Wave Breaker |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað neðan frá og upp með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 240-2 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul. Síðasti stuðullinn í umferð er heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. Þegar heklað er í hring (á við um ermar og kant í hálsmáli): Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur í stað 1. fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð. ÚRTAKA: Fækkað er um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman í 1 stuðul þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næsta stuðul, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er heklað fram og til baka í stykkjum hvort fyrir sig. Það er heklað gatamynstur. Ermar eru heklaðar í hring, en snúið er við í hverri umferð þannig að í annarri hverri umferð er heklað frá réttu og frá röngu. Þetta er gert til að áferðin á fram- og bakstykki og ermum verði alveg eins. Að lokum er heklaður kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Heklið 67-75-79-87-95-103 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af þeim loftlykkjum sem eftir eru = 65-73-77-85-93-101 stuðlar. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 3 loftlykkjur (fyrsti stuðull), heklið A.1 út umferðina. Endurtakið 2 síðustu umferðir í A.1 þar til stykkið mælist 6 cm – stillið af að síðasta umferðin sem er hekluð sé umferð með fastalykkjum frá röngu, síðan er hekluð 1 umferð með stuðlum (heklið 1 stuðul í hverja lykkju frá fyrri umferð). Nú er mynstur heklað þannig: Heklið A.2C, heklið A.2B þar til 5 stuðlar eru eftir, heklið A.2A. Haldið svona áfram fram og til baka, A.2 er endurtekið á hæðina. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! STÆRÐ M- L- XL- XXL-XXL: Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41 cm (stillið af að næsta umferð sé ekki umferð 2 í mynsturteikningu), fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið þannig (lykkjum er ekki fækkað í stærð S): Heklið 1 keðjulykkju í hvern af fyrstu 4-4-8-8-12 stuðlum, heklið stuðla eins og áður yfir næstu 65-69-69-77-77 lykkjur (nú eru eftir 4-4-8-8-12 lykkjur í umferð). ALLAR STÆRÐIR: Heklið fram og til baka með mynstur eins og áður yfir 65-65-69-69-77-77 lykkjur. Heklið gatamynstur þar til stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm, heklið síðan til loka einungis með stuðlum (það eru heklaðar minnst 2 umferðir með stuðlum á eftir umferð með gatamynstri áður en úrtaka fyrir hálsmáli byrjar). Haldið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu. Nú er heklað yfir fyrstu 19-19-19-19-23-23 stuðla fyrir hægri öxl, heklið næstu 2 stuðla saman – sjá ÚRTAKA, snúið og heklið til baka yfir 20-20-20-20-24-24 stuðla. Stykkið mælist nú ca 56-58-60-62-64-66 cm. Klippið þræðina og festið. Hoppið yfir miðju 23-23-27-27-27-27 stuðla á bakstykki, byrjið í 24.-24.-28.-28.-28.-28. stuðli og heklið yfir síðustu 21-21-21-21-25-25 stuðla fyrir vinstri öxl, með byrjun frá réttu og frá hálsmáli þannig: Heklið fyrstu 2 stuðla saman, heklið 1 stuðul í hvern af þeim 19-19-19-19-23-23 stuðlum sem eftir eru. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern af 20-20-20-20-24-24 stuðlum. Klippið þræðina frá og festið. STÆRÐ S: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 20 cm niður frá öxl. Prjónamerkin sýna hvar sauma á ermina við fram- og bakstykki. FRAMSTYKKI: Heklið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 49-51-52-54-55-57 cm. Nú á að fækka lykkjum fyrir hálsmáli, en passið uppá að það séu heklaðar minnst 2 umferðir með stuðlum á eftir umferð með gatamynstri áður en úrtaka fyrir hálsmáli byrjar. Nú er heklað til loka einungis með stuðlum. HÆGRI OG VINSTRI ÖXL: Heklið eins og áður yfir fyrstu 22-22-22-22-26-26 stuðla, 2 stuðlar saman (1 stuðull færri), snúið og heklið 2 stuðla saman (1 stuðull færri), heklið út umferðina. Heklið yfir fyrstu 20-20-20-24-24-24 stuðla, 2 stuðlar saman (1 stuðull færri), snúið og heklið 2 stuðla saman (1 stuðull færri), heklið út umferðina = 20-20-20-20-24-24 stuðlar fyrir öxl. Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður – stillið af að endað sé eftir umferð frá réttu. Klippið þræðina frá og festið. Hoppið yfir næstu 17-17-21-21-21-21 stuðla fyrir hálsmáli, byrjið í 18.-18.-22.-22.-22.-22. stuðli frá réttu og heklið vinstri öxl þannig: Heklið 2 stuðla saman (1 stuðull færri), heklið út umferðina. Snúið og heklið fyrstu 21-21-21-21-25-25 stuðla, heklið 2 stuðla saman (1 stuðull færri). Heklið 2 stuðla saman (= 1 stuðull færri), heklið út umferðina. Snúið og heklið fyrstu 19-19-19-19-23-23 stuðla, heklið 2 stuðla saman (1 stuðull færri) = 20-20-20-20-24-24 stuðlar fyrir öxl. Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður – stillið af að endað sé eftir umferð frá réttu. Klippið þræðina frá og festið. STÆRÐ S: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 20 cm niður frá öxl. Prjónamerkið sýnir hver sauma á ermina við fram- og bakstykkið. ERMI: Heklið 45-45-45-49-49-49 loftlykkjur – munið eftir LOFTLYKKJA, með heklunál 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir) og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul = 45-45-45-49-49-49 stuðlar. Heklið 3 loftlykkjur (fyrsti stuðull), heklið A.3 út umferðina. Endurtakið 1. umferð þar til stykkið mælist 8 cm. Heklið 2. umferð í A.3. Heklið síðan þannig: Heklið A.4A, endurtakið A.4B og endið með 1 keðjulykkju í byrjun á umferð. Heklað er í hring (en snúið er við eftir hverja umferð) og A.4 er endurtekið á hæðina. Passið uppá að umferðir með tvíbrugðnum stuðlum og loftlykkjum séu heklaðar frá réttu, þannig að áferðin verði alveg eins á fram- og bakstykki og ermum. Þegar stykkið mælist ca 13 cm (stillið af að aukið sé út í umferð með stuðlum), byrjar útaukning undir ermi. Aukið út um 1 stuðul í fyrsta og síðasta stuðul í umferð með því að hekla 2 stuðla í einn stuðul. Aukið svona út með ca 8-6-5-4½-3½-3 cm millibili alls 5-7-8-8-9-10 sinnum, stillið af að aukið sé út í umferð með stuðlum = 55-59-61-65-67-69 stuðlar. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.4 þegar aukið er út, eru heklaðar í stuðlum. Heklið áfram þar til ermin mælist ca 53-51-50-48-46-44 cm. Ermin er nú tilbúin í stærð S. Heklið hina ermina á sama hátt í stærð S. STÆRÐ M- L-XL-XXL-XXXL: Nú er heklað fram og til baka frá byrjun á umferð, þannig að það verði lítil klauf mitt undir ermi. Þegar ermin mælist alls 54-53-54-52-53 cm, er ermin tilbúin. Klippið þræðina og festið. Heklið hina ermina á sama hátt í stærð M-L-XL-XXL-XXXL. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í við fram- og bakstykki eins og útskýring á teikningu sýnir. Saumið hliðarsauminn niður frá handvegi. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt ofan á annarri öxlinni og heklið með heklunál 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir) þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju í axlasauminn, * heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið 1 fastalykkju *, heklið frá *-* alls ca 24-24-26-26-26-26 sinnum hringinn í umferð, en endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. Heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 3 stuðla um hvern loftlykkjuboga = 72-72-78-78-78-78 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram hringinn með A.3. Endurtakið 1. umferð í A.3 þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 5 cm (meðtalin fyrsta umferð með stuðlum). Klippið þráðinn og festið. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Aneesa wrote:
I'm following US instructions and after the back piece it says do the same for the front but stop earlier and follow directions for the neck. Is that right or should I follow directions for the shoulders?
12.05.2024 - 01:19DROPS Design answered:
Dear Aneesa, yes, that is right. You should follow the directions for the neckline a bit earlier than for the bak, and then, when you reached the appropriate length, finish the shoulders like on the back as well. Happy Crafting!
12.05.2024 - 02:43Fernanda Martins wrote:
Boa tarde . Adoro os vossos modelos , parabens pelo site. Comprei drops flora + drops kid silk para fazer este modelo, mas nao gosto do toque do fio drops kid silk, tem muitos pelos e nao era o eu pretendia. Pois na foto nao se vêem tantos pelos. Gostaria de saber que fio me aconselham para subtituir o kid silk? Ou se posso fazer so com drops flora e que agulha recomenda ? Muito obrigada . Cumprimentos
15.09.2023 - 16:02DROPS Design answered:
Bom dia, Muito obrigado pelo seu comentário. Trabalhamos muito para poder trazer novos modelos gratuitos. Pode, em alternativa, dobrar o Flora (=usar 2 fios) ou combinar o Flora com o Alpaca (que tem muit menos pêlo do que o Kid.Silk). Bons crochés!
19.09.2023 - 10:19Myrèle wrote:
Bonjour Pour la mamche ; vois mentionnez de ceocheter en rond mais de tourner à chaque tour? Autrement dit nous fesons jn rang à l’endroit et un rang sur l’envers toujours en continue au lieu d’être toujours sur l’endroit ???? Merci
04.04.2023 - 18:28DROPS Design answered:
Bonjour Myrèle, tout à fait, pensez à bien fermer vos rangs par 1 maille coulée dans la 1ère maille du début du tour pour éviter une couture. Bon crochet!
11.04.2023 - 11:17Blandine wrote:
Modèle attaqué ce soir. Les points sont un régal pour les yeux. Il me tarde de le finir pour le porter.
14.02.2023 - 00:51Eimante wrote:
Will there be more crochet patterns available for the SS2023 collection?
08.02.2023 - 13:23Laura wrote:
Hello, How do I find the measurements for each size, so I can choose the best one for me? It's the first time I try one of your patterns but I can't seem to find this info anywhere on the page. This collection looks so beautiful! Can't wait to start! Thank you very much! Laura
07.02.2023 - 12:26DROPS Design answered:
Dear Laura, thank you very much! Measure a similar garment you have and like the shape and compare these measurements to those in the chart, this will be the best way to find your size for each garment; read even more here. Happy crocheting!
07.02.2023 - 13:22Ana Oliveira wrote:
Hallo Drobs Team! Habe mich direkt in den Pulli verliebt! Habe aber festgestellt, dass sich beim Rückenteil in Größe L bei der Angabe zur Abnahme für den Armausschnitt ein rechnerischer Fehler eingeschlichen hat. 77 - 8 = 69 .Aber man sollte dann nach der Abnahme am Anfang der Reihe nur noch 61 M häkeln um den 2. Armausschnitt zu haben. Hoffentlich ist das hier die richtige Adresse um Korrekturanregungen zu tätigen 🤣 Gruß Ana
04.02.2023 - 17:20DROPS Design answered:
Liebe Frau Oliveira, beachten Sie, daß unter GRÖSSE M- L- XL- XXL-XXL: wird dann die Größe L die 2. Größe so werden nur 4 Maschen beidseitig abgenommen, so sind es 77-8= 69 Maschen übrig. Viel Spaß beim häkeln!
06.02.2023 - 11:03Rebecca Gibbs wrote:
I just wanted to say thank you for putting a crochet 🧶 pattern out so soon with the other new patterns. It’s always so exciting to look at and read the new patterns. Can’t wait to get the summer crochet idea’s flowing. Thank you for all the wonderful patterns Garnstudio has provided for years of fabulous enjoyment. 💖💖💖
04.02.2023 - 07:10Trude Jacobsen wrote:
Veldig fin heklegenser. Super til våren ! Lagt til i favoritter :-)
03.02.2023 - 13:31Simone wrote:
Summer cloude
21.01.2023 - 22:46