mit A.5 und A.2 dann A.6 weiterhäkeln. Viel Spaß beim Häkeln!
03.04.2024 - 13:44Kelly wrote:
Beach Day
18.01.2024 - 21:55