Beach Lines |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, röndum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-16 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR RENDUR (á við þegar prjónað er í hring): Til að ná fram fallegri litaskiptingu í byrjun og lok umferðar þegar rendur er prjónaðar, er hægt að prjóna þannig: Skiptið yfir í nýjan lit og prjónið 1 umferð. Fyrsta lykkja í umferð 3 er prjónuð þannig: Takið upp fyrstu lykkju frá fyrri umferð á prjóninn, prjónið þessa lykkju slétt saman með fyrstu lykkju. ÚTAUKNING-1 (frá réttu): Aukið út um 1 lykkju til vinstri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út um 1 lykkju til hægri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (frá röngu): Aukið út um 1 lykkju til vinstri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út um 1 lykkju til hægri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Bakstykkið er látið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er prjónað fyrst í 2 hlutum. Byrjað er að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni, mynstur er prjónað jafnframt því sem lykkjum er aukið út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Prjónaðar eru upp lykkjur fyrir ermar í kringum handveg. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við. Í lokin eru lykkjur prjónaðar í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn niður tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Rendur eru prjónaðar. BAKSTYKKI: Fitjið upp 36-38-40-40-42-46 lykkjur á hringprjón 4 með litnum hvít þoka í DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Lesið ÚTAUKNING-1 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt. Lesið ÚTAUKNING-2 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 3 lykkjur brugðið, aukið út til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram og aukið út á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu alls 28-32-34-38-42-46 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 92-102-108-116-126-138 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 4-5-6-7-7-8 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er prjónað A.1 yfir allar lykkjur. Prjónið sléttprjón og A.1 fram og til baka þar til stykkið mælist 11-12-12-13-12-13 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 3-3-4-4-5-5 sinnum = 98-108-116-124-136-148 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 13-14-15-16-16-17 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú hafa verið prjónaðar ca 2 einingar í A.1 á hæðina. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp 28-32-34-38-42-46 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. það er prjónuð upp 1 lykkja í hverri umferð frá kanti efst á bakstykki, sjá D í teikningu með máli). Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð héðan. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmál eins og útskýrt er að neðan. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið út umferðina – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum = 32-36-38-42-46-50 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu, klippið þráðinn og leggið stykkið til hliðar. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp 28-32-34-38-42-46 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. það er prjónuð upp 1 lykkja í hverri umferð frá kanti efst á bakstykki, sjá E í teikningu með máli). Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð héðan. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmál eins og útskýrt er að neðan. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum = 32-36-38-42-46-50 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 32-36-38-42-46-50 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 28-30-32-32-34-38 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan eins og áður yfir 32-36-38-42-46-50 lykkjur frá vinstra framstykki = 92-102-108-116-126-138 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 16-17-18-19- 21-22 cm, nú er prjónað A.1 yfir allar lykkjur. Prjónið sléttprjón og A.1 fram og til baka þar til stykkið mælist 23-24-24-25-26-27 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 3-3-4-4-5-5 sinnum = 98-108-116-124-136-148 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 25-26-27-28-30-31 cm, nú hafa verið prjónaðar 2 einingar af A.1 á hæðina, passið uppá að endað sé í sömu umferð og á bakstykki, þannig að rendurnar passi þegar prjóna á í hring. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið rendur eins og áður yfir 98-108-116-124-136-148 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir 98-108-116-124-136-148 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) = 208-228-244-264-288-316 lykkjur. Haldið áfram með A.1 hringinn á fram- og bakstykki þar til stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki, endið eftir nokkrar umferðir með litnum hvít þoka. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-12-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir = 220-240-256-276-304-332 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (1 lykkja snúin slétt / 1 lykkja brugðið) í 4 cm með litnum hvít þoka. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. ERMAR: Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg (ATH! Ekki þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 6-8 cm niður á framstykki = mitt ofan á öxl). Notið hringprjón 4, byrjið mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 86-90-94-100-104-110 lykkjur í kringum handveg með litnum hvít þoka – stillið af þannig að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur meðfram handvegi hvoru megin við merki. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna, þetta er gert til að ermin fái betra form og passi betur. Byrjið mitt undir ermi. Umferð 1 (rétta): Prjónið 10-11-11-12-13-13 lykkjur fram hjá merki, snúið. Umferð 2 (ranga): Prjónið 10-11-11-12-13-13 lykkjur fram hjá merki, snúið. Umferð 3 (rétta): Prjónið 4-5-5-4-4-5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið. Umferð 4 (ranga): Prjónið 4-5-5-4-4-5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið. Endurtakið 3. og 4. umferð þar til prjónaðar hafa verið 34-41-41-40-41-48 lykkjur fram hjá merki mitt ofan á ermi (það hefur verið snúið við 7-7-7-8-8-8 sinnum í hvorri hlið). Prjónið frá réttu að byrjun á umferð (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð hér, það á að nota merkiþráðinn þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið síðan hringinn í sléttprjóni yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan. Þegar ermin mælist 7-7-7-8-8-8 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermi), fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 2 sinnum, síðan er fækkað um 1½-1½-1½-1½-2½-2 cm 7-7-5-4-2-3 sinnum, fækkað hefur verið alls 9-9-7-6-4-5 sinnum = 68-72-80-88-96-100 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 21-20-20-19-19-18 cm. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 4-4-4-4-8-8 lykkjur jafnt yfir = 72-76-84-92-104-108 lykkjur. Skipti yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (1 lykkja snúin slétt / 1 lykkja brugðið) í 4 cm með litnum hvít þoka. Fellið af. Ermin mælist alls 25-24-24-23-23-22 cm. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 120-140 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 3 með litnum hvít þoka. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja snúin slétt / 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (7)
Audrey wrote:
Hi,I was just wondering if this garment is felted ?thanks so much
13.04.2024 - 03:50DROPS Design answered:
Dear Audrey, no, this piece is not felted. It uses DROPS Sky yarn, that is a very special, light, fluffy, so called "blown" alpaca yarn. I hope this helps. Happy Knitting!
13.04.2024 - 20:27Daniela Cocco wrote:
Buongiorno, vorrei sapere come mai non ci sia neppure un modello che spieghi la costruzione della manica con il metodo contiguous… mi trovo benissimo con i vostri modelli che ho utilizzato numerosissimi come pure i vostri filati … utilizzo solo quelli e li trovo straordinari! Però sono delusa dal fatto che non ci sia neppure un modello che spieghi il metodo contiguous, che io trovo veramente funzionale, grazie mille per l’attenzione. Cordiali saluti Daniela Cocco
05.03.2024 - 22:59DROPS Design answered:
Buonasera Daniela, inoltreremo la sua proposta al settore design. Buon lavoro!
11.03.2024 - 23:52Christa wrote:
Mir ist nicht klar, wie die Maschen für das Vorderteil aufgenommen werden müssen: je eine Masche aus dem oberen Rand des Rücken ist schon klar, aber warum heißt es „1 Masche aus jeder Reihe des oberen Rands…“? Und wo ist die obere Mitte des Armausschnitts? Hier soll ja der Markierer gesetzt werden. Vielen Dank für Ratschläge und Hilfe!
04.03.2024 - 22:37DROPS Design answered:
Liebe Christa, in diesem Video zeigen wir, wie man die Maschen für beide Schulter vom Vorderteil auffasst. Mehr Video finden Sie auch unter "Videos" über die Materialliste. Viel Spaß beim Stricken!
05.03.2024 - 09:20Lakshmi wrote:
Are the colors reversed in the schematic?
08.02.2024 - 00:18DROPS Design answered:
Dear Mrs Lakshmi, thanks for noticing, diagram symbols have now been updated. Happy knitting!
08.02.2024 - 09:15Lauryna wrote:
Peaches and cream
22.01.2024 - 11:19Rodica wrote:
Summer breeze
21.01.2024 - 21:47Irene wrote:
Alba
19.01.2024 - 14:08