December Carnival Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 245-6 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT (á við um hægri kanti að framan, séð þegar flíkin er mátuð): Fellið af fyrir 6-6-7-7-7-7 hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – ATH: Fallegast er að fella af fyrir hnappagötum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í einingu með 2 lykkjum brugðið (séð frá réttu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt þannig að það myndist gat. Efsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli tvöfalda kanti í hálsmáli og berustykkis, neðsta hnappagatið er ca 1 cm frá kanti neðst. Þau 4-4-5-5-5-5 hnappagöt sem eru eftir eru staðsett með ca 9-9½-8-8½-9-9½ cm millibili . ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Síðan eru kantar að framan prjónaðir. Í lokin er stroff prjónað neðst. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-108-112-116 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Karisma í litnum sægrænn. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan *, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Stroffið er síðan brotið saman tvöfalt og þá verðu kantur í hálsmáli ca 5 cm. BERUSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út 25-29-33-37-37-37 lykkjur jafnt yfir = 121-129-137-145-149-153 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð (29-31-33-35-36-37 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2 (3 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Lesið LEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan: Ör-1: Aukið út 44-44-44-52-52-56 lykkjur jafnt yfir = 165-173-181-197-201-209 lykkjur (nú er pláss fyrir 40-42-44-48-49-51 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Ör-2: Aukið út 40-40-44-48-52-52 lykkjur jafnt yfir = 205-213-225-245-253-261 lykkjur (nú er pláss fyrir 50-52-55-60-62-64 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Ör-3: Aukið út 35-39-43-47-51-51 lykkjur jafnt yfir = 240-252-268-292-304-312 lykkjur (nú er pláss fyrir 59-62-66-72-75-77 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum og A.2 nær nú yfir 2 lykkjur). Ör-4: Aukið út 3-7-7-15-19-27 lykkjur jafnt yfir = 243-259-275-307-323-339 lykkjur (nú er pláss fyrir 15-16-17-19-20-21 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum og A.2 nær nú yfir 1 lykkju). Ör-5: Aukið út 25-29-29-25-29-33 lykkjur jafnt yfir = 268-288-304-332-352-372 lykkjur (nú er pláss fyrir 66-71-75-82-87-92 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum og A.2 nær nú yfir 2 lykkjur). Ör-6: Aukið út 13-13-17-17-17-21 lykkjur jafnt yfir = 281-301-321-349-369-393 lykkjur (nú er pláss fyrir 69-74-79-86-91-97 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum og A.2 nær nú yfir 3 lykkjur). Ör-7: Aukið út 12-12-12-16-16-20 lykkjur jafnt yfir = 293-313-333-365-385-413 lykkjur (nú er pláss fyrir 72-77-82-90-95-102 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Ör-8: Aukið út 8-12-8-12-12-16 lykkjur jafnt yfir = 301-325-341-377-397-429 lykkjur (nú er pláss fyrir 74-80-84-93-98-106 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Þegar stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan, JAFNFRAMT því sem mynstur er prjónaða. Þegar A.1 er lokið, prjónið A.3 og síðan A.4 (lykkjur sem prjónaðar voru í A.2 eru prjónaðar eins og fyrstu 3 lykkjur í A.3). Skiptið síðan berustykki fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 46-50-52-57-62-68 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 60-64-68-76-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 89-97-101-111-121-133 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 60-64-68-76-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 46-50-52-57-62-68 lykkjur sem eftir eru eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 197-213-229-249-277-301 lykkjur. Haldið áfram með A.3 eins og áður með kantlykkju í hvorri hlið. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.4 þar til stykkið mælist ca 27 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli) – endið eftir heila rönd. Ef réttu máli hefur ekki verið náð, er hægt að endurtaka A.X að óskaðri lengd. Setjið lykkjur á þráð. Stroff neðst á fram- og bakstykki er prjónað til loka eftir að kantar að framan hafa verið prjónaðir til loka. ERMI: Setjið 60-64-68-76-76-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-12-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-12-12-16-16 lykkjur undir ermi og látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Það á að nota hann síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónað er í hring, byrjið umferð við merkiþráðinn. Haldið áfram með A.3 (passið uppá að byrja í réttri umferð miðað við hvar berustykkið endaði). Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram! Eftir A.3 er A.5 prjónað að loka máli. JAFNFRAMT þegar ermin mælist ca 4-4-4-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 12-12-16-18-20-20 sinnum = 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 40-39-37-36-34-33 cm, en stillið af að endað sé eftir heila rönd (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli). Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-60-60-64 lykkjur. Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-41-40-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Notið hringprjón 3 og litinn sægrænn. Byrjið neðst meðfram opi á peysu og prjónið upp ca 124-128-132-136-144-148 lykkjur innan við 1 kantlykkju þar til 5 cm eru eftir efst í kanti í hálsmáli (síðar á að brjóta uppá síðustu 5 cm í kanti í hálsmáli) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið svona fram og til baka (fyrsta umferð er frá röngu): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kantur að framan mælist 1-1½ cm. Nú er fellt af fyrir 6-6-7-7-7-7 hnappagötum – lesið HNAPPAGAT að ofan – jafnt yfir. Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Notið hringprjón 3 og litinn sægrænn. Byrjið efst meðfram opi á peysu og prjónið, 5 cm niður frá uppfitjunarkanti í kanti í hálsmáli (síðar á að brjóta uppá efstu 5 cm í kanti í hálsmáli) og prjónið upp ca 124-128-132-136-144-148 lykkjur innan við 1 kantlykkju niður að enda á fram- og bakstykki – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið á sama hátt og á vinstra framstykki, en ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan. STROFF FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 197-213-229-249-277-301 lykkjur af þræði neðst á fram- og bakstykki á hringprjón 3. Notið litinn sægrænn, byrjið frá réttu og prjónið upp 7 lykkjur innan við 1 kantlykkju í neðri kanti í vinstri kanti að framan, prjónið sléttar lykkjur og aukið út jafnt yfir 37-41-45-51-53-57 lykkjur yfir lykkjur á prjóni, prjónið upp 7 lykkjur innan við 1 kantlykkju í neðri kanti í hægri kanti að framan = 248-268-288-314-344-372 lykkjur. Prjónið stroff þannig (fyrsta umferð er frá röngu): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kanturinn mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Lucia Battisti wrote:
Buongiorno sto realizzando la taglia L sono arrivata con lo sprone a 26 cm. Ma non ho ancora terminato A 2 e mi mancano 2 freccie vado avanti oppure divido comunque le maniche calcolando la divisione delle maglie? Grazie lucia
08.12.2023 - 12:53DROPS Design answered:
Buongiorno Lucia, il suo campione corrispondeva a quello indicato? Buon lavoro!
30.12.2023 - 11:34Christine wrote:
Den här blir man glad av och ett bra restgarns projekt..
10.10.2023 - 11:59Flocaeymaex wrote:
Colibri
05.08.2023 - 16:54HK wrote:
Jellybeam
04.08.2023 - 23:41Astrid Rohacek wrote:
Astrid
04.08.2023 - 18:08Marina wrote:
Prideparad. En färglek, perfekt för restgarnen
04.08.2023 - 11:24Prideparad wrote:
En färglek, perfekt för restgarnen
04.08.2023 - 11:23Jeannine wrote:
Scandinavian skies
04.08.2023 - 08:39Ould Oufella Marie-Claire wrote:
J'adore, très beau pull jacquard, j'aimerais bien avoir le modèle
04.08.2023 - 07:16Mila wrote:
Hermosisima.
04.08.2023 - 04:15