Tiny Bear |
|||||||
|
|
||||||
Prjónaður bangsi fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni með útsaumi fyrir augu og nefi. Þema: Leikfang.
DROPS Baby 46-17 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A og B. Mynsturteikning sýnir hvernig sporin eru saumuð út. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BANGSI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, frá höfði og niður að fótum. Hendurnar eru prjónaðar inn jafnóðum. Allt stykkið er prjónað í garðaprjóni. Augun og nefið er saumað út. Bangsinn er saumaður saman eins og útskýrt er í mynstri og fylltur með vatti. HÖFUÐ OG EYRU: Fitjið upp 36 lykkjur á prjóna 3,5 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan – jafnframt er lykkjum fækkað fyrir eyru þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 7 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, 12 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, 7 lykkjur slétt = 32 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið slétt. UMFERÐ 4: Prjónið 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt saman, 6 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt = 24 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! NEF: Nú er lykkjum aukið út fyrir nefi í næstu 6 umferðum þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 10 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10 lykkjur slétt = 26 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið 10 lykkjur slétt, prjónið uppsláttinn snúið slétt (svo ekki myndist gat), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið uppsláttinn snúið slétt, 10 lykkjur slétt = 28 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið 11 lykkjur slétt, prjónið uppsláttinn snúið slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið uppsláttinn snúið slétt, 11 lykkjur slétt = 30 lykkjur. UMFERÐ 4-6: Prjónið eins og umferð 3, nema í hverri umferð er prjónuð 1 lykkja slétt fleiri í byrjun og í lok umferðar á undan / eftir útaukningu = 36 lykkjur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Nú er lykkjum fækkað fyrir nef yfir næstu 6 umferðir þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 14 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 14 lykkjur slétt = 34 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið 13 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 13 lykkjur slétt = 32 lykkjur. UMFERÐ 3-6: Prjónið eins og umferð 2, nema í hverri umferð er prjónuð 1 lykkja slétt fleiri í byrjun og í lok umferðar á undan / eftir úrtöku = 24 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. BÚKUR OG HENDUR: Prjónið fyrstu 9 lykkjurnar frá höfði slétt, fitjið síðan upp 4 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir hönd. Snúið stykkinu, prjónið 20 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir ystu 8 lykkjurnar, fellið síðan af þessar 8 lykkjur slétt frá réttu. Klippið þráðinn ca 25 cm frá stykki (nægilega langan til að sauma höndina með). Nú er fyrri höndin tilbúin. Prjónið síðan búkinn þannig: Prjónið næstu 10 lykkjur á búk slétt, fitjið síðan upp 4 nýjar lykkjur á prjóninn fyrir hönd. Snúið stykkinu, prjónið 20 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir ystu 8 lykkjurnar, fellið síðan af þessar 8 lykkjur slétt frá réttu. Klippið þráðinn ca 25 cm frá stykki. Hin höndin er nú tilbúin. Prjónið síðustu 5 lykkjur á búk slétt. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt (búkur), brjótið höndina saman tvöfalda og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 4 lykkjum sem fitjaðar voru upp fyrir hönd, hoppið yfir síðustu 4 lykkjur á hönd, prjónið 6 lykkjur slétt (búkur á milli handa), brjótið næstu hönd saman tvöfalda og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 4 lykkjum sem fitjaðar voru upp fyrir hönd, hoppið yfir 4 síðustu lykkjur á hönd, prjónið 5 lykkjur slétt = 24 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið – héðan er nú stykkið mælt. BÚKUR OG FÆTUR: Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar 24 lykkjurnar þar til stykkið mælist ca 7 cm frá prjónamerki (= ca 32 umferðir garðaprjón). Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið út nef og augu á bangsann með afgangs garni. Nefið er með 4-5 lóðrétt spor með flatsaumi þar sem hvert og eitt er ca 1 cm langt – sjá mynsturteikningu A og mynd. Augun eru saumuð út með frönskum hnútum – sjá mynsturteikningu B og mynd. Saumið sauminn niður meðfram baki á bangsa – saumið kant í kant í ysta lykkjuboga á sléttu lykkjunni þannig að saumurinn verði flatur. Saumið höfuðið saman í toppi. Saumið saum meðfram báðum höndum – saumið í ysta lykkjuboga á ystu sléttu lykkju. Þræðið þráð í gegnum lykkjurnar neðst á hvorri ermi, herðið á þræði og festið vel. Fyllið hendurnar á bangsanum með vatti. Saumið búkinn saman neðst – og saumið síðan saum á fótum í gegnum bæði lögin og vattið, þannig að fæturnir verða sýnilegir – lengd á fæti er ca = 1/3 af lengd á búki. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Lisa wrote:
Bonjour , Est il possible d’avoir une réponse en français à ma demande du 11 février car mon ouvrage est en attente …. Je vous remercie .
16.02.2024 - 11:17DROPS Design answered:
Bonjour Lisa, montez ces mailles comme dans cette vidéo / cette leçon et tricotez uniquement les 8 mailles du bras_ pendant 20 rangs (10 côtes mousse), rabattez ces mailles et coupez le fil, tricotez maintenant les 10 mailles sur l'aiguille gauche, montez 4 mailles pour le 2ème bras et tricotez le 2ème bras sur les 20 mailles, rabattez et tricotez les 5 dernières mailles du corps. Bon tricot!
19.02.2024 - 15:49Louise Hedegaard wrote:
Hejsa! Jeg forstår ikke formuleringen “ Strik de første 9 masker fra hovedet ret, slå derefter 4 nye masker op på pinden til arm.”. Strikker man de første 9 masker og tager derefter 4m ud, eller tages de 4m ud yderst på pinden? Hvis jeg strikker 9 og tager 4 ud og så vender og strikker 20p over de første 8, er armen jo 5m inde på kroppen som ser meget forkert ud.
11.02.2024 - 22:14DROPS Design answered:
Hej Louise, jo det stemmer, du slår 4 nye masker op og strikker over de yderste 8 masker, hvor så armen er inde i kroppen.
22.02.2024 - 11:25Lisa wrote:
Bonjour ,\r\nJ’ai tricoté sans problème la tête et les oreilles ainsi que le nez de l’ours , et maintenant je suis bloquée pour le corps et les bras ….il est dit qu’il faut tourner après avoir monté 4 mailles pour le bras. \r\nJe ne comprends pas comment il faut procéder !\r\nY a t-il une vidéo explicative ?\r\nMerci pour votre réponse !\r\nCordialement
11.02.2024 - 14:54Renée wrote:
Bij de naalden 4-6 bij de neus staat dat er aan het begin & eind van elke naald er een steek aan toegevoegd moet worden. Op welke manier gaat dit? Optie 1: Meerder na 1e steek & voor laatste steek, dus 1 stk recht, 1 omslag gedr., 30 stkn recht, 1 omslag gedr., 1 stk recht. Etc. Optie 2: Meerder voor 1e steek & na 1e steek, dus: Naald 4: meerder 1 stk, 31 stkn recht (incl extra stk), meerder 1 stk Naald 5: meerder 1 stk, 33 stken recht (incl extra stk), meerder 1 stk etc.
03.01.2024 - 12:35DROPS Design answered:
Dag Renée,
Op naald 3 brei je 11 steken recht voordat je een omslag maakt en op naald 4 worden dat er 12. Het zelfde geldt voor na de omslag, dan brei je ook 1 steek meer dan de naald ervoor.
07.01.2024 - 13:38