DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki |
1001.00 kr /25g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki 1001.00 kr /25g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu | |
= setjið 2 lykkjur á kaðlaprjóninn framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= setjið 2 lykkjur á kaðlaprjóninn aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Cracked Walnuts Sweater |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk og DROPS Puna / DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri, garðaprjóni, köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli og stroffprjóni. Stærð XS - XXL.
DROPS 235-1 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. PRJÓNAÐ SAMAN: FRÁ RÉTTU: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt. FRÁ RÖNGU: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. SLÉTTPRJÓN: Þegar prjónað er frá röngu er prjónað brugðið og þegar prjónað er frá réttu er prjónað slétt. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið 1 lykkju fram hjá prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn. Þegar prjónað á A.2, prjónið útaukningu brugðið, þegar prjónað er A.7, prjónið útaukningu jafnóðum inn í mynstur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað neðan frá og upp, fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður upp tvöfaldur kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 98-110-110-122-134-146 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 114-128-128-142-156-170 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið síðan mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist 16-17-19-19-21-22 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 27-36-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 87-92-92-102-112-122 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.5 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. A.5 er endurtekið á hæðina. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 33-35-36-38-39-41 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.6 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 138-146-146-162-178-194 lykkjur í umferð. Prjónið síðan mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.7 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið A.7 alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 45-47-48-50-51-53 cm. Prjónið síðan mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.8 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 51-54-54-60-66-72 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 87-92-92-102-112-122 lykkjur. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.8a áfram á hæðina að loknu máli. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 27-30-30-32-32-34 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl (30-31-31-35-40-44 lykkjur) eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja í byrjun á umferð = 29-30-30-34-39-43 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, prjónið skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: * Prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 7-7-7-8-9-10 lykkjur, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónið yfir 7-7-7-8-9-10 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli. Í síðustu umferð við háls eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 31-32-32-36-41-45 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur. Lykkjurnar sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkja SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu / næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóninn sem voru á þræði frá röngu á stykki, passið uppá að herða ekki of á þræðinum *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur af öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið af 2 lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm = 87-92-92-102-112-122 lykkjur. Nú eru miðju 15-18-18-20-20-22 lykkjur settar á þráð og hvor öxl (36-37-37-41-46-50 lykkjur) er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur alls 2 sinnum og 1 lykkju alls 3 sinnum = 29-30-30-34-39-43 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan hvora öxl áfram á sama hátt og á bakstykki: ERMI: Fitjið upp 60-60-60-72-72-72 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri gerð. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 70-70-70-84-84-84 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið A.3 yfir allar lykkjur. Prjónið A.3 alls 2 sinnum á hæðina. Prjónið A.8 yfir allar lykkjur, í fyrstu umferð er fækkað um 22-22-22-26-26-26 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-58-58-58 lykkjur. Endurtakið A.8a á hæðina að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 3½-3½-2½-3-3-2 cm millibili alls 6-6-8-6-6-8 sinnum = 60-60-64-70-70-74 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Fellið af þegar ermin mælist 40-40-41-39-37-35 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við 1 lykkju í kanti. Saumið ermar í. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 76 til 104 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) frá réttu, á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir allar lykkjur. Þegar kantur í hálsmáli mælist 14 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur með hringprjón 5,5 (þetta er gert til að affellingarkanturinn dragi ekki hálsmálið saman). Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (39)
Sylvie Nortier wrote:
Bonjour je comprends pas l augmentation de A2 il faut faire 1end1jette4enve1end tout le long du rang mais là j' ai plus de 6 augmentations merci de me dire
31.05.2024 - 19:28Sylvie Nortier wrote:
Je ne comprends pas comment faire 1 maille lisière au POINT MOUSSE – voir ci-dessus, tricoter A.1 jusqu’à ce qu’il reste 1 maille, 1 maille au point mousse.
23.05.2024 - 19:22DROPS Design answered:
Bonjour Mme Nortier, tricotez ainsi sur l'endroit: 1 m point mousse (- à l'endroit); répétez les 4 mailles de A.1 (= 1 m end, 2 m env, 1 m end) jusqu'à ce qu'il reste 1 maille et terminez par 1 m point mousse (- à l'endroit); tricotez sur l'envers ainsi: 1 m point mousse, répétez les 4 m de A.1 (= 1 m end, 2 m env, 1 m end) jusqu'à c qu'il reste 1 m et terminez par 1 m point mousse. Bon tricot!
24.05.2024 - 07:43Joelle wrote:
Bonjour . Pour le modèle 235-1 , les diagrammes sont tous sur l endroit ? Si oui à l envers doit on tricoter e cela se présente ? Et pour le diagramme A2 , comment peut on avoir à la fin de celui ci 20 mailles de plus ( taille L) si je ne fais qu une seule fois un jeté ? Ça doit avoir un rapport avec le terme : tricoter 1 fois en hauteur mais ça veut dire quoi ? Désolée mais je suis dessus depuis 1 heure et je n arrive pas a comprendre... merci
15.02.2024 - 00:05DROPS Design answered:
Bonjour Joëlle, tous les rangs figurent dans le diagramme, ceux sur l'endroit aussi bien que ceux sur l'envers; en taille L, on répète 20 fois les 6 mailles de A.2, en augmentant 1 maille dans chaque A.2, vous augmentez 20 mailles au total à l'avant-dernier rang de A2. Tricoter 1 fois en hauteur veut simplement dire que vous tricotez tous les rangs 1 seule fois, du 1er au dernier rang du diagramme. Bon tricot!
15.02.2024 - 07:35Gaetane wrote:
Bonjour! Suite à ma 1ère question, je comprends ce que vous expliquez dans votre réponse ! Merci 🙏, mais pourrais-je prendre tout simplement 1 couleur sans tricoter 2 fils en même temps ? Merci 🙏
16.01.2024 - 13:07DROPS Design answered:
Bonjour Gaetane, vous pouvez alors utiliser 1 fil du groupe de fils C pour obtenir la même tension et remplacer ici 1 fil du groupe B + 1 fil du groupe A.Mais pensez bien, comme toujours à vérifier votre tension. Bon tricot!
17.01.2024 - 08:48Gaetane wrote:
Bonjour je lis votre patron au début vous parlez de 2 couleur , nougat et amande ! Serait-ce que ça prends 2 sorte de couleur pour réaliser ce pull ? Merci 🙏
13.01.2024 - 18:42DROPS Design answered:
Bonjour Gaetane, tout à fait, on tricote ici avec 2 fils en même temps, soit 1 fil Puna + 1 fil Kid-Silk ou bien 1 fil Merino Extra Fine + 1 fil Kid-Silk, pensez à bien vérifier votre échantillon qui se tricote en jersey avec ces 2 fils (l'une ou l'autre version au choix), et adaptez la taille de vos aiguilles si besoin. Bon tricot!
15.01.2024 - 09:17Lotta wrote:
Have you changed size standards recently? I have always used size S. In this model (and in many others) even size XS is much too big for me. I've never had a problem like this before.
07.01.2024 - 16:11DROPS Design answered:
Dear Lotta, our sizing hasn't changed too much from before. But the sizing is established depending on the garment. For example, the chest for this jumper is bigger because it has a looser fit compared to other jumpers. So, even though it's for the same size, there can be slight changes in measurements between patterns. Happy knitting!
07.01.2024 - 18:07Diane wrote:
Ik ben de mouw aan het breien maar moet bij dit model meerderen in gerstekorrel maar wat ik ook doe,ik ga op een gegeven moment of 2 rechte steken of 2 averechte steken naast elkaar krijgen hoe kan ik dit voorkomen?\r\nMooi is het niet.ik ben de mouw op een rond breinaald aan het breien.moet 1steek breien dan een omslag de naald tot 2 steken voor het einde breien dan een omslag dan de laatste 2 steken breien,maar krijg toch 2 dezelfde steken naast elkaar en dat is niet mooi
27.12.2023 - 21:43DROPS Design answered:
Dag Diane,
Klopt, dit is helaas niet te voorkomen. De gerstekorrel wordt een tijdje verbroken totdat je weer meerdert. Gelukkig zit dit aan de onderkant van de mouw, waardoor het niet heel erg opvalt.
30.12.2023 - 18:07Susi wrote:
Kann ich bei diesem Schnitt die Ärmelmaschen auch einfach an den Rändern aufnehmen?. Dann müsste ich sie doch nicht extra einnähen . Was müsste ich dabei beachten?
18.12.2023 - 15:38DROPS Design answered:
Liebe Susi, wenn Sie die Ärmel von oben nach unten stricken dann sind die Muster nicht genauso wie beim Rumfpteil, am besten stricken Sie die Ärmel von unten nach oben genauso wie bei der Anleitung. Viel Spaß beim stricken!
18.12.2023 - 16:26Abdou wrote:
Bonjour, Je ne suis pas une experte dans le tricot, mais j'aime beaucoup vos modèles. J'ai commencé à tricoté ce modèle et je beugue un peu sur le diagramme A2. Est ce que je tricote 1 maille envers puis 4 endroits et 1 maille envers, puis je recommence à chaque fois 1-4-1 ou pas?? Je ne sais pas si je suis assez claire. Merci d'avance pour votre réponse.
06.10.2023 - 21:26DROPS Design answered:
Bonjour Mme Abdou, tout à fait, sur l'endroit, vous tricotez (1 m env, 4 m end, 1 m env), autrement dit sur l'envers (1 m end, 4 m env, 1 m end) et vous répétez de (à) tout le rang. Bon tricot!
09.10.2023 - 08:17Broux wrote:
Bonjour, quand on a tricoté A8a on termine par un rang endroit.On commence alors l'encolure sur l'envers?
30.05.2023 - 18:22DROPS Design answered:
Bonjour Mme Broux, l'encolure ne se fait pas en fonction du rang de A.8a mais en fonction de la hauteur pour votre taille, adaptez si vous le souhaitez et si besoin pour former l'encolure sur l'endroit. Bon tricot!
31.05.2023 - 08:12