Blue Porcelain |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-1 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. MYNSTUR ERMI: ATH! Þegar A.9 og A.6 hefur verið prjónað, á prjónamerki mitt á ermi að passa með miðju lykkjunni í mynstureiningu á mynstri. Prjónið A.4 í 10 cm. Prjónið A.5 Prjónið A.6. Prjónið A.5 Prjónið A.9. Prjónið A.5 Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 39-40-39-40-39-38 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efsti hlutinn á bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveginn. Ermarnar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður upp kantur í hring í hásmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 35-35-41-41-47-53 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki að innanverðu við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 3 lykkjur í sléttprjóni, aukið út til vinstri á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU, A.1, A.2 yfir næstu 24-24-30-30-36-42 lykkjur, A.3, aukið út til hægri á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU, 3 lykkjur sléttprjón. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 26 sinnum í öllum stærðum. Útauknar lykkjur eru teiknaðar inn í A.1 og A.3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu eru 87-87-93-93-99-105 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 12 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið 1 prjónamerki í stykkið hér (sjá ör í mynsturteiningu A.1). Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið A.1, A.2 og A.3 til loka á hæðina (með 3 lykkjum sléttprjón í hvorri hlið). Prjónið síðan þannig – frá réttu: 3 lykkjur sléttprjón, A.4 þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 3 fyrstu lykkjur í A.4, þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, 3 lykkjur sléttprjón. Prjónið A.4 1-1-2-2-3-3 sinnum á hæðina. Nú er prjónað A.5 yfir allar lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið þannig – frá réttu: 1-1-4-4-1-4 lykkjur sléttprjón, A.6 þar til 2-2-5-5-2-5 lykkjur eru eftir, prjónið 2-2-5-5-2-5 lykkjur sléttprjón. Prjónið A.6 1 sinni á hæðina. Nú mælist stykkið ca 16-16-18-18-20-20 cm, mælt frá prjónamerki sem var sett við ör í A.1, yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Hoppið ca 50 cm inn á þráðinn og notið þráðar endann til að prjóna upp lykkjur með (með þessu þá er hægt að prjóna upp lykkjur frá réttu og prjóna áfram með dokkunni frá réttu án þess að klippa þráðinn). Prjónið upp 26 lykkjur frá réttu innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki). Prjónið fyrstu umferð frá réttu, þannig: 3 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki hér, A.7. Haldið svona áfram með mynstur. Í 9. umferð í mynsturteikningu byrjar útaukning að hálsmáli. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU, aukið er út á eftir 3 lykkjum sléttprjón. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 30 lykkjur. Prjónið A.7 til loka (síðasta umferðin er prjónuð frá röngu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Hoppið ca 50 cm inn á þráðinn og notið þráðar endann til að prjóna upp lykkjur með. Prjónið upp 26 lykkjur frá réttu innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið fyrstu umferð frá réttu, þannig: A.8, setjið 1 prjónamerki hér, 3 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Í 9. umferð í mynsturteikningu, byrjar útaukning við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU, aukið er út á undan 3 lykkjum. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 30 lykkjur. Prjónið A.8 til loka, síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (lykkjur halda áfram í mynstri eins og áður, en prjónið nú A.4 yfir lykkjur í A.7 og A.8): Prjónið mynstur yfir 30 lykkjurnar frá hægra framstykki, fitjið upp 27-27-33-33-39-45 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið mynstur yfir 30 lykkjurnar frá vinstra framstykki = 87-87-93-93-99-105 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu, nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í A.4. Síðan er prjónað þannig – frá réttu: 3 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.4 eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 3 fyrstu lykkjurnar í A.4. 3 lykkjur sléttprjón. Prjónið A.4 alls 2-2-3-3-4-4 sinnum á hæðina. Nú er prjónað A.5 yfir allar lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið þannig – frá réttu: 1-1-4-4-1-4 lykkjur sléttprjón, A.6 þar til 2-2-5-5-2-5 lykkjur eru eftir, prjónið 2-2-5-5-2-5 lykkjur sléttprjón. Prjónið A.6 1 sinni á hæðina. Nú mælist stykkið ca 24-24-26-26-28-28 cm, mælt yst meðfram handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 87-87-93-93-99-105 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 3-12-12-21-27-30 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið sléttprjón yfir 87-87-93-93-99-105 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 3-12-12-21-27-30 nýjar lykkjur í lok umferðar = 180-198-210-228-252-270 lykkjur. Prjónið A.5 (fyrsta umferðin er prjónuð þegar stykkið er sett saman, byrjið í 2. umferð). Eftir A.5 er prjónað A.9 yfir allar lykkjur. Þegar A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.5. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.4 yfir allar lykkjur. Prjónið A.4 alls 2 sinnum á hæðina. Prjónið A.5, í síðustu umferð í A.5 er aukið út um 0-6-6-0-0-6 lykkjur jafnt yfir = 180-204-216-228-252-276 lykkjur. Prjónið A.6 yfir allar lykkjur, endið eftir heila eða hálfa mynstureiningu á hæðina þegar stykkið mælist ca 48-48-50-55-57-57 cm, mælt frá efsta punkti á öxl. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 60-68-76-76-84-92 lykkjur jafnt yfir = 240-272-292-304-336-368 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8-10-10-10-10-10 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-65-67-67 frá efsta punkti á öxl. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 5 og prjónið upp frá réttu 40-40-44-44-48-48 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 28-28-30-30-32-32 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 68-68-74-74-80-80 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – prjónamerkið er notað síðar til að telja út hvar mynstrið byrjar. Prjónið fram og til baka þannig: 1 lykkja sléttprjón, A.4 þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju sléttprjón. Prjónið fram og til baka þar til stykkið mælist 1-4-4-6-8-9 cm. Setjið nú stykkið saman á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5, afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki undir ermi og haldið áfram með MYNSTUR Á ERMI. ATH: Þegar mynstrið er prjónað á eftir A.9 og A.6 á prjónamerkið mitt á ermi að passa við miðju lykkjuna í mynstureiningu á mynstri. Þegar ermin mælist 2 cm frá þar sem stykkið var sett saman, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. ATH! Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp undir ermi þegar lykkjum er fækkað, þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri, prjónið þær í sléttprjóni. Fækkið lykkjum svona með 5½-6-4½-5-3-3 cm millibili alls 7-6-8-7-10-9 sinnum = 54-56-58-60-60-62 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 39-40-39-40-39-38 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú eru eftir ca 8 cm að loknu máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-16-14-16-16-18 lykkjur jafnt yfir = 68-72-72-76-76-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 47-48-47-48-47-46 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. HÆGRI ERMI: Prjónið alveg eins og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur í gagnstæða átt en áður, þ.e.a.s. prjónið upp 28-28-30-30-32-32 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 40-40-44-44-48-48 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 88 til 128 lykkjur á stuttan hringprjón 4. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og festið með nokkrum sporum í hvora hlið. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (69)
Carmen Müller wrote:
Oh, ich fange mit dem MS von oben an? Aber auch dann passt es mit den M nicht. A1 sind 30 M und A2 sind 6 M und ich habe abzüglich der 6 RM 35 M zur Verfügung. Dann kann ich A3 garnicht stricken. Danke für Ihre Geduld, ich bin Anfängerin........
31.05.2024 - 14:36Carmen Müller wrote:
Hallo, ich habe direkt am Anfang Schwierigkeiten, ich stricke L und habe 41 M. ich komme mit den Maschen nicht hin. Also 30 M A1 und A2 und dann A3. A3 ist doch nur 1 M. ich habe natürlich jeweils 3RM die ich glatt re stricke, die gehören ja nicht zum MS. Danke im voraus.Es ist ein so wunderschöner Pulli.
31.05.2024 - 14:23DROPS Design answered:
Liebe Frau Müller, so stricken Sie die 41 Maschen: 3 M glatt rechts, A.1 (= 4 Maschen), A.2 (= 4 x 6 Maschen = 30 Maschen), A.3 (= 1 Maschen), 3 M glatt rechts = 3+4+30+1+3=41 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
31.05.2024 - 16:53Katrin wrote:
Ich kann den Mustersatz nicht lesen Sind das nur Hinreihen oder sind Hin und Rückreihen gezeichnet
04.04.2024 - 16:25DROPS Design answered:
Liebe Katrin, alle Reihen sind im Diagram gezeichnet, die Hinreihen lesen Sie rechts nach links und die Rückreihen links nach rechts. Viel Spaß beim Stricken!
05.04.2024 - 08:02Carmen Rosa wrote:
Me ha encantado el jersey, muy bien explicado, fácil de comprender y con un resultado genial.
01.04.2024 - 10:04Tatjana wrote:
Hello, I have a problem with the Blue Porcelain pattern, specifically with the measurements of the armhole. In the text, it says that it should be 24 cm (for M size), but in the design (plan) it says it should be 20 cm. Could you please help. Best regards, Tatjana Tatjana
28.02.2024 - 10:02DROPS Design answered:
Dear Tatjana, when working this kind of jumpers with european shoulders, the shoulders will be slightly in diagonal towards back piece, so that armhole on back piece is 16 cm (shorter than n front piece), armhole on front piece is 24 cm so that you get: (16+24)/2= 20 cm for the armhle. See the different videos showing how to work this kind of shoulders at the bottom the pattern, it will help you. Happy knitting!
28.02.2024 - 15:30Karoliina wrote:
Hei, takakappaleen aloituksessa neuvotaan tekemään lisäykset oikealla puolella oikein silmukoin, nurjalla nurjin. Mutta jos toimii näin, kuviot A1 ja A3 eivät toteudu. Eikö lisäykset pitäisi tehdä sen mukaan, miltä A1 ja A3 näyttävät eli lisätään joko nurja tai oikea sen mukaan miltä niiden tulee näyttää oikealta puolelta katsottuna?
05.10.2023 - 19:16DROPS Design answered:
Hei, lisätyt silmukat neulotaan piirrosten mukaisesti.
24.11.2023 - 17:29Anne wrote:
This is a lovely pattern! When I work A9, row 7, do I skip the first stitch? It does not seem to line up properly. Thanks
28.06.2023 - 17:58DROPS Design answered:
Dear Anne, on 5th row in A.9 (diagrams are read from bottom up), slip the first stitch as if to K, then work diagram to the end: the last 2 sts will be worked with the first stitch next repeat, continue like this, at the end of the round, work the last 2 sts last repeat with the slipped stitch at the beg of the round. Happy knitting!
29.06.2023 - 12:37Tone Grethe wrote:
Hei. Hvordan anbefales det å vaske denne modellen, da det er 2 forskjellige garntyper?
31.03.2023 - 14:39DROPS Design answered:
Hei Tone Grethe, Kid Silk er anbefalt vasket på 30 grader og tørket flat, så da er det lurt å vaske plagget på denne måten, selv om Baby Merino alene kan vaskes på 40 grader. God fornøyelse!
03.04.2023 - 06:55María Estremera wrote:
Cómo se lava este jersey? Gracias
10.03.2023 - 13:57DROPS Design answered:
Hola María, debido a las lanas utilizadas, esta prenda se lava a mano con un detergente especial para lana y, después de aclarar, enrollar en una talla y apretar para quitar el exceso de agua (sin retorcer) y dejar secar en una superficie plana (evitar dejar secar bajo luz directa del sol).
12.03.2023 - 17:29Katrin Gjelseth wrote:
På første mønsteromgang på 241-1 er det 35 masker (og så øker man 2 før og etter mønster) når jeg har strikket A1 og A2 i 24 masker så gjenstår det5 masker før merket og økning til høyre. Skal disse 5 strikkes i A3? Altså bare vrang på retten?
28.02.2023 - 19:01DROPS Design answered:
Hei Katrin. Nei, du har 35 masker ( i str. S og M). Sett 1 merke på innsiden av de ytterste 3 maskene i hver side. Strikk 3 masker rett, øke etter oppskriften, strikk A.1 (over 4 masker), strikk A.2 4 ganger (= 24 masker). Du har nå igjen 4 masker, strikk A.3 (= 1 maske), øk etter oppskriften og strikk de 3 siste maskene (= 3+4+24+1+3= 35 masker). mvh DROPS Design
06.03.2023 - 11:30