DROPS Cotton Merino uni colour 50% Ull, 50% Bómull |
644.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki |
1001.00 kr /25g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Cotton Merino uni colour 50% Ull, 50% Bómull 644.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki 1001.00 kr /25g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman | |
= saumið a við A og b við B |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Tip of the Iceberg |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino eða DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri, gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-1 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu: FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG (frá hálsmáli): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG (að hálsmáli): Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftir lykkju með prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp þar sem ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna að loknu máli. Frágangur á stykkinu er eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og prjónaður er tvöfaldur kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 122-134-138-150-166-178 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 9 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 35-42-41-43-49-51 lykkjur jafnt yfir, að aukið er fitjuð upp 1 ný lykkja í byrjun og í lok þessarar umferðar (kantlykkjur fyrir saum) = 89-94-99-109-119-129 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-14-14 cm, byrjar mynstrið. Jafnframt þegar mynstrið er prjónað á að fækka lykkjum fyrir handvegi, hálsmáli og skáhallandi öxl. Lestu kaflann MYNSTUR, HANDVEGUR, HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram. MYNSTUR: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið umferð með 1 lykkju í garðaprjóni – ATH: Í hverri umferð með gataumferð þar sem mynstrið gengur ekki jafnt upp á undan kantlykkju (á við um allar stærðir nema stærð M), prjónið síðustu lykkju á undan kantlykkju slétt). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. A.2 er prjónað alls 4-4-4-5-5-6 sinnum á hæðina. Á eftir A.2 er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 47-47-48-50-51-53 cm frá uppfitjunarkanti. Síðan er prjónað sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið að loka máli. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af 5-5-5-10-10-10 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 79-84-89-89-99-109 lykkjur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm, fellið af miðju 29-30-31-31-33-33 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA = 24-26-28-28-32-37 lykkjur eftir á öxl SKÁHALLANDI ÖXL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl (til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn). Setjið lykkjur á þráð frá hlið þannig: 8-9-9-9-11-12 lykkjur 2 sinnum og síðustu 8-8-10-10-10-13 lykkjur við hálsmálið. Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráðinn, setjið lykkjurnar til baka á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón, en til að sleppa við göt í hverri skiptingu þar sem allar lykkjurnar voru settar á þráð, sækið upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkjunni á vinstra prjóni. Fellið síðan af allar lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið alveg eins og bakstykki þar til A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina – munið eftir að fella af fyrir handvegi. Það eru núna 79-84-89-89-99-109 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 47-47-48-50-51-53 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 49-50-51-53-54-56 cm, setjið miðju 23-24-23-23-23-23 lykkjurnar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram. HÁLSMÁL: Fækkið síðan lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið um 1 lykkju alls 4-4-5-5-6-6 sinnum. SKÁHALLANDI ÖXL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl (til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn). Setjið lykkjur á þráð frá hlið þannig: 8-9-9-9-11-12 lykkjur 2 sinnum og síðustu 8-8-10-10-10-13 lykkjur við hálsmálið. Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráðinn, setjið lykkjurnar til baka á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón, en til að sleppa við göt í hverri skiptingu þar sem allar lykkjurnar voru settar á þráð, sækið upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkjunni á vinstra prjóni. Fellið síðan af allar lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 72-76-76-80-84-84 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 21-23-21-23-27-25 lykkjur jafnt yfir = 51-53-55-57-57-59 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju í umferð. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 14 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6½-5-5-4-3-2½ cm millibili alls 5-6-6-7-8-9 sinnum = 61-65-67-71-73-77 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20-19-19-20-18-16 cm, prjónið A.4 hringinn – ATH: Síðasta lykkjan í umferð fylgir alltaf með mynstri með sléttri lykkju eða brugðinni lykkju, ekki gatalykkju. A.4 er prjónað 2 sinnum á hæðina. Ef loka máli hefur ekki verið náð þegar A.4 hefur verið prjónað til loka í annað skiptið, prjónið sléttprjón til loka máls. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 44-43-43-41-39-37 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið ermina fram og til baka frá miðju undir ermi í mynstri eins og áður. Fellið af þegar ermin mælist 47-46-46-47-45-43 cm frá uppfitjunarkanti. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsaumana innan við 1 lykkju í garðaprjóni – byrjið efst við handveg og saumið niður þar sem stroffið byrjar (9 cm klauf í hvorri hlið). Saumið ermakúpuna við handveg innan við 1 lykkju í garðaprjóni. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp frá réttu innan við 1 lykkju í garðaprjóni ca 88-92-100-100-104-104 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan), á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir allar lykkjur. Þegar kanturinn í hálsmáli mælist 9 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, að auki er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju jafnframt er fellt af (uppslátturinn er felldur af eins og lykkja). Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið niður þannig að það verði tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (17)
Flores Hélène wrote:
Bonjour, je ne comprends pas les explications pour l'encolure et biais des épaules. Merci pour votre réponse.
24.02.2024 - 17:58DROPS Design answered:
Bonjour Mme Florès, vous allez mettre en attente les mailles des épaules en début de rang à partir de l'emmanchure (par ex pour le dos: en début de rang sur l'endroit pour l'épaule droite, en début de rang sur l'envers pour l'épaule gauche), et en même temps, vous devrez rabattre les mailles de l'encolure = en début de rang sur l'envers pour l'épaule droite/en début de rang sur l'endroit pour l'épaule gauche. Quand ces rangs raccourcis sont faits, vous tricotez 1 rang sur toutes les mailles de l'épaule et rabattez au rang suivant. Bon tricot!
26.02.2024 - 08:33CURIEUX Suzanne wrote:
Bonjour, très intéressée par le modèle pull écru diagramme de points mousse , Jersey présenté sur la page d accueil pinterest , je voudrais les explications pour le réaliser. Merci de votre aide ..a bientôt j espère
13.01.2024 - 09:07DROPS Design answered:
Bonjour Mme Curieux, retrouvez les explications en français ici. Bon tricot!
15.01.2024 - 08:13Hennie Cramer wrote:
Patr 239-1 Er staat in de beschrijving van het achterpand niet dat na A3 A4 gebreid moet worden Hoe kan dat?
24.09.2023 - 14:48DROPS Design answered:
Dag Hennie,
Klopt, A.4 wordt op de mouwen gebreid.
27.09.2023 - 20:35Hennie wrote:
Wordt in het telpatroon uitsluitend de heengaan naaldgegeven ? Het betreft model 239-1 A-1
08.09.2023 - 21:58DROPS Design answered:
Dag Hennie,
In de telpatronen zijn altijd alle naalden weergegeven, dus zowel de heengaande als de teruggaande naalden.
13.09.2023 - 20:45Christine wrote:
Bonjour, quelle option est la plus douce pour la peau pour une personne avec une sensibilité à la laine? Drops Ctoton-Merino ou Drops Sky avec Kid-Silk? Merci!
26.08.2023 - 12:28DROPS Design answered:
Bonjour Christine, je vous recommande de contacter votre magasin pour toute assistance personnalisée au choix de la meilleure laine adéquate, ce sera bien plus facile pour eux de vous conseiller la laine idéale, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
28.08.2023 - 13:22ZUMAGLIA wrote:
Je ne comprends absolument rien aux explications de Drops. J'ai l'habitude de tricoter Phildar, Pingoon, Annie Blatt, je n'ai JAMAIS eu autant de difficultés pour comprendre et pourtant je tricote depuis plus de 40 ans ! Bien à vous.
22.08.2023 - 20:03DROPS Design answered:
Bonjour Mme Zumaglia, nos modèles sont écrits par des scandinaves et donc peuvent paraître déroutants car écrits d'une autre façon que celle dont vous avez l'habitude; vous pouvez volontiers utiliser cet espace pour poser votre question si les vidéos/leçons du bas de page n'ont pu vous aider, nous vous aiderons volontiers. Bon tricot!
23.08.2023 - 09:18NELLY PREVOT wrote:
Merci pour votre réponse reçue le 26 mai alors que la demande était du 5 mai ! Heureusement j'étais absente pendant ce temps. Vous n'avez toujours pas répondu à ma question : que signifie les 2 petits ovals de chaque côté du point ? vous répondez à côté et impossible de voir explicitement les changements sur le schéma ! Par ailleurs je ne commanderai plus à l'avenir de modèles chez vous car les explications ne sont pas claires. Désolée.
26.05.2023 - 15:20DROPS Design answered:
Bonjour Mme Prevot, je suis désolée si j'ai mal compris votre question, le triangle noir correspond à la diminution tricotée dans la vidéo dont j'ai indiqué le lien, et les ovales sont les jetés (3ème symbole de la légende); le rang 3 de A.2 va donc se tricoter ainsi: 2 m end, 1 jeté, le triangle noir = glissez 1 m à l'end, 2 m ens à l'end, passez la m glissée par-dessus la m tricotée, 1 jeté. Il peut être sage d'actualiser la page et d'imprimer à nouveau les diagrammes pour être certaine qu'ils soient justes désormais. Bon tricot!
26.05.2023 - 15:25NELLY PREVOT wrote:
Toujours une incompréhension : j'ai terminé le diagramme A.1 ; je suis le A.2 et 1° je me retrouve sur l'envers et sur les deux premiers rangs de A2 ce sont des symboles carré blanc ensuite je ne comprends pas du tout du tout votre symbole triangle noir (le 5ème) avec les petits 0 de chaque côté. Merci de détailler clairement : merci.
05.05.2023 - 15:52DROPS Design answered:
Bonjour Mme Prevot, effectivement, les diagrammes avaient un défaut, ils ont été maintenant corrigés, merci pour votre retour. Nous montrons dans cette vidéo comment tricoter le symbole triangle noir = 5ème symbole dans la légende; dans ce diagramme, vous devrez faire 1 jeté (cf 3ème symbole) avant et 1 jeté après (le nombre de mailles doit rester le même). Bon tricot!
26.05.2023 - 13:05Nelly wrote:
Drops Design 239-1 Je ne comprends pas le diagramme : que signifie le petit 0 devant le trait oblique noir et les deux 0 de part et d'autre du triangle noir ? Les explications du diagramme le troisième à partir du haut (faire 1 jeté entre 2 mailles) ou est-il dans le modèle ? Que signifie "tension" pour vous ? Si l'on tricote avec l'aiguille circulaire en AR à quoi cela sert-il ? Merci pour votre prompte réponse. Cordialement.
25.04.2023 - 09:34DROPS Design answered:
Bonjour Nelly, la "tension" correspond à l'échantillon, lorsque vous tricotez l'ouvrage, vous devez conserver la même façon de tricoter que pour votre échantillon pour conserver les mêmes mesures (adaptez la taille des aiguilles si besoin). Le 1er rang de A.1 va se tricoter ainsi: 2 m ens à l'end, 1 jeté - pour le triangle, cf 5ème symbole de lé légende. On tricote avec des aiguilles circulaires pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles (cf cette leçon. Bon tricot!
25.04.2023 - 14:40Justyna wrote:
Czy między schematem a1 i a2 nie brakuje jednego rzędu prawych oczek? Schemat a1 kończy się rzędem odchodzącym lewych oczek, a2 zaczyna się więc od lewych oczek w rzędzie powrotnym, co oznacza, że ażurowy wzór w trzecim rzędzie jest robiony w rzędzie powrotnym, czyli na lewej stronie robótki.
11.03.2023 - 14:08DROPS Design answered:
Witaj Justyno, masz rację. Inaczej w schemacie A.2 narzuty byłyby wykonywane na lewej stronie robótki. Zgłoszę to do sekcji projektów. Dziękuję za zwrócenie uwagi i pozdrawiam!
13.03.2023 - 15:50