Spill the Beans Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 244-6 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Lykkjur eru auknar út á eftir/undan A.2 í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Í byrjun er aukið út hvoru megin við A.2 í annarri hverri umferð (8 lykkjur fleiri), síðan breytist útaukningin. Útaukning fyrir framstykki/bakstykki heldur áfram eins og áður í annarri hverri umferð, en á ermum er einungis aukið út í 4. hverri umferð – þ.e.a.s. að í annarri hverri umferð með útaukningu á framstykki/bakstykki er ekki aukið út á ermum (4 lykkjur fleiri). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar garðaprjón í kanti að framan mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9½-8-8½-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 126-126-138-138-150-154 lykkjur á hringprjón 2,5 í DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroffprjón frá réttu þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið 2 lykkjur slétt. Haldið áfram með stroff svona þar til stykkið mælist 5 cm. Í 2 næstu umferðum eru fitjaðar upp 7 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, í lok hverrar umferðar (kantlykkjur að framan) = 140-140-152-152-164-168 lykkjur. Haldið áfram með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og stroffprjóni eins og áður. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 10 cm og síðasta umferð er prjónuð frá röngu (það á að brjóta síðar inn stroffið í miðju og þá verður kantur í hálsmáli 5 cm). Setjið eitt prjónamerki að innanverðu á kantlykkjum að framan í annarri hliðinni, héðan er nú berustykkið mælt frá. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 9-9-13-13-17-17 lykkjur sléttprjón, A.1, 20 lykkjur sléttprjón (ermi), A.1, 20-20-24-24-28-32 lykkjur (bakstykki), A.1, 20 lykkjur (ermi), A.1, 9-9-13-13-17-17 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Það hefur verið aukin út 1 lykkja í hverri mynstureiningu af A.1 = 144-144-156-156-168-172 lykkjur í umferð. Í næstu umferð frá röngu er prjónað þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 9-9-13-13-17-17 lykkjur sléttprjón, A.1, 20 lykkjur sléttprjón (ermi), A.1, 20-20-24-24-28-32 lykkjur sléttprjón (bakstykki), A.1, 20 lykkjur sléttprjón (ermi), A.1, 9-9-13-13-17-17 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram! Lesið LASKALÍNA í útskýringu að ofan, útaukning byrjar í næstu umferð frá réttu. Haldið áfram í sléttprjóni með köntum að framan í garðaprjóni JAFNFRAMT sem nú er prjónað eftir mynsturteikningu A.2 yfir mynsturteikningu A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út 22-22-26-30-30-31 sinnum í hverri skiptingu á milli framstykkja / bakstykkis og erma. Það eru 320-320-364-396-408-420 lykkjur í umferð. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu á framstykkjum / bakstykki í annarri hverri umferð eins og áður, en á ermum er einungis aukið út í 4. hverri umferð. Aukið svona út 8-12-10-12-16-20 sinnum á framstykkjum / bakstykki (aukið er út 4-6-5-6-8-10 sinnum á ermum). Alls hefur verið aukið út 30-34-36-42-46-51 sinnum á framstykkjum / bakstykki og 26-28-31-36-38-41 sinnum á ermum. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, eru 368-392-424-468-504-540 lykkjur í umferð. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 20-22-24-27-29-32 cm mælt frá prjónamerki við kanta að framan. Í næstu umferð frá réttu skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 39-43-49-55-63-68 lykkjur sléttprjón, A.2, setjið næstu 72-76-82-92-96-102 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), A.2, 80-88-96-108-120-134 lykkjur sléttprjon, A.2, setjið næstu 72-76-82-92-96-102 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið A.2, 39-43-49-55-63-68 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú er fram- og bakstykkið og ermar prjónað hvert fyrir sig, fram- og bakstykkið er núna mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 244-260-284-308-340-364 lykkjur. Prjónið með kanta að framan í garðaprjóni, sléttprjón og mynstur eins og áður (nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið eru prjónaðar í sléttprjóni). Prjónið þar til stykkið mælist 20-20-20-19-19-18 cm frá skiptingu – stillið af að síðasta umferð sem er prjónuð sé 4. umferð í mynsturteikningu A.2 – næsta umferð er prjónuð frá réttu og það eru 244-260-284-308-340-364 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við 13 lykkjur í hverju A.2 – þannig að auðveldara sé að sjá hvort mynstrið passi þegar auka á út fyrir stroffi eins og útskýrt er að neðan. Héðan á einungis að prjóna eins og í 4. umferð í A.2 yfir 13 lykkjur í A.2. Prjónið næstu umferð frá réttu jafnframt því sem aukið er út: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir næstu 39-43-49-55-63-68 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 18-22-20-20-18-25 lykkjur jafnt yfir (57-65-69-75-81-93 lykkjur sléttprjón), prjónið A.2 yfir næstu 13 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 10-10-12-12-14-14 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 2-2-4-4-6-6 lykkjur jafnt yfir (12-12-16-16-20-20 lykkjur sléttprjón), prjónið A.2 yfir næstu 13 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 80-88-96-108-120-134 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 36-44-40-40-36-46 lykkjur jafnt yfir (116-132-140-152-164-188 lykkjur sléttprjón), prjónið A.2 yfir næstu 13 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 10-10-12-12-14-14 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 2-2-4-4-6-6 lykkjur jafnt yfir (12-12-16-16-20-20 lykkjur sléttprjón), prjónið A.2 yfir næstu 13 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 39-43-49-55-63-68 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 18-22-20-20-18-25 lykkjur jafnt yfir (57-65-69-75-81-93 lykkjur sléttprjón) og prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Það eru 320-352-372-396-424-272 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 57-65-69-75-81-93 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir 13 lykkjur, 12-12-16-16-20-20 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir 13 lykkjur, prjónið 116-132-140-152-164-188 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir 13 lykkjur, 12-12-16-16-20-20 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir 13 lykkjur, 57-65-69-75-81-93 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú byrjar stroff og fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Skiptið yfir í hringprjón 2,5. Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrsta prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.2 yfir 13 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.2 yfir 13 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta prjónamerki, 1 lykkja slétt, prjónið A.2 yfir 13 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan síðasta prjónamerki, 1 lykkja slétt, prjónið A.2 yfir 13 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Frá röngu er prjónað garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið stroff svona fram og til baka í 8 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 72-76-82-92-96-102 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjóna / sokkaprjóna 3,5. Prjónið að auki upp 10-10-12-12-14-14 lykkjur í lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 82-86-94-104-110-116 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í nýjar lykkjur og látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu – það á að nota hann síðar þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið hringinn í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 4-3-3-4-2-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3½-2½-1½-1½-1 cm millibili alls 9-9-12-16-18-20 sinnum = 64-68-70-72-74-76 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 35-34-32-30-28-25 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 20-16-18-20-22-20 lykkjur jafnt yfir = 84-84-88-92-96-96 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 8 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-42-40-38-36-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið í hálsmáli niður að innanverðu á stykki og saumið niður með nokkrum sporum í hvora hlið, þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Andrea Fredskild wrote:
Jeg har lavet udtagninger til Raglan, og der er 368 m på pinden. Der står jeg skal strikke som før, til arbejdet måler 20 cm. Før hvad? Før Raglan? der strikkede jeg A1, men A1 fortsætter jo ikke mønstret. Før det strikkede jeg Rib. Hvordan fortsætter jeg?
02.04.2024 - 15:53DROPS Design answered:
Hei Andrea. Du fortsetter å strikke som du har gjort, men du skal ikke øke til raglan. Altså, strikk stolpemaskene, glattstrikk og diagrammen, men ingen økninger. Maskeantallet skal være likt på alle omgangene frem til arbeidet måler 20 cm. mvh DROPS Design
08.04.2024 - 11:47Åse Johansen wrote:
Jeg kan ikke forstå hvorfor, der skal tages så mange masker ud, når rib starter. Det er ikke pænt, jeg gjorde det ikke og min rib, strikket på pinde 2 1/2 blev rigtig, ikke stram
29.03.2024 - 11:16Barathé wrote:
Bonjour je souhaiterais connaître le mode d’entretien pour DROPS ALPACA ? S’il vous plaît merci d’avance Cordialement Mme Barathé
06.01.2024 - 12:05DROPS Design answered:
Bonjour Mme Barathé, retrouvez toutes les consignes d'entretien de DROPS Alpaca sur la page de son nuancier: onglet Entretien sous les couleurs. Bon tricot!
08.01.2024 - 10:04Ragnhild wrote:
Strikker jakken i str L - mange feil i oppskrift vedr antall masker mv.. Har «fikset» mange undervegs i min jakke. F.eks BOL: 2 avsnitt - i feltet mellom de to A2 - 12 m + 4 økte = 16 i str L. Etter alle økninger er riktig anntall: 7+69+13+16+13+140+13+16+13+69+7=376 i str L. Det var også noe lenger fremme, men husker nå ikke hvor… Der er irriterende med feil i oppskrifter! Man blir usikker og det er jo ikke så kos…
19.11.2023 - 17:39Kristin Bjerkenås wrote:
I diagram 1 og 2 i denne oppskriften står det at : en svart maske(=beskrivelse av utseende av masken)= ingen maske, gå til neste rute. Hva betyr det? Mvh Kristin
12.10.2023 - 07:55DROPS Design answered:
Hej, Kristin, du hopper bare videre til næste maske (den sorte rude er den maske du tog ud med omslag og skal først strikkes på næste pind)
17.10.2023 - 14:00Nelly Lafon wrote:
Bonjour,\r\nCeci concerne la taille XL\r\nDans le paragraphe tricoter ainsi dur l\'endroit pour le dos et les devants erreur dans la 1ère section aug dans les 12m jersey 4aug ce qui donne 16m et non 14m\r\nen ce qui concerne les aug avant les cotes je n\'ai aug que 18m et non 20 dans chaque devant sinon le résultat n\'allait pas\r\nbonne journée merci pour tous vos modèles
26.09.2023 - 10:24Maaike Aarts wrote:
Bij het breien van het patroon klopt volgens mij niet de boord heb ik gebreid dan naar de pas met het verdelen van de steken voor de steken bij de pas hoe ik steken over de pas geeft aan 120 steken en na de boord brijen hou ik 168 over waar blij dan de overige steken dan dat zijn 40 steken die ik over hou ik hoop dat u mij een uitleg kan geven groetjes maaik aarts
19.09.2023 - 09:38DROPS Design answered:
Dag Maaike,
Helaas begrijp ik je vraag niet helemaal. Houd je 40 steken over op de naald nadat je de pas in zijn geheel hebt gebreid? Welke maat ben je aan het breien?
05.10.2023 - 06:27Lorrette wrote:
I was asking about the rib at the end of the body, it doesn't specify to change the neddle size. Not the rib at the begining. At the end of the body, The rib is worked with 3.5mm or with 2.5 mm? Thank you.
18.09.2023 - 18:02DROPS Design answered:
Dear Lorette, thanks for noticing, the needle size has now been added, this means you will switch to the circular needle size 2,5 mm. Happy knitting!
19.09.2023 - 10:00Lorrette wrote:
Hi, i have a question. The body rib îs worked with 3.5 mm needles or 2.5 mm? It doesn't specify and i want to be sure. Thank you
13.09.2023 - 19:02DROPS Design answered:
Hi Lorette, You cast on and work rib with needle size 2.5 mm. Happy knitting!
14.09.2023 - 06:49Nelly Lafon wrote:
Bonjour, faut-il vraiment ouvrir la 1ère boutonnière quand les cotes mesurent 2cm ou quand on a tricoté 2 cotes de bordure au pt mousse ? car une fois le col plié en 2 les boutonnières ne sont pas alignées merci d'avance pour votre réponse
12.09.2023 - 12:35DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lafon, la 1ère boutonnière doit se trouver 2 cm après avoir monté les mailles de la bordure devant. Bon tricot!
12.09.2023 - 17:07