Jewels Tide Cardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri, röndum og klauf í hliðum. Stærð S – XXXL.
DROPS 239-21 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á öllum umferðum með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 stuðli í 3. eða 2. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð (eftir því hvort fyrri umferð byrjaði með 3 eða 2 loftlykkjum). Í byrjun á öllum umferðum með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 fastalykkju í 3. eða 2. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA (á við um ermar): Lykkjum er fækkað í umferð með stuðlum. Fækkið um 1 lykkju innan við 2 ystu lykkjurnar í hvorri hlið. Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman, þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn og dragið í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 stuðull færri). RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið með litnum perla þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm. Heklið síðan rendur þannig: Heklið 5 umferðir með litnum perla með 1. umferð frá röngu, heklið 1 umferð með litnum ljós gallabuxnablár (umferð með litnum ljós gallabuxnablár er alltaf hekluð frá réttu). Endurtakið þessar 6 umferðir að loknu máli. Til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá í litnum perla í hvert skipti sem heklað er með litnum ljós gallabuxnablár er heklað þannig: Þegar heklað er með litnum ljós gallabuxnablár er þráðurinn með litnum perla lagður yfir lykkjurnar frá fyrri umferð, það er heklað utan um þráðinn þannig að hann sést ekki og fylgir með yfir umferðina. RENDUR ERMI: Það eru heklaðar rendur þannig: Heklið 5 umferðir með litnum perla með 1. Umferð frá röngu, heklið 1 umferð með litnum ljós gallabuxnablár (umferð með litnum ljós gallabuxnablár er alltaf hekluð frá réttu). Endurtakið þessar 6 umferðir að loknu máli. Til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá í litnum perla í hvert skipti sem heklað er með litnum ljós gallabuxnablár er heklað þannig: Þegar heklað er með litnum ljós gallabuxnablár er þráðurinn með litnum perla lagður yfir lykkjurnar frá fyrri umferð, það er heklað utan um þráðinn þannig að hann sést ekki og fylgir með yfir umferðina. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkin og bakstykkið er heklað fram og til baka í stykkjum, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður. Stykkið er saumað saman áður en kantur í hálsmáli er heklaður í lokin. Peysan er hekluð í röndum. HÆGRA FRAMSTYKKI: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 23-23-23-29-29-35 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Muskat í litnum perla. Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 21-21-21-27-27-33 stuðlar í umferð. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul. Það eru heklaðar RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1A (= 2 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 12-12-12-18-18-24 lykkjur, endið með A.1C. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til A.1 hefur verið heklað til loka. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka, heklið með A.2A, A.2B þar til 7 lykkjur eru eftir, heklið A.2C. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram með A.2 þar til stykkið mælist 10-11-12-13-14-15 cm, í lok næstu umferða frá réttu, heklið 20-26-26-20-26-26 lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli. Síðan er heklað þannig (frá röngu): Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 16-22-22-16-22-22 loftlykkjum, A.2C, A.2B þar til 2 stuðlar eru eftir, heklið A.2A. Heklið síðan þannig (séð frá réttu): A.2A, A.2B þar til 7 stuðlar eru eftir, heklið A.2C = 39-45-45-45-51-57 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. A.2 er endurtekið á hæðina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-19-19-20-22-22 cm, heklið 8 nýjar loftlykkjur í lok næstu umferðar frá röngu fyrir handveg. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 4 nýju loftlykkjum, heklið út umferðina eins og áður = 45-51-51-51-57-63 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en nú er hekluð 1 mynstureining fleiri af A.2B á breiddina. Heklið áfram eins og útskýrt er að ofan þar til stykkið mælist ca 43-45-47-49-51-53 cm. Heklið að lokum 1 umferð með stuðlum. Klippið þræðina og festið. Framstykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið 23-23-23-29-29-35 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Muskat í litnum perla. Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 21-21-21-27-27-33 stuðla í umferð. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1A (= 2 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 12-12-12-18-18-24 lykkjur, endið með A.1C. haldið svona áfram með mynstur þar til A.1 hefur verið heklað til loka. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka, heklið með A.2A, A.2B þar til 7 lykkjur eru eftir, heklið A.2C. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram með A.2 þar til stykkið mælist 10-11-12-13-14-15 cm, í lok næstu umferðar frá röngu, heklið 20-26-26-20-26-26 lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli. Síðan er heklað þannig (frá réttu): Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 16-22-22-16-22-22 loftlykkjum, A.2A eins og áður, A.2B þar til 7 lykkjur eru eftir, heklið A.2C. Síðan er heklað þannig: A.2C, A.2B þar til 2 lykkjur eru eftir, heklið A.2A = 39-45-45-45-51-57 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. A.2 er endurtekið á hæðina. Það eru heklaðar rendur eins og á hægra framstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-19-19-20-22-22 cm, heklið 8 nýjar loftlykkjur í lok næstu umferðar frá réttu fyrir handveg. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 4 nýju loftlykkjum, heklið út umferðina eins og áður = 45-51-51-51-57-63 stuðlar í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en nú er hekluð 1 mynstureining fleiri af A.2B. Heklið áfram eins og útskýrt er að ofan þar til stykkið mælist ca 43-45-47-49-51-53 cm. Heklið að lokum 1 umferð með stuðlum. Klippið þræðina og festið. Framstykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið 23-23-23-29-29-35 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Muskat í litnum perla. Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 21-21-21-27-27-33 stuðlar í umferð. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul. Geymið stykkið og heklið hægri öxl að aftan eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið 23-23-23-29-29-35 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Muskat í litnum perla. Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 21-21-21-27-27-33 stuðlar í umferð. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul. Í lok þessarar umferðar eru heklaðar 27-33-33-27-33-33 aðeins lausar loftlykkjur fyrir hálsmáli. Festið loftlykkjuröðina með 1 keðjulykkju í ystu lykkju við hálsmál á vinstri öxl að aftan (frá röngu). Klippið þráðinn og festið. Nú eru stykkin sett saman fyrir bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Það eru heklaðar rendur eins og á framstykkjum. BAKSTYKKI: Byrjið frá réttu með vinstri öxl að aftan, heklið síðan yfir loftlykkjur fyrir hálsmáli og síðan yfir lykkjur á hægri öxl að aftan þannig: Heklið A.1A, heklið A.1B yfir næstu 60-66-66-72-78-90 lykkjur og endið með A.1C = 69-75-75-81-87-99 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, heklið þannig: Heklið A.2A, heklið A.2B yfir næstu 60-66-66-72-78-90 lykkjur og endið með A.2C. A.2 er endurtekið á hæðina. Fyrsta stuðli er skipt út fyrir 3 loftlykkjur eins og áður. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-19-19-20-22-22 cm, heklið 8 nýjar loftlykkjur í lok næstu umferðar fyrir handveg. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 4 nýjum loftlykkjum, heklið út umferðina eins og áður, heklið 8 nýjar loftlykkjur í lok næstu umferðar fyrir handveg. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 4 nýjum loftlykkjum, heklið út umferðina eins og áður = 81-87-87-93-99-111 stuðlar í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en nú eru heklar 2 mynstureiningar fleiri af A.2B. Heklið áfram eins og útskýrt er að ofan þar til stykkið mælist ca 43-45-47-49-51-53 cm. Heklið að lokum 1 umferð með stuðlum. Klippið þræðina og festið. Bakstykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. ERMI: Heklið 65-65-65-71-77-77 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum perla. Fyrsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 63-63-63-69-75-75 stuðlar í umferð. Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: 4 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli + 1 loftlykkja), hoppið yfir 2 stuðla, * 2 stuðlar á undan næsta stuðli (heklast á milli stuðla), 1 loftlykkja, hoppið yfir 3 stuðla *, heklið frá *-* þar til 3 stuðlar eru eftir í umferð, heklið 2 stuðla á unda næsta stuðli, 1 loftlykkja, hoppið yfir 2 stuðla og endið með 1 stuðul í síðasta stuðul = 63-63-63-69-75-75 lykkjur í umferð. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.2A, heklið A.2B yfir næstu 54-54-54-60-66-66 lykkjur og endið með A.2C. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. A.2 er endurtekið á hæðina. Heklið RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm í öllum stærðum er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með ca 6-6-6-5-4½-4½ cm millibili alls 8-8-8-9-11-10 sinnum í hvorri hlið = 47-47-47-51-53-55 lykkjur í umferð. Klippið þræðina og festið þegar ermin mælist 55-55-56-55-54-52 cm ofan frá og niður. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana. Saumið saman ermasauminn, en skiljið eftir klauf ca 4 cm efst á ermi. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma, saumið kant í kant í ystu lykkjuna, en endið sauminn þegar eftir eru ca 10 cm fyrir klauf í hvorri hlið. Saumið tölu efst í hálsmál á vinstra framstykki, tölunni er hneppt í gegnum gat í mynstri á hægra framstykki. KANTUR: Byrjið neðst í hægra framstykki og heklið með heklunál 4 með litnum perla þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð/loftlykkjubogi *, heklið frá *-* í kringum allt opið á peysunni. Klippið þráðinn og festið. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (15)
Petra wrote:
Hallo, ich finde die Anleitung sehr umständlich und kompliziert, sehr schlechte Anleitung
01.06.2024 - 23:44Saga wrote:
Hi, I am trying to make this jacket, but I am not understanding the diagram. When I get further down on the A.1B and A.1C there are to many stiches in one round. What does this mean?
28.05.2024 - 20:23DROPS Design answered:
Dear Saga, you can try to add markers between each repeat to make sure you are keeping the same number of stitches as in diagram, each A.1B should be worked over 6 sts; and A.1C over 7 sts. Happy crocheting!
29.05.2024 - 07:59Marian wrote:
Ik vind het patroon zo moeilijk om te lezen kan ik het ook op een andere manier maken ik kan het wel lezen als het geschreven staat maar die telpatronen zijn voor mij ben echt wel een haakster maar deze heb ik altijd moeite mee en ik vind ze allemaal bijna even mooi om te maken
14.05.2024 - 10:42DROPS Design answered:
Dag Marian,
Helaas hebben we de telpatronen niet uitgeschreven. Heb je de uitleg over hoe je een telpatroon voor haken leest, gelezen?
15.05.2024 - 19:08Elaine W wrote:
I cannot quite figure out the back. Size L, 21 tr each side then 33 ch and I get more stitches than the total on row 1 of A1A,A1B and A1C. Maybe I am missing something obvious
03.05.2024 - 21:49DROPS Design answered:
Dear Elaine, if you count the stitches when you make the back neck, you will have 21 (one shoulder) + 33 (neckline) +21 (other shoulder) = 75 stitches. Please see, that A.1A is 2 stitches, A.1B is 6 while A.1C is 7 (SEVEN) stitches. So when you start the back then you work A.1A (2 stitches), then A.1.B on 66 stitches and A.1C on 7 stitches , so 2+66+7 = 75 stitches. I hope this helps. Happy Crafting!
04.05.2024 - 09:11Britta wrote:
Drogs 239-21 När jag virkar framstycken så ska man utöka med 20 maskor för hals och sedan virka 18 stolpar i de 20 maskorna. Min fråga är om det ska stämma med mönsterdiagrammen A2c osv. Jag får det inte att stämma med mönstret i övrigt
13.02.2024 - 10:49DROPS Design answered:
Hej Britta, jo mønsteret skal stemme, du hækler de 3 masker i rapporten 6 gange over de nye 18 masker :)
23.02.2024 - 10:51Iseult wrote:
Liebe Drops-Team, wunderschönes Jäckchen, bitte weiter so bei den Häkelanleitungen! Allerdings verstehe ich die Längenangabe "ab der Schulter" nicht ganz: Damit ich bei der Gesamtlänge auf 54 cm komme, müsste das Vorderteil ab dem Halsausschnitt (und nicht ab der Schulter, wie es in der Anleitung steht?) schlussendlich 44 cm messen. Stimmt das so?
11.01.2024 - 15:19Yvonne wrote:
Hallo, waarschijnlijk doe ik iets fout, maar snap niet wat. Blijf scheef uitkomen bij de hals v.h.voorpand. R. Voorpand. L.voorpand Recht +26 lossen. Recht Averecht averecht + 26 lossen Dit sluit niet aan op elkaar, wat doe ik fout? Vr.gr. Yvonne
19.04.2023 - 11:07DROPS Design answered:
Dag Yvonne,
Na het haken van de 26 lossen keer je het werk en haak je een stokje in de 4e losse van de haaknaald. Dan haak je 1 stokje in elk van de volgende 22 lossen en dan pak je het telpatroon weer op.
27.04.2023 - 08:29Yvonne wrote:
Hallo, als ik bij het linker voorpand moet meerderen voor de hals aan de verkeerde kant kom ik een toer lager uit als bij het rechter voorpand. Vr.gr. Yvonne
16.04.2023 - 09:44DROPS Design answered:
Dag Yvonne,
Je haakt de voorpanden precies op dezelfde manier, alleen bij het rechter voorpand ben je op de goede kant wanneer je lossen haakt voor de hals en bij het linker voorpand ben je op de verkeerde kant als je lossen haakt voor de hals. Je bent dus dan wel op dezelfde toer.
17.04.2023 - 20:59Yvonne wrote:
Als ik patroon a2 verder haak tot een bepaalde lengte, hoe tel ik dan de toeren. Ik begin de 1ste toer op de rechte kant en eindig met de laatste toer ook op de rechte kant (zijn 17 toeren) hoe begin ik het patroon in de volgende toer? Volgens het patroon zou ik weer op de rechte kant moeten beginnen maar ik zit dan weer op de averechtse kant. Vr.gr. Yvonne
02.04.2023 - 12:57DROPS Design answered:
Dag Yvonne,
Je begint A.2 weer opnieuw vanaf de eerste toer en het eerste stokje wordt vervangen door 3 lossen. Aan het eind haak je 1 stokje. Het maakt daarbij niet uit of je aan de goede of de verkeerde kant bent.
05.04.2023 - 10:06Julia wrote:
Al terminar la secuencia A2, se vuelve a comenzar por la primera fila? Si es así donde se hacen los puntos alto que no van envueltos?
28.03.2023 - 11:25DROPS Design answered:
Hola Julia, sí, se comienza en la primera fila de nuevo. El primer punto alto alrededor del arco de cadeneta se trabaja en la primera cadeneta (arco de 1 cadeneta) y el segundo punto alto alrededor del arco se trabaja en la tercera cadeneta (en una repetición hay 3 arcos de 1 cadeneta).
02.04.2023 - 16:15