Pale Blossom |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, v-hálsmáli og I-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-35 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (frá réttu): Aukið út um 1 lykkju til vinstri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út um 1 lykkju til hægri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (frá röngu): Aukið út um 1 lykkju til vinstri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út um 1 lykkju til hægri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. 2 KANTLYKKJUR I-CORD HÆGRA FRAMSTYKKI: RÉTTA: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið út umferðina. 2 KANTLYKKJUR I-CORD VINSTRA FRAMSTYKKI: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið út umferðina. RANGA: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur brugðið saman, 2 lykkjur I-cord. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli, fellið síðan af fyrir 2 næstu hnappagötum með ca 6-6-6-7-7-7 cm millibili. I-CORD AFFELLING (neðri kantur fram- og bakstykki og kantur í hálsmáli að aftan): UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 3 lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið lítið spor sem bindur saman byrjun og lok á I-cord við stykkið. I-CORD AFFELLING (ermi): Í lok umferðar og eftir að síðasta lykkjan í umferð hefur verið prjónuð: Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftið 3 nýju lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjóna á með sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndist lítill hólkur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið lítið spor sem bindur saman byrjun og lok á I-cord. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað fram og til baka. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkin eru prjónuð. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni. Prjónið niður á við að handvegi jafnframt því sem lykkjur eru auknar út að hálsmáli. Endurtakið á hinni öxlinni. Við handveginn eru framstykkin og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin er prjónaður upp I-cord kantur aftan í hnakka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 24-24-26-28-28-30 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Lesið ÚTAUKNING-1 og næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt. Lesið ÚTAUKNING-2 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 3 lykkjur brugðið, aukið út til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram og aukið út á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu alls 26-30-30-34-38-42 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 76-84-86-96-104-114 lykkjur á prjóni. Setjið 1 merki yst í hlið. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 12-13-13-13-14-15 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 2-2-3-3-4-4 sinnum = 80-88-92-102-112-122 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 14-15-16-16-17-18 cm, mælt yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkin eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp 26-30-30-34-38-42 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki, sjá D í teikningu með máli). Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð héðan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað frá réttu þannig: 2 KANTLYKKJUR I-CORD – lesið útskýringu að ofan, 2 lykkjur brugðið, sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 7 cm, aukið út lykkjur við hálsmál eins og útskýrt er að neðan. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 4 lykkjur eins og áður, aukið út til vinstri, prjónið út umferðina – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið út 1 lykkju í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 10 sinnum, síðan í hverri umferð 4-6-6-7-8-8-9 sinnum (alls 16-16-17-18-18-19 útaukningar fyrir hálsmáli). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-25-25-27-28-29 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 2-2-3-3-3-3 sinnum = 44-48-50-55-60-65 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 26-27-28-30-31-32 cm, endið með einni umferð frá réttu, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið hægra framstykki. Öll útaukning fyrir V-hálsmáli á nú að vera lokið. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið upp 26-30-30-34-38-42 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki, sjá E í teikningu með máli). Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð héðan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, 2 KANTLYKKJUR I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 7 cm, aukið út lykkjur við hálsmál eins og útskýrt er að neðan. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, prjónið 4 lykkjur eins og áður – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið út 1 lykkju í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 10 sinnum, síðan í hverri umferð 4-6-6-7-8-8-9 sinnum (alls 16-16-17-18-18-19 útaukningar fyrir hálsmáli). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-25-25-27-28-29 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur, aukið út til vinstri, prjónið út umferðina – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 2-2-3-3-3-3 sinnum = 44-48-50-55-60-65 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 26-27-28-30-31-32 cm, passið uppá að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: Prjónið yfir 44-48-50-55-60-65 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur í lok umferðar (í hlið undir ermi), prjónið frá röngu yfir 80-88-92-102-112-122 lykkjur á bakstykki, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur (í hlið undir ermi), prjónið yfir 44-48-50-55-60-65 lykkjur frá vinstra framstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 180-196-208-228-248-272 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 2 kantlykkjum + 2 lykkjum brugðið í hvorri hlið við miðju að frama. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, mælt frá efsta punkti á framstykki. Fellið af með I-CORD – lesið útskýringu að ofan. ERMAR: Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg (ATH! Það er ekki þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 6-7 cm niður á framstykki = mitt ofan á öxl). Notið hringprjóna 4,5, byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 78-82-88-90-94-100 lykkjur í kringum handveg – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki meðfram handvegi. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu, þetta er gert til að ermin passi betur og fái betra form. Byrjið mitt undir ermi. Umferð 1 (rétta): prjónið 9-10-11-11-11-12 lykkjur fram hjá merki, snúið. Umferð 2 (ranga): prjónið 9-10-11-11-11-12 lykkjur fram hjá merki, snúið. Umferð 3 (rétta): prjónið 5-5-5-5-6-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið. Umferð 4 (ranga): prjónið 5-5-5-5-6-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið. Endurtakið 3. og 4. umferð þar til prjónaðar hafa verið 34-35-36-36-41-40 lykkjur fram hjá merki mitt ofan á ermi (það hefur verið snúið við 6-6-6-6-6-8 sinnum í hvorri hlið). Prjónið frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð hér, merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Síðan er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan. Þegar ermin mælist 7-7-7-7-7-9 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermi), fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 2 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í hverjum 1½-1½-1½-2-2-2 cm 8-8-8-5-4-3 sinnum, það hefur fækkað alls 10-10-10-7-6-5 sinnum = 58-62-68-76-82-90 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 26-25-25-24-22-21 cm. Fellið af með I-CORD – munið eftir útskýringu að ofan. I-CORD KANTUR Í HÁLSMÁLI að aftan: Notið hringprjón 4,5 og fitjið upp 2 lykkjur í umferð með 1 þræði í hvorri tegund, prjónið síðan upp lykkjur meðfram kanti í hálsmáli, byrjið við aðra axlalínuna frá réttu og prjónið upp innan við 1 lykkju af hinni axlalínunni. Prjónið upp 24-24-26-28-28-30 lykkjur. Klippið þráðinn. Byrjið í annarri hliðinni þar sem lykkjur voru prjónaðar upp og fellið af með I-CORD – munið eftir útskýringu að ofan. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (7)
Vera Billing wrote:
Fel i beskrivningen: höger framstycke. Ska väl stickas som vänster fast spegelvänt? Det står 'ökning varje varv', bör vara 'vart 4:e varv' för att stämma med vänster framstycke! Väl? Så har jag nu gjort...
16.04.2024 - 23:17Marie Therese LENHARDT wrote:
Bonjour, j'aimerai beaucoup tricoter ce gilet mais avec des manches longues. Dans ce cas, combien me faudra t'il de pelotes supplémentaires en tout ? Merci pour votre réponse.
26.03.2024 - 08:36DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lenhardt, comme ce modèle a été tricoté avec des manches 3/4, nous n'avons pas la quantité nécessaire pour manches longues - mais vous pouvez vous baser sur un modèle similaire de même tension avec des manches longues; votre magasin DROPS saura également vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
02.04.2024 - 10:16Elis wrote:
Jag har en fråga om halsökningar vid framstycket storlek M. Det står i mönstret att vid 27 cm ska alla ökningar vid v-hals ska vara klara. När man ökar enligt mönstret så är ökningarna vid v- hals klara vid 20 cm. Jag förstår inte varför det blir fel. Masktätheten stämmer enligt beskrivningen. Tacksam för hjälp.
19.03.2024 - 21:32DROPS Design answered:
Hej Elis. Jag ser att det har blivit ett fel i den svenska översättningen. Det ska ökas först på vartannat varv och sedan på vart fjärde varv (inte varje varv). Ber om ursäkt för det och detta är nu rättat. Mvh DROPS Design
20.03.2024 - 07:08Nicole De Pauw wrote:
Brei het achterpand van boven naar beneden en minder aan elke kant voor de schouders welke ietwat diagonaal worden. dit is niet juist er wordt gemeerderd aan elke kant van de schouder
02.03.2024 - 17:50Inger Ö wrote:
Stämmer verkligen ökningen av maskor vid halsringningen ” vartannat varv 10 ggr och varje varv 6ggr”? Det verkar inte stämma mot bilden på koftan.
23.02.2024 - 08:58DROPS Design answered:
Hej Inger, jo hvis du har 18 m x 24 varv på 10 cm, så kommer halsen til at se ud som på billedet hvis du følger udtagningerne ifølge opskriften :)
01.03.2024 - 13:57Renate wrote:
Hallo, ich stricke das Modell in Größe L. Ich habe eine Frage zu den Längen für das Rückenteil und die Vorderteile: das Rückenteil soll nach 16 cm Gesamtlänge stillgelegt werden, die beiden Vorderteile enden nach 28 cm, bevor Rückenteil und die Vorderteile zusammengelegt werden. Was habe ich falsch verstanden? Vielen Dank für Ihre Hilfe. Gruß Renate
18.02.2024 - 16:11DROPS Design answered:
Liebe Renate, die Schulter kommen bei diesen Modellen nicht genau an der Schulterlinie am Körper aber etwas hinten, so werden die Armlöcher kürzer beim Rückenteil (16 cm) als beim Vordeteil (28 cm), so sind es aber (16+28)/2 = 22 cm hoch, siehe Maßskizze - schauen Sie mal auch die Videos: Vorderteile, separat gestrickt und Vorderteil, zusammen gestrickt, so sieht man besser wie die Schulter ausssehen. Viel Spaß beim stricken!
19.02.2024 - 09:28Anna wrote:
Marshmallow dream
21.01.2024 - 17:56