October Breeze |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð XS - XXL.
DROPS 236-14 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð á undan/eftir A.1/A.2 (lykkja með prjónamerki í er miðjulykkja í A.1/A.2). Aukið út fyrir fram- og bakstykki á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá réttu / á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá röngu. Aukið út fyrir ermar á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki (alltaf er aukið út frá réttu á ermum). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og á eftir prjónamerki þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar hann er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Uppslátturinn er prjónaður frá réttu á undan og á eftir prjónamerki þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar hann er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur með DROPS Nepal yfir stuttan hringprjón 4 og stuttan hringprjón 5 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 5 og haldið lykkjunum eftir á stuttum hringprjóni 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – prjónið síðan næstu umferð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 10-12-12-14-14-16 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 21-23-25-27-29-31 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 11-11-13-13-15-15 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (hálft bakstykki). Klippið þráðinn. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu – þetta er gert eins og útskýrt er að neðan. Að auki er prjónað A.1 við hvert prjónamerki (lykkja með prjónamerki er miðjulykkja í A.1). Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan lykkju með 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið í hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón, A.1 og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við A.1 – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. prjónamerki (hægri hlið í hálsmáli að framan – nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá röngu og aukið út fyrir laskalínu einungis á fram- og bakstykki þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stuttu umferðirnar byrjuðu við 3. prjónamerki (nú hefur verið aukið út um 4 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá réttu og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 þar til prjónað hefur verið yfir 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki, nema nú er prjónað A.2 yfir lykkjur í A.1 (A.2 er síðan endurtekið á hæðina – nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá röngu og aukið út fyrir laskalínu einungis á fram- og bakstykki þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við í síðasta skipti við 3. prjónamerki (nú hefur verið aukið út um 4 lykkjur fyrir laskalínu). Klippið þráðinn frá. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: = 116-120-124-128-132-136 lykkjur. Nú er prjónað í hring yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ XS, S, M og L: Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og A.2 og aukið út fyrir laskalínu á fram- og bakstykki og ermar (hvoru megin við A.2) í annarri hverri umferð alls 3-3-8-10 sinnum = 140-144-188-208 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, A.2 og útaukning fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út er einungis aukið út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-20-16-18 sinnum á fram- og bakstykki (9-10-8-9 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 25-27-28-32 sinnum á fram- og bakstykki og 14-15-18-21 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 248-264-284-316 lykkjur í umferð. Farið áfram í ALLAR STÆRÐIR: STÆRÐ XL og XXL: Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og A.2 og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í hverri umferð á fram- og bakstykki og 2-6 sinnum til viðbótar og í annarri hverri umferð á ermum 1-3 sinnum til viðbótar = 144-172 lykkjur. Síðan er aukið út á fram- og bakstykki og ermum (í hvorri hlið á A.2) í annarri hverri umferð alls 9-9 sinnum = 216-244 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, A.2 og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út er einungis aukið út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 20-20 sinnum á fram- og bakstykki (10-10 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 35-39 sinnum á fram- og bakstykki og 22-24 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 336-364 lykkjur í umferð. Farið áfram í ALLAR STÆRÐIR: ALLAR STÆRÐIR: = 248-264-284-316-336-364 lykkjur. Prjónið sléttprjón og A.2 án útaukningar þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá miðju að framan á eftir stroffi í hálsmáli. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 37-41-42-48-51-57 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 49-51-57-63-65-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 75-81-85-95-103-113 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 49-51-57-63-65-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 38-40-43-47-52-56 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-174-186-206-226-246 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð þegar skipta á stykkinu upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17 cm frá skiptingu. Í næstu umferð skiptist stykkið við prjónamerkin, þ.e.a.s. setjið 81-87-93-103-113-123 lykkjur á milli 2 prjónamerkja á hringprjón 4 og látið þær 81-87-93-103-113-123 lykkjur sem eftir eru hvíla á hringprjóni 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 20-20-22-24-24-28 lykkjur jafnt yfir = 101-107-115-127-137-151 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Setjið síðustu 81-87-93-103-113-123 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 20-20-22-24-24-28 lykkjur jafnt yfir = 101-107-115-127-137-151 lykkjur. Prjónið stroff eins og á hinu stykkinu í 8 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 49-51-57-63-65-69 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-57-65-71-75-79 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-6-3½-3-2½-2 cm millibili alls 6-6-9-11-12-13 sinnum = 43-45-47-49-51-53 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 38-37-35-34-32-30 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-41-40-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (31)
Juniper wrote:
Hello, can you please make some videos specifically for this pattern? The videos do not show how to increase for the body only on the wrong side in the short rows. I’ve torn it out and redone my sweater about 12 times. Also, there seems to be a step missing between the end of the double neck and the neck line (the video shows a setup round where you increase by 8). If you do not do the setup round, you will be missing 8 stitches when you start the yoke.
31.03.2024 - 04:36Marta wrote:
Que quiere decir que hay que cortar el hilo ? No se sigue tejiendo on misma hebra?
09.02.2024 - 01:24DROPS Design answered:
Hola Marta, sí, se corta el hilo y se reúne en el nuevo comienzo de la vuelta. Generalmente se hace esto cuando tienes que comenzar la vuelta en un punto diferente a dónde dejaste de trabajar; para no desalinear la prenda, se corta el hilo y se une en el sitio necesario para empezar a trabajar la siguiente parte.
11.02.2024 - 20:59Corina Avram wrote:
Hello, I want to make this sweater longer than the pattern, where can I add more length to it? Would be before starting working the rib? Thank you
31.01.2024 - 12:51DROPS Design answered:
Hi Corina, Yes, the length of the body can be adjusted to your desired length before working the rib. Happy knitting!
01.02.2024 - 07:05Liesbeth Van Vliet wrote:
Ik wil dit graag op rechte ipv rondbreinaalden breien. Is het mogelijk om het om te zetten? Ik kon er geen filter voor vinden.Of is op rechte naalden breien inmiddels zo achterhaald dat dat nergens meer te vinden is?
09.01.2024 - 17:46DROPS Design answered:
Dag Liesbeth,
Er is inderdaad geen filter voor patronen met rechte naalden en Noorse patronen worden veelal van oorsprong met rondbreinaalden gemaakt. Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier. Helaas is niet niet voor alle patronen geschikt, maar kijk maar even of je hier wat aan hebt.
10.01.2024 - 10:15Maylén wrote:
Jeg strikker størrelse XL og er nå ferdig med økninger og A1. Hadde da 132 masker, har økt 1 omgang til bolen og 1 omgang kun ermer = (132+8+4)=144 masker. Men i oppskriften står det at man skal øke til bolen 2 ganger, til ermer 1 gang (132+8+4+8)=152 masker. Det går ikke opp ut fra oppskriften. Er dette en feil ved oppskriften, eller er det noe jeg har gått glipp av her?
25.12.2023 - 10:51DROPS Design answered:
Hej Maylén, du har 132m + (2x4 till bolen) + (1 x 4 till ærmerne) = 144 masker :)
02.01.2024 - 09:58Marie-Martine MARC wrote:
Bonjour, je suis en train de tricoter le pull Octobre Breeze 236 14 en taille M. Il me semble impossible d'obtenir le même nombre de mailles que vous pour l'encolure. En additionnant le nombre de jetés cela ne correspond pas. J'obtiens 114 et non 124. Pouvez vous m'aider s'il vous plaît. J'ai refait 5 fois. Un grand merci d'avance. Très cordialement.
11.12.2023 - 20:10DROPS Design answered:
Bonjour Mme Marc, en taille L vous commencez l'encolure avec 92 mailles, vous augmentez 2 mailles au 1er rang de A.1 , soit 2 mailles x 4 A.1 = 8 mailles augmentées; vous augmentez en même temps pour le raglan 8 m sur l'endroit et 4 m sur l'envers soit (8+4+8+4=24 m), vous aurez donc: 92+8+24=124 mailles quand les rangs raccourcis de l'encolure sont terminés. Bon tricot!
12.12.2023 - 08:52Denise wrote:
Bonjour, je tricote la taille m et après avoir fait l'encolure j'obtiens 116 mailles et non 124. 116 mailles correspond aux 92 mailles de départ plus les 24 mailles ajoutées en tricotant l'encolure. Manque t il des rangs pour la rehausse en taille M ? Cordialement.
06.12.2023 - 20:37DROPS Design answered:
Bonjour Denise, vous devez augmenter 2 mailles au 1er rang de chaque A.1 en plus des augmentations du raglan, autrement dit, au 1er rang, vous augmentez 8 m (raglan) + 8 m (2 m dans chaque A.1), puis 4 m au 2ème rang, 8 m au 3ème rang et 4 m au 4ème rang = 92+8+8+4+8+4=124 mailles. Bon tricot!
07.12.2023 - 08:38Josie Weatherford wrote:
Hi thank you for the pattern, and I love your yarn and everything you do. Can I make a suggestion? In the beginning section when describing raglan, can you change it to make the yarn-overs be called a M1R and M1L stitch? This is what we call it in English. This simple description would have saved me from making holes in the yarn overs. You explained in detail what the yarn overs should look like not to leave a hole but it seemed so complicated I skipped it. When I read it again I realised.
18.10.2023 - 07:19Christine S-Nilson wrote:
I am working on size m starting with 92 stitches. In the neck line section I worked 4 rows increasing 8/4/8/4 as instructions show. Now I have 116 stitches. The yoke section starts with 124 stitches for size m. What am I doing wrong?
13.10.2023 - 16:46VD wrote:
Hej, har gjort halsrigningen ca 6 ggr nu och ger upp för kvällen då det inte blir bra alls/fel antal maskor. Ska jag följa diagrammet från rätsidan enbart? eller både rät- och avigsidan? Blev förvirrad då diagrammet visar instruktioner från både rät/avigsidan samt texten säger annat. Hoppas ni kan hjälpa mig så att jag kan gå vidare.
22.09.2023 - 21:54DROPS Design answered:
Hej, halsen strikkes i rib; 1rät, 1avig. Sedan fortsäter du i slätstickning med A.1 vi varje markör (4 raglan-markörer) :)
05.10.2023 - 08:30