Daisy Daze Bag |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð taska úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris. Stykkið er heklað með ferningum, stuðlum og fastalykkjum.
DROPS 238-12 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull/tvíbrugðinn stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um sjálfa töskuna, ekki ferningana): Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja og umferðin endar með 1 keðjulykkju í þessa loftlykkju. Þessi loftlykkja kemur EKKI í stað fyrstu fastalykkju, heldur kemur sem viðbót. Snúið stykkinu á eftir keðjulykkjuna og heklið næstu umferð frá réttu. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Þessar 3 loftlykkjur koma EKKI í stað fyrsta stuðul, heldur koma sem viðbót. Snúið stykkinu eftir keðjulykkjuna og alla næstu umferð frá röngu. Þegar heklað er fram og til baka á hliðarstykkjum og axlarólinni, er fyrsta stuðli skipt út í umferð með 3 loftlykkjum og fyrstu fastalykkju í umferð með 1 loftlykkju. ÚRTAKA-1: Fækkið um 2 stuðla með því að hekla 3 stuðla saman þannig: Byrjið 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki, heklið 1 stuðul í lykkjuna á undan lykkju með prjónamerki, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í lykkjuna með prjónamerki, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (= 2 stuðlar færri). Færið prjónamerkið efst á þessa lykkju. ÚRTAKA-2: Fækkið um 2 stuðla með því að hekla 3 stuðla saman þannig: Í BYRJUN UMFERÐAR: Heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, síðan eru heklaðir 3 stuðlar saman þannig: Heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni. Í LOK UMFERÐAR: Heklið þar til 4 stuðlar eru eftir í umferð, heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni, heklið 1 stuðul í síðasta stuðul. ÚRTAKA-3: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Í BYRJUN UMFERÐAR: Heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, síðan eru heklaðir 2 stuðlar saman þannig: Heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. Í LOK UMFERÐAR: Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir, heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni, heklið 1 stuðul í síðasta stuðul. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í byrjun eru heklaðir 6 ferningar. Þessir ferningar eru saumaðir saman í eina lengju. Síðan er heklað hringinn meðfram öðrum kantinum á lengjunni, niður að botni á töskunni samtímis sem lykkjum er fækkað til að gera botn. Taskan er saumuð saman fyrir miðju að neðan. Síðan er heklað hringinn meðfram hinum kantinum á lengjunni, uppá við að axlarólinni. Hliðarstykkin eru formuð á töskuna. Í annarri hliðinni heldur hliðarstykkið áfram og verður að axlaról. Axlarólin er saumuð niður í gagnstæða hlið á töskunni. FERNINGUR: Heklið 4 loftlykkjur - sjá LOFTLYKKJA að ofan - með heklunál 4 með litnum natur í DROPS Bomull-Lin eða litnum natur í DROPS Paris og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið MYNSTUR hringinn – sjá útskýringu að ofan (umferð 1 og 3 er heklað með litnum natur DROPS Bomull-Lin eða litnum natur DROPS Paris, umferð 2, 4 og 5 er heklað með litnum sandur DROPS Bomull-Lin eða litnum hveiti DROPS Paris). Klippið þræðina og festið þegar A.1 hefur verið heklað til loka. Heklið alls 6 alveg eins ferninga. Síðan eru ferningarnir saumaðir saman tveir og tveir í langa lengju – saumið með litnum sandur/hveiti og passið uppá að byrjun umferðar á hverjum ferningi snúi í sömu átt og sé falin í saum. Að lokum er fyrsti og síðasti ferningurinn saumaður saman þannig að það myndast hringur. NEÐRI HLUTI: Nú er heklað í kringum kantinn meðfram annarri hlið á lengjunni með heklunál 4 með litnum sandur í Bomull-Lin eða litnum hveiti í DROPS Paris. Byrjið frá réttu með 1 keðjulykkju um loftlykkjuboga í horni á einum ferningi í hlið á töskunni, heklið 3 loftlykkjur, heklið síðan 1 stuðul í hverja fastalykkju frá síðustu umferð á ferningum og 1 stuðul um hvern loftlykkjuboga í horni á ferningum = 22 stuðlar meðfram hverjum ferningi = 132 stuðlar + 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið til skiptis 1 umferð fastalykkjur frá röngu og 1 umferð stuðla frá réttu með 1 lykkjur í hverja lykkju frá fyrri umferð. Þegar heklaðir hafa verið 7 cm með stuðlum og fastalykkjum eftir lengjunni og síðasta umferð er umferð með fastalykkjum, heklið botninn eins og útskýrt er að neðan. BOTN: Leggið töskuna flata, þannig að það eru 3 ferningar að framan og 3 ferningar að aftan á töskunni – setjið 1 prjónamerki í hvora hlið = 66 lykkjur á milli prjónamerkja. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykki eins og útskýrt er að neðan – hvert og eitt af þessum prjónamerkjum er sett í 1 lykkju og prjónamerkin eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir botn. Teljið 5 lykkjur út hvoru megin við bæði prjónamerkin og setjið 1 prjónamerki í 6. lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin (nú eru 4 prjónamerki í stykkinu með 10 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í meðfram skammhliðum og 54 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í meðfram langhliðum). Heklið hringinn fram og til baka eins og áður, til skiptis með 1 umferð með stuðlum og 1 umferð með fastalykkjum, en í hverri umferð með stuðlum er fækkað um 2 stuðla við hvert prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1 (8 stuðlar færri í umferð). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð með stuðlum alls 4 sinnum = 100 lykkjur. Klippið þráðinn og dragið í gegnum lykkjuna. Leggið töskuna flata og saumið botninn saman fyrir miðju að neðan með 1 spori í hverja og eina af 50 lykkjunum – saumið í gegnum bæði lögin. EFRI HLUTI: Heklið í hringum hinn kantinn á lengjunni með heklunál 4 með litnum sandur í DROPS Bomull-Lin eða litnum hveiti í DROPS Paris. Byrjið frá réttu með 1 keðjulykkju í sauminn á milli 2 ferninga í hlið á töskunni, heklið 3 loftlykkjur, síðan er heklaður 1 stuðull í hverja fastalykkju frá síðustu umferð á ferningunum og 1 stuðull um hvern loftlykkjuboga í horni á ferningunum = 22 stuðlar meðfram hverjum ferningi = 132 stuðlar + 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið til skiptis 1 umferð fastalykkjur frá röngu og 1 umferð stuðla frá réttu með 1 lykkju í hverja lykkju frá fyrri umferð. Þegar það hafa verið heklaðir 5 cm með stuðlum og fastalykkjum eftir lengjunni með ferningum og síðasta umferð er umferð með fastalykkjum, heklið hliðarstykkin eins og útskýrt er að neðan. Geymið töskuna og merkið hliðar á töskunni með 1 prjónamerki í hvorri hlið = 66 lykkjur á milli prjónamerkja. Það á ekki að hekla yfir miðju 32 lykkjur framan og aftan á töskunni, þ.e.a.s. það á að hekla miðju 34 lykkjur í hvorri hlið á töskunni (prjónamerkin sem voru sett mitt í þessar 34 lykkjur). Klippið þráðinn. HLUTI 1: Byrjið 17 lykkjur á undan prjónamerki í annarri hliðinni á töskunni með litnum sandur / hveiti og heklið 1 stuðul í hverja af næstu 34 lykkjum frá fyrri umferð – JAFNFRAMT er fækkað um 2 stuðla í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og haldið áfram fram og til baka til skiptis með 1 umferð fastalykkjur frá röngu og 1 umferð stuðlar frá réttu og fækkið um 2 stuðla í hvorri hlið í hverri umferð með stuðlum alls 5 sinnum í hvorri hlið (meðtaldar úrtökur í fyrstu umferð). Fækkið síðan um 1 stuðul í hverri hlið í hverri umferð með stuðlum alls 3 sinnum í hvorri hlið - sjá ÚRTAKA-3 = 8 lykkjur eftir. Klippið þráðinn og festið. HLUTI 2: Heklið alveg eins í hinni hliðinni á töskunni þar til 8 lykkjur eru eftir. Ekki klippa þráðinn frá, setjið 1 prjónamerki í umferð og haldið áfram fram og til baka til skiptis með 1 umferð stuðlar og 1 umferð fastalykkjur þar til axlarólin mælist ca 50 cm frá prjónamerki, eða að óskaðri lengd. Saumið axlarólina í gagnstæða hlið á töskunni með 1 spori í hverja af 8 lykkjum frá hluta 1. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (9)
Ingrid Bjørnvik wrote:
Jeg kjøpte 50 g av drops Paris farge nr 27 og 250g av fargen 17 som det stod i oppskriften. Men ble skuffet da det ikke ble nok av garnet nr 27. jeg har kjøpt mange forskjellige farger av dere og har heklet dette mønsteret flere ganger men aldri opplevd at det har blitt for lite garn.
03.04.2024 - 21:25Angélique wrote:
Bonjour, pour le bas du sac, si un rang est fait à l'endroit et un sur l'envers, il va donc falloir faire une couture ou est-ce que je peux crocheter le long de la bande en rond ? Merci de votre réponse
11.03.2023 - 19:18DROPS Design answered:
Bonjour Angélique, vous pouvez, mais on crochète ici en allers et retours en joignant à la fin de chaque tour pour crocheter alternativement sur l'endroit (brides) et sur l'envers (mailles serrées), si vous restez toujours sur l'endroit, le visuel sera automatiquement différent - vous n'aurez pas de couture car vous terminez chaque rang/tour par 1 maille coulée - cf INFO CROCHET. Bon crochet!
13.03.2023 - 09:39Marie Persson wrote:
Kan jag beställa detta möstret för jag har ingen möjlighet att skriva ut det? Mönster heter 238-12
25.02.2023 - 18:42DROPS Design answered:
Hei Marie. Beklager, men en slik tjeneste har vi ikke. Men noe nettbutikker (muligens vanlige butikker) kan du få bestilt / skrevet ut oppskriften når du kjøper garn. mvh DROPS Design
27.02.2023 - 13:36Monica wrote:
Sacochique
20.01.2023 - 09:05Nina wrote:
Summer feeling
18.01.2023 - 18:38Clara wrote:
Margritli
18.01.2023 - 13:25Blandine wrote:
Vintage
18.01.2023 - 08:48Marie wrote:
Edelweiß
17.01.2023 - 21:48Teresa Curtis wrote:
Name Suggestion: Daisies
17.01.2023 - 16:52