Dancing Doves |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Heklaðir sokkar / ökklasokkar úr DROPS Fabel. Stykkið er heklað ofan frá og niður með pífukanti. Stærð 35 - 43.
DROPS 238-37 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli/fastalykkju HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja. Þessi loftlykkja kemur í stað fyrstu fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Í hælnum er snúið við í hverri umferð með 1 loftlykkju (þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur kemur sem viðbót). ÚRTAKA: Fækkað er um 1 stuðul/fastalykkju þannig: Heklið 1 stuðul/fastalykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul/fastalykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 stuðul/fastalykkju. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 21-22-24 fastalykkjur, það eru eftir 7-8-8 fastalykkjur í umferð, fækkið um 1 fastalykkju – sjá ÚRTAKA = 22-23-25 fastalykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Heklið 15-15-17 fastalykkjur, nú eru eftir 7-8-8 fastalykkjur í umferð, fækkið um 1 fastalykkju = 16-16-18 fastalykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Heklið 15-15-17 fastalykkjur. Fækkið um 1 fastalykkju, þ.e.a.s. heklið síðustu fastalykkju í umferð saman með fyrstu fastalykkju frá fyrri umferð (umferð með 28-30-32 fastalykkjum) = 16-16-18 fastalykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Heklið 15-15-17 fastalykkjur. Fækkið um 1 fastalykkju, þ.e.a.s. heklið síðustu fastalykkju í umferð saman með fyrstu fastalykkju frá síðustu umferð (umferð með 21-22-24 fastalykkjur) = 16-16-18 fastalykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 5 (rétta): Heklið 15-15-17 fastalykkjur. Fækkið um 1 fastalykkju, þ.e.a.s. heklið síðustu fastalykkju í umferð saman með fyrstu fastalykkju frá fyrstu umferð = 16-16-18 fastalykkjur. Snúið stykkinu. Endurtakið til skiptis 4. og 5. umferð 4 sinnum til viðbótar og síðan 4. umferð 1 sinni til viðbótar, þ.e.a.s. þar til allar 7-8-8 fastalykkjur hvoru megin við 16-16-18 miðju fastalykkjur á hæl hafa verið heklaðar saman = 16-16-18 fastalykkjur alls í umferð. Klippið þráðinn og dragið í gegnum síðustu lykkjuna á heklunálinni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. FRÁGANGUR: Notið þunnan teygjanlegan þráð sem hægt er að sauma hringinn um fyrstu umferð á legg. Þannig helst formið betur á sokknum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður að tá. Að lokum er heklaður pífukantur á legg. SOKKAR: Heklið 75-80-85 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 2,5 með DROPS Fabel. Tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 1 stuðull í hverja af 3 næstu loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju, * 1 stuðull í hverja af 4 næstu loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 60-64-68 stuðlar. Heklið 5 umferðir til viðbótar með 1 stuðul í hvern stuðul. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið síðan hæll og fótur eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Heklið 1 fastalykkju í hvern af fyrstu 28-30-32 stuðlum í umferð = 28-30-32 hællykkjur. Nú eru fastalykkjur heklaðar fram og til baka yfir hællykkjur þar til hællinn mælist ca 6-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki í stykkið – stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki. Fækkið nú lykkjum fyrir hæl – sjá HÆLÚRTAKA. Eftir hælúrtöku er heklað þannig: Byrjið mitt undir fæti og festið þráðinn með 1 keðjulykkju mitt í 16-16-18 fastalykkjur frá hæl. Heklið 1 stuðul í hverja af 8-8-9 fastalykkjum á hæl, heklið 16-16-17 stuðla meðfram hlið á hæl, 1 stuðull í hvern af 32-34-36 stuðlum á fæti, 16-16-17 stuðlar meðfram hinni hlið á hæl og 1 stuðul í hverja af síðustu 8-8-9 fastalykkjum á hæl = 80-82-88 stuðlar í umferð. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 32-34-36 stuðla á fæti. Heklið síðan hringinn með stuðlum – JAFNFRAMT er fækkað um 1 stuðul hvoru megin við 32-34-36 stuðla á fæti – sjá ÚRTAKA, þ.e.a.s. heklið 2 síðustu stuðla á undan fyrra prjónamerki á fæti saman og heklið 2 fyrstu stuðla á eftir seinna prjónamerki á fæti saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 12-11-12 sinnum = 56-60-64 stuðlar. Heklið áfram þar til stykkið mælist 18-19-20 cm frá prjónamerki á hæl – mælt undir fæti. Nú eru eftir 4-5-6 cm að loknu máli, mátið e.t.v. sokkinn og heklið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern stuðul umferðina hringinn = 56-60-64 fastalykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fastalykkju í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 27-29-31 fastalykkjur á milli lykkja með prjónamerki bæði ofan á og undir fæti. Síðan er heklað í hring með fastalykkjum – JAFNFRAMT er fækkað um 2 fastalykkjur í hvorri hlið þannig: Heklið þar til 1 fastalykkja er eftir á undan fastalykkju með prjónamerki, heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan fastalykkjur með prjónamerki, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 fastalykkju í næstu fastalykkju og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni. Nú hefur fækkað um 2 fastalykkjur – endurtakið við næsta prjónamerki. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-5-7 sinnum í hvorri hlið og síðan í hverri umferð alls 8-6-5 sinnum í hvorri hlið = 16 fastalykkjur. Leggið stykkið saman tvöfalt fyrir tá og saumið saman opið mitt að framan. Klippið þráðinn og festið. Sokkurinn mælist ca 22-24-26 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Heklið annan sokk á sama hátt. PÍFUKANTUR: Byrjið mitt að aftan á legg með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í umferð, heklið A.1, heklið síðan A.2 hringinn á legg. Haldið svona áfram þar til A.1 og A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina. Klippið þráðinn og festið. FRÁGANGUR: Saumið inn eða þræðið teygjanlegan þráð í gegnum lykkjur í kringum stykki á legg, í fyrstu umferð frá byrjun á leggnum. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |