Dutch Tiles |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Heklað teppi með ömmuferningum í DROPS Big Merino.
DROPS 247-2 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. ÖMMUFERNINGUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Fyrstu 4 umferðirnar eru teiknaðar inn í mynsturteikningu, síðan er haldið áfram hringinn á sama hátt (til skiptis frá réttu og frá röngu) þar til heklaðar hafa verið alls 12 umferðir. LITASAMSETNINGAR: Ferningarnir eru heklaðir í 10 mismunandi litasamsetningum eins og útskýrt er að neðan. FERNINGUR-A: Uppfitjun + umferð 1: natur Umferð 2: grábeige Umferð 3: natur Umferð 4: beige Umferð 5: gleym-mér-ei Umferð 6: ísblár Umferð 7: natur Umferð 8: gallabuxnablár Umferð 9: ísblár Umferð 10: natur umferð 11: grábeige umferð 12: beige FERNINGUR-B: Uppfitjun + umferð 1 + umferð 2: ísblár Umferð 3: beige Umferð 4: natur Umferð 5: grábeige Umferð 6: ísblár Umferð 7: gallabuxnablár Umferð 8-9: ljós beige Umferð 10: gleym-mér-ei umferð 11: gallabuxnablár umferð 12: beige FERNINGUR-C: Uppfitjun + umferð 1: gallabuxnablár Umferð 2: natur Umferð 3: gallabuxnablár Umferð 4-5: ljós beige Umferð 6: ísblár Umferð 7-8: natur Umferð 9-10: ísblár Umferð 11: gallabuxnablár Umferð 12: beige FERNINGUR-D: Uppfitjun + umferð 1: gallabuxnablár Umferð 2: natur Umferð 3: gallabuxnablár Umferð 4: ísblár Umferð 5+6: ljós beige Umferð 7: gleym-mér-ei Umferð 8: natur Umferð 9: grábeige Umferð 10: ísblár Umferð 11: natur Umferð 12: beige FERNINGUR-E: Uppfitjun + umferð 1: grábeige Umferð 2: gleym-mér-ei Umferð 3: ljós beige Umferð 4: natur Umferð 5: beige Umferð 6: gallabuxnablár Umferð 7: natur Umferð 8: ísblár Umferð 9: gleym-mér-ei Umferð 10: natur Umferð 11: grábeige Umferð 12: beige FERNINGUR-F: Uppfitjun umferð 1 + 2.umferð: ljós beige Umferð 3: natur Umferð 4: gallabuxnablár Umferð 5-6: ísblár Umferð 7: beige Umferð 8: ljós beige Umferð 9: gallabuxnablár Umferð 10-11: natur Umferð 12: beige FERNINGUR-G: Uppfitjun + umferð 1: ljós beige Umferð 2: ísblár Umferð 3: gleym-mér-ei Umferð 4 + 5: natur Umferð 6: gallabuxnablár Umferð 7: ljós beige Umferð 8: natur Umferð 9: grábeige Umferð 10: gallabuxnablár Umferð 11: ísblár Umferð 12: beige FERNINGUR-H: Uppfitjun + umferð 1: gleym-mér-ei Umferð 2: natur Umferð 3: gleym-mér-ei Umferð 4: gallabuxnablár Umferð 5: beige Umferð 6: natur Umferð 7: ísblár Umferð 8: ljós beige Umferð 9: natur Umferð 10: ísblár Umferð 11: gleym-mér-ei Umferð 12: beige FERNINGUR-I: Uppfitjun + umferð 1: natur Umferð 2: grábeige Umferð 3: natur Umferð 4: beige Umferð 5: gleym-mér-ei Umferð 6: ísblár Umferð 7: natur Umferð 8: gallabuxnablár Umferð 9: ísblár Umferð 10: ljós beige Umferð 11: grábeige Umferð 12: beige FERNINGUR-J: Uppfitjun + umferð 1 + umferð 2: ísblár Umferð 3: beige Umferð 4: natur Umferð 5: grábeige Umferð 6: ísblár Umferð 7: gallabuxnablár Umferð 8: ljós beige Umferð 9: natur Umferð 10: gleym-mér-ei Umferð 11: gallabuxnablár Umferð 12: beige ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Teppið samanstendur af 12 ömmuferningum í mismunandi litasamsetningum. Ferningarnir eru staðsettir eftir mynsturteikningu og heklaðir saman eins og útskýrt er í mynstri. Í lokin er heklaður kantur með stuðlahópum í kringum allt teppið. ÖMMUFERNINGUR: Lestið LITASAMSETNINGAR og heklið 1 ferning í hverri litasamsetningu, nema frá FERNINGUR-F og FERNINGUR-H en þeir eru heklaðir tvisvar = alls 12 ferningar. Byrjið ömmuferninginn með því að hekla 4 LOFTLYKKJUR – lesið útskýringu að ofan, á heklunál 5 með uppfitjunarlit og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Síðan er heklað A.1 hringinn með til skiptis 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu – lesið ÖMMUFERNINGUR í útskýringu að ofan og ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Klippið og festið þræð. Ferningurinn mælist ca 28 x 28 cm. FRÁGANGUR: Leggið ferningana eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2, passið uppá að allir ferningarnir liggi með réttuna upp. Bókstafir í mynsturteikningu sýna bókstafi á ferningum í LITASAMSETNINGAR. Heklið ferningana saman fyrst á breiddina og síðan á lengdina. Notið heklunál 5 og litinn beige. Leggið 2 ferninga kant í kant þannig að hægt sé að hekla þá saman. Byrjið í horni og heklið þannig: * Stingið heklunálinni frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann frá öðrum ferningnum, stingið síðan heklunálinni frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann frá hinum ferningnum, sækið þráðinn og dragið þráðinn í gegnum báðar lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* þar til þessir 2 ferningar hafa verið heklaðir saman meðfram allri hliðinni á ferningunum – passið uppá að þegar heklað er saman að hekla ekki of fast eða of laust, heklið 1 loftlykkju og heklið síðan frá *-* meðfram næstu 2 ferningum á sama hátt. Heklið svona þar til allir ferningarnir í þessari röð hafa verið heklaðir saman. Heklið saman allar raðir á breiddina. Heklið síðan allar raðir saman á lengdina á sama hátt. KANTUR Í KRINGUM TEPPI: Notið heklunál 5 og litinn beige og heklið þannig: Byrjið umferð ca fyrir miðju á einum af ferningunum, heklið 1 keðjulykkju um loftlykkju, 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), 2 stuðlar um sömu loftlykkju, 1 loftlykkja, heklið síðan á sama hátt og í A.1, þ.e.a.s. heklið 3 stuðla um hverja loftlykkju og 1 loftlykkju á milli hverra stuðlahópa. Í hverri skiptingu á milli 2 ferninga heklið 3 stuðla um loftlykkjubogana í horni og 1 loftlykkju á milli stuðlahópa. Í horni eru heklaðir 3 stuðlar, 1 loftlykkja og 3 stuðlar um loftlykkjuboga, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Klippið frá og festið þráðinn. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |