Sand Diamond |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, v-hálsmáli, gatamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-6 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Prjónið 9 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 9 lykkjur í garðaprjóni. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 9 lykkjur í garðaprjóni. RANGA: Prjónið 9 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir (á undan lykkju með merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (merkiþráðurinn situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Þegar V-hálsmál hefur verið prjónað til loka, er prjónað í hring. Byrjað er á að prjóna 2 lausa kanta að framan. Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli á milli lausu kantana að framan og prjónað er fram og til baka. Berustykkið er prjónað ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Eftir fram- og bakstykki eru ermar prjónaðar niður á við í hring á hringprjóna / sokkaprjóna. Kantar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman, saumur = mitt að aftan, kantar að framan eru saumaðir við lykkjur í kringum hálsmál. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 11 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine. Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið 2 fyrstu lykkjur frá réttu slétt saman, fækkið lykkjum svona í 3. hverjum cm alls 5 sinnum = 6 kantlykkjur að framan. Haldið áfram þar til kantur að framan mælist 21-21-21-23-23-23 cm, endið eftir 1 umferð slétt frá röngu. Klippið þráðinn og leggið stykkið til hliðar. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 11 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Merino Extra Fine. Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið 2 síðustu lykkjur frá réttu slétt saman, fækkið lykkjum svona í 3. hverjum cm alls 5 sinnum = 6 kantlykkjur að framan. Haldið áfram þar til kantur að framan mælist 21-21-21-23-23-23 cm, endið eftir 1 umferð slétt frá réttu, en ekki klippa þráðinn. Nú eru fitjaðar upp 99-99-99-113-113-113 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar, síðan eru prjónaðar 6 lykkjur frá hægri kanti að framan inn í umferð = 111-111-111-125-125-125 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu yfir allar lykkjur, prjónið brugðið yfir nýjar 99-99-99-113-113-113 lykkjur og haldið áfram með kantlykkjur að framan eins og áður yfir 6 lykkjur í hvorri hlið. UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Á framstykki og bakstykki er prjónað gatamynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu, á framstykki fyrst eftir A.1, síðan A.2, A.3 og A.4. Á bakstykki er prjónuð mynsturteikning A.2, A.3 og A.4. Útaukning fyrir V-hálsmáli og laskalínu er teiknuð í mynsturteikningu. Þegar A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 1 mynstureiningu til viðbótar af A.3 á milli A.2 og A.4. Á ermum er prjónað sléttprjón og aukið út eins og útskýrt er í LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. Aukið út innan við 2 lykkjur í sléttprjóni í hvorri hlið á ermum. Aukið út í annarri hverri umferð 4-3-2-11-7-6 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 10-13-13-12-14-17 sinnum = 14-16-15-23-21-23 útaukningar í hvorri hlið á hvorri ermi. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan eins og áður, A.1, 2 lykkjur í garðaprjóni – lesið útskýringu að ofan (= vinstra framstykki), 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, 20-20-20-22-22-22 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt (= vinstri ermi), 2 lykkjur í garðaprjóni, A.2, A.3 yfir næstu 20-20-20-30-30-30 lykkjur, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni (= bakstykki), 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, 20-20-20-22-22-22 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt (= hægri ermi), 2 lykkjur í garðaprjóni, A.1, 6 kantlykkjur að framan eins og áður (= hægra framstykki). Það eru 9 lykkjur á hvoru framstykki, 26-26-26-28-28-28 lykkjur á hvorri ermi (ásamt uppslætti og 2 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið) og það eru 45-45-45-55-55-55 lykkjur á bakstykki. Haldið áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 39-39-39-49-49-49 lykkjur á hvoru framstykki og 75-75-75-85-85-85 lykkjur á bakstykki. Klippið þráðinn. Það á nú að prjóna áfram hringinn yfir allar lykkjur. Færið lykkjurnar yfir á hægri prjón og prjónið án þess að prjóna þær, umferðin á nú að byrja í skiptingunni á milli bakstykkis og hægri ermi (á milli 2 lykkja í garðaprjóni og 2 lykkjur slétt). Prjónið síðan þannig: Prjónið slétt og aukið út yfir lykkjur á hægri ermi eins og áður, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið yfir fyrstu 33-33-33-43-43-43 lykkjur frá hægra framstykki, setjið næstu 4 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið (= allar lykkjur frá hægra framstykki hafa nú verið prjónaðar eða settar á hjálparprjón), prjónið næstu 4 lykkjur saman 2 og 2 (= þetta eru 4 fyrstu lykkjur frá vinstra framstykki), prjónið 2 fyrstu lykkjur af hjálparprjóni slétt saman og prjónið 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni (nú hefur fækkað um 3 lykkjur mitt að framan), prjónið yfir næstu 33-33-33-43-43-43 lykkjur af vinstra framstykki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið og aukið út yfir lykkjur frá vinstri ermi eins og áður, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2, prjónið A.3 yfir næstu 50-50-50-60-60-60 lykkjur, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni. Fyrsta umferð í A.2, A.3 og A.4 hefur nú verið prjónað á bakstykki og á framstykki. Síðan er prjónað þannig: Byrjið í umferð 2 í mynsturteikningu A.2, A.3 og A.4 og prjónið hringinn yfir allar lykkjur. Prjónið slétt og aukið út eins og áður yfir lykkjur frá hægri ermi, 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, A.2, A.3 yfir næstu 50-50-50-60-60-60 lykkjur, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið slétt og aukið út eins og áður yfir lykkjur á vinstri ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2, prjónið A.3 yfir næstu 50-50-50-60-60-60 lykkjur, A.4, 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur og útaukningu með þessum hætti þar til prjónaðar hafa verið 1-2-2-1-1-2 mynstureiningar með A.2, A.3 og A.4 yfir A.1. Nú eru 85-95-95-105-105-115 lykkjur á framstykki/bakstykki og 52-56-54-72-68-72 lykkjur á hvorri ermi, alls 274-302-298-354-346-374 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 23-27-27-32-32-36 cm frá öxl. Stærð M-L-XL-XXL og XXXL líkur hér, lestu áfram frá SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: STÆRÐ S: Nú á að prjóna mynstureiningu á hæðina, án þess að auka út. Prjónið þannig: Prjónið slétt yfir lykkjur frá hægri ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.3 yfir næstu 70 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið slétt yfir lykkjur frá vinstri ermi, 2 lykkjur í garðaprjóni, A.3 yfir næstu 70 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.3, 2 lykkjur í garðaprjóni. Stykkið mælist ca 27 cm frá öxl. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR – ALLAR STÆRÐIR: Setjið fyrstu 52-56-54-72-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 15-15-25-15-25-25 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið slétt yfir næstu 85-95-95-105-105-115 lykkjur (framstykki), setjið næstu 52-56-54-72-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 15-15-25-15-25-25 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið slétt yfir síðustu 85-95-95-105-105-115 lykkjur (bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-220-240-240-260-280 lykkjur. Byrjið í 14-2-2-2-2-2 umferð í A.5 og prjónið hringinn yfir allar lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 16-18-20-16-18-16 cm, stillið af eftir heila eða hálfa mynstureiningu af A.5 á hæðina. Prjónið síðan með hringprjóni 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), jafnframt því sem aukið er út um 42-42-48-48-48-58 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 242-262-288-288-308-338 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm, fellið af, peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 52-56-54-72-68-72 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4, prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 15-15-25-15-25-25 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-79-87-93-97 lykkjur. Setjið 1 merki í miðju af 15-15-25-15-25-25 lykkjum undir ermi – umferðin byrjar á undan lykkju með merki. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA, endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-6-6-6 cm = 63-67-75-83-89-93 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 15-16-17-12-13-10 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 13-13-15-17-19-19 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 76-80-90-100-108-112 lykkjur. Fellið af þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm. FRÁGANGUR: Kantar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman – saumur = mitt að aftan, saumið síðan kanta að framan við lykkjur í kringum hálsmál. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (37)
Astrid Tamis wrote:
Kan ik dit patroon ook op twee naalden breien
31.05.2024 - 08:11DROPS Design answered:
Dag Astrid,
Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
Niet alle patronen zijn geschikt om met 2 naalden te breien, maar kijk maar even of je hiermee uit de voeten kunt.
03.06.2024 - 13:57NDM wrote:
Buongiorno, ho anche un'altra domanda. Alla fine del lavoro sul dietro del lavoro per la taglia XL sono indicate 85 maglie ma A2, A3 e A4 vengono lavorati per un totale di 4 volte e ogni volta le maglie aumentate sono 10. Quindi partendo da 55m si ottengono 95 maglie. (55 maglie sono all'inizio di A2-A3-A4, non alla fine della primo diagramma di A2-A3-A4). Grazie per l'aiuto
27.05.2024 - 16:25NDM wrote:
Buongiorno,\r\nsto lavorando sulla taglia XL. Come hanno segnalato altre persone mi trovo con due maglie in più (57 e non 55) all\'inizio dello sprone sul dietro del lavoro:\r\n2m a legaccio + 11m A2 (nel diagramma sono 10m + 1 gettato) + 10x3 = 30m A3 + 12m A4 (nel diagramma sono 11m + 1 gettato) + 2m a legaccio = totale 57.\r\nHo letto le risposte già date ad altri ma nelle risposte si dice che A2 e A4 sono di 10m e 11m e non vengono contati i gettati.\r\nGrazie per l\'aiuto
27.05.2024 - 16:17Nadine FISCHER wrote:
Bonjour, Comment lire les diagrammes A1 A2 ET A3 quand je suis sur le rang envers. Faut-il que je les lisent de gauche à droite ou de droite à gauche Merci pour votre réponse
25.05.2024 - 11:36DROPS Design answered:
Bonjour Mme Fischer, les diagrammes se lisent de bas en haut, de droite à gauche sur l'endroit et de gauche à droite sur l'envers. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
27.05.2024 - 08:06Nicole wrote:
Hello! In the raglan note it says "Increase 1 stitch by making 1 yarn over, which is worked twisted on the next round/row. " meaning that when i am working flat I knit it twisted on the wrong side, so i would have a purl on the right side. This doesn't happen if knit in the round, because i would have a a knit on the front. So what should be done?
06.05.2024 - 11:51DROPS Design answered:
Dear Nicole, the new stitches will be worked twisted on next row/round, ie in back loop instead of in front loop of stitches to avoid holes. Work the new stitches just as shown in diagram (black square = you shoud knit it twisted from WS / purl it from RS for example). Happy knitting!
06.05.2024 - 13:42Nicole wrote:
Hello! In the raglan note it says "Increase 1 stitch by making 1 yarn over, which is worked twisted on the next round/row. " meaning that when i am working flat I knit it twisted on the wrong side, so i would have a purl on the right side. This doesn't happen if knit in the round, because i would have a a knit on the front. So what should be done?
06.05.2024 - 11:51Kirsten Hansen wrote:
Hej jeg strikker denne i str L! Jeg har nu strikket A 2, A 3 og A 4 een gang i højden. Hvordan strikker jeg en rapport mere af A3 mellem A2 og A4? For at nå hertil og for at få maskeantal passe, har jeg strikket følgende rapport: A2, A3, A3, A4 Hvordan får jeg plads til yderlige rapport med A3 mellem A2 og A4? Mvh Kirsten
27.04.2024 - 20:30DROPS Design answered:
Hej Kirsten, Jo du tager ud i hver side ifølge diagrammet og når du starter forfra nederst i A.2 fortsætter du med A.3 efter de første 10 masker i A.2, på denne måde får du en ekstra rapport som bliver forskudt på samme måde som du kan se i A.1 :)
02.05.2024 - 11:54Kirsten Hansen wrote:
Jeg har svært med at få startet. Skal diagram A3 strikkes 2 gange efter hinanden ( A2, A3,A3, A4)? Jeg kan ikke få maskeantallet til at passe på bagstykket. Mvh Kirsten
26.04.2024 - 13:43DROPS Design answered:
Hej Kirsten, Vi beskriver første pind nede ved BÆRESTYKKET. Vi kan hjælpe dig med første pind hvis du skriver hvilken størrelse du strikker :)
26.04.2024 - 14:07Magda wrote:
Jak odczytać schemat A.2 do A.5 w pracy na okrągło? Jesteśmy cały czas na prawej stronie robótki i mam robić cały czas prawe oczka? Tak wychodzi ze schematu? Proszę o pomoc
22.04.2024 - 13:59DROPS Design answered:
Witaj Magdo, podczas pracy na okrągło jesteśmy cały czas na prawej stronie robótki. Oczka z czarnym kwadracikiem w środku są przerabiane na lewo, a oczka bez wypełnienia na prawo. Pozdrawiamy!
22.04.2024 - 14:53Suleika Van Zweeden wrote:
Aansluitend op het antwoord van mijn voorgaande vraag, dan zit er een fout in het patroon. Want bij XL moet je A3 over de volgende 30 steken steken breien bij de start , dus begin je al met 51 steken. Dan kan je na 1 herhaling van A2, A3 en A4, met 15 meerderingen nooit op 55 steken uitkomen, maar op 66 steken
08.04.2024 - 09:11DROPS Design answered:
Dag Suleika,
Na 1 herhaling van A.2, A.3 en A.4 heb je in totaal 10 steken gemeerderd over die telpatronen en niet 15.
10.04.2024 - 09:42