DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki |
1430.00 kr /25g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki 1430.00 kr /25g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= útaukning fyrir axlarsæti | |
= botninn á handvegi er saumaður þannig: Saumið b við B |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Lucky Sweater |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, axlarsæti og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 244-27 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (á við um axlarsæti): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður, þar til útaukning fyrir axlarsæti hefur verið gerð til loka. Síðan eru lykkjur fyrir öxl settar á þráð og framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig þar til berustykki er lokið. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-92-92-100-108-108 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið stroff (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 13 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (mitt að aftan) og prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er núna mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og berustykki og verða að hafa annan lit en prjónamerki sem var sett mitt að aftan, til að aðgreina þau. Fyrsta prjónamerki: Teljið 14-16-16-16-18-18 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 15-15-15-19-19-19 lykkjur (öxl), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 27-31-31-31-35-35 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 15-15-15-19-19-19 lykkjur (öxl), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 13-15-15-15-17-17 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki (hálft bakstykki). Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. Nú er aukið út fyrir axlarsætir eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna – umferðin byrjar mitt að aftan. Í fyrstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 21-21-23-26-30-32 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Eftir síðustu útaukningu eru 168-176-184-204-228-236 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 11-11-12-14-16-17 cm frá prjónamerki við hálsmál. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir ermar, framstykki og bakstykki þannig: Prjónið 35-37-39-42-48-50 lykkjur (ca hálft bakstykki), prjónið næstu 15-15-15-19-19-19 lykkjur áður en þær eru settar á þráð fyrir ermi, prjónið næstu 69-73-77-83-95-99 lykkjur (framstykki), prjónið næstu 15-15-15-19-19-19 lykkjur áður en þær eru settar á þráð fyrir ermi, prjónið síðustu 34-36-38-41-47-49 lykkjur (ca hálft bakstykki). Klippið þráðinn og setjið lykkjur fyrir bakstykki á þráð. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 69-73-77-83-95-99 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki ca mitt í umferð, stykkið er núna mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 14-15-17-17-18-18 cm frá prjónamerki og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Geymið stykkið og prjónið bakstykki. BAKSTYKKI: Prjónið alveg eins og framstykki, en síðasta umferð er prjónuð frá réttu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman þannig: Fitjið upp 2-4-6-8-6-8 nýjar lykkjur í lok umferðar (í hlið undir ermi), prjónið yfir lykkjur frá framstykki og fitjið upp 2-4-6-8-6-8 nýjar lykkjur í lok umferðar (í hlið undir ermi). Síðan er fram- og bakstykki prjónað eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 142-154-166-182-202-214 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist ca 47-49-51-53-55-57 cm, mælt frá hæsta punkti á öxl. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 44-48-52-60-62-66 lykkjur jafnt yfir = 186-202-218-242-264-280 lykkjur. Prjónið stroff (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 55-57-59-61-63-65 cm frá öxl. ERMI: Notið hringprjón 5,5 og 1 þráð í hvorri tegund (2 þræðir), prjónið upp 21-23-26-25-27-27 lykkjur frá réttu frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki), prjónið 15-15-15-19-19-19 axlalykkjur eins og áður og 21-23-26-25-27-27 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 57-61-67-69-73-73 lykkjur. Prjónið sléttprjón og stuttar umferðir fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið sléttprjón upp að axlalykkjum, prjónið 15-15-15-19-19-19 axlalykkjur, prjónið 2 lykkjur sléttprjón. Snúið, herðið á þræði svo ekki myndist gat. UMFERÐ 2: Prjónið yfir fyrstu 19-19-19-23-23-23 lykkjur, snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið yfir fyrstu 21-21-21-25-25-25 lykkjur, snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið yfir fyrstu 23-23-23-27-27-27 lykkjur, snúið, herðið á þræði. Haldið svona áfram fram og til baka og prjónið 2 lykkjur fleiri fyrir hverja umferð sem er prjónuð. Þegar prjónað hefur verið yfir allar lykkjur í hvorri hlið er stuttu umferðum lokið. Ermakúpan mælist ca 11-12-13-13-14-14 cm. (Í nokkrum af stærðunum kemur síðasta umferð til með að vera prjónuð frá réttu). Prjónið því 1 umferð til baka frá röngu þannig að hægt sé að prjóna stykkið áfram frá réttu). Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin er núna mæld frá þessu prjónamerki. Setjið núna ermina saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5,5. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-2-2-3-3-3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 10-11-13-13-15-14 sinnum = 37-39-41-43-43-45 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 33-31-30-29-27-27 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 13-13-13-13-15-15 lykkjur jafnt yfir = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið stroffprjón (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 41-39-38-37-35-35 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. Brjótið inn kant í hálsmáli og saumið nokkur spor þannig að kanturinn verði tvöfaldur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (24)
Lena wrote:
Gibt es für das Modell ein Video für die Armkugel, also den Anfang der Ärmel, aus der Anleitung ist leider nicht ersichtlich, wie es funktioniert und ich komme nicht voran.
22.05.2024 - 19:57DROPS Design answered:
Liebe Lena, bei der rechten Ärmel fassen Sie die Maschen so auf: beginnen Sie am Rückenteil (fassen Sie keine Maschen in den 2 bis 8 Maschen, die beim Rückenteil (für Armausschnitt) angeschlagen wurden) bis zu den Maschen für die Schulter, diese Maschen stricken Sie Glattrechts und dann fassen Sie die Maschen am Vorderteil auf (bis die Maschen, die angeschlagen wurden), so gibt es ein "Loch" unter die Ärmel, die ersten cm der Ärmel werden dann später an den Armausschnitt genäht. Viel Spaß beim Stricken!
23.05.2024 - 08:29Monica wrote:
Sul davanti, finire dopo un ferro dal rovescio del lavoro, significa che devo fare una ferro a dritto e sospendo prima di iniziare un ferro a rovescio? Grazie
09.03.2024 - 16:02DROPS Design answered:
Buonasera Monica, vuol dire che deve finire dopo aver lavorato un ferro dal rovescio del lavoro. Buon lavoro!
09.03.2024 - 17:01Hieke Reijnhoudt wrote:
In the pattern it is stated to Cast on 84-92-92-100-108-108 stitches with circular needle size 4.5 MM = US 7 . However, in the description of the needles needed for this garment, only US 6 and US 9 are listed. What is the recommended needle size?
03.01.2024 - 16:47DROPS Design answered:
Dear Mrs Reijnhoudt, pattern will be edited, you need here the smaller needles, ie size 4 mm / US6 to cast on. Thanks for noticing. Happy knitting!
04.01.2024 - 09:07Maria Teresa wrote:
Alla fine del davanti cosa significa esattamente mettere il lavoro da parte? Tagliare il filo e sospendere i punti? Grazie
01.01.2024 - 23:32DROPS Design answered:
Buongiorno Maria Teresa, sì, deve lasciare in sospeso il davanti per lavorare il dietro. Buon lavoro!
02.01.2024 - 08:22Ria Taat wrote:
In patroon staat hals beginnen met naald 4,5. Moet dit niet nr4 zijn?
24.12.2023 - 14:00DROPS Design answered:
Dag Ria,
Dit moet inderdaad 4 mm zijn. Het is inmiddels aangepast.
07.01.2024 - 13:49Monika wrote:
Wenn ich diesen Pullover aus Soft Tweed Kirschsorbet stricken möchte, welche Kid Silk Farbe passt dazu? Irgendwie sieht Kirschsorbet bei Kid Silk ganz anders aus.
04.11.2023 - 20:57DROPS Design answered:
Liebe Monika, am besten wenden Sie sich direkt an Ihrem DROPS Händler, dort wird man Ihnen gerne die besten passenden Farbkombinationen empfehlen (auch per Telefon oder per E-Mail). Viel Spaß beim stricken!
06.11.2023 - 08:22Regina wrote:
Hi! Frage: Bei mir ist es beim Abschnitt wo man hin und her strickt jetzt ganz wuselig geworden. Also man sieht gleich das nicht mehr mit der Rundstricknadeln gestrickt wurde. Legt sich das dann noch beim fixieren oder muss ich alles nochmal machen?? LG Regina
02.11.2023 - 09:34DROPS Design answered:
Liebe Regina, vielleicht stricken Sie nicht genauso gleich in Runden und in Reihen - sowas kann nach 1. Waschen weg, am besten beachten Sie, daß Ihre Maschenprobe immer stimmt, und vielleicht sollten Sie die Nadelgröße so anpassen damit die Maschenprobe bei Reihen sowie bei Runden stimmt. Viel Spaß beim stricken!
02.11.2023 - 17:44Ursula Kries wrote:
Gibt es ein Video wie man die armkugel bei der sattelschulter strickt?
21.10.2023 - 15:31DROPS Design answered:
Liebe Frau Kreis, ja genau, in diesem Video zeigen wir (für ein anderes Modell, aber die Technik ist die gleiche), wie man für die Sattelschulter zunimmt. Viel Spaß beim stricken!
23.10.2023 - 09:40Christina Kingo Rahr wrote:
Er det retstrik efter man har strikket halsen og der sættes 4 nye mærker
17.10.2023 - 00:25DROPS Design answered:
Hej Christina, hele blusen strikkes i glatstrik efter halskanten :)
18.10.2023 - 07:28Daniela wrote:
Forest Walk
06.08.2023 - 21:01