Shell Seeker Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er heklað neðan frá og upp með gatamynstri og kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 240-4 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir byrja með 1 loftlykkju. Þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu lykkju, heldur kemur sem viðbót. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. A.5/A.7 sýnir hvernig A.6 byrjar/endar á fram- og bakstykki í stærð M, L og XXXL. A.4/A.8 sýnir hvernig A.6 byrjar/endar á fram- og bakstykki í stærð S, XL og XXL. A.9 sýnir hálsmál á framstykkjum MÆLING: Öll mál sem vísað er í uppskrift eru tekin þegar stykkinu er haldið uppi. Það er vegna þess að mynstrið teygist þegar flíkin er mátuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er heklað fram og til baka, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkið heklað fram og til baka hvort fyrir sig að loknu máli. Ermarnar eru heklaðar fram og til baka, neðan frá og upp. Frágangur á stykkinu er útskýrður í uppskrift. Í lokin er heklaður kantur í kringum opið á peysunni og 4 snúrur til að hnýta við miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 202-242-242-282-282-322 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Belle. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju = 201-241-241-281-281-321 fastalykkjur + 1 loftlykkja – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 11 fastalykkjur, heklið A.2 alls 18-22-22-26-26-30 sinnum, heklið A.3 yfir síðustu 10 fastalykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar 2 fyrstu umferðir í (A) í A.1/A.2/A.3 hafa verið heklaðar 1 sinni á hæðina, heklið 4 umferðir í B alls 4 sinnum á hæðina, síðan er 4 umferðir í C heklaðar 1 sinni á hæðina. Þetta mynstur er nú tilbúið og stykkið mælist ca 18 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: STÆRÐ S, XL og XXL: Heklið A.4 yfir lykkjur í A.1, heklið A.6 alls 2-3-3 sinnum (passið uppá að mynstrið sé heklað rétt miðað við lykkjur í A.2), setjið 1 prjónamerki, heklið A.6 alls 5-7-7 sinnum, setjið 1 prjónamerki, heklið A.6 alls 2-3-3 sinnum (A.6 hefur nú verið heklað alls 9-13-13 sinnum og það er 1 prjónamerki í hvorri hlið á fram- og bakstykki), heklið A.8 yfir lykkjur í A.3. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. STÆRÐ M, L og XXXL: Heklið A.5, heklið A.6 alls 3-3-4 sinnum (passið uppá að mynstrið sé heklað rétt miðað við lykkjurnar í A.2), setjið 1 prjónamerki, heklið A.6 alls 6-6-8 sinnum, setjið 1 prjónamerki, heklið A.6 alls 3-3-4 sinnum (A.6 hefur nú verið heklað alls 12-12-16 sinnum og það er 1 prjónamerki í hvorri hlið á fram- og bakstykki), heklið A.7 yfir lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ALLAR STÆRÐIR: Þegar stykkið mælist ca 28-30-30-32-31-33 cm – lestu MÆLING og þú ert í umferð einungis með loftlykkjubogum og fastalykkjum, skiptið stykkinu við bæði prjónamerkin fyrir handveg og hvort stykki er heklað fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, en snúið við handveg þegar 3 loftlykkjubogar eru eftir við prjónamerki (handvegur = 6 loftlykkjubogar) = 12-15-15-18-18-21 loftlykkjubogar (byrjið og endið umferð eins og áður). Þegar stykkið mælist ca 38-40-41-43-44-46 cm, heklið loftlykkjuboga / fastalykkjur fram og til baka eins og áður yfir allar lykkjur, án þess að hekla kúlur. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg mitt að framan þannig: Byrjið frá röngu og heklið eins og áður yfir fyrstu 10-13-12-15-14-17 loftlykkjuboga eins og útskýrt er í A.9 (það eru 2-2-3-3-4-4 loftlykkjubogar eftir mitt að framan), snúið og heklið til baka (A.9 sýnir einungis stærð S, en úrtakan er alveg eins í öllum stærðum, þannig að heklið þann fjölda loftlykkjuboga sem stendur í þinni stærð og fylgið A.9 fyrir úrtöku fyrir hálsmáli). Þ.e.a.s. það er heklað yfir 1 loftlykkjuboga færri í lok annarrar hverrar umferðar við hálsmál alls 3 sinnum eins og útskýrt er í A.9 = 7-10-9-12-11-14 loftlykkjubogar eftir á öxl. Haldið áfram að hekla loftlykkjuboga þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm – munið eftir MÆLING. Klippið þráðinn og festið. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þegar fækka á lykkjum fyrir hálsmáli mitt að framan, byrjið frá réttu og heklið á sama hátt og hægra framstykki (fylgið A.9). BAKSTYKKI: Byrjið mynstrið 3 loftlykkjubogum á eftir prjónamerki í hlið, haldið áfram með A.6 fram og til baka eins og áður yfir næstu 24-30-30-36-36-42 loftlykkjuboga (byrjið og endið mynstrið eins og útskýrt er í A.5/A.7), snúið – það eru 3 loftlykkjubogar eftir við prjónamerki í hinni hliðinni. Þegar stykkið mælist ca 38-40-41-43-44-46 cm – stillið lengdina eftir framstykki, heklið loftlykkjuboga / fastalykkjur fram og til baka eins og áður yfir allar lykkjur, án þess að hekla kúlur. Þegar stykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm og næsta umferð er hekluð frá réttu – munið eftir MÆLING, heklið öxl þannig: Heklið fram og til baka eins og áður yfir fyrstu 7-10-9-12-11-14 loftlykkjuboga (byrjið og endið umferð með A.5/A.7 eins og áður). Klippið þráðinn og festið þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Snúið stykkinu, byrjið frá röngu og heklið öxl á sama hátt í hinni hlið á stykkinu (ekki er heklað yfir miðju 10-10-12-12-14-14 loftlykkjubogum = hálsmál). ERMI: Heklið 82-82-82-82-102-102 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Belle. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 81-81-81-81-101-101 fastalykkjur + 1 loftlykkja. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 11 fastalykkjur, heklið A.2 alls 6-6-6-6-8-8 sinnum, heklið A.3 yfir síðustu 10 fastalykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar 2 fyrstu umferðir í (A) í A.1/A.2/A.3 hafa verið heklaðar 1 sinni á hæðina, heklið 4 umferðir í B alls 2 sinnum á hæðina, síðan er 4 umferðir í C heklaðar 1 sinni á hæðina. Þetta mynstur er nú tilbúið og stykkið mælist ca 11 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.5, heklið A.6 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum (passið uppá að mynstrið sé heklað rétt miðað við lykkjurnar í A.2), heklið A.7 = 24-24-24-24-30-30 loftlykkjubogar. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. STÆRÐ S, M, XXL og XXXL: Þegar stykkið mælist ca 47-43-41-37 cm, heklið loftlykkjuboga / fastalykkjur fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að hekla kúlur. Heklið þar til ermin mælist 52-48-46-42 cm – munið eftir MÆLING. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. STÆRÐ L og XL: Þegar stykkið mælist 14 cm, aukið út um 1 loftlykkjuboga yst í annarri hlið á stykki með því að hekla 1 loftlykkjuboga + 1 fastalykkju aukalega í fyrsta bogann í umferð. Endurtakið útaukningu í síðasta boganum í umferð þegar stykkið mælist ca 28 cm = 26-26 loftlykkjubogar í umferð. Þegar stykkið mælist ca 44-40 cm, heklið loftlykkjuboga / fastalykkjur fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að hekla kúlur. Heklið þar til ermin mælist 49-45 cm – munið eftir MÆLING. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Leggið framstykkið að bakstykki með röngu á móti röngu og heklið aðra öxlina á framstykki saman með samsvarandi öxl á bakstykki þannig: * 1 fastalykkja um fyrsta / næsta loftlykkjuboga á framstykki, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um fyrsta / næsta loftlykkjuboga á bakstykki, 1 loftlykkja *, heklið frá *-* meðfram allri öxlinni, endið með 1 fastalykkju í síðustu lykkju. Klippið frá og festið. Heklið hina öxlina saman á sama hátt. Heklið ermarnar saman frá neðri kanti þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju í annarri hliðinni á ermi, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fyrstu lykkju í hinni hliðinni á ermi, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju í annarri hliðinni á ermi, 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju á hinni hliðinni á ermi *, heklið frá *-* þar til ca 5 cm eru eftir efst á erminni. Klippið þráðinn og festið. Heklið niður ermakúpuna við handveginn alveg eins og ermin var hekluð saman, þ.e.a.s. * 1 fastalykkja um fyrsta / næsta loftlykkjuboga á framstykki / bakstykki, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta / næsta loftlykkjuboga á ermakúpu, 2 loftlykkjur *, heklið frá *-* meðfram allri ermakúpunni / handvegi. Síðan er klaufin hekluð efst á erminni niður við botninn á handvegi alveg eins – sjá teikningu. KANTUR MEÐFRAM OPI Á PEYSU: Byrjið frá réttu neðst í hægra framstykki, heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1½ cm, 1 fastalykkja um næstu lykkju / loftlykkjubogi *, heklið frá *-* upp meðfram framstykki, í kringum hálsmálið og niður meðfram vinstra framstykki. Klippið þráðinn og festið. SNÚRA: Heklið loftlykkjuröð ca 60 cm. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum lykkjuna og hnýtið hnút í hvorn enda á snúrunni. Heklið 3 snúrur til viðbótar á sama hátt. Leggið snúruna saman tvöfalda – þræðið lykkjuna í gegnum ysta loftlykkjubogann mitt framan í hálsmáli, efst í hægra framstykki, þræðið endana í gegnum lykkjuna og herðið að. Festið aðra snúru á sama hátt ca 10 til 12 cm fyrir neðan þessa. Festið 2 snúrur á sama hátt í vinstra framstykki. Notið snúrurnar til að hnýta peysuna saman. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Leanne wrote:
Hi. When I started working the armhole I ended each right side row with a dbl, chain, single and each back side row with chain 6 (continuance of body end rows) but then one panel has dbl, chain, single on side I should be doing decrease on. Should I be doing chain 6 on both sides of front panels? \r\nThanks, Leanne
23.05.2024 - 19:44DROPS Design answered:
Dear Leanne, the rows end and start as before, ie end towards armhole end with 1 single crochet (US-English) / double crochet (UK-English) in the last chain-space, then turn and start with 6 chains just as before and continue working pattern as before. Happy crocheting!
24.05.2024 - 07:48Marianne Kenny wrote:
I’m not sure about the crochet information does every row start with a chain stitch or just the first two rows? Regards Marianne
02.03.2024 - 04:44DROPS Design answered:
Dear Marianne, all rows start with a chain stitch, which is used to turn the piece as you work back and forth. Happy crochetting!
03.03.2024 - 19:37Tracey wrote:
I am starting row 8 of A.8 I have completed the Turing chain and chained 4. Where does the first 1 single chain around chain space go? Is it around the chain space between the first and second bobble stitch? Then chain 5 and complete the second single crochet around the chain space between the 4 th and 5 th bobble stitch? Or is the symbol a 1 single crochet in bobble stitch?
21.02.2024 - 18:28DROPS Design answered:
Dear Tracey, the single crochets should be worked around the chain stitches, ie edit in the 1st and in the 4th ch-space, ie between 1st and 2nd boble + between 4th and 5th boble. Happy crocheting!
22.02.2024 - 08:52Leslie wrote:
Working on the body, i am starting row 1 of A.4, A.6 and A.8. This row indicates T symbol which is a single crochet in stitch but I am unsure which stitch to do the single crochet into as the pattern indicates an empty space below and is unclear.
17.02.2024 - 01:59DROPS Design answered:
Dear Leslie, the row with only T symbols is the row that has already been worked (see charts A.1, A.2 and A.3 and the black asterisk at the beginning of the rows). You start the new charts with the chain spaces over the single crochet row. Happy crochetting!
18.02.2024 - 22:16Leslie wrote:
I am working on the swatch gauge A2. Only one side of the pattern shows what to do when finished one row and turning to start the next. Start with chain 10 , row 1 - single crochet across. Row 3 left side of pattern reads a single crochet , ch 3 dc, ch 2, dc chain 3 then it repeat until end of row. Now what do I do to turn to start next row?
05.01.2024 - 22:55DROPS Design answered:
Dear Leslie, remember that you don't work just A.2. You work A.1, A.2 and A.3 together. A.1 shows the beginning of the rows from the right side and A.3 the beginning of the rows from the wrong side. A.2 is the middle repeat, so there are no starting/finishing stitches in it. Row 4 begins with 1 chain stitch and 1 chain stitch for the pattern. Happy crocheting!
07.01.2024 - 23:55Leslie wrote:
I am planning on making this in a large but am concerned the sleeves will be too long as the sleeve will stretch. How can I shorten the sleeve length while remaining it to fit into the large armhole?
31.12.2023 - 15:06DROPS Design answered:
Dear Leslie, if your tension is right the sleeve should fit perfectly the armholes. You can also try on the jacket and adjust the length if needed. Happy crocheting!
02.01.2024 - 11:03Iseult Holman wrote:
Liebes Drops-Team Erst einmal Kompliment, dieser Cardigan ist wunderschön gearbeitet! Ich habe eine Frage zu A.2: Wird in der Reihe nach den Noppen (bspw. 6) das Stäbchen (in der Reihe der Noppen) einfach übersprungen? D.h. nach der letzten festen Masche um den Luftmaschenbogen einer Noppe wird das Stäbchen darunter übersprungen und gleich eine feste Masche um den nächsten Luftmaschenbogen der nächsten Noppe gehäkelt? Besten Dank und herzliche Grüsse Iseult Holman
14.07.2023 - 06:56DROPS Design answered:
Liebe Frau Holman, ja genau, dieses Stäbchen wird übersprungen. Viel Spaß beim häkeln!
27.07.2023 - 10:44Alyssa wrote:
I’ve just begun this project. My gauge is 18 stitches per 10 cm. I cast on 202 stitches and my starting piece is now 45 inches long…. Which makes sense with the math but not with the provided measurements of this garment. It’s way too big. Am I doing something wrong or are these numbers wrong? Thank you! Alyssa
06.07.2023 - 20:40Elsa wrote:
Werden in der Reihe nach den Noppen zwischen A1 und A2 und A2 und A3 wirklich keine Luftmaschen gearbeitet. Es müssen immerhin 3 Maschen von der darunter liegenden Noppenreihe überbrückt werden. Die letzte feste Masche in A1 ist zwischen Noppe 4 und Noppe 5 und dann ohne Luftmaschen weiter zwischen Noppe 1 und 2? Danke!
01.07.2023 - 22:16DROPS Design answered:
Liebe Elsa, ja ganz genau so soll man diese Reihe häkeln. Viel Spaß beim häkeln!
03.07.2023 - 10:21Stachnick wrote:
Bonjour Mon échantillon de 2X A2 mesure : 11 cm . J 'utilise un crochet 3,5 et le fil belle comme indiqué. Du coup mon ouvrage sera beaucoup trop grand. J'ai recommencé plusieurs fois et mon échantillon est toujours trop grand ? Que puis je faire ? Merci Cordialement
14.06.2023 - 22:45DROPS Design answered:
Bonjour Mme Stachnick, avez-vous essayé avec un crochet plus petit? 3 ou même 2,5 si besoin? N'hésitez pas à bloquer votre échantillon pour vérifier si vous avez bien la taille finale. Bon crochet!
15.06.2023 - 09:14