Frosted Mountains Sweater |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris eða DROPS Bomull-Lin. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 240-16 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsmál þegar fækka á um 1 lykkju): Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 2 lykkjur í sléttprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 2 LYKKJUM Í SLÉTTPRJÓNI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 2 LYKKJUM Í SLÉTTPRJÓNI ÞANNIG: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir við miðju að framan, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 síðustu lykkjur í sléttprjóni (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur eins og áður (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að ermakúpu, síðan er afgangur af ermi prjónað fram og til baka á hringprjóna að loknu máli. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 94-98-110-122-134-138 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Paris eða DROPS Bomull-Lin. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff þannig: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5, prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt því sem fækkað er um 10-8-10-12-14-12 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 84-90-100-110-120-126 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 7-8-10-10-10-11 cm frá uppfitjunarkanti. Síðan er mynstrið prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í síðustu umferð í A.1 er fækkað um 1-0-1-1-1-1 lykkju innan við 1 lykkju í garðaprjóni = 83-90-99-109-119-125 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið áfram frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 0-0-0-1-2-1 lykkja sem fyrsta lykkja í A.2, prjónið A.2 alls 10-11-12-13-14-15 sinnum, prjónið 1-0-1-2-3-2 lykkjur eins og síðasta lykkja í A.2 og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 0-0-2-1-0-0 lykkjur sléttprjón, A.3A, prjónið A.3B alls 12-13-14-16-18-19 sinnum, A.3C, prjónið 0-1-2-1-0-0 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt því sem aukið er út um 1-0-1-1-1-1 lykkju í fyrstu umferð innan við 1 lykkju í garðaprjóni = 84-90-100-110-120-126 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina mælist stykkið ca 26-27-29-30-30-31 cm. Síðan er A.2 prjónað eins og útskýrt er hér jafnframt því sem fækkað er um 1-0-1-1-1-1 lykkju í fyrstu umferð = 83-90-99-109-119-125 lykkjur. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 0-0-0-1-2-1 lykkjur eins og fyrsta lykkja í A.2, prjónið A.2 alls 10-11-12-13-14-15 sinnum, prjónið 1-0-1-2-3-2 lykkjur eins og síðasta lykkja í A.2 og 1 kantlykkja í garðaprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af 2-3-7-9-12-11 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 79-84-85-91-95-103 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-0-1-4-1-0 lykkjur eins og fyrsta lykkjan í A.4A, A.4A, prjónið A.4B alls 6-7-7-7-8-9 sinnum, prjónið A.4C, 3-1-1-4-1-0 lykkjur eins og síðasta lykkjan í A.4C og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.5 prjónað með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Endurtakið A.5 alls 2 sinnum á hæðina. Síðan er stykkið prjónað til loka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram. HÁLSMÁL: Fellið af miðju 21-22-23-25-25-27 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Síðan er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 3 sinnum – sjá ÚRTAKA. SKÁHALLANDI ÖXL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til þess að þurfa ekki að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 7-7-7-8-8-9 lykkjur á þráðinn 3 sinnum og setjið síðan síðustu 5-7-7-6-8-8 lykkjur á þráðinn. Allar lykkjur hafa nú verið felldar af eða settar á þráðinn. Setjið til baka þær 26-28-28-30-32-35 lykkjur af þræði á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en til að sleppa við göt þar sem snúið er mitt í stykki, sækið þráðinn upp á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstra prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti efst á öxl. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm = 79-84-85-91-95-103 lykkjur (sjá undir bakstykki hvernig lykkjur eru jafnaðar út til að mynstrið komi til með að ganga jafnt upp). YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli og lykkjur eru settar á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram. HÁLSMÁL: Setjið miðju 19-20-21-23-23-25 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Síðan er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum – sjá ÚRTAKA. SKÁHALLANDI ÖXL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið ystu lykkjurnar við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl alveg eins og á bakstykki. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af eða settar á þráðinn, setjið til baka þær 26-28-28-30-32-35 lykkjur af þræði á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu alveg eins og á bakstykki og fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti efst á öxl. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 56-56-60-60-64-64 lykkjur á sokkaprjón 4 með DROPS Paris eða DROPS Bomull-Lin. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 11-9-11-9-11-9 lykkjur jafnt yfir = 45-47-49-51-53-55 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í 23.-24.-25.-26.-27.-28. lykkju í umferð (mitt á ermi). Prjónamerkið mitt undir ermi er notað þegar auka á út lykkjum undir ermi og prjónamerki mitt á ermi er notað til að telja út hvar mynstrið á að byrja. Nú er mynstrið prjónað og lykkjur auknar út eins og útskýrt er að neðan: Teljið út frá miðjulykkju hvar mynstrið á að byrja – lykkjan með prjónamerki á ermi á að passa við miðjulykkju í mynsturteikningu. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri, eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið mynstur þannig: A.1, A.2, A.4B, A.5. Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka í þessari röð, er prjónað sléttprjón að lokna máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-12-12-13-14-12 cm, er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-4-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 8-9-9-10-11-12 sinnum = 61-65-67-71-75-79 lykkjur (þessi útaukning er gerð til loka áður en ermakúpan er prjónuð). Þegar stykkið mælist ca 47-46-44-42-41-42 cm, skiptið stykkinu við prjónamerki og ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Fellið af þegar ermin mælist 48 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana. Saumið ermakúpuna við handveg innan við ystu lykkju á framstykki/bakstykki. Síðan er klaufin saumuð efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsaumana innan við 1 kantlykkju – byrjið við handveg og saumið niður að stroff þannig að það verði klauf í hliðum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp ca 76 til 88 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur sem settar voru á þráð mitt að framan) á stuttan hringprjón 4 með DROPS Paris eða DROPS Bomull-Lin. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Mevr Mullenders wrote:
A.1 bedoel ik bij onderstaande vraag
06.09.2023 - 16:44DROPS Design answered:
Dag Mevr Mullenders,
Het model op de foto heeft de kleinste maat aan en in de kleinste maat brei je nog 1 cm in tricotsteek na de boord, dus dat valt niet zo op op de foto. Bij de grotere maten is dat wat meer.
07.09.2023 - 19:40Mevr Mullenders wrote:
Volgens beschrijving komt na de boord 4cm tricotsteek totdat het werk 10cm is. Maar als ik de fotobekijk, is gelijk met A.2 begonnen? graag opheldering
06.09.2023 - 13:34Louise Fagerlund wrote:
Hur skall ärmkullen stickas? I beskrivningen står endast " När arbetet mäter ca 47-46-44-42-41-42 cm, delas arbetet vid markören och ärmkullen stickas fram och tillbaka på rundsticka. Maska av när ärmen mäter 48 cm i alla storlekar. Sticka den andra ärmen på samma sätt." Här menas antagligen markören mitt på arbetet? Skall ärmkullen stickas rak (utan minskningar) mellan de båda markörerna eller vad menas?
27.08.2023 - 09:54DROPS Design answered:
Arbetet delas för ärmkullen vid märktråden som finns mitt under ärmen. Sedan stickas ärmkullen fram och tillbaka utan minskningar tills ärmen mäter 48 cm.
18.09.2023 - 17:19Jacqueline Schwarzenberger wrote:
Hallo.ich muss jetzt Mal fragen.ich bin jetzt beim ärmel. die Mittelmasche des Ärmels soll mit der Mittelmasche des Diagramms übereinstimmen.Nur ist das Diagramm eine gerade Maschenzahl,da gibt es ja keine Mittelmasche,sondern nur 2. Die Ärmelmaschen sind aber nun Mal ungerade laut Anleitung.Wie wird es jetz da bitte aufgeteilt?? Wenn es die Mittelmasche vom Diagramm sein soll. Es aber keine gibt.weil gerade Zahl an maschen.Es bleibt ja nun irgendwo eine übrig. Vielen lieben Dank.lg
06.08.2023 - 16:31DROPS Design answered:
Liebe Frau Schwarzenberger, ein Markierer wird in der 23.-24.-25.-26.-27.-28. Masche der Runde angebracht, diese Masche soll die mittlere Masche sein, die mit dem Sternchen im Diagram. Die übrigen Maschen, die unter der Ärmel nicht im Muster gestrickt werden könnnen, werden dann einfach nur glatt rechts gestrickt, so werden so viele Maschen wie möglich mit Muster gestrickt. Vielleicht kann Ihnen damit diese Lektion helfen. Viel Spaß beim stricken!
07.08.2023 - 10:58Andrea wrote:
Vielen dank. jetzt hat es geklappt.
17.05.2023 - 17:31Andrea wrote:
Hallo. wie stricke ich A.? (grösse m rückenteil) Rdm 0 m 13x 3A, 3B und 1x 3C, 1 m, rdm ?oder 1x 3A. 13x 3B. 1x 3C gehts sich sonst mit der maschenanzahl nicht aus. vielen dank
17.05.2023 - 13:17DROPS Design answered:
Liebe Andrea, meinen Sie A.3, richtig? Dann stricken Sie so in M beim Rückenteil: 1 Randmasche, A.3A (= 4 Maschen), A.3B (= 6 Maschen) 13 Mal (= über die nächsten 78 Maschen) , A.3C (5 Maschen), 1 Masche glatt rechts, 1 Randmasche (= 1+4+78+5+1+1=90 Maschen). Viel Spaß beim stricken!
17.05.2023 - 15:50Nayfher wrote:
Por más que leo la parte de los hombros europeos no logró en tenderlo
07.03.2023 - 23:34DROPS Design answered:
Hola Nayfher, primero, pasas los pts a un gancho auxiliar, por tramos, como se indica en el patrón para tu talla. Puedes ver el siguiente vídeo: https://www.garnstudio.com/video.php?id=301&lang=es sobre cómo pasar los puntos al gancho auxiliar. Es similar a cuando trabajas filas acortadas. Después de pasar todos los puntos al gancho auxiliar como se explica, pasarlos de vuelta a la aguja (todos a la vez) y trabajar 1 fila de revés. Después, cerrar de derecho.
12.03.2023 - 17:48Rita wrote:
Beach at dawn
22.01.2023 - 09:45MELB wrote:
Johnne
19.01.2023 - 03:12Marta wrote:
Clear Skies
18.01.2023 - 16:26