Spice Market |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 233-10 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum eftir stærðum. Öll útaukning er gerð á undan/á eftir A.1/A.2 (lykkja með prjónamerki er miðjulykkjan í A.1/A.2). Aukið út fyrir fram- og bakstykki á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki þega prjónað er frá réttu / á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá röngu. Aukið út fyrir ermar á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki (alltaf er aukið út frá réttu á ermum). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður frá röngu þannig: Á UNDAN A.1/A.2: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR A.1/A.2: Lyftið uppslættinum af vinstra prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni aftan í uppsláttinn þegar hann er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður frá réttu þannig (þetta á einnig við þegar stykkið er prjónað í hring): Á UNDAN A.1/A.2: Lyftið uppslættinum af vinstra prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni aftan í uppsláttinn þegar hann er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR A.1/A.2: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með DROPS Alaska. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9-9-9-11-11-11 cm. Í næstu umferð eru 4 prjónamerki sett í stykkið, þetta er gert jafnframt því sem aukið er út um 4 lykkju í umferð eins og útskýrt er að neðan – prjónamerkin eru notuð þegar aukið á út fyrir laskalínu (hvert prjónamerki er sett í slétta lykkju frá stroffi): Prjónið 10-12-12-14-14-16 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkju slétt (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21-23-25-27-29-31 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 2 lykkjur jafnt yfir (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 11-11-13-13-15-15 lykkjur og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki) = 92-96-100-104-108-112 lykkjur. Klippið þráðinn. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu – þetta er gert eins og útskýrt er að neðan. Að auki er A.1 prjónað við hvert prjónamerki (lykkja með prjónamerki er miðjulykkjan í A.1). Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan lykkju með 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón, A.1 og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. prjónamerki (hægri hlið á hálsmáli að framan – nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá röngu og aukið út fyrir laskalínu einungis á fram- og bakstykki þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stutta umferðin byrjaði við 3. prjónamerki (nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá réttu og aukið út fyrir laskalínu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki, en nú er prjónað A.2 yfir lykkjur í A.1 (A.2 er endurtekið síðan á hæðina – nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá röngu og aukið út fyrir laskalínu einungis á fram- og bakstykki þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki (nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir laskalínu). Klippið þráðinn. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: = 124-128-132-136-140-144 lykkjur. Nú er prjónað í hring yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ S, M, L og XL: Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og A.2 og aukið út fyrir laskalínu á fram- og bakstykki og ermar í annarri hverri umferð alls 2-8-10-11 sinnum = 140-192-212-224 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, A.2 og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-15-14-16 sinnum á fram- og bakstykki (9-7-7-8 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 24-27-28-31 sinnum á fram- og bakstykki og 13-17-19-21 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 248-280-296-320 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XXL og XXXL: Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og A.2 og haldið áfram með útaukningar fyrir laskalínu í hverri umferð á fram- og bakstykki 2-6 sinnum til viðbótar og í annarri hverri umferð á ermum 1-3 sinnum til viðbótar = 152-180 lykkjur. Aukið síðan út á fram- og bakstykki og ermum í annarri hverri umferð alls 10-7 sinnum = 232-236 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, A.2 og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-22 sinnum á fram- og bakstykki (9-11 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 34-39 sinnum á fram- og bakstykki og 22-23 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 340-368 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: = 248-280-296-320-340-368 lykkjur. Prjónið sléttprjón og A.2 án útaukningar þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm mælt mitt að framan á eftir stoffi í hálsmáli. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 37-42-43-48-51-58 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 75-83-87-95-103-115 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 38-41-44-47-52-57 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-178-190-206-226-250 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20-22-26-26-32 lykkjur jafnt yfir = 182-198-212-232-252-282 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laus með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 49-57-61-65-67-69 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-63-69-73-77-79 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-3½-3-2½-2-2 cm millibili alls 7-10-12-13-15-15 sinnum = 41-43-45-47-47-49 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 43-41-40-38-36-35 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-5-5-5-7-7 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 48-46-45-43-41-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki og festið niður með 4 sporum með því að sauma það niður með einu spori í hverja laskalínu. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (31)
Amber wrote:
Hello again, I am knitting 233 -10. I have finished the short rows. So now I am starting the yoke. I don't understand diagram A2. Please can you explain.
03.06.2024 - 12:25DROPS Design answered:
Dear Amber, when you work the short rows on neckline, you read the RS rows from the right towards the left and the WS rows from the left towards the right - when working A.2 in the round, always read from the right towards the left every row, so last row in A.1 and all rows in A.2 are worked as follows, seen from RS: P2, K1, P2. Happy knitting!
03.06.2024 - 12:55Amber Again wrote:
It's OK. I worked it out.
12.05.2024 - 20:18Amber Again wrote:
Hi, my apologies. Please ignore last question. My problem is after knitting 21 for the 2nd sleeve, I have 17 stitches left not 13. 96 - 12 - 21 - 25 - 21 leaves 17.
12.05.2024 - 18:26Amber Again wrote:
Hi there, Me again. I'm still confused. How does inserting 4 stitch markers create 4 more stitches? Do I need to increase here as well?
12.05.2024 - 18:01Amber wrote:
Hello, I am knitting 233-10 size large. So I have cast on 96 stitches. Then it says knit 12, 21, 25, 21,13 with 4 stitches increased. This adds up to 96 but the pattern says 100. The maths isn't right.can you help me please. Amber
07.05.2024 - 17:49DROPS Design answered:
Dear Amber, note that the 4 markers are each inserted in one stitch, these might be the 4 sts you are missing: 12, 21, 25, 21, 13 + 4 sts increased + 4 stitches with each a marker = 100. Happy knitting!
08.05.2024 - 07:32Eva Arnström Sundman wrote:
Borde det inte vara inskrivet omslag, dvs ökningar, även i A2 på samma sätt som i A1?
22.04.2024 - 20:44DROPS Design answered:
Hej Eva, A.1 strikkes kun 1 gang og her tager du ud i midten så du kan fortsætte ifølge A.2. Udtagningerne til raglan er ikke tegnet ind i diagrammet.
23.04.2024 - 15:13Viviana wrote:
Buongiorno, Cosa intendete quando scrivete di lavorare A2 su A1 nella sezione scollatura?. E come si può aumentare le maglie vicino a segna punti (A1) e ottenere il modello al rovescio uniforme? Grazie
20.04.2024 - 10:26DROPS Design answered:
Buonasera Viviana, alla fine di A.2 deve lavorare A,1 sulla scollatura. Riguardo gli aumenti, a quale parte del modello sta facendo riferimento? Buon lavoro!
21.04.2024 - 23:08Jane wrote:
Hi, I'm a bit confused with Yoke. I have 140 stitches for XXL after the neckline, but not sure how to increase for raglan. Also, when it says "Start mid-back, work stocking stitch and A.2, continuing to increase for raglan on the body on every round 2-6 more times and every other round on the sleeves1-3 more time", which side of the sleeves should increase?
21.11.2023 - 23:45DROPS Design answered:
Hi Jane, You began A.2 on the neckline and the diagram is continued on the yoke, with stocking stitch across the other stitches. The increases for raglan are different on the body and sleeves and at this stage you increase only on the body the first round (before markers 1 and 3 and after markers 2 and 4), then on both sides of all A.2 on the 2nd round (on both the body and sleeves). Do this twice on the body in your size (one time on the sleeves). Then continue before and after all A.2, every 2nd round 10 times. Continue by following the instructions, with these explanations in mind. Hope this helps and happy knitting! '
22.11.2023 - 06:46Ayse Coskun wrote:
Spice Market, herre bluse, størrelse M- Jeg prøver at strikke til min søn. Men jeg kan ikke forstå godt strikning af RAGLAN! Efter Dobbelt Halskant har vi 96 masker. OK men hvordan kan jeg få 128 masker efter Halsudskæring? Til sidst: Kan I vise os, den slags Raglan under Tips&Hjælp sider? Med venlig hilsen.
10.09.2023 - 15:55DROPS Design answered:
Hei Ayse. Jo, du har 96 masker etter den doble halskanten er ferdig. Nå skal det strikkes forkortete pinner, A.1 og økning til raglan. Når du strikker A.1 økes det med 2 masker hver gang A.1 strikkes + raglan i forkortete pinner (8+4+8+4 økte masker til raglan). Du har da 96 masker (halsen) + 8 masker (A.1) + 24 (raglansøkninger i forkortete pinner) = 96+8+24= 128 masker. Ta en titt på videoen: Hvordan tages der ud til raglan og strikkes forkortede pinde samtidigt Ikke samme raglan (A.1), men kanskje vil være en hjelp å se. mvh DROPS Design
18.09.2023 - 10:56Lise wrote:
Er I vildrede det er første gang jeg prøver raglan.i fx mønstret når man tager ud indenfor vrang maskerne vil det ikke give vifte og at der derfor bliver længere mellemrum mellem de 2 vrang og midtersømmen?
29.04.2023 - 16:11