Remembering Spring Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöfölum kanti í hálsmáli, laskalínu, gatamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-2 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan/eftir lykkjum með merki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður á framstykkjum/bakstykki brugðið frá röngu/réttu – þannig að það myndist gat. Uppslátturinn á ermum er prjónaður snúinn brugðið frá röngu – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni á framstykkjum/bakstykki og inn í gatamynstur á ermum. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu. UMFERÐ 1: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 síðustu lykkjur frá kanti að framan eins og áður. UMFERÐ 2: Prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð á eftir kanti í hálsmáli, síðan er fellt af fyrir hnappagötum eftir: S: 9-18-27-36 cm M: 9½-19-28½-38 cm L: 10-20-30-40 cm XL: 8½-17-25½-34-42½ cm XXL: 9-18-27-36-45 cm XXXL: 9½-19-28½-38-47½ cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað ofan frá og niður fram og til baka á hringprjóna. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Eftir að fram- og bakstykkið hefur verið prjónað eru ermar prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Kantur í hálsmáli er brotin tvöfalt að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-108-114-118-122-126 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið fram og til baka í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 2½ cm – stillið af að síðasta umferð sem prjónuð er sé frá röngu og fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok umferðar frá röngu = 110-114-120-124-128-132 lykkjur. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið KANT AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið slétt út umferðina og fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok umferðar = 116-120-126-130-134-138 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið KANT AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD, prjónið slétt frá röngu þar til 6 lykkjur eru eftir og prjónið KANT AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn niður í þessari umferð. Nú er prjónað áfram með kanta að framan með I-cord í hvorri hlið og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til kantur að framan mælist ca 6 cm (= ca 3 cm kantur að framan þegar hann hefur verið brotinn tvöfaldur). Setjið eitt merki að innanverðu í kanti að framan í annarri hlið á stykki, berustykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4,5. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið sléttprjón yfir næstu 104-108-114-118-122-126 lykkjum jafnframt er fækkað um 10-10-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir og prjónið kant að framan eins og áður, fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 106-110-114-118-122-126 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir og prjónið kant að framan eins og áður. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 19-20-21-22-23-24 (= vinstra framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 26-28-30-32-34-36 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, það eru eftir 19-20-21-22-23-24 lykkjur á eftir síðasta merki (= hægra framstykki). Í næstu umferð er prjónað MYNSTUR og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, 13-14-15-16-17-18 lykkjur sléttprjón (= vinstra framstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 1 lykkju sléttprjón (1. merki situr í þessari lykkju), prjónið A.1, prjónið A.2 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið A.3, prjónið 1 lykkju sléttprjón (2. merki situr í þessari lykkju) (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 26-28-30-32-34-36 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu (= bakstykki), prjónið 1 lykkju sléttprjón (3. merki situr í þessari lykkju), prjónið A.1, prjónið A.2 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið A.3, prjónið 1 lykkju sléttprjón (4. merki situr í þessari lykkju) (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 13-14-15-16-17-18 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður (= hægra framstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram fram og til baka með mynstur, en það er aukið út mismunandi á framstykkjum/bakstykki og ermum – lestu því næstu kafla ÚTAUKNING ERMAR og ÚTAUKNING FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI að neðan, áður en þú prjónar áfram! ÚTAUKNING ERMAR: Á ermum er aukið út alls 17-20-21-23-24-25 sinnum í hvorri hlið (ásamt útaukningu í fyrstu umferð eins og útskýrt var að ofan). Útaukning á ermum er teiknuð inn í mynsturteikningu A.1 og A.3. Í hvert skipti sem A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, er pláss fyrri 2 mynstureiningar af A.2 á milli A.1 og A.3. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í hvorri hlið á ermum eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI: Á framstykkjum og bakstykki er aukið út fyrir LASKALÍNA alls 22-24-26-29-33-36 sinnum (ásamt útaukningu í fyrstu umferð eins og útskýrt var að ofan), aukið er út þannig: Aukið út í hverri umferð alls 0-0-0-0-4-6 sinnum, síðan er aukið út í annarri hverri umferð alls 22-24-26-29-29-30 sinnum. Á EFTIR SÍÐUSTU ÚTAUKNINGU: Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 262-286-302-326-350-370 lykkjur í umferð (41-44-47-51-56-60 lykkjur á hvoru framstykki, 55-61-63-67-69-71 lykkjur á ermum (ásamt 1 lykkju með merki í hvorri hlið á ermum) og 70-76-82-90-100-108 lykkjur á bakstykki). Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og kanta að framan eins og áður, en nú er prjónað án útaukningar. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í hvorri hlið á ermum eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 19-23-24-26-27-28 cm frá merki í hálsmáli. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 41-44-47-51-56-60 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 55-61-63-67-69-71 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið 70-76-82-90-100-108 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 55-61-63-67-69-71 lykkjur á þráð fyrir ermi, fijtið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 41-44-47-51-56-60 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-184-200-216-240-260 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 20-18-19-18-19-20 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroffið jafnframt því sem í fyrstu umferð er aukið út um 1-5-5-9-9-13 lykkjur jafnt yfir = 173-189-205-225-249-273 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kanta að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu). Þar til stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm, fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 47-49-51-53-55-57 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 55-61-63-67-69-71 lykkjur frá annarri erminni af þræði á hringprjóna 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 65-71-75-79-83-87 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið hringinn í mynstri eins og áður, lykkjur mitt undir ermi og lykkjum sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-4-4-4 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 4-2½-2-1½-1½-1 cm alls 6-8-9-10-11-12 sinnum = 53-55-57-59-61-63 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 30-27-26-23-23-22 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT því sem aukið er út um 1-1-3-3-5-7 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 54-56-60-62-66-70 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm, fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 33-30-29-27-27-26 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Thuan Hao VU wrote:
Bonjour Madame, Je recherche un ancien modèle Extra 0-170, veste tricotée avec drops ardésia et drops silke et je n'arrive pas à le retrouver? Pourriez vous m'aider à l'avoir ? Merci pour votre aide. Mme VU
04.06.2024 - 16:54DROPS Design answered:
Bonjour Mme Vu, ce modèle a été désormais retiré de notre site, désolés. Retrouvez ici tous nos modèles de vestes, n'hésitez pas à ajouter des filtres pour affiner votre recherche. Bon tricot!
05.06.2024 - 08:12Micky wrote:
Hallo, De volgende instructie begrijp ik niet: NAALD 1 (= goede kant):''brei A.1, A.2 over de volgende 12 steken, brei A.3, 1 tricotsteek (de tweede markeerdraad zit in deze steek = mouw)''. In totaal moeten het 20 steken zijn toch? Terwijl A1 en A2 vanaf het begin 10 steken heeft en met A3 erbij 14. Moet je dan eerst 2 tricot steken breien, dan A1 en A2 en vervolgens A3 met nog 1 tricosteek? Dat zijn dan 16 steken? Of vul je het patroon aan beide kanten aan met voldoende tricot steken?
03.05.2024 - 09:10DROPS Design answered:
Dag Micky,
Je breit 1 keer A.1 in de breedte, A.2 over 12 steken (dus je breit A.2 2 keer in de breedte) en A.3 1 keer in de breedte over de steken van de mouw. Aan beide kanten daarvan zit een tricotsteek met een markeerdraad ertussen. In de vorige paragraaf heb je, als het goed is 19 tricotsteken gebreid voor de mouw tussen deze 2 steken, Dit komt precies uit met de steken die je nu in patroon moet breien over de mouw.
05.05.2024 - 11:52Karin wrote:
Die unterschiedlichen Zunahmen an Ärmeln und Vorder-/Rückenteil sind für mich unklar beschrieben: Wie viel Male werden die Diagramme für die Passe in die Höhe gestrickt oder hört man mitten im Diagramm auf, wenn die Anzahl Zunahmen erreicht wurde? Werden die Raglanzunahmen nicht in jeder zweiten Reihe gestrickt, also immer auf der Vorderseite? Es ist mir nicht klar, wie das unterschiedlich sein kann, da die Ärmelzunahmen im Muster vorgegeben sind. Danke!
01.04.2024 - 19:30DROPS Design answered:
Liebe Karin, die Raglanzunahmen werden bei den Ärmeln und beim Rumfpteil an einem unterschiedlichen Rythmus gestrickt; für die Ärmel nehmen Sie wie in den Diagrammen zu; bei den Vorderteilen + Rückenteil nehmen Sie zuerst in jeder Reihe (nur in die 2 grösseren Grösse) dann in jeder 2. Reihe (in jeder Hin-Reihe). Bein den Diagramme wird es nicht in jeder 2. Reihe zugenommen, nur wie in A.1 + in A.3 gezeigt wird (siehe 2. Symbol). Viel Spaß beim Stricken!
02.04.2024 - 15:38Isabela wrote:
Dear Drops Team, in the pattern description it says: S - M - L - XL - XXL – XXXL Finished measurements: Chest measurements: 80-88-96-106-118-130 cm = 31 1/2"-34 5/8"-37 3/4"-41 3/4"-46 1/2"-51 1/4" Full length: 47-49-51-53-55-57 cm = 18 1/2"-19 1/4"-20"-21"-21 5/8"-22 1/2 BUT the numbers on the chart provide different information, so I am confused which one is true.
26.02.2024 - 13:42DROPS Design answered:
Dear Isabella, the numbers in the US-English pattern gives the circumference of bust while the chart shows just the finished measurements when piece lays flat - full length is the same as stated in the written pattern. Read more about measurement charts here. Happy knitting!
26.02.2024 - 14:56Isabela wrote:
Dear Team, I am confused with the measurements in this pattern, the size description in the text is different from the sizes shown in the diagram. Which one of the two is correct?
23.02.2024 - 18:13DROPS Design answered:
Dear lsabella, which measurements do you mean could be wrong? Can you tell us more so that we can check and explain/edit? Thanks for your help.
26.02.2024 - 07:16Sylvie wrote:
J'aime beaucoup ce modèle que j'aimerais réaliser avec un col qui ne soit pas double et des manches de longueur normale. Comment dois je procéder ?. En vous remerciant
13.02.2024 - 17:08DROPS Design answered:
Bonjour Sylvie, aidez-vous d'un modèle similaire de même tension pour tricoter le col (car ici, c'est un ourlet, pas des côtes et il vous faudra alors adapter le nombre de mailles en fonction des côtes souhaités et de la taille) et trouver également les ajustements nécessaires pour la longueur des manches souhaitée. Bon tricot!
14.02.2024 - 07:53Fernanda Kazic wrote:
Saltsjöbad!
20.01.2024 - 22:12Caroline wrote:
Romance
19.01.2024 - 08:54Susie wrote:
Sailing Away
19.01.2024 - 06:51Marlies Van Dijk wrote:
Romantisch, uit andere tijden
18.01.2024 - 22:20